Slapp úr fangelsi með því að sviðsetja dauða sinn Suður-afrískur karlmaður, sem sakfelldur var fyrir nauðgun og morð árið 2012, var handtekinn á föstudag, ári eftir að hann var úrskurðaður látinn. Hann er talinn hafa sloppið úr fangelsi með því að sviðsetja dauða sinn. 8.4.2023 21:32
Ekki vissir um hvor ók bifreiðinni á ljósastaur Tveir menn voru handteknir í dag eftir að bifreið var ekið á ljósastaur í Háaleitishverfi. Hvorugur hinna handteknu vissi hvor þeirra hafi ekið bifreiðinni. 8.4.2023 19:32
Rostungurinn er hinn víðfrægi Þór Rostungurinn sem spókaði sig á bryggjunni á Þórshöfn í morgun er hinn víðfrægi Þór, sem heimsótti Breiðdalsvík í febrúar. Rostungurinn er hefur verið á flakki um Evrópu síðustu mánuði. 8.4.2023 19:15
Greindi ekki frá lúxusferðum sem hann þáði frá Repúblíkana Clarence Thomas, dómari við hæstarétt Bandaríkjanna, hefur á síðustu árum þegið margra milljóna króna lúxusferðir frá þekktum bakhjarli Repúblikanaflokksins. Thomas, sem er jafnan talinn íhaldssamasti dómarinn við réttinn, greindi aldrei frá þessum gjöfum, eins og honum bar að gera lögum samkvæmt. 8.4.2023 18:10
Aron Can og Erna María eignuðust son Söngvarinn Aron Can og kærasta hans Erna María Björnsdóttir eignuðust son þann 3. apríl síðastliðinn. 8.4.2023 17:32
Bóluefni við krabbameini sögð klár innan nokkurra ára Bóluefni við krabbameini, hjartveiki, lungnasjúkdómum og fjölda annarra sjúkdóma gætu verið tilbúin innan nokkurra ára, að sögn lyfjasérfræðinga. Framfarirnar sem náðust við þróun Covid-bóluefnisins hafa mikla þýðingu við þróun þessara bóluefna. 7.4.2023 23:09
Edda hyggst áfrýja málinu að ósk dótturinnar Edda Falak hyggst áfrýja máli, þar sem hún var dæmd fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs, til Landsréttar. Í aðsendri grein á Vísi, sem unnin er í samráði við Eddu og dóttur móðurinnar sem höfðaði málið, er niðurstaða dómsins harðlega gagnrýnd. Blásið hefur verið til söfnunar til að gera Eddu kleift að áfrýja dómnum. 7.4.2023 22:03
Stikla fyrir nýja Indiana Jones mynd er lent Stikla fyrir nýja Indiana Jones mynd er lent. Myndin heitir Indiana Jones and the Dial of Destiny, sem gæti útlagst á íslensku sem Indiana Jones og örlagaskífan. 7.4.2023 19:23
Föst í sjö tíma í flugvélum á Keflavíkurflugvelli Tæplega 2.200 farþegar hafa setið fastir í fjórtán flugvélum frá Icelandair og Play á Keflavíkurflugvelli í dag vegna hvassviðris. 55 hnúta vindhviður mældust á vellinum. 7.4.2023 18:53
Öllu flugi frestað vegna veðurs Öllu millilandaflugi á Keflavíkurflugvelli hefur verið frestað vegna veðurs. 7.4.2023 17:54