

Fjórir árekstrar hafa orðið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi. Þeir hafa flestir verið smávægilegir og aðeins einn hefur verið fluttur á bráðamóttöku.
Umferðarslys varð á Reykjanesbraut nálægt Smáralind í Kópavogi snemma í morgun, þegar fólksbíll og snjóruðningstæki skullu saman. Ökumaður snjóruðningstækisins var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar.
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því að flughált verði á sumum vegum í dag, helst á Suður- og Vesturlandi.
Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut um klukkan sjö í kvöld, skammt frá Álverinu í Straumsvík. Lokað var fyrir umferð um Reykjanesbrautina um tíma.
Veginum um Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð, milli Ísafjarðar og Súðavíkur, verður aftur lokað í kvöld. Honum var lokað í gær eftir að snjóflóð féll á veginn.
Súðavíkurhlíð var lokað fyrirvaralaust í gær eftir að snjóflóð féll á veginn. Sveitarstjóri segir bíla hafa verið báðu megin við flóðið og kallar eftir jarðgöngum til að auka öryggi íbúa.
Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi eftir alvarlegt umferðarslys við Sólheimasand á Suðurlandsvegi í kvöld.
Alvarlegt umferðarslys varð við Sólheimasand á Suðurlandsvegi skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld. Búið er að loka veginum og hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið send á vettvang, í mesta forgangi.
Miklar umferðartafir urðu við Grindavík í morgun þegar íbúar fengu að fara inn í bæinn að sækja eigur sínar. Veður og hálka gerði fólki erfitt fyrir og þurftu sumir að snúa við. Íbúi segir galið að almannavarnir hafi beint fólki um Krýsuvíkurveg sem sé þekktur fyrir að vera hættulegur í aðstæðum eins og í morgun.
Þreifandi bylur var á höfuðborgarsvæðinu í morgun og lítið sem ekkert skyggni. Lögreglufulltrúi segir umferð hafa gengið mjög hægt í morgun og eitthvað um árekstra. Gular viðvaranir eru í gildi vegna veðurs.
Þung umferð er um alla borgina um þessar mundir og fjöldinn allur af umferðaróhöppum. Vakthafi hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir fjóra hafa verið flutta á sjúkrahús í kjölfar árekstra. Enginn hlaut alvarlega áverka.
Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir akstursskilyrði á höfuðborgarsvæðinu erfið. Reykjavíkurborg segir glerhálku víða. Öll snjómoksturstæki séu á stofnbrautum.
Þegar janúar er rétt hálfnaður hafa fimm manns látist í bílslysum á þjóðvegum landsins. Slysið við Skaftafell hinn 12. janúar vakti sérstaka athygli mína, enda keyri ég nær vikulega þessa leið austur í Suðursveit. Í slysinu létu tvær manneskjur lífið og sex aðrir slösuðust. Aðkoma á slysstað var með því ljótara sem þaulreyndir viðbragðsaðilar hafa séð.
Götur í Reykjavík ættu að vera greiðfærar eftir snjókomu næturinnar að sögn fulltrúa hjá borginni. Færð er þó víða erfið vegna hálku og gul viðvörun í gildi.
Mikil ofankoma með hálku á höfuðborgarsvæðinu í morgun hefur sett strik í reikninginn. Einn þeirra sem lenti í umferðaróhappi var Sigurður G. Guðjónsson lögmaður.
Vegagerðin stendur fyrir morgunfundi klukkan 9 í dag þar sem fjallað verður um rekstur og þjónustu í jarðgöngum á Íslandi og hvernig er staðið að vöktun þeirra. Einnig verður farið yfir hvernig brugðist er við þegar eldur kviknar í bíl í jarðgöngum en slíkt atvik átti sér stað í Hvalfjarðargöngum síðla árs 2023.
Fjöldi þeirra banaslysa sem orðið hafa í umferðinni á árinu hefur ekki sést frá því að skráning slysa hófst fyrir fimmtíu árum.
