Myndlist
Ráðin kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur
Nathalía Druzin Halldórsdóttir hefur verið ráðin sem kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur.
KÚNST: „Þessi stöðuga þörf til að gera eitthvað hefur skilað mér hvað mestum árangri“
Listamaðurinn Árni Már Erlingsson rekur Gallery Port á Laugavegi 32 og er með marga bolta á lofti. Hann er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum.
Reynsluheimur kvenna og kynlíf yfirfærð á strigann
Listakonan Aldís Gló Gunnarsdóttir opnar þriðju einkasýningu sína í dag í Gróskusalnum á Garðatorgi 1. Sýningin ber nafnið TABÚ og er bönnuð innan sextán ára. Eins og titill sýningarinnar gefur til kynna skoðar Aldís viðfangsefni sem hafa jafnvel verið tabú í samfélagslegri umræðu og yfirfærir meðal annars reynsluheim kynlífs frá kvenmanns sjónarhorni á strigann. Blaðamaður tók púlsinn á Aldísi og fékk að heyra nánar frá listsköpun hennar.
Neyðarsöfnun til Úkraínu í gegnum listaverka uppboð
Myndlistargalleríið Listval stendur nú fyrir listaverka uppboði þar sem allur ágóði sölunnar rennur óskiptur til neyðarsöfnunar Þroskahjálpar fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Uppboðið hófst í gær og stendur til 31. mars næstkomandi.
23 ára en selur málverk fyrir mörg hundruð þúsund
Erna Mist er 23 ára en þrátt fyrir ungan aldur er hún pistlahöfundur, myndlistakona, stuttmyndagerðakona og var tilnefnd til Gullna eggsins á RIFF.
Hefur öðlast styrk, skilning og getu til þess að mæta tilfinningunum
Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar sýninguna „Feelings served; table for one“ í dag klukkan 17:00. Sýningin er haldin í Núllinu, listagalleríi neðanjarðar á Bankastræti 0. Undanfarna daga hefur Júlíanna verið í óða önn við að breyta hráu rýminu í undraheim en blaðamaður heyrði í henni hljóðið.
Sýningargestum velkomið að koma og leika sér
Sara Björg Bjarnadóttir er myndlistarkona sem ber marga aðra hatta eins og að vera landvörður, heimspekinemi og söngkona. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr LHÍ árið 2015 og hefur búið í Kanada, á Akureyri og í Berlín en er nú orðinn Kópavogsbúi. Sara Björg stendur fyrir sýningunni „mjúk lending“ sem opnar í Ásmundarsal í dag klukkan 15:00 og eru öll velkomin.
Gjörningar út úr þokunni á Listasafni Reykjavíkur
Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir gjörningalistahátíð um helgina þar sem Hafnarhúsið er undirlagt af gjörningum, uppákomum og umræðum um listformið á Gjörningaþoku. Blaðamaður ræddi við Kristínu Dagmar Jóhannesdóttur verkefnastjóra Hafnarhússins.
Snorri Ásmundsson: „Orðið „gaman“ er svo upplífgandi, sérstaklega á okkar tímum“
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson opnar sýninguna GAMAN Í Portfolio Gallerí, Hverfisgötu 71, á morgun, laugardaginn 12. mars. Opnunin stendur frá klukkan 16:00-18:00 og eru öll velkomin. Blaðamaður hafði samband við Snorra og fékk nánari innsýn í hans listræna heim.
Pari Stave nýr forstöðumaður Skaftfells
Stjórn Skaftfells, myndlistarmiðstöðvar Austurlands, tilkynnti í gær að Pari Stave hefur verið ráðin nýr forstöðumaður. Hún tekur til starfa 1. maí næstkomandi.
Býr til útópíska heima
María Guðjohnsen starfar sem þrívíddarhönnuður og listakona og er búsett í New York. Hún hefur unnið að ýmsum skapandi verkefnum undanfarið sem vakið hafa mikla athygli. Má þar meðal annars nefna grafíkina fyrir Söngvakeppnis atriði Reykjavíkurdætra í ár. Blaðamaður hafði samband við Maríu um listina, lífið og skapandi verkefni.
Gífurleg orka náttúrunnar færð yfir á strigann
Listakonan Guðrún Einarsdóttir opnaði sýninguna Efnisland síðastliðinn laugardag en hún sækir einstakan myndheim sinn í myndanir og form í kraftmikilli náttúru Íslands. Sýningin, sem er á vegum Listvals, er staðsett í NORR11 á Hverfisgötu 18.
„Maður er alltaf að kafa dýpra og skilja betur það sem maður er að fást við“
Listakonan Áslaug Íris Katrínar Friðjónsdóttir opnar einkasýninguna Arfur í Gallerí Þulu í dag, frá klukkan 14:00-18:00 og stendur sýningin til 27. mars næstkomandi.
Sýningin Freistingin opnar á morgun: „Er nema von að sálir kvenna standi í ljósum logum um allan heim“
Listakonan Ragnhildur Jóhanns opnar sýninguna „Freistingin“ á morgun, laugardaginn 5. mars, á milli klukkan 17:00 og 19:00 í sýningarrými Hjarta Reykjavíkur að Laugavegi 12b.
