Vísindi
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 52 ›
Gæti liðið að goslokum á næstu dögum Dregið gæti að goslokum á næstu dögum að mati eldfjallafræðings þar sem hraunflæðið nálgast lágmarksþröskuld. Lokað er inn á svæðið í dag vegna veðurs Innlent 17.8.2022 12:01
Glóandi bráð úr gosinu í fyrra kreistist úr gamla hrauninu vegna þrýstings frá því nýja Bráð úr hrauninu sem rann úr eldgosinu við Fagradalsfjall í fyrra hefur kreist út um hraunið vegna þunga nýja hraunsins sem rennur úr eldgosinu í Meradölum. Þessir kraftar gera það að verkum að enn varasamara getur verið að ganga á gamla hrauninu. Innlent 16.8.2022 20:29
Styttist í fyrstu tunglferðina Forsvarsmenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) hafa sett stefnuna á því að fyrsta tunglferð Artemis-áætlunarinnar verði farin þann 29. ágúst. Þá verður geimfari skotið til tunglsins og flogið hring þar í kring og til baka. Erlent 9.8.2022 13:11
Flakkari á siglingu um hrauntjörnina Það kennir ýmissa grasa þegar eldgos eiga í hlut. Eitt af því eru fyrirbæri sem minnir á fljótandi borgarísjaka í hrauntjörninni og hefur fengið heitið flakkari hér á landi. Innlent 8.8.2022 12:09
Höfundur Gaia-kenningarinnar er látinn Breski vísindamaðurinn James Lovelock sem þekktastur er fyrir Gaia-kenninguna lést í gær. Hann fæddist þann 26. júlí árið 1908 og lést því á 103 ára afmælisdaginn. Erlent 27.7.2022 14:50
Segja niðurstöður rannsóknar á grameðlum rangar Rannsókn frá jarðvísindadeild Edinborgarháskóla sýnir fram á að þeir steingervingar sem hafa fundist af grameðlum komi ekki frá þremur tegundum eðlunnar líkt og greint var frá í tímaritinu Evolutionary Biology í mars á þessu ári. Steingervingarnir sem voru rannsakaðir komi vissulega frá misstórum dýrum en eðlurnar voru, rétt eins og við mannfólkið, til í fleiri stærðum og gerðum en einni. Erlent 26.7.2022 10:26
Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur er látinn Gísli Arnór Víkingsson, sjávarlíffræðingur og einn helsti hvalasérfræðingur landsins er látinn, 65 ára að aldri. Innlent 20.7.2022 09:52
Frönsk yfirvöld staðfesta tengsl ristilkrabbameins og nítrata í unnum kjötvörum Frönsk yfirvöld hafa staðfest skaðsemi nítrata í unnum kjötvörum og tengsl þeirra við ristilkrabbamein. Matvælaöryggisyfirvöld í Frakklandi (ANSES) hafa hvatt til þess að neysla nítrata verði takmörkuð en nítrötin lengja líftíma ýmissa matvæla. Erlent 13.7.2022 12:24
Bjarni Sæmundsson í úthafsrækjuleiðangri Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson er að hefja sautján daga leiðangur til að skoða útbreiðslu og magn rækju í úthafinu fyrir norðan og norðaustan landið. Um borð eru fjórir vísindamenn og tólf manna áhöfn en alls verða teknar 86 stöðvar í stofnmælingunni. Innlent 12.7.2022 15:39
Sýndu mátt James Webb geimsjónaukans Geimvísindastofnanir Bandaríkjanna, Evrópu og Kanada birtu í dag nýjar myndir úr James Webb geimsjónaukanum (JWST). Fyrsta myndin var opinberuð í gær en sjónaukinn er sá stærsti og besti sem hefur verið smíðaður og er talinn munu gjörbreyta stjarnvísindum á komandi árum. Erlent 12.7.2022 13:51
