
Fjölmiðlar

Taugatitringur innan Árvakurs
Núverandi stjórnendur Morgunblaðsins og tengdir aðilar telja sig geta varist óvinveittri yfirtöku. Taugatitrings gætir meðal helstu hluthafa þessarar áttatíu og þriggja ára gömlu íslensku stofnunar og greinilegt að öll dýrin í skóginum eru ekki lengur vinir.

Útvarpsstjóri átti einn kost
Fréttamenn RÚV ætla að fara fram á rökstuðning frá útvarpsstjóra vegna ráðningar nýs fréttastjóra. Heimildir innan Útvarpsins herma að útvarpsstjóri hafi metið það svo að þar sem enginn annar umsækjenda hafi komist á blað hjá útvarpsráði ætti hann þann kost einan í stöðunni að skipa Auðun Georg Ólafsson sem fréttastjóra.

Fréttamenn bíða viðbragða
Stjórn Félags fréttamanna fór fram á fund vegna fréttastjóramálsins með Markúsi Erni Antonssyni útvarpsstjóra í gærmorgun en síðdegis varð ljóst að ekkert yrði af þeim í gær, að sögn Jóns Gunnars Grjetarssonar formanns Félags fréttamanna á RÚV. Hann sagði fréttamenn bíða viðbragða frá honum og Auðuni Georg Ólafssyni nýráðnum fréttastjóra.

Talibanafemínistar gegn Bjössa Jör
Björn Jörundur var að fá úr prentsmiðjunni 5. tölublaðið af bOGb. Hann tók við ritstjórn tímaritsins blautur á bak við eyrun. Nú er komin reynsla og í helgarblaði DV ræðir ritstjórinn það hversu erfitt getur reynst að kollvarpa hugmyndum fólks um að hann ritstýri klámblaði og árásir femínista á hendur sér.