Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, lýsir áhyggjum af því að nýsamþykkt lög um félagasamtök og fjölmiðla í Georgíu hafi neikvæð áhrif á stöðu landsins í hinum frjálsa heimi. Hún er stödd í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna. 15.5.2024 13:51
Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Starfsmönnum kosningamiðstöðvar Baldurs Þórhallssonar brá heldur betur í brún þegar þeir komu að miklu magni af hundaskít, í og utan poka, við inngang kosningamiðstöðvarinnar snemma í gærmorgun. Grunur er um að honum hafi viljandi verið komið þarna fyrir af óprúttnum aðila sem skilaboðum. 15.5.2024 13:03
Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Flugvél Icelandair sem lögð var af stað til Glasgow í Skotlandi þurfti að snúa við skömmu eftir brottför. Vélin tók á loft rétt fyrir hálf ellefu í morgun en upp úr ellefu barst boðun um vélarvanda og óskað var eftir því að vélinni yrði snúið við. 15.5.2024 12:25
Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Hann tekur við af Mörtu Nordal sem hefur gegnt starfinu síðustu í sex árin. 15.5.2024 12:20
Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Ráðstefnan Afghanistan Future Though Forum hefur farið fram í Ósló síðustu daga þar sem fulltrúar Talíbana eru meðal gesta. Utanríkisráðherra Noregs segir að það séu ekki leiðtogar Talíbana sem sækja fundi heldur fulltrúar á þeirra vegum. 15.5.2024 10:36
Vann fimmtíu milljónir króna Einn heppinn miðaeigandi hreppti fimmtíu milljón króna vinning þegar dregið var hjá Happdrætti Háskóla Íslands í kvöld. Hann fékk sem sagt fimmfalda Milljónaveltu. Miðaeigandinn var búinn að eiga happamiðann í fjölda ára og gladdist gríðarlega þegar hann fékk fréttirnar að sögn Happdrættisins. 14.5.2024 23:15
„Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Björn Kristjánsson, foreldri og kennari í Laugarlækjarskóla, segir ákvörðun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar að stefna að byggingu nýs unglingaskóla í Laugardalnum kalda vatnsgusu framan í skólasamfélagið. 14.5.2024 23:00
Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Björn Höcke, leiðtogi hins öfgafulla þýska stjórnmálaflokks Valkosts fyrir Þýskaland í Þýringalandi, hefur verið dæmdur til að greiða sekt fyrir að hafa notað eitt af slagorðum brúnstakka nasistanna á stuðningsmannafundi. 14.5.2024 22:59
1.715 börn fengið leikskólapláss Fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa lauk föstudaginn síðastliðinn og höfðu þá foreldrar 1715 barna fengið boð og þegið vistum í borgarrekna leikskóla. Þá má áætla að sjálfstætt starfandi leikskólar bjóði um 350 börnum vistun frá og með hausti. Mörg þeirra barna eru einnig á biðlista fyrir borgarrekna leikskóla. 14.5.2024 21:32
Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og formaður Sósíaldemókrataflokksins, segist myndu veðja bjór á það að hún verði áfram forsætisráðherra eftir sumarfrí ríkisstjórnarinnar. 14.5.2024 17:58