fréttamaður

Berghildur Erla Bernharðsdóttir

Berghildur er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Met stöðuna til­tölu­lega örugga“

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór ásamt aðstoðarmönnum sínum í skoðunarferð um Grindavík í morgun. Hann segir götur í bænum aflagaðar og nýjar sprungur bersýnilegar. Forgangsverkefni sé að koma rafmagni aftur á. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið segist hann bjartsýnn fyrir hönd Grindvíkinga. 

Til skoðunar að hækka varnargarðana um nokkra metra

Enn er unnið við gerð varnargarða við Grindavík. Framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Ístaki segir vel hafa tekist til við hönnun og val á staðsetningu. Í dag sé verið að skoða hvort þörf sé á að hækka þá enn frekar. 

Vil­hjálmur segist ó­á­nægður með Sam­tök at­vinnu­lífsins

Formaður Starfsgreinasambandsins segir nokkur ljón í veginum í kjaraviðræðum við SA en fólk sé sammála um að ryðja þeim úr vegi. Hann telur að aðildarfélög SA hafi ekki sýnt nógu skýrt að þau ætli að halda aftur af hækkunum. Framkvæmdastjóri SA fagnar yfirlýsingu Haga um að félagið ætli að halda aftur af sér.

Hvetur fé­lags­menn til að halda aftur af hækkunum

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda skorar á félagsmenn að halda aftur af verðhækkunum og taka þannig þátt í að þjóðarsátt náist milli SA og breiðfylkingar innan ASÍ. Fyrirtækin eigi auðveldara með slíkt dragi hið opinbera úr boðuðum hækkunum. Forsvarsmenn félagsins hittu forystu VR í morgun.

Grunaðir um mörg skartgriparán í heima­húsum

Margt bendir til þess að sami eða sömu þjófar hafi framið tíu innbrot í íbúðir í  fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu yfir jól og áramót að sögn lögreglu. Fólk saknar helst skartgripa og fjármuna eftir ránin.

Hrun í miðri sprungu dró manninn með sér

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir mál mannsins sem talinn er hafa fallið ofan í við sprunguinnfyllingu vera bakslag fyrir Grindvíkinga. Þetta segir hann í viðtali við Stöð 2 í dag.

Að­eins helmingur í­búa með fastan heimilis­lækni þvert gegn stefnu stjórn­valda

Þrátt fyrir að heilbrigðisyfirvöld stefni að því að landsmenn séu með fastan skráðan heimilislækni á það aðeins við um helming íbúa á höfuðborgarasvæðinu. Ástæðan er skortur á heimilislæknum að sögn formanns félags þeirra. Það hafi áhrif á aðgengi og gæði þjónustunnar. Heilsugæslan sé í raun verr stödd en Landspítalinn.

„Ég er í hálf­gerðu sjokki og átti ekki von á þessu“

Ákveðið hefur verið að loka sundlauginni í Skálatúni til frambúðar vegna ástands hennar. Hið vinsæla ungbarnasund Snorra er því í lausu lofti og segir Snorri ákvörðunina hafa komið sér í opna skjöldu. Hann tími samt ekki að hætta alveg strax.

Sjá meira