Segir sjónaukann marka nýtt upphaf í stjarnvísindum Fyrsta ljósmyndin úr James-Webb geimsjónaukanum birtist í gærkvöldi og eru fleiri myndir væntanlegar klukkan hálf þrjú í dag. Þetta eru skýrustu myndir sem mannkynið hefur tekið og séðaf sumum af daufustu og fjarlægustu vetrarbrautum til þessa. Stjörnu-Sævar segir þetta sögulegan dag og marka nýtt upphaf í stjarnvísindum. Innlent 12.7.2022 12:27
Rýnt í uppruna alheimsins í fyrstu mynd James Webb Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í kvöld fyrstu unnu myndina úr James Webb-geimsjónaukanum. Myndin sýnir þyrpingu stjörnuþoka sem kallast SMACS 0723 og er í um 4,6 milljarða ljósára fjarlægð frá jörðu. Erlent 11.7.2022 23:37
Árni Friðriksson í makrílrannsóknum Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lét úr höfn 4. júlí til að taka þátt í alþjóðlegum leiðangri sem stendur yfir til 23. júlí. Eitt af meginmarkmiðum leiðangursins er að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi. Innlent 7.7.2022 13:40
Rannsaka hverastrýtur í Eyjafirði til að öðlast skilning á upphafi lífs Alþjóðlegur hópur vísindamanna, kostaður af geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, rannsakar nú hverastrýturnar í Eyjafirði í því skyni að kanna hvort líf hafi getað þróast á Mars og til undirbúnings frekari könnunarleiðöngrum til reikistjörnunnar. Jafnframt er vonast til að strýturnar gefi svör um líkur á lífi á öðrum hnöttum í sólkerfinu. Innlent 5.7.2022 23:31
Við veljum okkur vini eftir lykt Við veljum okkur vini sem lykta eins og við. Iðnvæðingunni er um að kenna að maðurinn er nánast eina spendýrið sem er ómeðvitað um lyktina af samborgurum sínum. Þetta eru niðurstöður nýrrar vísindakönnunar. Erlent 2.7.2022 16:16
Að læra að lesa og að verða læs Því miður hefur umræðan um það hvað sé helst til ráða verið á villigötum og ljóst að misskilningur ríkir um það hvað læsi er og hvernig sé árangursríkast að bæta það. Skoðun 1.7.2022 15:30
Tugir jarðvísindamanna mættir í Mývatnssveit að rannsaka Kröflu Á fjórða tug vísindamanna vinna þessa dagana í Mývatnssveit að miklu mælingaverkefni í Kröflu, sem Jarðvísindastofnun Háskólans leiðir hérlendis í samvinnu við Landsvirkjun, erlendar rannsóknastofnanir og háskóla. Kanna á ítarlegar en áður hefur verið gert ýmis atriði í byggingu Kröflueldstöðvarinnar og varpa þannig frekara ljósi á samband jarðhita og kviku. Innlent 27.6.2022 18:09
Hraðasta hlýnun á jörðinni yfir Norður-Barentshafi Norður-Barentshaf og eyjarnar þess eru sá staður á jörðinni þar sem loftslag hlýnar hraðast svo vitað sé samkvæmt rannsóknum norrænna veðurfræðinga. Hlýnunin þar er allt að sjöfalt hraðari en annars staðar á jörðinni. Erlent 15.6.2022 22:12
Varð fyrir geimgrjóti og skemmdist lítillega Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, opinberuðu í vikunni að James Webb geimsjónaukinn varð nýverið fyrir smáu geimgrjóti sem skemmdi einn af speglum hans. Skemmdirnar eru þó sagðar koma lítið niður á gæðum mynda spegilsins. Erlent 12.6.2022 14:01
Nýtt lyf heftir vöxt krabbameinsæxla Nýtt lyf við brjóstakrabbameini eykur líftíma sjúklinga um 23,9 mánuði á meðan hefðbundin lyfjameðferð gefur sjúklingum 16,8 mánuði. Þetta kemur fram í umfjöllun New York Times um rannsókn sem kynnt var á dögunum á aðalfundi Félags klínískra krabbameinslækna í Bandaríkjunum. Erlent 9.6.2022 21:00
