Kína
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 42 ›
Vilja ekki nýtt kalt stríð við Kínverja Anthony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkjamenn ekki vilja nýtt kalt stríð við Kína og þeir muni ekki standa í vegi aukins hagvaxtar ríkisins. Þetta sagði Blinken í ræðu sem hann flutti í gær um afstöðu Bandaríkjanna gagnvart Kína og sagði hann að þó stríðið í Úkraínu væri stærsta ógn við stöðugleika í heiminum til skamms tíma, stafaði Bandaríkjunum meiri ógn af Kína. Erlent 27.5.2022 11:42
Segir ummælin ekki marka breytta stefnu gagnvart Taívan Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist ekki hafa verið að tala um breytta stefnu ríkisins gagnvart Taívan er hann sagði að Bandaríkin myndu koma eyríkinu til aðstoðar ef Kína réðist á það. Ráðamenn í Kína brugðust hinir reiðustu við ummælum Bidens. Erlent 24.5.2022 12:11
Hét því að Bandaríkin kæmu Taívan til varnar Joe Biden Bandaríkjaforseti tók af tvímæli um hvort að Bandaríkin kæmu Taívan til aðstoðar hernaðarlega ef Kína réðist á eyjuna. Hvíta húsið segir að engin stefnubreyting felist í yfirlýsingu forsetans. Erlent 23.5.2022 09:11
Byssumaðurinn sagður knúinn áfram af hatri á Taívönum Tæplega sjötugur karlmaður sem skaut einn til bana og særði fimm til viðbótar í kirkju í sunnaverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær er kínverskur innflytjandi og var knúinn áfram af hatri á Taívönum. Árásina gerði hann í taívanskri öldungakirkju en kínversk stjórnvöld gera tilkall til Taívans. Erlent 16.5.2022 23:22
Kínverjar hætta við að halda Asíumótið vegna kórónuveirufaraldursins Kínverjar hafa ákveðið að þeir muni ekki halda Asíumótið í fótbolta sumarið 2023 vegna kórónuveirufaraldursins sem nú geysar þar í landi. Fótbolti 14.5.2022 10:46
Sendur lifandi í líkhúsið Fjórum opinberum starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum eftir að aldraður maður á hjúkrunarheimili í Sjanghæ reyndist á lífi, eftir að hann hafði verið settur upp í líkbíl. Erlent 3.5.2022 23:06
Þrjú látin úr Covid í Sjanghæ Þrjú hafa látist úr Covid í Sjanghæ í Kína en útgöngubann hefur verið í borginni í nærri fjórar vikur. Kínversk stjórnvöld hafa hingað til haldið því fram að enginn hafi látist úr veirunni í borginni. Erlent 18.4.2022 13:30
Lentu eftir lengstu geimferð Kína Þrír kínverskir geimfarar lentu á jörðinni í morgun eftir að hafa varið hálfu ári um borð í nýjustu geimstöð Kína. Þar með luku þeir lengstu mönnuðu geimferð ríkisins hingað til. Erlent 16.4.2022 09:43
Örvænting og ringulreið í Sjanghæ vegna faraldursins Mikil ringulreið hefur gripið um sig í Sjanghæ í Kína vegna kórónuveirufaraldursins. Útgöngubann stóð yfir í tvær vikur en sumum var hleypt út í fyrsta skipti nú í vikunni. Fólk flykktist í matvöruverslanir og kepptist við að ná matvörum og nauðsynjavörum. Erlent 15.4.2022 12:13
Slakað á í Sjanghæ: 4,8 milljónum hleypt út í fyrsta sinn í tvær vikur Yfirvöld í Kína hafa slakað lítillega á sóttvörnum í Sjanghæ og stórum hluta þeirra 25 milljóna sem þar búa var hleypt út í fyrsta sinn í tvær vikur. Fjölmiðlar ytra segja fólk hafa hlaupið í verslanir til að kaupa matvæli eftir mikla inniveru. Erlent 12.4.2022 09:48
