Rússland

Biden segir Pútín hafa hitt ofjarl sinni í úkraínsku þjóðinni
Rússar hafa hert mjög loftárásir sínar á borgir víðs vegar um Úkraínu í dag og fullyrða að þeir hafi náð einni þeirra alfarið á sitt vald. Forseti Bandaríkjanna segir Rússa eiga eftir að finna fyrir afleiðingum innrásarinnar á stöðu sína um langa framtíð. Talið er að um tvö þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu.

Allsherjarþingið fordæmir innrásina og krefst þess að herlið verði dregið til baka
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem innrás Rússa í Úkraínu er fordæmd og þess krafist að rússneskir hermenn verði dregnir til baka.

Versti dagur stríðsins hingað til
Harðir bardagar hafa staðið yfir í allan dag í Kharkív, Mariupol og Kherson. Eldflaugum hefur rignt yfir borgirnar og stórskotalið herjað á þær. Rússar hafa bætt verulega í árásir á skotmörk í borgum sem ekki þjóna hernaðarlegum tilgangi.

Ál- og gasverð í hæstu hæðum
Miklar hækkanir hafa orðið á eldsneytismörkuðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu og refsiaðgerða gegn Rússlandi. Tunnan af hráolíu kostar nú meira en 110 Bandaríkjadali og hefur verð jarðgass hefur aldrei verið hærra í Evrópu.

Maltverjar loka á vegabréfakaup Rússa
Malta hefur ákveðið að loka fyrir umsóknir Rússa og Hvítrússa fyrir svokölluð „gyllt vegabréf“ vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gegn ríkjunum tveimur.

Erlendum ríkisborgurum meinað að flýja Úkraínu
Erlendir ríkisborgarar, sérstaklega af afrískum uppruna, hafa lent í miklum vandræðum við að flýja Úkraínu. Margir þeirra segja að þeim hafi verið vísað úr lestum og þeim meinaður aðgangur að almenningssamgöngum á leið úr landinu.

Veruleiki Úkraínumanna á sjöunda degi stríðs
Fátt grípur veruleikann betur en ljósmyndir enda segja þær meira en þúsund orð. Það getur reynst okkur á Íslandi erfitt að gera okkur grein fyrir veruleika Úkraínumanna þessa dagana.

Rússar segja aðra umferð friðarviðræðna fara fram í dag
Önnur umferð friðarviðræðna milli Úkraínu og Rússlands fer fram síðar í dag. Þetta kemur fram í frétt rússneska ríkisútvarpsins Tass og þar vísað í starfsmann úkraínska forsetaembættisins.

Grunnskólabörn handtekin í Moskvu fyrir að leggja blóm við úkraínska sendiráðið
Að minnsta kosti fjögur grunnskólabörn og foreldrar þeirra voru handtekin í Moskvu í gær þegar þau lögðu blóm við úkraínska sendiráðið og héldu á skiltum sem á stóð „Nei við stríði“.

Bein útsending: Innrásin og afleiðingarnar fyrir öryggi í Evrópu
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga standa fyrir opnum fundi um innrás Rússlands í Úkraínu og þær afleiðingar sem innrásin hefur fyrir öryggi í Evrópu.

Navalní kallar eftir mótmælum: „Pútín er ekki Rússland“
Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní kallar eftir því að Rússar haldi umfangsmikil mótmæli gegn innrásinni í Úkraínu. Þetta segir Navalní í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þar sem hann situr í fangelsi í Rússlandi.

Pútín sagður einangraður og með ofsóknaræði
Starfsmenn leyniþjónusta í Bandaríkjunum og Evrópu vinna hörðum höndum þessa dagana að því að átta sig á hugarástandi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands.

Vill breyta Garðastræti í Kænugarðsstræti
Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun í dag leggja fram tillögu í skipulagsráði borgarinnar þess efnis að nafnanefnd verði falið að breyta heiti Garðastrætis í Kænugarðsstræti.

Íslendingur í Kænugarði segir ýmis vandamál virðast plaga Rússa
Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem búsettur er í Kænugarði, segir síðasta sólahring hafa verið nokkuð rólegan í borginni, fyrir utan tvær stórar sprengingar í gær þar sem ráðist var á sjónvarpsturn annars vegar og minnisvarða um Helförina hins vegar.

Vaktin: Ísland á meðal ríkja sem vísa meintum stríðsglæpum Rússa til rannsóknar Alþjóðasakamáladómstólsins
Vika er liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan.

Hart barist í Karkív eftir að rússneskar hersveitir lenda í borginni
Rússneskar hersveitir lentu í Karkív um klukkan 3 í nótt og harðir bardagar standa nú yfir milli þeirra og úkraínska hersins. Úkraínsk yfirvöld greindu frá því í nótt að ráðist hefði verið á hersjúkrahús í borginni og að bardagar hefðu brotist út á milli „innrásarhermanna og úkraínskra varnaraðila“.

