Enda einangrun með heimsókn frá Rússlandi og Kína Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa boðið sendinefndum frá Rússlandi og Kína til að taka þátt í hátíðarhöldum vegna þess að á morgun verða sjötíu ár liðin frá því skrifað var undir vopnahlé í Kóreustríðinu. Einræðisríkið hefur verið mjög einangrað á undanförnum árum vegna faraldurs Covid. 26.7.2023 08:14
Rússar skemmdu bandarískan dróna með blysum Rússneskir flugmenn tveggja orrustuþota eru sagðir hafa skemmt bandarískan dróna yfir Sýrlandi með því að varpa blysum á hann. Atvikið átti sér stað þann 6. júlí en flugher Bandaríkjanna birti myndband af því í dag. 25.7.2023 14:34
Vatnsvél lenti á tré og brotlenti Vatnsflugvél sem notuð var til slökkvistarfs á Evía í Grikklandi brotlenti í morgun. Verið var að nota flugvélina til að varpa vatni á gróðurelda þegar annar vængur hennar virðist hafa lent á tré. Við það snerist flugvélin og brotlenti en slysið náðist á myndband. 25.7.2023 13:51
Segja það taka verulega á að sía viðbjóðinn úr ChatGPT Lágt launaðir verktakar ChatGPT segja það reyna verulega á sálartetrið að sía viðbjóðinn úr tungumálalíkani spjallþjarkans ChatGPT. Starfsfólkið þarf ítrekað að lesa lýsingar á kynferðisofbeldi, barnaníð, sjálfsvíg og rasisma, svo eitthvað sé nefnt. 25.7.2023 12:31
Fangelsi fyrir barsmíðar með fánastöng Vörubílstjóri sem barði lögregluþjón með fánastöng í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 hefur verið dæmdur til rúmlega fjögurra ára vistar í alríkisfangelsi. Maðurinn játaði að hafa ráðist á lögregluþjón með hættulegu vopni. 25.7.2023 10:33
Ráðvilltur gagnvart uppreisn Wagner Þegar málaliðar Wagner Group lögðu undir sig borgina Rostov, þann 24. júní, og stór bílalest málaliða lagði af stað til Moskvu, var Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í losti og vissi ekki hvernig hann átti að bregðast við. Hann gaf hernum engar skipanir lengst af degi, þó hann hefði fengið viðvaranir frá öryggisstofnunum sínum með minnst tveggja daga fyrirvara. 25.7.2023 08:11
Nýsamþykkt lög draga úr áhrifum Hæstaréttar Ísraels Ísraelska þingið, Knesset, samþykkti í dag fyrstu breytingarnar á dómskerfi landsins sem miða að því að auka vald þings og framkvæmdavalds og draga úr valdi dómstólanna. 24.7.2023 15:09
Spotify hækkar verðið Nýir notendur tónlistarveitunnar Spotify munu frá deginum í dag greiða eina evru aukalega fyrir það að hlusta ekki á auglýsingar. Verð núverandi notenda hækkar eftir mánuð en forsvarsmenn Spotify tilkynntu í dag að verið væri að hækka verðið á öllum áskriftarleiðum fyrirtækisins. 24.7.2023 14:26
Viðræður við Norður-Kóreu hafnar Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sem stýra einu landamærastöð Norður- og Suður-Kóreu segjast í samskiptum við yfirvöld í norðri vegna bandarísks hermanns sem hljóp yfir landamærin í síðustu viku. Hingað til höfðu ráðamenn í Pyongyang neitað að taka upp tólið. 24.7.2023 13:38
Greiða atkvæði í skugga mikilla mótmæla Atkvæðagreiðsla um umdeilt frumvarp ríkisstjórnar Ísraels um dómstóla landsins er hafin. Mikil mótmæli hafa verið haldin vegna frumvarpsins en gagnrýnendur segja það ógna lýðræði Ísrael. 24.7.2023 11:25