Greinir frá ástæðu þess að hann fór frá Liverpool Jordan Henderson, fyrrum fyrirliði Liverpool, hefur greint frá ástæðu þess að hann skipti yfir til sádi-arabíska liðsins Al-Ettifaq fyrir yfirstandandi tímabil. Það gerir hann í ítarlegu viðtali við The Athletic en félagsskiptin ollu miklu fjaðrafoki á sínum tíma. 5.9.2023 09:31
Teknir á teppið af sínum eigin stuðningsmönnum eftir leik í gær Leikmenn franska úrvalsdeildarliðsins Lyon í fótbolta fengu óánægju stuðningsmanna félagsins beint í æð eftir að hafa lotið í lægra haldi gegn Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain nokkuð örugglega á heimavelli. 4.9.2023 16:01
Karlmaður handtekinn í tengslum meinta líkamsárás sem Keane varð fyrir Fjörutíu og tveggja ára gamall karlmaður hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglu á meintri líkamsárás sem Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United og núverandi sérfræðingur Sky Sports, varð fyrir á Emirates leikvanginum í Norður-Lundúnum í gær. 4.9.2023 13:57
Ræddu stöðu KA: „Framganga liðsins í Íslandsmótinu klár vonbrigði“ Framganga KA í Bestu deild karla á yfirstandandi tímabili er klár vonbrigði að mati Atla Viðars Björnssonar, sérfræðings í uppgjörsþáttunum Stúkan á Stöð 2 Sport. 4.9.2023 13:31
NFL Red Zone á Stöð 2 Sport Bryddað verður upp á nýjung í þeirri umfjöllun sem Stöð 2 Sport býður áskrifendum sínum upp á í tengslum við NFL-deildina í Bandaríkjunum þetta tímabilið því í fyrsta sinn munu áskrifendur geta horft á NFL Red Zone á sunnudögum á Stöð 2 Sport. 4.9.2023 12:53
Lagði sitt mat á umdeild atvik úr stórleik helgarinnar Arsenal og Manchester United áttust við um nýliðna helgi í stórleik 4.umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Svo fór að Arsenal vann leikinn með þremur mörkum gegn einu, tvö mörk á síðustu andartökum leiksins tryggðu Skyttunum sigurinn. 4.9.2023 12:24
Sjáðu mörkin úr lokaumferð Bestu deildar karla: Magnað mark tryggði Víkingum sigur Tuttugu og eitt mark var skorað í lokaumferð deildarkeppni Bestu deildar karla í í gær. Nú er endanleg niðurröðun liða fyrir úrslitakeppni deildarinnar, sem hefst þann 16. september næstkomandi, ráðin. Víkingur Reykjavík er einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. 4.9.2023 10:01
Nýjustu tíðindi gætu haft slæm áhrif á skipti Gravenberch til Liverpool Upp hafa komið vandamál varðandi möguleg félagsskipti portúgalska miðjumannsins Joao Palhinha frá Fulham til Bayern Munchen, vandamál sem geta haft áhrif til hins verra fyrir Liverpool sem er að reyna ganga frá félagsskiptum Ryan Gravenberch frá Bayern Munchen. 1.9.2023 16:21
„Búnir að blása af Tenerife-ferðir“ Oliver Sigurjónsson, leikmaður karlaliðs Breiðabliks í fótbolta er virkilega spenntur fyrir komandi verkefni liðsins í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu en í dag fengu Blikar að vita hvaða liðum þeir myndu mæta í riðlakeppninni. Oliver segir Blika ekki mæta í þessa keppni bara til að taka þátt, þeir ætla sér stig. 1.9.2023 15:00
Sverrir Ingi dregur sig úr landsliðshópi Íslands Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur þurft að draga sig úr landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir komandi verkefni liðsins í undankeppni EM 2024 vegna meiðsla. 1.9.2023 14:49