Erla Björg nýr fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar Erla Björg Gunnarsdóttir er nýr fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Hún tekur við af Hrund Þórsdóttur sem lét af störfum í gær. Erla hefur unnið á fréttastofunni frá 2013 og var starfandi fréttastjóri á tímabili. Viðskipti innlent 8. september 2020 11:10
Steinunn og Úlfar til Samtaka iðnaðarins Steinunn Pálmadóttir og Úlfar Biering Valsson hafa verið ráðin til Samtaka iðnaðarins og hafa nú þegar hafið störf hjá samtökunum. Viðskipti innlent 8. september 2020 09:48
Gunnar, Hugrún og Sigrún til starfa hjá nýju sveitarfélagi Hugrún Hjálmarsdóttir, Sigrún Hólm Þórleifsdóttir og Gunnar Valur Steindórsson hafa verið ráðin til starfa hjá nýsameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi. Viðskipti innlent 4. september 2020 11:16
Innáskiptingar hjá Síldarvinnslunni Síldarvinnslan hefur ráðið rekstrarstjóra útgerðar, uppsjávarfrystingar og fiskimjölsverksmiðju auk þess sem nýir menn eru í brúnni í viðhaldsmálum í fiskiðjuverinu og við stjórnun verksmiðjunnar á Seyðisfirði. Viðskipti innlent 3. september 2020 16:21
Guðmundur nýr stjórnarformaður CRI Guðmundur Þóroddsson er nýr stjórnarformaður íslenska tæknifyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) en aðalfundur félagsins fór fram undir lok nýliðins ágústmánaðar. Viðskipti innlent 3. september 2020 12:38
Kveður Ísland og heldur til Pretóríu Håkan Juholt, sem gegnt hefur starfi sendiherra Svíþjóðar á Íslandi síðustu ár, vann sinn síðasta vinnudag í sendiráðinu í vikunni og hefur nú yfirgefið landið. Hann mun nú taka við starfi sendiherra Svíþjóðar í Suður-Afríku. Innlent 3. september 2020 11:28
Stefán Óli til aðstoðar Pírötum Stefán Óli Jónsson fréttamaður hefur verið ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Pírata. Viðskipti innlent 2. september 2020 11:22
Benedikt nýr forseti Hæstaréttar Benedikt Bogason tók í dag við embætti forseta Hæstaréttar af Þorgeiri Örlygssyni sem gegnt hefur embættinu frá 1. janúar 2017. Innlent 1. september 2020 12:29
Ráðin framkvæmdastjóri Hårklinikken á Íslandi Rakel Pálmadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Hårklinikken á Íslandi. Viðskipti innlent 31. ágúst 2020 13:29
Jónas Gestur tekur við stjórnarformennsku hjá Deloitte Jónas Gestur Jónasson er nýr stjórnarformaður Deloitte á Íslandi en nokkrar breytingar verða á stjórnendateymi Deloitte núna um mánaðamótin. Viðskipti innlent 31. ágúst 2020 10:54
Kristjana Milla nýr mannauðsstjóri Borgarleikhússins Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikhúsinu. Viðskipti innlent 31. ágúst 2020 10:51
Björn Víglundsson nýr forstjóri Torgs Björn Víglundsson verður næsti forstjóri Torgs. Viðskipti innlent 28. ágúst 2020 10:16
Þorgeir ráðinn framkvæmdastjóri brunavarnasviðs HMS Þorgeir Óskar Margeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri brunarvarnasviðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem mun taka til starfa á Sauðárkróki 1. október næstkomandi. Innlent 26. ágúst 2020 10:57
Þrír frá Capacent til KPMG Grétar Árnason, Hjálmur Hjálmsson og Styrmir Geir Jónsson hafa verið ráðnir til starfa hjá ráðgjafasviði KPMG. Þeir störfuðu allir áður hjá Capacent. Viðskipti innlent 26. ágúst 2020 10:38
