Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Átta hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við hnífstunguárás í miðbænum á fimmtudag. Beðið er eftir úrskurði í máli eins til viðbótar. Lögregla leitar enn rúmlega tíu manna sem eru í felum og eru taldir tengjast málinu. Fórnarlömb árásarinnar opnuðu sig um málið í dag en annað þeirra hlaut stungu í lungað. Við fjöllum ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 19.11.2022 18:24
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Tveir mannanna sem voru stungnir í árás inni á skemmtistaðnum Bankastræti Club á fimmtudagskvöld segjast ekki hafa áttað sig strax á því að árásarmennirnir hefðu stungið þá. Annar þeirra var stunginn sjö sinnum. Lögregla leitar enn um tuttugu manna sem eru taldir hafa átt þátt í árásinni. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 19.11.2022 11:52
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Koma hátt í þrjátíu meðlima vélhjólaklúbbsins Hells Angels til landsins undirstrikar að samfélaginu stafi ógn af skipulagðri brotastarfsemi. Þetta segir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra. Fimm verður vísað frá landinu í fyrramálið til viðbótar við þá tuttugu og tvo sem gert var að yfirgefa landið í morgun. 12.11.2022 18:00
Vatn streymdi upp um gólfið Enn er allt á floti í Síldarminjasafninu á Siglufirði, þar sem lak inn mikill vatnsflaumur í rigningarveðri í fyrrinótt. Slökkvilið Fjallabyggðar vinnur hörðum höndum að því að dæla út vatni, bæði út úr safnhúsi og út af safnlóðinni. 12.11.2022 10:39
Tilboðskvíðinn raunverulegur Verslunareigandi hvetur landsmenn til að hugsa sig tvisvar um áður en þeir gefa sig neyslubrjálæði nóvembermánaðar á vald. Sjálf finnur hún fyrir hálfgerðum tilboðskvíða á afsláttardögum eins og í dag, degi einhleypra, sem orðinn er sá stærsti hér á landi. 11.11.2022 21:31
„Hún velur svolítið hvaða lögum hún er að fylgja“ Þingmaður Pírata segir lögreglu forgangsraða tíma sínum rangt með því að eltast við fólk vegna neysluskammta. Húsleit sé íþyngjandi aðgerð sem lögregla beiti langt fram úr meðalhófi í slíkum málum. Aðgerðir lögreglu, sem gagnrýndar voru í vikunni, sýni brýna þörf á afglæpavæðingu. 11.11.2022 20:00
Syrgði svalann syngjandi í Bónus Íslendingar syrgja nú ávaxtasafann Svala, sem hætt verður að framleiða um áramótin. Forstjóri Coca-Cola á Íslandi segir ákvörðunina hafa verið afar erfiða en Svali, sykraður drykkur markaðssettur til barna, samræmist ekki stefnu fyrirtækisins. 9.11.2022 20:01
Meiri líkur á að demókratar geti stöðvað Trump-málin Prófessor í sagnfræði segir varnarsigur demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum hafa komið sér talsvert á óvart. Demókratar gætu vel haldið meirihluta í öldungadeildinni, einkum í ljósi mikilvægs sigurs í Pennsylvaníu, en repúblikanar taka líklegast yfir fulltrúadeildina, sem verður Biden þungur baggi. 9.11.2022 12:12
„Forsetakosningarnar byrja í raun og veru á morgun“ Repúblikanar ná líklega meirihluta í bæði fulltrúa- og öldungadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem haldnar eru í dag, samkvæmt síðustu könnunum. Mikil andstaða við störf Bidens er því í kortunum næstu árin, að sögn prófessors í stjórnmálafræði. Niðurstöðurnar gefi tóninn fyrir forsetakosningarnar eftir tvö ár - og sú kosningabarátta hefjist á morgun 8.11.2022 11:34
Fór í öskrandi panikk þegar hún fékk fréttirnar Vinkona írösku systranna sem vísað var úr landi fyrir helgi segir þær nú búa við ömurlegar aðstæður í Grikklandi. Verkefnastjóri hjá Þroskahjálp krefst þess að fatlaður bróðir systranna, sem einnig var sendur brott, verði sóttur aftur. Mörg hundruð manns mótmæltu umdeildri fjöldabrottvísun á hælisleitendum í dag. 6.11.2022 20:00