Samfylkingin
46 47 48 49 50 51 … 51 ›
Ólga á landsfundi vegna smölunar Ólga var á landsfundi Samfylkingarinnar vegna mikillar kappsemi ungliðanna við að smala í varaformannskjöri flokksins. Fullyrt var að rútur hefðu komið á fundinn með börn og unglinga sem komu í þeim tilgangi einum að kjósa Ágúst Ólaf Ágústsson í kosningunni en hann sigraði með yfirburðum. Innlent 13.10.2005 19:14
Ný forystusveit í Samfylkingunni Nánast algerlega ný forystusveit tekur nú við stjórnartaumunum í Samfylkingunni eftir úrslit kosninga á landsfundi flokksins í gær. Auk nýs formanns, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og nýs varaformanns, Ágústs Ólafs Ágústssonar, var Ari Skúlason kjörinn gjaldkeri. Innlent 13.10.2005 19:14
Ný framkvæmdastjórn kjörin Ný framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar var kjörin síðdegis á landsfundinum sem fram fer í Egilshöll. Þau sem náðu kjöri eru Sigríður Jóhannesdóttir, Sigrún Grendal, Tryggvi Felixson, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Karl V. Matthíasson og Ingileif Ástvaldsdóttir. Innlent 13.10.2005 19:14
Úr takti við almenna flokksmenn? Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur og dósent við Háskóla Íslands, segir úrslitin í kjöri í embætti innan Samfylkingarinnar í gær benda til þess að forystusveit flokksins og þingmenn hafi verið úr takti við hinn almenna flokksmann. Það hljóti að mega túlka niðurstöðurnar sem kröfu um breyttan stjórnunarstíl og vinnubrögð innan flokksins. Innlent 13.10.2005 19:14
Samfélagið þolir ekki meiri bið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í lokaávarpi landsfundar Samfylkingarinnar að íslenskt samfélag þyldi ekki lengur meiri bið eftir breytingum. Fundinum var slitið með húrrahrópum. Innlent 13.10.2005 19:14
Kona vék vegna kynjakvóta Landsfundi Samfylkingarinnar var slitið nú síðdegis með ferföldu húrrahrópi. Þetta var langfjölmennasti landsfundur í sögu flokksins og þátttaka í formannskjörinu var meiri en dæmi eru um í íslenskum stjórnmálaflokki. Ýmsum þótti reyndar nóg um þær breytingar sem hafa orðið á forystunni í þágu kvenna og barna. Innlent 13.10.2005 19:14
Þrír í kjöri til varaformanns Þrír munu verða í framboði til varaformanns Samfylkingar í dag. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugumferðarstjórnar, tilkynnti framboð sitt fyrir stundu. Áður höfðu Ágúst Ólafur Ágústsson og Lúðvík Bergvinsson, þingmenn flokksins, boðið sig fram. Innlent 13.10.2005 19:14
Ætlar að vera lengi í stjórnmálum Össur Skarphéðinsson sagði meðal annars í ræðu sinni eftir að úrslitin í formannskjöri Samfylkingarinnar lágu fyrir að úrslitin væru afgerandi og sterk, bæði fyrir flokkinn en þó sérstaklega fyrir Ingibjörgu Sólrúnu sem leiðtoga samfylkingarfólks. Hennar biði nú það verk að koma flokknum alla leið. Innlent 13.10.2005 19:14
Ágúst Ólafur kjörinn varaformaður Ágúst Ólafur Ágústsson var afgerandi kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar á þriðja tímanum. Af 839 greiddum atkvæðum hlaut Ágúst 519 atkvæði, eða 61,4%. Lúðvík Bergvinsson fékk 297 atkvæði, eða 35,4% atkvæða. Innlent 13.10.2005 19:14
Úrslitin komu ekki á óvart Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir úrslitin í formannskjöri Samfylkingarinnar ekki koma á óvart, þótt afgerandi séu. Hann hefði búist við að Ingibjörg Sólrún fengi á bilinu sextíu til áttatíu prósent atkvæða. Innlent 13.10.2005 19:14
Ingibjörg Sólrún kjörin formaður Tilkynnt var um það á landsfundi Samfylkingarinnar rétt í þessu að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir yrði næsti formaður flokksins. Alls bárust 12.015 atkvæði í póstkosningu Samfylkingarinnar um formann flokksins og fékk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 7997 atkvæði, eða tæp 67%, en sitjandi formaður, Össur Skarphéðinsson, hlaut 3970 atkvæði, eða 33% atkvæða. Innlent 13.10.2005 19:14
Aldrei fleiri kosið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er nýr formaður Samfylkingarinnar. Hún hlaut tvo þriðju allra atkvæða í póstkosningu meðal tólf þúsund félaga flokksins. Aldrei hafa fleiri kosið í formannskosningum hjá íslenskum stjórnmálaflokki. Innlent 13.10.2005 19:14
Stefnir á stórsókn á miðjunni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er talin líklegust til þess að leiða Samfylkinguna til sigurs í næstu þingkosningum. Hún er sögð stefna á stórsókn á miðjunni og ætla sér að verða næsti forsætisráðherra þjóðarinnar. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Ari gjaldkeri Samfylkingarinnar Ari Skúlason hefur verið kosinn gjaldkeri Samfylkingarinnar. Greint var frá því á landsfundinnum í Egilshöll fyrir stundu. Aðrir í framboði voru Kristinn Bárðason, Kristinn Karlsson og Sigríður Ríkharðsdóttir. Innlent 13.10.2005 19:14
Helena kjörin ritari Helena Karlsdóttir var kjörin ritari Samfylkingarinnar á landsfundinum nú síðdegis. Hún bar sigurorð af Stefáni Jón Hafstein og Valgerði Bjarnadóttur. Innlent 13.10.2005 19:14
