Norðmenn líta til dróna og geimferða Ríkisstjórn Noregs hefur tilkynnt ætlanir um að hætta eigi við að loka herstöðinni í Andøya, eins og til stóð. Þess í stað á að fara í umfangsmikla fjárfestingu þar og þróa herstöðina sérstaklega fyrir notkun langdrægra dróna í samstarfi við geimferðastöð sem verið er að setja á laggirnar þar. 3.4.2024 16:05
Vill selja Ísraelum vopn fyrir tvær og hálfa billjón Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, hefur beðið þingmenn um að samþykkja gífurlega umfangsmikla vopna- og hergagnasölu til Ísrael. Margir þingmenn hafa, auk annarra, kallað eftir takmörkun á vopnasölum til Ísrael vegna stríðsins á Gasaströndinni og framgöngu Ísraela þar. 3.4.2024 14:35
Tónleikahöllin var nefnd sem mögulegt skotmark ISKP Bandarískir embættismenn vöruðu rússneska kollega sína við því að tónleikahöllin í Crocus væri mögulegt skotmark vígamann Íslamska ríkisins í Khorasan, eða ISKP, rúmum tveimur vikum áður en fjórir menn myrtu þar minnst 144. Ráðamenn í Rússlandi hunsuðu viðvörunina og Vladimír Pútín, forseti, sagði nokkrum dögum fyrir árásina að Vesturlönd væru að reyna að kúga Rússland. 3.4.2024 13:00
„Ég nota orðið dýr því það er það sem þau eru“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, sagði farand- og flóttafólk aftur vera „dýr“ í kosningaræðu í Michigan í gær. Þá endurtók hann gömul ummæli um að ráðamenn annarra ríkja væru að senda glæpamenn til Bandaríkjanna með ólöglegum hætti. 3.4.2024 10:15
Dragon's Dogma 2: Skemmtilegur en í senn óþolandi Það er ansi margt sem mér finnst mjög gott við Dragon's Dogma 2. Sömuleiðis eru margar ákvarðanir sem hafa verið teknar við framleiðslu leiksins sem mér þykir vægast sagt undarlegar. Leikurinn er þó fyrst og fremst skemmtilegur, þegar hann er ekki óþolandi. 3.4.2024 08:45
Bendla umdeilda rússneska sveit við Havana-heilkennið Á undanförnum árum hafa nokkrum sinnum átt sér stað atvik þar sem bandarískir og kanadískir embættismenn og erindrekar verða fyrir óútskýrðum heilbrigðisvandamálum. Heyrnartap, ógleði, svimi og miklir höfuðverkir eru meðal þess sem fólk hefur fundið fyrir en fyrstu tilfellin greindust í sendiráði Bandaríkjanna í Havana á Kúbu. 3.4.2024 08:01
Íranar hóta hefndum gegn Ísrael Klerkastjórnin í Íran og vígahópar á snærum þeirra hafa hótað hefndum eftir loftárás á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi í gær. Ísraelar hafa verið bendlaðir við árásina en í henni féllu háttsettur íranskur herforingi og sex aðrir hermenn. 2.4.2024 13:01
Murdaugh dæmdur í fangelsi í þriðja sinn Alex Murdaugh var í gær enn einu sinni dæmdur í fangelsi og líklega í síðasta sinn. Hann var dæmdur til fjörutíu ára fangelsisvistar í alríkisfangelsi fyrir að hafa stolið peningum af skjólstæðingum sínum og fyrirtæki en hann hafði þegar verið dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi í fyrra fyrir að myrða eiginkonu sína og son. 2.4.2024 10:51
Trump bannað að tala um dóttur dómara Juan M. Merchan, dómarinn í einu af dómsmálunum gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur gert breytingar á viku gamalli skipun þar sem hann meinaði Trump að tjá sig um vitni, kviðdómendur og aðra sem tengjast réttarhöldunum. Skipunin nær nú einnig yfir Loren Merchan, dóttur dómarans, en Trump hefur farið með falskar yfirlýsingar um hana á samfélagsmiðlum. 2.4.2024 09:56
Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Lögregluþjónar lokuðu í gær smáu þorpi í frönsku Ölpunum. Sautján manns, auk lögregluþjóna, hafa verið í þorpinu til að reyna að finan einhver svör um hvað kom fyrir hinn tveggja ára gamla Emile sem hvarf þaðan sporlaust síðasta sumar. 28.3.2024 23:24