Procar
Hlaut árs skilorðsbundinn fangelsisdóm í Procar máli
Haraldur Sveinn Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og meirihlutaeigandi bílaleigunnar Procar, var í dag dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals. Haraldur játaði að hafa falsað kílómetrastöðu í 134 bílum fyrir sölu.
Játar að hafa falsað kílómetrastöðu í 134 bílum í Procar-máli
Framkvæmdastjóri, stjórnarformaður og meirihlutaeigandi bílaleigunnar Procar, Haraldur Sveinn Gunnarsson, hefur játað að hafa falsað kílómetrastöðuna í 134 bílum bílaleigunnar sem seldir voru á bílasölum á árunum 2014 til 2018.
Procar- og Skeljungsmálið komin til saksóknara
Rannsókn Embættis héraðssaksóknara á tveimur umfangsmiklum efnahagsbrotamálum er lokið. Um er að ræða Skeljungsmálið annars vegar og Procar-málið hins vegar.
Rannsókn á Procar-málinu að ljúka
Rannsókn á Procar-málinu svokallaða er á lokastigi og verður málið sent til Ríkissaksóknara í kjölfarið samkvæmt upplýsingum frá Héraðssaksóknara.
900 milljóna gjaldþrot umdeildrar bílaleigu
Skiptum er lokið í þrotabúi Grunda ehf. sem úrskurðað var gjaldþrota í júní í fyrra. Engar eignir fundust í búinu en lýstar kröfur námu 898 milljónum króna.
Helmingur þegið bætur frá Procar
Fólk fær fjórar vikur til að ákveða hvort það þiggi bæturnar.
Samgöngustofa útskýrir hvers vegna Procar var ekki svipt leyfi
Stofnunin óskaði eftir upplýsingum og gögnum frá öllum ökutækjaleigum með starfsleyfi en þær eru alls 127 talsins.
Procar heldur starfsleyfinu
Bílaleigan Procar verður ekki svipt starfsleyfi en samgöngustofa mat tillögur fyrirtækisins að útbótum fullnægjandi.
Beindi fyrirspurn að samflokkskonu sinni varðandi Procar
Fyrirspurn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur beindist að ummælum Þórdísar Kolbrúnar í viðtali við RÚV á dögunum.
Ráðast í aðgerðir eftir svik Procar
Bílgreinasambandið mun innan tíðar opna fyrir aðgang að ökutækjaskrá þar sem hægt verður að kanna hvort tiltekinn bíll hafi verið til umráða hjá bílaleigu en í eigu fjármögnunarfyrirtækis.
Bílaleigurnar þrjár ekki í SAF
Bílaleigur sem fjallað var um í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, vegna breytinga á kílómetrastöðu bíla, eru ekki í Samtökum ferðaþjónustunnar. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að þeim hafi borist ábendingar um bílaleigur þar sem grunur leikur á að átt hafi verið við mæla í bílum. Málið sé erfitt fyrir allar bílaleigur á Íslandi.
Skora á stjórnvöld að bregðast við mælasvindlinu af fullri hörku
Neytendasamtökin segja að aðgerðir eins aðila hafi rúið heila atvinnugrein trausti.
Ekkert eftirlit með kílómetrastöðu bíla
Samgöngustofa segir koma til greina að svipta bílaleigur rekstrarleyfi sem ekki geta veitt fullnægjandi skýringar á misræmi upplýsinga um kílómetrastöðu bíla. Skoðun fréttastofu leiðir í ljós að mikill munur getur verið á stöðu mæla í bílum á milli skoðana.
Gætu hafa stofnað öryggi farþega í hættu með mælasvindlinu
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að það sé grafalvarlegt mál að eiga við kílómetramæli bíls. Það sé ekki aðeins fjárhagslegt tjón sem gæti hlotist af svindli Procar heldur snerti málið einnig öryggi farþega.
Fjöldi fólks leitað til Neytendasamtakanna vegna bílaleigubíla
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir fjölda félagsmanna hafa leitað aðstoðar hjá samtökunum síðustu daga.
Ekki hægt að sjá hvort átt er við akstursmæla
Framkvæmdastjóri FÍB segir erfitt eða ómögulegt að sjá í sumum tilfellum hvort átt hafi verið við akstursmæla.
Grunaði Procar aldrei og telur sig illa svikinn
Jóhann Lövdal, eigandi bílasölunnar Bílamarkaðarins, segir tíðindin af áralöngu svindli Procar þar sem stöðu á kílómetramæli bílaleigubíla var breytt, áfall fyrir stétt bílasala.
Askja skoðar stöðu sína gagnvart Procar
Samgöngustofa skoðar nú hvernig brugðist verði við beiðni Samtaka ferðaþjónustunnar um eftirlitsúttekt hjá öllum bílaleigum sem hafa starfsleyfi eftir að mál bílaleigunnar Procar kom upp.
Ráðherra um Procar: Aldrei hægt að koma í veg fyrir að menn brjóti lög af ásetningi
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir það óafsakanlegt þegar menn brjóti lög líkt og bílaleigan Procar hefur viðurkennt að hafa gert um árabil með því að eiga við akstursmæli bílaleigubíla.
Ekki hægt að líta fram hjá brotum Procar
Procar var í dag vísað úr Samtökum ferðaþjónustunnar. Bílaleigan hefur viðurkennt að hafa lækkað ekna kílómetra á mælum bíla sinna við endursölu þeirra á árunum 2013 til 2015 en líkur eru á að svindlið hafi staðið eitthvað lengur.
Samtök ferðaþjónustunnar vilja eftirlitsúttekt á öllum bílaleigum
Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem farið er fram á að eftirlitsúttekt verði gerð til þess að eyða óvissu um sölu notaðra bílaeigubíla.
Biðjast afsökunar á að hafa breytt kílómetrastöðu bílanna
Forsvarsmenn bílaleigunnar Procar hyggjast fá óháðan aðila til úrskurða um sanngjarnar bætur til þeirra sem keyptu bíla með ranga kílómetraskráningu hjá fyrirtækinu og þeir biðja viðskiptavini, almenning og starfsfólk afsökunar.