1. apríl 2022: Þríeykið gert ódauðlegt, nýr Íþróttaálfur tekur við og Sumarbúð Íslendinga rís Fyrsti apríl, dagurinn sem fólk ýmist elskar eða elskar að hata, er nú genginn í garð enn einu sinni og strax á miðnætti hófust fyrirtæki, fréttamiðlar, fyrirtæki og einstaklingar handa við að reyna að gabba Íslendinga. Fréttastofa hefur tekið saman nokkur helstu göbb dagsins en sitt sýnist hverjum um hversu frumleg eða trúverðug þau eru í ár. 1.4.2022 17:33
Börnin vilja bæta hverfið: „Fyrsta skiptið sem að við fáum að segja eitthvað um hverfið“ Börn í Laugardalnum fengu í dag tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri um hvað megi betur fara í þeirra hverfi. Íþróttahús og bætt umhverfi voru þar ofarlega á baugi en börnin fagna því að fá loks sæti að borðinu. 30.3.2022 13:30
Fleiri greinst með Covid í Kína það sem af er ári en allt árið 2021 Yfir hundrað milljón tilfelli kórónuveirusmits hafa nú greinst í Asíu en faraldurinn er í mikilli uppsveiflu í álfunni um þessar mundir vegna undirafbrigðis ómíkron, BA.2. Yfirvöld í Kína hafa gripið til aðgerða til að hemja útbreiðsluna, þar á meðal í Shanghai þar sem útgöngubann er í gildi. 30.3.2022 11:35
Þurfa meira fjármagn til að gera meira en bara að slökkva elda Veðurstofan þarf að bæta upp tæplega 130 milljóna króna halla á næstu tveimur árum en starfsmenn telja niðurskurðaraðgerðir koma verulega niður á getu stofnunarinnar til að sinna brýnum verkefnum. Sérfræðingur á Veðurstofunni telur ljóst að auka þurfi fjármagn til stofnunarinnar í stað þess að skera niður. 29.3.2022 16:19
Undirbúningur hafinn fyrir Þjóðhátíð en ekkert meitlað í stein í ljósi reynslunnar Undirbúningur er hafinn fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar en hátíðinni var aflýst árið 2020 og 2021 vegna kórónuveirufaraldursins. Fiskideginum mikla á Dalvík hefur aftur á móti verið aflýst. Framkvæmdastjóri ÍBV reiknar með að Þjóðhátíð fari fram með eðlilegu sniði og vonar að Dalvíkingar reynist ekki sannspáir um stöðu mála. 29.3.2022 07:01
Tíu innlagnir á Landspítala vegna inflúensu síðustu þrjár vikur Inflúensa er nú í vexti á Íslandi en það sem af er vetri hafa 230 inflúensutilfelli greinst, þar af um 200 á síðustu þremur vikum, auk þess sem 292 tilfelli til viðbótar hafa verið greind án rannsóknar. Þrátt fyrir að Covid-tilfellum fari fækkandi er enn mikið um öndunarfærissýkingar í samfélaginu. 28.3.2022 16:15
Heilsugæslan hættir að bjóða upp á hraðpróf Ákveðið hefur verið að gera breytingar á sýnatökum vegna Covid-19 hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en frá og með föstudeginum 1. apríl verður einungis boðið upp á PCR-sýnatökur á Suðurlandsbraut. Með breytingunni verður aðeins hægt að fara í hraðpróf hjá einkaaðilum gegn gjaldi. 28.3.2022 15:05
Kjarnorkumál í Íran og stríðið í Úkraínu í brennidepli á sögulegum fundi Utanríkisráðherrar Arababandalagsríkjanna Barein, Marokkó og Sameinuðu arabísku furstadæmanna, funduðu ásamt utanríkisráðherrum Ísraels, Bandaríkjanna og Egyptalands í Ísrael í dag en ráðherrarnir ræddu viðbrögð við ýmsum vandamálum sem Miðausturlöndin standa frammi fyrir. 28.3.2022 11:38
Röskva vann aftur stórsigur en missir einn fulltrúa Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, tryggði sér fimmtán fulltrúa af sautján í kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands en úrslitin voru tilkynnt í kvöld. Vaka – hagsmunafélag stúdenta, bætir við sig einum fulltrúa milli ára. 24.3.2022 23:15
Leiðtogarnir sýndu samstöðu en tóku engin ný skref Leiðtogar NATO, Evrópusambandsins og G7 ríkjanna funduðu í Brussel í dag um stöðuna milli Úkraínu og Evrópu. Aðildaríki Atlantshafsbandalagsins samþykktu að auka viðbúnað og hernaðaraðstoð til Úkraínu en í heildina að sjá var lítið um breytingar. Prófessor í stjórnmálafræði segir líklegast að fundurinn verði notaður til að þrýsta á kínversk stjórnvöld. 24.3.2022 23:14