Tárvot þrumuræða úkraínskrar blaðakonu vekur heimsathygli
Daria Kaleniuk, úkraínskur blaðamaður, grátbað Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um aukna aðstoð til að berjast gegn innrás Rússa í Úkraínu á blaðamannafundi í dag. Myndband af þrumuræðu hennar hefur vakið heimsathygli.

Segir það ósanngjarnt að banna rússnesku íþróttafólki að keppa
Rússneski ökuþórinn Daniil Kvyat segir það ósanngjarna lausn að banna rússnesku íþróttafólki að keppa í sinni íþrótt vegna innrásar þjóðarinnar í Úkraínu.

Sendiherrann segir að barist verði til síðasta blóðdropa um Kænugarð
Olga Dibrova hefur verið sendiherra Úkraínu á Íslandi með aðsetur í Helsinki í tvö ár en vegna Covid faraldursins gat hún fyrst í dag afhent forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Hún segir Rússa aldrei ná höfuðborginni Kænugarði á sitt vald vegna þess að þeir berjist ekki einungis við úkraínska herinn heldur alla úkraínsku þjóðina

Klitschko boxbræður sagðir vera á aftökulista Pútíns
Valdimír Pútín sendir ekki aðeins hersveitir inn í Úkraínu því hann virðist líka vera búinn að gera út aftökusveit sem á að einbeita sér að losa hann við þá Úkraínumenn sem hann er sérstaklega ósáttur.

„Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni“
„Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni,“ sagði dóttir Juliu Petryk, íbúa í Kænugarði, þegar mæðgurnar tóku tvo ókunnuga stúdenta inn á heimili sitt um helgina. Stúdentarnir voru þeim alls ókunnugir áður en Rússar réðust inn í Úkraínu en eru nú eins og hluti af fjölskyldunni þeirra.

Ekki tímabært að slíta stjórnmálasambandi við Rússa
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það ekki á dagskrá að svo stöddu að slíta stjórnmálasambandi við Rússa vegna innrásarinnar í Úkraínu þar sem slíkt væri síðasta úrræði. Hún telur að þær refsiaðgerðir sem kynntar hafi verið komi til með að setja þrýsting á rússnesk stjórnvöld og segir alþjóðasamfélagið samstíga í sinni afstöðu.

Diplómatar Sameinuðu þjóðanna snúa baki við Lavrov
Diplómatar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa margir neitað að hlusta á málflutning Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, í dag.

Rússar áhyggjufullir um samskipti Norðmanna og Dana vegna breytinga á götuheiti
Rússneska sendiráðið í Danmörku hefur lýst yfir áhyggjum af samskiptum Norðmanna og Dana vegna umræðna um að breyta heiti götunnar Kristianiagade í Ukrainegade. Rússneska sendiráðið stendur við fyrrnefnda götu og einn borgarstjóra Kaupmannahafnar hefur lýst yfir vilja til að skoða það að breyta götuheitinu í Ukrainegade.

Selenskí segir árásina á ráðhúsið í Karkív vera hryðjuverk
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugaárásin á ráðhúsið í Karkív í morgun sé hryðjuverk. Í nýju ávarpi segir forsetinn að Rússar ætli sér að nota slík ódæði til að draga úr baráttuanda Úkraínumanna.

Segir Rússa ekki ætla að breyta um stefnu vegna refsiaðgerða
Refsiaðgerðir munu aldrei fá Rússa til að hætta innrás þeirra í Úkraínu. Þetta sagði Dmitry Peskov, talsmaður Valdimírs Pútín, forseta, við blaðamenn í morgun.

Hver er Vólódímír Selenskí?
Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu hefur verið til mikillar umræðu undanfarna daga. Frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst hefur Selenskí haldið þjóð sinni upplýstri með reglulegum færslum á samfélagsmiðlum og ákveðið að halda kyrru fyrir í heimalandinu, þrátt fyrir boð um aðstoð til flótta.

Pútín missir svarta beltið sitt
Íþróttaheimurinn keppist nú við að loka á Rússland eftir innrás Rússa í Úkraínu. Það hefur líka áhrif á Vladimírs Pútín og svo kölluð íþróttaafrek hans.

Sjötíu úkraínskir hermenn féllu í árás Rússa í Okhtyrka
Sjötíu úkraínskir hermenn hið minnsta féllu í stórskotaliðsárás rússneska hersins í bænum Okhtyrka í norðausturhluta Úkraínu á sunnudaginn.

Vaktin: Hergagnalestin mikla þokast lítið áfram
Sjötti dagur innrásar Rússa í Úkraínu er hafinn. Fréttastofa heldur áfram að fylgjast með gangi mála með nýjustu tíðindum í vaktinni á Vísi hér að neðan.