
Sjálfstæðisflokkurinn

„Ég get ekki orða bundist“
„Ég get ekki orða bundist. Á einungis örfáum dögum hefur Dagur B. Eggertsson komið fram með slíkum óheiðarleika í umræðunni að manni hreinlega misbýður,“ segir Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík í færslu á Facebook síðu sinni.

Hafnarfjörður stækkar og blómstrar undir stjórn Sjálfstæðisflokksins
Á þeim átta árum sem Sjálfstæðismenn hafa verið við stjórnvölinn hefur slæmri fjárhagsstöðu Hafnarfjarðar verið snúið við. Menningarlífið blómstrar og 90% Hafnfirðinga eru ánægð með bæinn sinn. Nú er gríðarleg uppbygging hafin í bænum þannig að á næstu 4-5 árum mun bæjarbúum fjölga um 7.500 manns. Á næstu tuttugu árum mun Hafnfirðingum fjölga um 17.000 manns.

Borgarstjóri hafi tapað trúverðugleika í leikskólamálum
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir barnafjölskyldum vera sýnd fullkomin óvirðing af yfirvöldum í borginni, með því að bjóða börnum pláss á leikskólum sem ekki eru til.

Hafnarfjörður – „Fegurri en fegursti fjörður í Kraganum“
Friðrik Dór Jónsson, bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2021, mærir svo sannarlega bæinn sinn í nýja laginu sínu: Þú enda er fátt fallegra en Hafnarfjörður á góðum degi. Hafnarfjörður státar af einstökum bæjarbrag og er þekktur um allt land fyrir öflugt menningar- og listalíf.

Fyrirsjáanleg íbúafjölgun og uppbygging í Árborg?
Það hefur ekki farið framhjá neinum að íbúafjölgun í Sveitarfélaginu Árborg hefur verið mikil undanfarin ár og hvað þá að hér hefur geisað heimsfaraldur. Það er þó ekki víst að íbúar í Árborg hafi fengið að vita eins mikið af yfirvofandi heitavatnsskorti þar sem stefnan hefur ekki verið í takti við stækkun sveitarfélagsins síðastliðin fjögur ár.

Sjálfstæðisflokkurinn vill hjólreiðaáætlun og áherslu á barnvæna borg
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík leggur mikla áherslu á að borgin verði barnvæn og fjölskyldur verði settar í forgang. Þá ætlar flokkurinn að ráðast í kröftuga húsnæðisuppbyggingu með skipulagi nýrra hverfa samhliða þéttingu byggðar.

Skuldadagar í Reykjavíkurborg
Í vor kjósum við Reykvíkingar um framtíð Reykjavíkurborgar. Rekstur sveitarfélaga snýst í grunninn um það að veita íbúum lögbundna grunnþjónustu - hlúa að velferð íbúanna. Lögbundin verkefni sveitarfélaganna sem þeim er skylt að sinna standa íbúum mjög nærri og eru þeim mikilvæg í daglegu lífi.

Ef ég myndi vilja gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn
Þá myndi ég fara um víðan völl því af nógu er að taka. Í sjálfstæðisflokkinn eða “flokkinn” einsog hann er nefndur í daglegu tali, velst margt vel meinandi og gott fólk sem vill láta gott af sér leiða og bæta samfélagið fyrir okkur öll. Ég þekki nokkra, toppfólk.

Formaður bæjarráðs Garðabæjar aðstoðar Áslaugu Örnu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ráðið Áslaugu Huldu Jónsdóttur sem tímabundinn aðstoðarmann í fjarveru Eydísar Örnu Líndal, sem er í fæðingarorlofi.

Hafnarfjörður – bær framkvæmdanna
Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði komst í meirihluta árið 2014 hefur ríkt mikið framkvæmda- og framfaraskeið í bænum. Eftir ísaldarkjörtímabil vinstrimanna, þar sem ekkert var framkvæmt vegna afleitrar fjárhagsstöðu og óstjórnar, fór landið að rísa hratt.

„Ég hef ekki séð neitt enn þá sem að segir mér að lög hafi verið brotin“
Fjármálaráðherra telur að sýna þurfi þolinmæði á meðan rannsókn á sölu Íslandsbanka stendur yfir. Hann gefur lítið fyrir gagnrýni stjórnarandstöðunnar og fullyrðir að málið verði kannað. Hann segir þó ekkert benda til þess á þessum tíma að lög hafi verið brotin og vill ekkert gefa upp um hvort hann myndi segja af sér, kæmi slíkt brot upp.

Telur ekki nauðsynlegt að fjármálaráðherra víki
Að mati Katrínar Jakobsdóttur fjármálaráðherra er ekki þörf á að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra víki vegna Íslandsbankamálsins.

Íslandsmetin falla í Hveragerði
Hveragerði er það sveitarfélag sem hvað hraðast vex á Íslandi. Á árinu 2021 var fjölgun íbúa mest í Hveragerði þegar litið er til stærri sveitarfélaga.