Ökumaður undir áhrifum fíkniefna olli stórtjóni þegar hann ók á átta bíla við Hringbraut í morgun. Íbúi segir ofsaakstur á svæðinu hafa verið vandamál til margra ára. Hann kallar eftir því að hraðasektir taki mið af tekjum ökumanna.
Snemma í morgun ók ungur maður, sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna, utan í átta kyrrstæðar bifreiðar á Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur. Íbúi við Hringbraut lýsir ófremdarástandi í götunni.
Íbúi Borgarbyggðar segir vegi ekkert hafa verið hálkuvarða þrátt fyrir yfirlýsingar sveitarfélagsins um að í forgangi séu vegir þar sem er skólaakstur. Skólarútan ferðist löturhægt um fljúgandi hálar ósaltaðar brekkur.
Öryggisstjóri segir stórhættulega hálku myndast á Grindavíkurvegi vegna uppgufunar frá Seltjörn og orkuverinu í Svartsengi. Hálkuvörnum sé ekki sinnt nógu reglulega til að bregðast við því. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir vetrarþjónustu miðast við umferðarmagn og veðuraðstæður hverju sinni.
Steypustöðin hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna banaslyssins á Grindavíkurvegi í gær. Í tilkynningunni segir að hugur Steypustöðvarinnar sé hjá aðstandendum hinna látnu og að fyrirtækið vinni með rannsóknaraðilum til að veita allar tiltækar upplýsingar.
Sumarhúsaeigandi við Jarðlangsstaði í Borgarbyggð segir hvorki sveitarfélagið né Vegagerðina vilja taka ábyrgð á hálkuvörnum á veginum sem leiðir að sumarhúsabyggðinni. Í henni eru meira en 150 sumarbústaðir og segir hann flughálku hafa verið á veginum í fleiri daga. Litlu megi muna að þar verði mannskæð bílslys nánast daglega.
Hægt er að nálgast salt til hálkuvarna á tólf stöðum í Reykjavík. Frá því er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en verulega erfiðar aðstæður hafa skapast síðustu daga í borginni og er mikil hálka á bæði götum og göngustígum borgarinnar.
Litlu mátti muna þegar Sigurjón Axel Guðjónsson lenti í árekstri við stóran flutningabíl á hringveginum að kvöldi til þann 22. desember í síðustu viku. Myndband úr bíl hans sýnir áreksturinn. Þar sést þegar tengivagn vörubílsins birtast skyndilega á röngum vegarhelmingi og fer utan í bíl Sigurjóns. Betur fór en á horfðist, en Sigurjón slapp með smávægileg meiðsli.
Karlmaður hefur verið dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa valdið banaslysi við Hítará í sumar af stórfelldu gáleysi. Slysið var talið mega rekja til þess að maðurinn hafi verið ófær um að stjórna bifreið vegna þreytu.
Lögreglan á Suðurlandi vill komast í samband við ökumann bifreiðar sem ók utan í barn á Selfossi í morgun.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann til að greiða 80 þúsund króna sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa ekið óskráðu rafhlaupahjóli á gangstétt í Hafnarfirði og verið án ökuréttinda í ágúst 2021. Málið kom upp eftir árekstur rafhlaupahjólsins, sem ekið var á miklum hraða, og bíls.
Ökumaður sem lést í umferðarslysi á Akrafjallsvegi í grennd við Hvalfjarðargöng þann 22. júlí í fyrra reyndist hafa verið á örvandi efnum sem gerði það að verkum að hann var óhæfur til aksturs. Þá er sennilegt að hann hafi hraðast ekið um á tvöföldum leyfðum hámarkshraða.
Frá og með deginum í dag verður hámarkshraðinn á 80 prósent gatna í Amsterdam 30 km/klst. Breytingin á að verða til þess að fækka alvarlegum slysum um 20 til 30 prósent.