Gabon

Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina
Vígamenn sem tengjast Al-Qaeda gerðu í vikunni umfangsmikla árás í Bamako, höfuðborg Malí. Þar eru þeir sagðir hafa banað rúmlega sjötíu manns auk þess sem þeir brenndu herflugvélar og einnig forsetaflugvél Assimi Goita, ofursta, sem leiðir herforingjastjórn Malí.

Valdaræningi lætur lýsa sig forseta Gabons
Leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Gabon sór embættiseið sem bráðabirgðaforseti landsins í dag. Hann hét því að skila völdum aftur til þjóðarinnar í frjálsum og trúverðugum kosningum.

Ástandinu í Afríku líkt við „faraldur alræðis“
Gabon hefur verið vikið úr Afríkubandalaginu eftir að herinn handsamaði Ali Bongo, forseta landsins, og tók þar völd. Nefnd sambandsins um frið og öryggi fordæmir valdaránið en þetta er áttunda valdaránið á svæðinu á þremur árum.

Hermenn handtóku forseta Gabon
Hópur hermanna í Gabon segist hafa handsamað Ali Bongo, forseta landsins. Þrátt fyrir að Bongo hafi kallað eftir mótmælum vegna handtöku hans virðist sem íbúar landsins hafi tekið handtökunni fagnandi.

Aubameyang sendi þjóð sinni kveðjubréf
Barcelona framherjinn Pierre-Emerick Aubameyang hefur spilað sinn síðasta landsleik fyrir Gabon.

Valdaránsmenn handteknir í Gabon
Fjórir uppreisnarmenn innan stjórnarher Gabon voru handteknir í morgun.

Stjórnarherinn tekur völdin í Gabon
Forsetinn Ali Bongo er sagður hafa fengið slag í október síðastliðnum og gengist undir meðferðir í Marókkó.

Dæmdur í fangelsi fyrir mútugreiðslur
Sonur fyrrverandi forsætisráðherra Gabon hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að aðstoða bandaríska vogunarsjóðinn Och-Ziff Capital Management við að múta háttsettum afrískum embættismönnum.

Rúmlega þúsund manns handteknir í Gabon
Tveir eru sagðir hafa fallið og nítján særst í árás öryggissveita á höfuðstöðvar flokks helsta andstæðings Ali Bongo forseta.

Átök í Gabon eftir umdeildar kosningar
Óöld ríkir í Afríkuríkinu Gabon eftir að stjórnarhermenn réðust á höfuðstöðvar stjórnarandstöðunnar í landinu í morgun. Margir eru særðir, sumir alvarlega, segja leiðtogar stjórnarandstöðunnar. Árásin var gerð nokkrum klukkustundum eftir að forseti landsins, Ali Bongo, lýsti yfir sigri í kosningum sem hafa verið gagnrýndar harðlega.

Bongo áfram forseti í Gabon
Þetta verður annað kjörtímabil hins 57 ára Ali Bongo, en faðir hans, Omar Bongo, stýrði landinu í 41 ár.

Fjöldi fólks mótmælti í Gabon
Stjórnarandstæðingar krefjast þess að forseti landsins, Ali Bongo Ondimba, láti af embætti.