Hefjum kröftuga uppbyggingu í Fjarðabyggð
Fjarðabyggð og íbúar þess þekkja vel til áskorana sem fylgja uppbyggingu og stórum fjárfestingum. Fjárfestar með atvinnuskapandi hugmyndir horfa til þess hve vel sveitarfélagið er í stakk búið til að mæta slíku.

Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði með nýja nálgun í dagvistun
Næsta haust mun leikskólaplássum í Hafnarfirði fjölga umtalsvert með færanlegum kennslustofum og byggingu leikskóla í nýjasta hverfi okkar, Hamranesi.

Börn leituðu eggja víða um borg
Börn leituðu páskaeggja víða um borgina í dag. Sjálfstæðisfélög Reykjavíkur héldu leit á þremur mismundandi stöðum og tóku hátt í þúsund manns þátt í henni.

Lestrarfærni nemenda í grunnskólum Reykjavíkur þarf að bæta
Í október 2020 lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn til að gerð yrði úttekt á kynbundnum mun á námsárangri í leik- og grunnskóla, með sérstakri áherslu á færni nemenda að lesa íslensku.

Garðabær í sterkri stöðu
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hefur fagnað góðu gengi um langt skeið. Fyrir það við erum við afar þakklát og tökum stuðningi bæjarbúa aldrei sem gefnum hlut.

Óli Björn varar Lilju við því að svíkja lit
Óli Björn Kárason þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sendir Lilju D. Alfreðsdóttur, varaformanni Framsóknarflokksins eiturpillu í grein sem hann birtir í Mogga dagsins.

Af hverju ætti ungt fólk að setja X við D?
Í gegnum tíðina hef ég oft verið spurður að því hvers vegna ég styð Sjálfstæðisflokkinn. Svarið við þessari spurningu er alltaf á sömu leið – það kemur einfaldlega ekkert annað til greina.

Hafnarfjörður, bær framfara og uppbyggingar
Oddviti Viðreisnar sýnir enn og aftur hversu lítið hann er í tengslum við bæjarfélagið sitt. Nýjasta útspil oddvitans er grein á visir.is þar sem hann spyr hvort Hafnarfjörður sé að breytast úr fallegu sjávarþorpi í úthverfi Reykjavíkur.

Geislavirkur ráðherra kominn nær því að þurfa að íhuga stöðu sína
Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra kominn nær því að þurfa að íhuga stöðu sína alvarlega eftir að misbrestir komu í ljós við söluna á Íslandsbanka.

Katrín kannast ekkert við andstöðu Lilju
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kannast ekki við að Lilja D. Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra hafi viljað færa til bókar andstöðu sína við fyrirkomulag útboðs á hlutum í Íslandsbanka.

Útúrsnúningar pírata afþakkaðir
Það er ánægjulegt þegar skrifin manns ná til lesenda og mér virðist takast reglulega að fanga athygli píratans Hauks Viðars Alfreðssonar. Nú síðast birtir hann grein í tilefni þess að ég skrifaði um umkvartanir atvinnurekenda við mig varðandi flótta starfsfólks frá einkageiranum og yfir til hins opinbera. Ég varaði af því tilefni við almennri þróun í þá átt að launahækkanir hjá hinu opinbera fari fram úr hækkunum á almenna markaðnum.

Mörgum spurningum ósvarað um söluna: „Til marks um algert forystuleysi og vanhæfni“
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa orðið fyrir vonbrigðum þegar hún sá lista yfir þá sem fengu að kaupa í útboði Íslandsbanka á dögunum og segir mörgum spurningum ósvarað. Þingmaður Samfylkingarinnar hefur kallað eftir frekari svörum og gagnrýnir ráðherra fyrir forystuleysi og vanhæfni.

Vá hvað ég er pirruð og svekkt
Ég er einlægur talsmaður þess að selja Íslandsbanka. Ég sat í efnahags- og viðskiptanefnd á síðasta kjörtímabili þegar við hófum sölu á bankanum þá í opnu útboði. Það tókst vel þegar um 24þ hluthafar eignuðust hlut í bankanum og varð þá fjölmennasta almenningshlutafélag á Íslandi.

Björn Haraldur leiðir Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ
Björn Haraldur Hilmarsson mun leiða lista sjálfstæðismanna í Snæfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Framboðslisti flokksins í Snæfellsbæ var samþykktur samhljóða á fundi Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í bænum í dag.

Faðir fjármálaráðherra einn fjárfesta sem keypti í Íslandsbanka
Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra, er einn þeirra sem keypti hlut í Íslandsbanka þann 22. mars síðastliðinn.

Karen yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn og leiðir lista Miðflokksins
Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, er nýr oddviti Miðflokksins og óháðra í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Karen hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðastliðin átta ár og varabæjarfulltrúi í fjögur ár.

Ummæli Sigurðar óverjandi
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Sigurður Ingi Jóhannsson verði sjálfur að ákveða hvort hann þurfi að segja af sér ráðherraembætti vegna ummæla hans um framkvæmdastjóra Bændasamtakanna í síðustu viku. Sigurður Ingi kom sér undan fréttamönnum eftir ríkisstjórnarfundi í dag.