Maðurinn sem fannst í Þórsmörk var Íslendingur Maðurinn sem fannst látinn í Þórsmörk mánudagskvöldið var Íslendingur. Eins og greint hefur verið frá fundu vegfarendur manninn á mánudaginn en málið er nú í rannsókn. 5.6.2024 11:03
Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Samfélagsmiðillinn Instagram prufukeyrir nú nýtt viðmót á miðlinum sem neyðir notendur til að horfa á auglýsingar til að halda áfram að nota forritið. Áður fyrr gátu notendur skrunað fram hjá auglýsingum sem birtust þeim en það gæti heyrt sögunni til með nýrri uppfærslu. 5.6.2024 10:29
Stærðar snjóskaflar og nagladekkin sett aftur á Tveggja metra snjóskaflar og hríðarbylur blasti við starfsmönnum Landsvirkjunar þegar þeir mættu til vinnu í morgun á Þeistareykjum á Norðurlandi. Öll ummerki sumars voru fjarlægð á einni nóttu á svæðinu en eins og greint hefur verið frá gildir appelsínugul veðurviðvörun víðs vegar á landinu í dag. 4.6.2024 17:01
568 tilkynningar um heimilisofbeldi á þremur mánuðum Lögreglunni barst 568 tilkynningar á landsvísu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila fyrstu þrjá mánuði ársins sem gerir að meðaltali rúmlega sex tilkynningar á dag. Jafnframt hefur beiðnum um nálgunarbann fjölgað á þessu ári en þær eru 33 talsins fyrir sama tímabil. 4.6.2024 16:25
Vinna í sex sólarhringa til að koma rafmagni á Allt kapp er nú lagt á að koma rafmagni aftur á í Grindavík en reiknað er með að það verði komið á síðar í vikunni. HS Veitur hóf í gærkvöldi að setja upp varatengingu til bæjarins eftir að skemmdir urðu á loftlínu við Grindavík í síðustu viku þegar að hraunflæði frá áttunda gosinu á svæðinu kveikti í loftlínu við bæinn. Unnið verður á vöktum næstu sex sólarhringa til að ljúka verkinu. 4.6.2024 15:37
Skotin nítján sinnum stuttu eftir kosningar Yolanda Sanchez, bæjarstjóri Cotija í Mexíkó, var myrt nokkrum klukkutímum eftir að Claudia Sheinbaum varð fyrsta konan til að vera kjörin forseti þar í landi á sunnudaginn. 4.6.2024 14:02
150 skjálftar mælst norðaustan við Öskju 150 jarðskjálftar hafa mælst norðaustan við Öskju síðustu tvo sólarhringa en þeir eru allir undir þrír að stærð. Stærsti skjálftinn í hrinunni mældist 2,9 að stærð í nótt. 4.6.2024 13:10