„Hönnun er í raun og veru allt í kringum okkur“ Hönnunarþing, hátíð hönnunar og nýsköpunar, fer fram á Húsavík í dag og á morgun. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá en forvígismaður hátíðarinnar segir hönnun vera allt í kringum okkur á hverjum degi og að hátíðin eigi því erindi við alla. 4.10.2024 12:42
List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað „Listin á bolunum tengist brjóstakrabbameini. Þau máttu vinna annað hvort í kringum svarið hennar Vigdísar við spurningu frá þessum greyið blaðamanni sem spurði hana þessari fáránlegu spurningu, hvort það myndi há henni í starfi að vera bara með eitt brjóst? Hún var þá fljót til svara og sagði: „Það stóð nú aldrei til að hafa íslensku þjóðina á brjósti.“ Þau vinna í kringum þessa setningu eða í anda Bleiku slaufunnar.“ 4.10.2024 07:02
Í hendur Willums að fjármagna frjóvgun í stað ófrjósemisaðgerða „Miðað við orð ráðherra sem voru afgerandi er ég vongóð. Ég myndi ekki sleppa takinu af þessu frumvarpi, sem ég er mjög stolt af og finnst skipta máli, nema því ég hef trú á að hann muni stíga rétt skref í þessu en ég mun vera ötul við að tikka í öxlina á honum ef hann gleymir því“ 3.10.2024 07:06
Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir loftárás Ísraelsher á heilsugæslu í Beirút, höfuðborg Líbanon, samkvæmt tilkynningu frá stjórnvöldum í Líbanon. Að sögn Ísraelshers notuðu liðsmenn Hezbollah heilsugæsluna. 3.10.2024 00:01
Bifreið í ljósum logum við Stuðlaháls Eldur kom upp í fólksbíl við Stuðlaháls í Árbænum í Reykjavík um klukkan 21:45 í kvöld. Engan sakaði í eldsvoðanum en ökumaður var í bifreiðinni þegar að eldurinn kom upp. 2.10.2024 22:16
Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ 2.10.2024 22:01
Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Peter Opsvik, norskur hönnuður, lést á mánudaginn 85 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hönnun sína á Tripp Trapp-stólnum fyrir börn sem hefur lengi vel verið gífurlega vinsæll á Íslandi og víðar. 2.10.2024 20:28
„Þetta verður góð saga þegar hún verður sögð“ „Við erum enn hér við kjaraviðræður. Við sjáum mögulega til enda í þessu. Við erum ekki búin en það hefur verið góður gangur í þessu í dag. Við vitum ekkert hvenær fundi lýkur í kvöld. Við erum tilbúin að vera hér áfram, þangað til að ríkissáttasemjari ákveður að við megum fara heim.“ 2.10.2024 19:23
Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu sem verður tekin fyrir á næsta fundi borgarstjórnar eftir tvær vikur sem varðar neyðaraðgerðir til að bæta umferðaröryggi á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar þar sem banaslys varð um helgina. 1.10.2024 21:37
Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna „Mér finnst þetta bara vera mjög ósvífin og ósanngjörn gagnrýni. Ég skil ekki hvernig það er hægt að saka einhvern um tvískinnung í svona máli sem hefur allan tímann óskað eftir meiri úrbótum fyrir óvarða vegfarendur og vildi ganga lengra en gengið var. Við höfum ekkert skipt um skoðun í þessu máli og gerðum það aldrei.“ 1.10.2024 20:12