Atkvæði hafa verið talin Atkvæði í formannskjörinu á landsfundi Samfylkingarinnar hafa verið talin. Úrslitin verða tilkynnt á hádegi og er Stöð 2 með sérstakan aukafréttatíma vegna þessa klukkan tólf þar sem sýnt verður beint frá fundinum. Innlent 13.10.2005 19:14
Úrslitin ekki aðalatriðið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, nýkjörin formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni eftir að úrslitin í formannskjörinu voru kunngjörð að úrslitin væru ekki aðalatriðið því hugur flokksins stefndi annað og lengra; það væri verkefni Samfylkingarinnar í næstu þingkosningum sem skipti máli. Innlent 13.10.2005 19:14
Landsfundurinn hefst í dag Landsfundur Samfylkingarinnar hefst í dag en á fundinum verður kosið til formanns eins og kunnugt er. Formannskjöri verður lýst klukkan tólf á morgun en á dagskránni í dag eru kosningar í ýmis embætti á fundinum og skýrslur ýmissa hópa, þ.á m. framtíðarhóps flokksins sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stýrði. Innlent 13.10.2005 19:14
Samfylkingin vanbúin síðast Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að Samfylkingin hafi farið vanbúin í kosningabaráttuna fyrir síðustu kosningar, stefnuvinnu hafi ekki verið gefinn nægur gaumur. Samfylkinguna hafi því skort trúverðugleika. Hún leggur til stofnun skuggaráðuneyta. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Þjóðin vill nýja stjórn Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði við setningu landsfundar flokksins í Egilshöll í dag að á skömmum tíma hefði Samfylkingin náð þeim trúnaði fólksins í landinu að verða annað stóra aflið í íslenskum stjórnmálum. Þjóðin vildi nýjar hugmyndir, nýjar lausnir og nýja landsstjórn. Innlent 13.10.2005 19:14
Búist við sigri Ingibjargar Búist er við því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir beri sigurorð af sitjandi formanni, Össuri Skarphéðinssyni, í formannskosningu Samfylkingarinnar. Úrslit verða kynnt á hádegi í dag á landsfundi flokksins. Talið er að þrír muni gefa kost á sér í varaformanninn, Ágúst Ólafur Ágústsson, Lúðvík Bergvinsson og Björgvin G. Sigurðsson. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Leggjum niður allar deilur Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir sáttum fylkinga innan flokksins að loknum formannsslagnum. Tímabilið fram að næstu kosningum verði hið mikilvægasta í sögu flokksins. Flokkurinn ætli sér að verða stærsti flokkurinn í næstu kosningum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Lúðvík í varaformanninn Lúðvík Bergvinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður um næstu helgi. Ágúst Ólafur Ágústsson hafði áður lýst yfir framboði til varaformanns. Innlent 13.10.2005 19:13
7-10 þúsund atkvæði í húsi Á bilinu sjö til tíu þúsund atkvæði í formannskjöri Samfylkingarinnar eru komin í hús en tæplega tuttugu þúsund félagsmenn í Samfylkingunni eru á kjörskrá. Frestur til að skila inn atkvæðum rennur út á fimmtudag. Innlent 13.10.2005 19:13
Kærir kjörstjórn Samfylkingarinnar Starfsmanni á skrifstofu Samfylkingarinnar var sagt upp störfum eftir að upp komst að átt hafði verið við kjörskrár og upplýsingar sendar út í heimildarleysi. Starfsmaðurinn hefur kært málið til Persónuverndar á þeirri forsendu að farið hafi verið í gegnum tölvupóst hans í heimildarleysi. Innlent 13.10.2005 19:12
Má kjósa í formannskjörinu Steingrímur Sævarr Ólafsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, öðlaðist óvænt kosningarétt í formannskjöri Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 19:07
Vafasamar skráningar í flokkinn Móðir misþroska drengs hringdi öskureið á skrifstofu Samfylkingarinnar í gær og kvartaði undan því að fimmtán ára sonur hennar hefði verið skráður í Samfylkinguna. Flosi Eiríksson, formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar, segir nokkuð ljóst að menn hafi farið offari og skráð einhverja sem ekki vilji vera í flokknum. Innlent 13.10.2005 19:07
Kjörseðlar sendir út í dag Kjörstjórn Samfylkingarinnar vegna formannskosninganna sendir í dag út tæplega 20 þúsund kjörseðla til allra sem skráðir eru í flokkinn. Flokksmönnum hefur fjölgað um 54 prósent frá áramótum, langmest síðustu dagana og vikurnar áður en skráningarfrestur til þátttöku í formannskjörinu rann út. Innlent 13.10.2005 19:06
Skortur á samráði í Samfylkingunni Misræmi í yfirlýsingum Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þegar tilkynnt var um framboð hennar í síðustu Alþingiskosningum, var til komið vegna skorts á samráði. Össur lýsti yfir framboði hennar á sama tíma og R-listafólk í borginni var að reyna að telja henni hughvarf. Innlent 13.10.2005 19:05
Fannst Össur tala niður til sín Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sakar Össur Skarphéðinsson um að tala niður til sín með því að segjast sjálfur hafa lagt allt undir til að gera hana að forsætisráðherra fyrir síðustu þingkosningar. Össur segist síður en svo hafa talað niður til Ingibjargar. Innlent 13.10.2005 19:05