Af hverju er gíraffinn með svona langan háls? Vísindamenn telja sig hafa fundið nýja skýringu á því af hverju gíraffar eru með svona langan háls. Og eins og svo oft í líffræðinni þá er skýringin af kynferðislegum toga. Erlent 6.6.2022 08:01
Stærsta planta í heimi á við 20.000 fótboltavelli Vísindamenn frá Ástralíu uppgötvuðu að sjávargrös sem þekja um tvö hundruð ferkílómetra svæði séu í raun ein og sama plantan. Þeir telja að hún hafi vaxið af einu fræi á að minnsta kosti fjögur þúsund og fimm hundruð árum. Erlent 1.6.2022 10:27
Ekki nema nokkrir áratugir þar til jöklarnir hverfa Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, jöklafræðingur, telur að ef fram haldi sem horfir muni Snæfellsjökull hverfa að fullu á næstu nokkrum áratugum. Að óbreyttum útblæstri munu í raun allir jöklar hverfa á næstu áratugum en þó sé hægt að hægja verulega á þróuninni með minni hlýnun, að sögn Guðfinnu. Innlent 30.5.2022 11:34
Telja sig hafa fundið elsta tré í heimi í Síle Patagoníugrátviður sem hópur vísindamanna hefur rannsakað í sunnanverðu Síle gæti verið meira en fimm þúsund ára gamall. Sé það rétt er tréð það elsta sem vitað er um á jörðinni. Erlent 27.5.2022 13:37
Rostungsbein sem enduðu í Kænugarði fyrir þúsund árum fóru líklega um Ísland Ný rannsókn sýnir að rostungstennur, sem fundust í Kænugarði fyrir fimmtán árum, eru komnar úr norrænu byggðinni á Grænlandi og eru frá tímum víkinga. Fornleifafræðingur telur mjög líklegt að Íslendingar hafi komið að verslun með grænlensk rostungabein. Innlent 24.5.2022 22:40
Náðu fyrstu myndinni af risasvartholinu í miðju Vetrarbrautarinnar Risasvartholið í hjarta Vetrarbrautarinnar okkar hefur náðst á mynd í fyrsta skipti. Hópur stjörnufræðinga kynntu afrekið sem er sagt veita mikilvægar upplýsingar um eðli risasvarthola í dag. Til þess notuðu þeir net útvarpssjónauka á stærð við jörðina. Erlent 12.5.2022 13:11
Neðri mörk Parísarsamkomulagsins í hættu á næstu fimm árum Helmingslíkur eru á því að hnattræn hlýnun nái 1,5°C að minnsta kosti eitt af næstu fimm árum. Líkurnar á því voru nærri því engar þegar skrifað var undir Parísarsamkomulagið sem miðar við að halda hlýnun innan 1,5°C ef þess er nokkur kostur. Erlent 10.5.2022 07:01
Ný karlapilla þykir örugg og laus við aukaverkanir Enn á ný boða vísindamenn að ný getnaðarvörn fyrir karla, karlapillan, sé handan við hornið. Rannsóknir á músum sýna að aukaverkanir séu færri en áður og að öryggi þeirra sé allt að 99%. Erlent 2.5.2022 18:00
Segja skrifræði stjórnvalda hindra eldflaugaskot frá Langanesi Skoska eldflaugafyrirtækið Skyrora segir að „óþarfa skrifræði“ íslenskra stjórnvalda sé að tefja það að félagið geti skotið eldflaug á loft frá Langanesi. Innlent 27.4.2022 17:36
Carbfix vann tvöfalt í fyrri umferð kolefniskeppni Elon Musk Carbfix vann til tveggja verðlauna í fyrri umferð alþjóðlegrar keppni auðkýfingsins Elon Musk, þar sem markmiðið er að finna leiðir til að draga úr koltvíoxíðmengun í andrúmsloftinu. Viðskipti erlent 22.4.2022 13:31