Mótmæla tveggja vikna útgöngubanni í Sjanghæ með því að öskra út um gluggann Aldrei hafa fleiri tilfelli kórónuveirunnar greinst í Sjanghæ í Kína. Útböngubann hefur verið í borginni í tvær vikur þrátt fyrir að flestir hinna smituðu séu einkennalausir. Íbúar segja hættu á að fólk deyi úr hungri. Erlent 11.4.2022 21:01
Carrie Lam hefur ekki áhuga á að sitja áfram Carrie Lam, leiðtogi heimastjórnar Hong Kong, hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri þegar skipunartímabil hennar er á enda. Stjórnartíð hennar hefur verið umdeild og einkennst af því að mjög hefur gengið á réttindi borgaranna. Erlent 4.4.2022 10:41
Segir að Kína muni ekki reisa herstöð á Salómonseyjum Ráðamenn á Salómonseyjum segja að Kína verði ekki leyft að reisa herstöð þar. Það er þrátt fyrir að ríkin ætli sér að skrifa undir varnarsáttmála. Yfirvöld í Ástralíu og Bandaríkjunum hafa áhyggjur af því að sáttmálinn feli í sér aukin umsvif Kínverja á eyjunum sem eru hernaðarlega mikilvægar. Erlent 1.4.2022 10:31
Fleiri greinst með Covid í Kína það sem af er ári en allt árið 2021 Yfir hundrað milljón tilfelli kórónuveirusmits hafa nú greinst í Asíu en faraldurinn er í mikilli uppsveiflu í álfunni um þessar mundir vegna undirafbrigðis ómíkron, BA.2. Yfirvöld í Kína hafa gripið til aðgerða til að hemja útbreiðsluna, þar á meðal í Shanghai þar sem útgöngubann er í gildi. Erlent 30.3.2022 11:35
Olíuverð lækkar vegna Covid-takmarkana í Sjanghæ Töluverðar lækkanir urðu á olíuverði á Asíumörkuðum við opnun þeirra í nótt og er lækkunin rakin til þeirrar ákvörðunar kínverskra stjórnvalda að setja útgöngubann í stórborginni Sjanghæ. Viðskipti erlent 28.3.2022 07:45
Allir um borð í kínversku flugvélinni fórust Allir 132 um borð í flugi MU5735 hjá flugfélaginu China Eastern Airlines létust í slysinu. Flugvélin hrapaði í suðurhluta Kína þann 21. mars síðastliðinn. Erlent 26.3.2022 16:22
Annar flugrita kínversku vélarinnar fundinn Leitarlið hefur fundið annan af flugritum farþegavélarinnar sem hrapaði í suðurhluta Kína á mánudaginn. Ekki er liggur fyrir hvort um sé að ræða ferðritann eða hljóðritann en hann er mikið skemmdur að því er segir í frétt AP. Erlent 23.3.2022 09:48
Leita að flugritum MU5735 í skógi vöxnu fjalllendi Viðbragðsaðilar hafa verið að í um sólarhring við að leita að líkum þeirra sem fórust í flugslysi í suðurhluta Kína í gærmorgun. Óvíst er hvað olli slysinu og er flugritanna enn leitað. Erlent 22.3.2022 09:49
Má ekki yfirgefa háskólasvæðið nema í brýnni neyð vegna Covid Heilu hverfunum í stórborgum Kína hefur verið lokað af vegna ómíkron bylgju sem ríður yfir landið og ógnar markmiðum um að koma algjörlega í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Íslensk kona í Shanghai má ekki yfirgefa háskólasvæðið nema í brýnni neyð og segir engan í kringum sig hafa smitast af covid. Innlent 21.3.2022 10:34
Boeing 737-800 flugvélin hrapaði úr 30 þúsund feta hæð á tveimur mínútum Flugvél með 133 manns um borð hefur hrapað í Kína. AFP segir frá þessu, en óvíst er á þessari stundu um manntjón. Erlent 21.3.2022 08:31
