Sinubruni á Reyðarfirði Slökkvilið Fjarðabyggðar var kallað út laust fyrir klukkan hálffjögur í dag vegna sinubruna sem hafði kviknað skammt fyrir ofan íbúðabyggð á Reyðarfirði. 20.4.2020 16:31
Aflétta hertum aðgerðum í fjórum þorpum á norðanverðum Vestfjörðum Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum hefur ákveðið í samráði við landlækni og sóttvarnalækni að slaka á hertum aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins í fjórum þorpum á norðanverðum Vestfjörðum, það er í Súðavík, á Flateyri, Suðureyri og Þingeyri. 20.4.2020 15:43
Svona var 50. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í dag í Skógarhlíð 14. 20.4.2020 13:31
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið móður sinni að bana Karlmaður um þrítugt, sem grunaður er um að hafa orðið móður sinni að bana í heimahúsi í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 15. maí. 20.4.2020 12:36
Þrír nýir stjórnendur ráðnir í Þjóðleikhúsið Þrír nýir stjórnendur hafa verið ráðnir í Þjóðleikhúsið. Magnús Geir Þórðarson tók við starfi þjóðleikhússtjóra þann 1. janúar síðastliðinn og hann hefur nú fengið til liðs við sig þau Steinunni Þórhallsdóttur, Jón Þorgeir Kristjánsson og Kristínu Ólafsdóttur. 20.4.2020 11:55
Enga ládeyðu að sjá á íbúðamarkaði enn sem komið er Viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu voru talsverð í mars síðastliðnum. Var alls 584 kaupsamningum þinglýst sem eru 27 fleiri samningar en í mars í fyrra. 20.4.2020 11:42
ESA samþykkir ríkisábyrgðir á viðbótarlánum Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, samþykkti í dag ráðstöfun íslenskra stjórnvalda sem snýr að því að tryggja þeim fyrirtækjum sem eru í tímabundnum vanda vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar aðgang að lausu fé. 20.4.2020 10:22
Umferðin heldur áfram að dragast saman í samkomubanni Umferðin á höfuðborgarsvæðinu frá þriðjudegi til fimmtudags í þessari viku dróst saman um nærri 40% sé miðað við sömu vikudaga síðustu tvær vikurnar í febrúar. 27.3.2020 16:37
Fá alltof margar tilkynningar um fólk í sóttkví sem fer út í búð Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, brýnir fyrir þjóðinni að virða reglur um sóttkví og samkomubann. Bannið sé til að mynda ekki sett á að ástæðulausu heldur til þess að verja líf fólks. 27.3.2020 16:02
Háar sektir brjóti fólk gegn reglum um sóttkví, einangrun og samkomubann Sá sem brýtur gegn reglum um sóttkví gæti átt von á að allt 250 þúsund króna sekt. Sá sem brýtur gegn reglum um einangrun gæti svo átt von á að allt að 500 þúsund króna sekt. 27.3.2020 14:47