Árni og Sigrún þekja alla veggi í myndlist
Íslendingar velja oft að kaupa húsgögn og húsmuni á nytjamörkuðum eða jafnvel Facebook.
Íslenskur myndlistarmaður með sýningu í Amsterdam: „Ljóðlistin seytlar inn í myndlistina“
Íslenski myndlistarmaðurinn Kristbergur Ó. Pétursson opnaði einkasýninguna Paintings and poems í Amsterdam fyrir nokkrum vikum síðan í Wg Kunst salnum.
Formin dansa á striganum þar sem andstæður mætast
Myndlistarmaðurinn Þorsteinn Helgason opnar sýninguna Dans litanna á morgun, laugardaginn 26. febrúar, klukkan 14:00 í Gallerí Fold.
Undirmeðvitundin ræður loka útlitinu
Sýning frönsku listakonunnar Claire Paugam, Anywhere but Here, var opnuð í Listasal Mosfellsbæjar 11. febrúar síðastliðinn. Næstkomandi laugardag, þann 26. febrúar, mun Claire verða með listamannaspjall á sýningunni klukkan 14:00-15:00. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Afbyggir hugmyndir um fullkomnun í gegnum listina
Hildur Ása Henrýsdóttir opnaði einkasýninguna Marga hildi háð í Gallery Port á dögunum. Linda Toivio er sýningarstjóri og mun sýningin standa til þriðja mars næstkomandi.
Beint úr iðrum hins kvenlæga veruleika
Gjörningaklúbburinn stendur fyrir sýningunni Seiglu í NORR11 á Hverfisgötu. Sýningin mun standa til fyrsta mars næstkomandi og er unnin í samvinnu við Listval.
Njálssaga myndskreytt með 150 teikningum
Segja má að Brennu – Njálssaga hafi öðlast nýtt líf og „lifnað“ við með hundrað og fimmtíu teikningum af vettvangi atburða í sögunni. Myndirnar verða notaðar á skólavef aðallega ætluðum framhaldsskólum með styttri texta og útskýringum á tölvutæku formi og auðlesnari máli en í frumritinu
„Fyrirtækið var skírt þessum Bjarnhéðni til heiðurs“
Þeir unnu allan sólahringinn segir í gamalli blaðagrein um stofnendur Héðins hf. Fyrirtækis sem telst eitt af framúrskarandi fyrirtækjum landsins og hefur skapað þúsundir starfa á Íslandi í heila öld.
Sýningin er vítamínsprauta fyrir áhorfendur
Samsýningin Í öðru húsi eftir Guðlaugu Míu Eyþórsdóttur, Hönnu Dís Whitehead og Steinunni Önnudóttur opnar í Ásmundarsal á laugardaginn. Bjartir litir og léttleiki fylla sýningarrýmið sem er sannkölluð vítamínsprauta fyrir áhorfendur.
Guggugulur fannst á Listasafni Akureyrar
Verkið Guggugulur, sem hvarf á Akureyri fyrir sex árum síðan, er komið í leitirnar og mun kannski skila sér aftur heim til Ísafjarðar eftir allt saman.
Bjóða börnum að gerast listamenn
Krakkaklúbburinn Krummi stendur mánaðarlega fyrir skemmtilegri dagskrá á Listasafni Íslands þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafnsins. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu og eru börn á öllum aldri velkomin.
Vill fá Guggugulan sem hvarf á Akureyri aftur heim til Ísafjarðar
Myndlistarmaðurinn og Ísfirðingurinn Gunnar Jónsson lýsir eftir verki sínu, Guggugulum, sem hvarf á Akureyri þegar það var þar til sýnis árið 2016. Verkið er ljósmynd af málningu, Guggugulum, málningarlitnum sem þjóðþekkta skipið Guggan var máluð með.
Magnað að geta verið eitt í listinni og svo annað í lífinu
Myndlistakonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir er hvað þekktust fyrir gjörningalist og video verk en hún hefur náð miklum árangri í listheiminum á síðustu áratugum og unnið að fjöldanum öllum af verkum og sýningum. Ásdís stendur nú fyrir einkasýningunni Stefnumót við sjálfið á Nýlistasafninu og er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum.
„Efnið er nefnilega lifandi“
Listakonan Þóra Sigurðardóttir opnar sýninguna EFNI & RÝMI klukkan 14:00 í dag í sal félagsins íslensk grafík, Hafnarhúsinu, og stendur sýningin til 6. mars næstkomandi.
Vitað um að minnsta kosti 30 falsanir á verkum Muggs
Ólafur Ingi Jónsson, forvörður á Listasafni Íslands, segir að fölsuð verk eftir listamanninn Mugg séu víða uppi á veggjum; bæði á heimilum og söfnum. Hann telur hin fölsuðu verk telja einhverja tugi.
„Hugmynd sem nær út fyrir hið sjónræna og opnar enn stærri sýn en sést á yfirborðinu“
Listamaðurinn Helgi Þorgils Friðjónsson opnar sýningu á morgun, laugardaginn 12. febrúar, í Portfolio Gallerí á Hverfisgötu 71.