Bráðamóttaka á Selfossi á neyðarstigi vegna manneklu Bráðamóttaka á Selfossi verður á neyðarstigi um helgina vegna alvarlegrar manneklu. 11.2.2023 22:10
Sjáðu styrktartónleika björgunarsveitarinnar Stráka Haldnir verða styrktartónleikar fyrir björgunarsveitina Stráka á Siglufirði í tilefni 1-1-2 dagsins í Siglufjarðarkirkju í kvöld klukkan 20. Sýnt verður frá tónleikunum hér að neðan á Stöð 2 Vísi. 11.2.2023 19:26
Páll Pampichler Pálsson er látinn Páll Pampichler Pálsson hljómsveitarstjóri og tónskáld er látinn. Hann lést í heimaborg sinni í Graz í Austurríki þann 10. febrúar. 11.2.2023 19:04
Þorgerður Katrín endurkjörinn formaður og Sigmar ritari Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur verið endurkjörin formaður Viðreisnar og Daði Már Kristófersson var kjörinn varaformaður. Sigmar Guðmundsson var kjörinn í nýtt forystuembætti ritara. 11.2.2023 18:55
Veðurvaktin: Sumarhúsið í Kjósinni mesta tjónið í dag Veðurviðaranir eru í gildi á landinu öllu, annaðhvort gular eða appelsínugular. Mikið hvassviðri var á landinu og stóðu Björgunarsveitir í ströngu í allan dag. Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar varð blessunarlega lítið tjón utan sumarhúss í Kjósinni sem gjöreyðilagðist í vindhviðunum. 11.2.2023 14:01
Mismunandi áhyggjur en allir sammála um þyngri róður Verðbólgan og vaxtahækkanirnar að undanförnu hafa ekki farið framhjá almenningi. Nokkrir viðmælendur fréttastofu lýsa yfir miklum áhyggjum af stöðu unga fólksins. 8.2.2023 23:54
Sneru við niðurstöðu um hærri bætur þrátt fyrir fyrirvara Hæstiréttur hefur sýknað tryggingarfélagið Sjóvá af kröfum háseta sem hafði bæði fyrir héraðsdómi og Landsrétti fengið hærri bætur vegna fyrirvara um síðara örorkumat sem gæti leitt til hærri bóta. 8.2.2023 23:00
Aðgerðum lokið án handtöku Lögregluaðgerðum á Sauðarkróki er lokið án handtöku. Enginn grunur er um ætlaða refsiverða háttsemi. 8.2.2023 22:01
Mikill viðbúnaður í íbúagötu á Sauðárkróki Nokkrir lögreglubílar eru staddir í íbúagötu á Sauðárkróki vegna vopnaðs manns. Sérsveit ríkislögeglustjóra hefur verið send frá Akureyri til aðstoðar en ekkert aðhafst neitt. 8.2.2023 19:27
Tilraun til að leiða deilur við Eflingu í jörð Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ákvörðun ríkissáttasemjara, um að falla frá aðfararbeiðni til að fá kjörskrá Eflingar afhenta, tilraun til að leiða deilur embættisins við Eflingu í jörð. 8.2.2023 18:22