Sérfræðingur hjá lögreglunni til Nasdaq Baldvin Ingi Sigurðsson hefur verið ráðinn til starfa sem yfirmaður eftirlitsmála hjá Nasdaq Iceland, eða Kauphöllinni. Viðskipti innlent 25. ágúst 2020 09:53
Tinni Kári ráðinn ráðningarstjóri Tinni Kári Jóhannesson hefur verið ráðinn ráðningarstjóri og „senior ráðgjafi“ hjá Góðum samskiptum. Viðskipti innlent 24. ágúst 2020 10:12
Sendiráðið stækkar um þriðjung Tuttugu hugbúnaðarsérfræðingar, hönnuðir og ráðgjafar starfa nú hjá Sendiráðinu. Viðskipti innlent 18. ágúst 2020 15:51
Sigurður nýr sparisjóðsstóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga Sigurður Erlingsson, fjármálastjóri Heklu, hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga ses. Viðskipti innlent 17. ágúst 2020 10:26
Marteinn Jónsson nýr framkvæmdastjóri Veltis Marteinn Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Veltis – Volvo atvinnutækjasviðs Brimborgar. Marteinn er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og hefur lengst af starfað hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki sem framkvæmdastjóri verslunar- og þjónustusviðs. Bílar 13. ágúst 2020 07:00
Kolfinna til SSNV Kolfinna Kristínardóttir hefur verið ráðin til Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) sem atvinnuráðgjafi með áherslu á nýsköpun. Viðskipti innlent 12. ágúst 2020 08:37
María Fjóla nýr forstjóri Hrafnistu Hjúkrunarfræðingurinn María Fjóla Harðardóttir var í dag ráðin forstjóri Hrafnistuheimilanna frá og með 1. september næstkomandi. Innlent 11. ágúst 2020 21:53
Halldóra og Ingi skipuð héraðsdómarar Hæfnisnefnd mat Halldóru og Inga hæfust í embættin í síðasta mánuði. Innlent 4. ágúst 2020 13:52
304 blaðberum Póstdreifingar sagt upp Póstdreifing, sem er í eigu Torgs og Árvakurs, útgefenda Fréttablaðsins og Morgunblaðsins, hefur sagt upp öllum blaðberum sínum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Viðskipti innlent 31. júlí 2020 10:20
Jóhann Möller ráðinn framkvæmdastjóri Stefnis Jóhann Möller hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stefnis hf. og mun taka við starfinu 1. ágúst. Viðskipti innlent 29. júlí 2020 14:55
Arnór endurskipaður forstjóri Menntamálastofnunar Arnór Guðmundsson hefur verið endurskipaður í embætti forstjóra Menntamálastofnunar til næstu fimm ára. Innlent 29. júlí 2020 10:03
Hrönn næsti forstjóri MAST Hrönn Jörundsdóttir hefur verið ráðin næsti forstjóri Matvælastofnunar. Innlent 22. júlí 2020 10:01
Doktor í hjúkrunarfræði nýr aðstoðarrektor Kvikmyndaskólans Dr. Sigrún Sigurðardóttir, dósent á Heilbrigðisvísindasviði við Háskólann á Akureyri, hefur verið ráðin aðstoðarrektor Kvikmyndaskóla Íslands frá 1. september næstkomandi. Innlent 21. júlí 2020 10:24
BL nælir í markaðsstjóra frá Sjóvá Sigurjón Andrésson yfirgefur Sjóvá fyrir BL. Viðskipti innlent 21. júlí 2020 10:16
Auður nýr framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur Auður er með B.S. gráðu í landfræði, cand. mag gráðu í landfræðilegum upplýsingakerfum og meistaragráðu í forystu og stjórnun. Innlent 20. júlí 2020 11:44
N1 festir kaup á Ísey skyrbar N1 hefur keypt rekstur Ísey skyrbar á þjónustustöðvum sínum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 17. júlí 2020 10:43