Bað eigin sjóð um sextíu milljóna endurgreiðslu Kosningasjóður Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur farið fram á að sextíu milljónir dala sem veittar voru til pólitískrar aðgerðanefndar (PAC) Trumps sem kallast Save Amcerica, verði endurgreiddar. Krafan þykir benda til þess að Trump eigi í fjárhagskröggum. 31.7.2023 08:38
Færast nær því að ákæra Biden fyrir embættisbrot Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa færst nær því að hefja rannsókn á því hvort tilefni finnist til að ákæra Joe Biden, forseta, fyrir embættisbrot. Donald Trump, fyrrverandi forseti sem var tvisvar ákærður fyrir embættisbrot, vill ólmur að Biden verði einnig ákærður. 28.7.2023 08:46
Klifu fjórtán hæstu tinda heims á þremur mánuðum Norski fjallgöngugarpurinn Kristin Harila hefur sett heimsmet með því að klífa á tinda þeirra fjórtán fjalla heims sem eru hærri en átta kílómetrar. Þetta gerði hún með Tenjen Sherpa og á einungis þremur mánuðum og einum degi eða 92 dögum. 27.7.2023 11:57
Segist við góða heilsu Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, segist hafa heilsu til að sinna starfi sínu. Það er eftir að hann fraus í miðri setningu á blaðamannafundi í gærkvöldi og starði áfram í um tuttugu sekúndur, áður en hann var leiddur á brott. 27.7.2023 11:06
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn sagðir gefa í og sækja fram í Saporisjía Úkraínumenn eru sagðir hafa sett aukinn þunga í árásir þeirra gegn Rússum í Sapórisíjahéraði í suðausturhluta landsins. Þeir hafa einnig náð frekari árangri nærri Bakhmut í Dónetskhéraði. 27.7.2023 09:37
Dúós: Keyrði í sýndarveruleika og hnerraði í gleraugun Pétur Jóhann Sigúfsson er ekki mikill leikjaspilari en hann fékk Óla Jóels til að aðstoða sig við að læra. Í sjöunda þætti Dúós kíktu strákarnir á bílaleikinn Gran Turismo í sýndarveruleika. 27.7.2023 09:01
Langlokusímar Samsung þynnri og léttari en áður Forsvarsmenn Samsung kynntu í dag nýjustu tæknivörur fyrirtækisins. Þar á meðal eru nýir langloku- og samlokusímar, snjallúr og spjaldtölvur. 26.7.2023 15:05
Spacey grét er hann var sýknaður Breskir kviðdómendur hafa sýknað bandaríska leikarann Kevin Spacey af tólf ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum breskum mönnum. Það var gert í dag eftir þriggja vikna réttarhöld í Lundúnum. 26.7.2023 14:20
Hagnast mikið og dæla peningum í gervigreind Bæði Alphabet (móðurfélag Google) og Microsoft birtu í gær góð ársfjórðungsuppgjör sem sýndu aukinn hagnað og aðrar jákvæðar vendingar í rekstri fyrirtækjanna. Fyrirtækin eru í samkeppni um innleiðingu gervigreindar í leitarvélar Google og Bing og annan hugbúnað þeirra. 26.7.2023 12:09
Stríðsfangarnir í Olenivka ekki felldir í HIMARS-árás Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna kallaði í gær eftir því að þeir sem bæru ábyrgð á dauða minnst fimmtíu úkraínskra stríðsfanga í Olenivka í Dónetsk í fyrra yrðu dregnir til ábyrgðar. Volker Türk segir að rannsókn Sameinuðu þjóðanna gefi til kynna að Rússar hafi logið um það af hverju mennirnir dóu í stórri sprengingu í fangabúðum þeirra. 26.7.2023 10:27