Biden og Xi ræðast við í dag: Hvað gera Kínverjar? Joe Biden Bandaríkjaforseti og Xi Jingping, forseti Kína, munu ræðast við í síma í dag klukkan 13 að íslenskum tíma. Um er að ræða fyrsta samtal leiðtoganna frá því í nóvember í fyrra og frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 18.3.2022 06:30
Bandaríkjamenn telja Kínverja nú þegar hafa ákveðið að koma Pútín til aðstoðar Bandaríkjamenn óttast að Kínverjar séu nú þegar búnir að ákveða að koma Rússum til bjargar efnahags- og fjárhagslega og séu að íhuga að sjá þeim fyrir vopnum, meðal annars vopnuðum drónum. Erlent 15.3.2022 06:31
Viðræður Úkraínumann og Rússa halda áfram og Bandaríkjamenn biðla til Kínverja Fulltrúar Úkraínu og Rússlands munu ræða saman í dag í gegnum fjarfundabúnað, segir Mykhailo Podoliak, ráðgjafi Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Talsmenn beggja þjóða hafa sagt eitthvað orðið ágengt, jafnvel þótt engar vísbendingar séu uppi um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé reiðubúinn til að slá af kröfum sínum. Erlent 14.3.2022 06:32
Rússar hafi beðið Kínverja um aðstoð Bandarískir embættismenn segja Rússa hafa beðið Kínverja um hernaðargögn frá upphafi innrásar Rússa inn í Úkraínu. Erlent 13.3.2022 20:15
Rússar verði háðir Kínverjum eftir nýjustu efnahagsþvinganir Evrópusambandið ætlar að meina Rússum aðgang að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem myndi gera þá algerlega háða Kínverjum eða Indverjum þegar efnahagur landsins hrynur. Þetta er á meðal þess sem kynnt var í fjórða pakka þvingunaraðgerða gegn Rússlandi í gær. Erlent 12.3.2022 20:30
Forsætisráðherra Ástralíu segir stríðið í Úkraínu ögurstundu fyrir Kínverja Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, hefur varið afstöðu þarlendra stjórnvalda til átakanna í Úkraínu. Hann segir þau munu tala fyrir friðarviðræðum. Samkvæmt New York Times neitar hann að kalla aðgerðir Rússa „innrás“. Erlent 7.3.2022 08:13
Segja ráðamenn í Kína hafa sagt Rússum að bíða með innrásina þar til eftir Ólympíuleikana Ráðamenn í Kína vissu af fyrirætlunum Rússa um að ráðast inn í Úkraínu ef marka má gögn sem yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu hafa undir höndum. Komu þeir þeim skilaboðum á framfæri við Rússa að láta ekki til skarar skríða fyrr en að Ólympíuleikunum, sem haldnir voru í Pekíng, væri lokið. Erlent 3.3.2022 05:00
Gaf Ólympíugullið sitt en óttast nú um líf sitt vegna þess Sænski skautahlauparinn Nils van der Poel vann tvö gull á Vetrarólympíuleikunum í Peking á dögunum en hann tók þá ákvörðun að gefa annað gullið sitt eftir að hann kom heim frá Kína. Sport 1.3.2022 09:30
„Taívan er ekki Úkraína“ Ráðamenn í Kína segja ekki hægt að bera saman aðstæður Úkraínu og Taívans. Hið síðarnefnda ríki hafi ávallt verið óaðskiljanlegur hluti Kína. Í Taívan hafa yfirvöld áhyggjur af því að Kínverjar nýti sér deilurnar í Evrópu til mögulegra hernaðaraðgerða. Erlent 23.2.2022 11:48
Saka Kínverja um að hafa lýst upp herþotu með leysigeisla Áströlsk hernaðaryfirvöld eru ekki par sátt með kollega þeirra frá Kína, eftir að kínverskt herskip beindi kraftmiklum leysigeisla að ástralskri herþotu. Erlent 21.2.2022 08:03