
Hjörvar Blær tekur við sem forstöðumaður útflutnings hjá Eimskip
Hjörvar Blær Guðmundsson hefur verið ráðinn forstöðumaður útflutningsdeildar hjá Eimskip.
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.
Hjörvar Blær Guðmundsson hefur verið ráðinn forstöðumaður útflutningsdeildar hjá Eimskip.
Sjö láta af störfum og tvö hafa verið ráðin til félagsins Festi í skipulagsbreytingum. Þá hafa ýmis svið verið sameinuð.
Kristinn Ólafsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Sólheima ses. til fimm ára frá og með 1. júní næstkomandi.
Þórbergur Guðjónsson, reynslumesti starfsmaður Arion í fyrirtækjaráðgjöf, hefur sagt upp stöfum hjá bankanum og ráðið sig yfir til Arctica Finance.
Embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur verið auglýst laust til umsóknar af heilbrigðisráðuneytinu.
Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson sneri aftur á sjónvarpsskjáinn í gærkvöldi þegar hann stýrði upphitunarþætti fyrir leik Manchester United og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á Símanum Sport í gærkvöldi.
Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður hefur verið valin þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem Klúbbur matreiðslumeistara heldur utan um og rekur.
Ingi Björn Guðnason, bókmenntafræðingur, hefur verið ráðinn staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Hann var ráðinn úr hópi sautján umsækjenda og tók við starfinu í síðasta mánuði.
Stefanía Nindel hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri fjármála og stafrænna innviða hjá Framkvæmdasýslunni Ríkiseignum. Hún hóf störf í upphafi mánaðar.
Ólafur Egill Egilsson tók í gærkvöldi við embætti formanns Félags leikstjóra á Íslandi. Ólafur tekur við formennsku af Kolbrúnu Halldórsdóttur sem tekur við stöðu formanns BHM síðar í vikunni.
Þórdís Valsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður útvarpsmiðla Sýnar. Útvarpsstöðvarnar sem Þórdís mun stýra eru Bylgjan, FM957, X977, Gullbylgjan, Léttbylgjan og Íslenska bylgjan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn.
Heiðdís Inga Hilmarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni.
Hilmar Stefánsson, Þóra Eggertsdóttir og Ófeigur Friðriksson hafa öll verið ráðin nýir framkvæmdastjórar hjá Kynnisferðum.
Monika Hjálmtýsdóttir hefur tekið verið formennsku í Félagi fasteignasala. Hún tekur við af Hannesi Steindórssyni sem hafði gegnt embættinu frá 2021.
Nicole Leigh Mosty hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra leikskólans Mánalands í Vík í Mýrdal.
Samkvæmt heimildum Vísis er talið næsta víst að Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða hf. og Laxa fiskeldis hf. verði fyrir valinu sem næsti framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mikið er undir.
Eyjólfur Árni Rafnsson var endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins á aðalfundi samtakanna í dag.
Unnur Elva Arnardóttir, forstöðumaður hjá Skeljungi, var kjörin nýr formaður Félags kvenna í atvinnulífinu á aðalfundi félagsins sem haldinn var í síðustu viku.
Ingólfur Haraldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fasteigna hjá Íslandshótelum og Lijing Zhou sem sérfræðingur í sjálfbærni hjá sama fyrirtæki.
Halla Guðrún Jónsdóttir hefur tekið við starfi fjármála- og rekstrarstjóra hjá Eyri Invest hf. Hún kemur til Eyris frá Marel.
María Guðjónsdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur Viðskiptaráðs.
Framkvæmdastjóri og eigandi Birtings útgáfufélags segir ekkert athugavert við mannabreytingar á ritstjórn Vikunnar. Miklar breytingar hafi verið á umhverfi fjölmiðla undanfarið. Framkvæmdastjórinn vill ekki opinbera hver nýr ritstjóri sé, heldur gefa viðkomandi færi á að opinbera það sjálfur.
Gréta María Grétarsdóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Arctic Adventures í eitt og hálft ár, mun taka við sem forstjóri Heimkaupa, samkvæmt heimildum Innherja. Hennar verkefni verður að byggja upp nýtt afl á smásölumarkaði en rekstur Heimkaupa verður í breyttri mynd þar sem allar einingar sem snúa að verslunarrekstri Orkunnar verða seldar til Heimkaupa.
Sölvi Sölvason lögmaður og Harpa Rut Sigurjónsdóttir hafa verið ráðin til Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Stjórn Arctic Adventures hefur ráðið Ásgeir Baldurs í starf forstjóra Arctic Adventures hf. Gréta María Grétarsdóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Arctic Adventures hefur sagt upp störfum. Hún hefur stýrt félaginu frá árslokum 2021 en starfaði þar áður hjá Brimi og Krónunni.
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, hefur tekið við stjórnarformennsku hjá KLAK - Icelandic Startups, en ný stjórn tók við störfum á aðalfundi félagsins í síðasta mánuði.
Lífsskoðunarfélagið Siðmennt réði Eyjólf Örn Snjólfsson í stöðu framkvæmdastjóra. Eyjólfur starfaði síðast sem framkvæmdastjóri Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR). Hann er þriðji framkvæmdastjóri félagsins á rétt rúmu ári.
Ingvar Haraldsson er nýr samskiptastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Ingvar hefur starfað sem aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins frá árinu 2018. Fyrir það hefur hann verið viðskiptablaðamaður hjá Viðskiptablaðinu, Fréttablaðinu og Vísi.
Sveinn Bjarki Brynjarsson hefur verið ráðinn tæknistjóri Swapp Agency og hefur hann þegar hafið störf.
Guðný Björg Hauksdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra mannauðs og umbóta sem er nýtt svið hjá Landsneti og Svandís Hlín Karlsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar hjá Landsneti sem líka er nýtt svið.