Mun færri nýjar íbúðir en þörf er á Nýjum íbúðum fjölgaði um 3.079 á síðasta ári en það er langt frá því að uppfylla íbúðaþörf á landinu. Íbúðum hefði þurft að fjölga um að minnsta kosti fjögur þúsund til að uppfylla þá þörf sem er fyrir hendi og bendir samdráttur í húsnæðisuppbyggingu til þess að enn muni draga úr framboði á nýju húsnæði á næstu árum. 5.2.2024 10:53
Aftur mikil flóð í Kaliforníu Gífurleg rigning og hvass vindur hefur leitt til flóða og aurskriða í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hundruð þúsunda heimila eru sögð hafa orðið rafmagnslaus þegar rafmagnslínur slitnuðu. Þetta er í annað sinn á nokkrum dögum sem Kalifornía verður fyrir óveðri sem þessu. 5.2.2024 10:31
Sony Portal: Spilað þegar einhver stelur sjónvarpinu Sony gaf í lok síðasta árs út græjuna PlayStation Portal, sem gerir eigendum PlayStation 5 kleift að streyma tölvuleikjum úr tölvunni, hvar sem þeir eru staddir. Til að mynda er hægt að spila leiki sem búið er að setja upp í tölvunni á meðan aðrir horfa á sjónvarpið. 5.2.2024 08:31
Meint njósnadúfa frá Kína hreinsuð af sök Yfirvöld í Indlandi slepptu á þriðjudaginn dúfu eftir að hún hafði verið í haldi í átta mánuði vegna gruns um að hún væri í raun kínverskur njósnari. Eftir ítarlega rannsókn hefur komið í ljós að dúfan slapp frá eigendum sínum í Taívan. 1.2.2024 23:04
Vill losa herinn við úreltan hugsunarhátt Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir úkraínska herinn standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þó sé hægt að komast í gegnum þá með því að endurhugsa hernaðaraðgerðir og losa herinn við úreltan hugsunarhátt og herinn þarf að sníða stakkinn eftir vexti, vegna samdráttar í hernaðaraðstoð. 1.2.2024 22:01
Beitir landtökumenn refsiaðgerðum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, gaf í dag út tilskipun og beitti fjóra ísraelska landtökumenn á Vesturbakkanum sem hafa ráðist á Palestínumenn refsiaðgerðum. Hægt er að breyta tilskipuninni gegn fleiri landtökumönnum í framtíðinni en refsiaðgerðirnar fela meðal annars í sér að fólkið getur ekki átt í viðskiptum við bandarísk fyrirtæki og getur ekki ferðast til Bandaríkjanna. 1.2.2024 19:00
Vill færa skráningu Tesla til Texas Auðjöfurinn Elon Musk vill færa skráningu Tesla frá Delaware og til Texas. Það er eftir að dómari í Delaware komst að þeirri niðurstöðu að 55 milljarða dala kaupréttarsamningur sem gerður var við hann árið 2018 hefði verið ólöglegur. 1.2.2024 18:16
Herinn hefur tapað tugum bæja í hendur uppreisnarmanna Hersveitir herforingjastjórnarinnar í Mjanmar hafa þurft að þola hvern ósigurinn á fætur öðrum í átökum við uppreisnarmenn á undanförnum mánuðum. Þremur árum eftir að herforingjastjórnin rændi völdum af ríkisstjórn nóbelsverðlaunahafans Aung San Suu Kyi, hefur herforingjastjórnin aldrei verið í verri stöðu en nú. 31.1.2024 23:57
Þurfa árið til að snúa vörn í sókn Ástandið á vígvöllum í austanverðri Úkraínu hefur færst Rússum í vil á undanförnum mánuðum. Rússar hafa mun meira af skotfærum fyrir stórskotalið, eiga fleiri skrið- og bryndreka og eiga auðveldar með að fylla upp í raðir sínar vegna mannfalls. 31.1.2024 22:30
Afhöfðaði föður sinn og birti myndband af höfðinu Bandarískur maður hefur verið ákærður fyrir að myrða föður sinn og afhöfða hann. Hann birti svo myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann hélt á höfði föður síns og sakaði hann um að hafa svikið Bandaríkin og viðraði ýmsar samsæriskenningar um Joe Biden, farand- og flóttafólk, innrásina í Úkraínu og ýmislegt annað. 31.1.2024 19:56