Heilbrigðismál

Fréttamynd

Fjármagn gegn átröskun á næstunni

Vonir standa til þess að þær 16 milljónir króna sem vantar til þess að hægt sé að koma rekstri nýrrar göngudeildar fyrir átröskunarsjúklinga á Landspítala háskólasjúkrahúsi í fullan gang, fáist á næstunni, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast rökstuðnings

Umsækjendur um stöðu fréttastjóra Útvarpsins eru nú að ganga frá bréfum til þar til bærra stjórnenda á Ríkisútvarpinu, þar sem sett er fram krafa um rökstuðning fyrir ráðningu Auðuns Georgs Ólafssonar í stöðu fréttastjóra Útvarps.

Innlent
Fréttamynd

Auglýsingar ýta undir átraskanir

Sterk ímynd auglýsingaiðnaðarins stuðlar að því skelfilega og vaxandi vandamáli sem átröskun er, að mati landlæknis. Hann leggur áherslu á að nýta beri það sóknarfæri sem opnun nýrrar göngudeildar á Landspítala býður upp á. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ný áfengismeðferð á Teigi

Áfengissjúklingar sem leita aðstoðar á Teigi, meðferðardeild Landspítala háskólasjúkrahúss, geta nú valið úr meðferðarúræðum sem þar standa til boða, að sögn Bjarna Össurarsonar yfirlæknis.

Innlent
Fréttamynd

Bráðveikt fólk á biðlistum

Þess eru dæmi að fólk sem er á biðlistum eftir hjartaþræðingum hafi þurft að fara á bráðamóttöku og endað í aðgerð, að sögn sviðsstjóra á Landspítala. Yfir 200 manns eru á biðlista og biðin eftir þræðingu getur numið allt að fjórum mánuðum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Börnum með átröskun fjölgar

Barna- og unglingageðdeild Landspítalans þurfti að fást við tvöfalt til þrefalt fleiri tilfelli átröskunar í fyrra en næstu ár á undan. Nýjar beiðnir vegna sjúkdómsins hafa verið tíu til fimmtán á ári að meðaltali þar til á síðasta ári þegar þær voru þrjátíu talsins. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Blóðstrimlar í opinn reikning

Talsmenn tveggja fyrirtækja sem flytja inn blóðstrimla til blóðsykursmælinga segja þau ekki hafa gefið fólki slíka strimla í stórum stíl, til að fá síðan 80 - 90 prósent endurgreidd hjá Tryggingastofnun. Þriðja innflutningsfyrirtækið neitar að svara Fréttablaðinu. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ríkið hamlar endurmenntun

Íslenskir læknar eiga ekki kost á þeirri endurmenntun hér á landi sem þeir þurfa í sínu fagi, segir formaður Félags unglækna. Hann bendir á óuppfærða sérlyfjaskrá, skort á námskeiðahaldi og álítur að ríkið hafi hamlandi áhrif með aðgerðaleysi sínu. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Tryggja þarf nægilegt bóluefni

Hafin er vinna tveggja ráðuneytisstjóra til að verja Ísland gegn fuglaflensufaraldri. Jafnframt hvað sé til ráða berist faraldurinn hingað til lands. Nægt bóluefni er grundvallaratriðið í baráttunni gegn vágestinum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Versta sýkingin í níu ár

Á þriðja þúsund ungbörn hafa komið á bráðamóttöku Barnaspítalans frá því um áramót. Það er um 20 prósentum meira heldur en á sama tíma í fyrra og stafar aukningin að stærstum hluta af RS - vírussýkingu sem hefur verið að ganga undanfarnar vikur.

Innlent
Fréttamynd

Birgðir af strimlum uppi í skáp

Þess hafa verið dæmi að einstaklingar ættu margra mánaða birgðir af blóðstrimlum uppi í skápum hjá sér áður en Tryggingastofnun breytti reglugerð um hjálpartæki 1. desember, að sögn Þuríðar Björnsdóttur, formanns Samtaka sykursjúkra.

Innlent
Fréttamynd

Fimmtíu milljónir í hreinan óþarfa

Ofnotkun á strimlum í blóðsykurmæla kostaði ríkið að minnsta kosti 50 milljónir á síðasta ári, að sögn framkvæmdastjóra Tryggingastofnunar. Hörð samkeppni í sölu leiddi til þess að fólk fékk gefins mæla og strimla, en TR þurfti að borga brúsann. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Sjúkraþjálfarar fengu 13 prósent

Nýr kjarasamningur sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara felur að þeirra mati í sér 13 prósenta hækkun á samningstímanum sem er þrjú ár, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Innlent
Fréttamynd

Fá endurgreitt vegna Vioxx

Lyfjafyrirtækið Merck Sharp & Dohme á Íslandi greiðir 4,5 milljónir króna til Tryggingastofnunar ríkisins. Greiðslan er vegna kostnaðar sem féll á stofnunina vegna niðurgreiðslu gigtarlyfsins Vioxx  til sjúklinga.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðir bregðist við hættunni

Þróun fuglaflensunnar, sem herjað hefur á Asíulönd er óbreytt, að sögn formanns framkvæmdastjórnar WHO. Hann segir að þjóðir heims þurfi að gera þær ráðstafanir sem hægt sé. Mesta hætta á heimsfaraldi frá árinu 1968. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Könnun á munnheilsu barna

Nú stendur yfir könnun á munnheilsu sex, tólf og fimmtán ára barna í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni.

Innlent
Fréttamynd

Ráðgjöf gegn HIV - smiti

Starfsfólk á göngudeild smitsjúkdóma á Landspítala - háskólasjúkrahúsi veitir nú aukna þjónustu þeim sem koma í HIV próf, að sögn Más Kristjánssonar yfirlæknis á deildinni.

Innlent
Fréttamynd

Mósa - bakteríur af sama stofni

Talið er sennilegt að Mósa-bakteríur þær sem greindust á hjartadeild Landspítala háskólasjúkrahúss og Hrafnistu séu af sama stofni, að sögn Guðrúnar Sigmundsdóttur yfirlæknis hjá sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins.

Innlent
Fréttamynd

Löng bið eftir fáum úrræðum

Það er ólýsanlega sárt þegar níu ára barnið þitt stendur fyrir framan þig og segir:"Mamma ég vil bara fá að deyja." Þetta segir varaformaður Barnageðs, félags foreldra og áhugafólks um geðraskanir barna og unglinga. Hann segir alltof langa bið eftir alltof fáum úrræðum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ekki samkeppni í blóðrannsóknum

Samkeppnisráð telur ekki ástæðu til að hafast frekar að vegna máls sem reis vegna fyrirhugaðs flutnings rannsókna frá heilsugæslustöðvum til Rannsóknarstofnunar Landspítala - háskólasjúkrahúss

Innlent
Fréttamynd

Aðgerðir vegna gigtarlyfja

Lyfjastofnun Evrópu hefur tilkynnt aðgerðir vegna COX-2 lyfjaflokksins, sem fela í sér viðvaranir til lækna um ávísun lyfjanna. Þessar aðgerðir eiga einnig við á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Níu mosa - tilfelli frá áramótum

Mosa - sýkingabakteríur hafa fundist í níu manns hér frá áramótum, að sögn Ólafs Guðlaugssonar yfirlæknis sýkingavarnadeildar á Landspítala háskólasjúkrahúsi

Innlent
Fréttamynd

Bakterían getur verið banvæn

Sjúkrahúsbakterían Mosa, sem ræktast hefur í tveimur mönnum hér á landi á undanförnum dögum, getur reynst banvæn, sé hún algjörlega ónæm fyrir sýklalyfjum.

Innlent
Fréttamynd

Í einangrun á Hrafnistu

Íbúi á dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði er nú í einangrun, þar sem mosa - skýkingabaktería hefur ræktast í honum. Þetta er annað tilfellið á fáeinum dögum sem bakterían finnst hér á landi. Hún getur valdið alvarlegum sýkingum ef hún nær sér á strik. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Óviðeigandi gagnrýni

Formaður Læknafélags Íslands kveðst telja ummæli Ingu J. Arnardóttur, deildarstjóra Tryggingastofnunar, mjög óviðeigandi vegna þess að forsendur gagnrýni hennar á lækna virðist einkum byggjast á fjárhagslegum sjónarmiðum.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í 100 miltisbrandsstaðir

Hátt í hundrað tilkynningar um staði sem taldir eru miltisbrandssýktir hafa borist Sigurði Sigurðarsyni dýralækni sauðfjár- og nautgripasjúkdóma hjá yfirdýralæknisembættinu.

Innlent