Viðskipti

Fréttamynd

Þrjú yfir milljarði

Íslensku fiskiskipin Vilhelm Þorsteinsson EA, Baldvin Þorsteinsson EA og Hákon EA skiluðu hvert um sig meira en einum milljarði króna í aflaverðmæti á árinu 2005 miðað við fob-verðmæti. Frá þessi segir í frétt á vef Fiskifrétta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Straums-Burðaráss minni á milli ára

Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hagnaðist um 307 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2006. Þetta er 90 prósentum minna en á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam rétt rúmum þremur milljörðum króna. Hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum ársins nemur tæpum 19,4 milljörðum króna sem er rúmum 11,7 milljörðum meira en á sama tíma fyrir ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samræmd vísitala neysluverðs 5,7 prósent

Samræmd vísitala neysluverðs innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var 102,5 stig í síðasta mánuði og er það 0,1 prósents hækkun frá maí. Vísitalan á Íslandi var 105,3 stig og hafði hún hækkað um 1,3 prósent á milli maí og júní. Verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, var 5,7 prósent á Íslandi og er hún næstmest hér af EES-ríkjunum. Mesta verðbólgan var í Lettlandi, 6,3 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samdráttur í veltu á fasteignamarkaði

Í síðustu viku var þinglýst 116 kaupsamningum á fasteignamarkaði. Þar af var þinglýst 87 kaupsamningum um eignir í fjölbýli og 20 samningum um sérbýli. Veltan nam 3,1 milljarði króna en meðalfjárhæð kaupsamnings nam 27 milljónum króna. Veltan er 20 prósentum minni en á sama tíma í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs lækkar

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs til langs tíma úr AA+ í AA-. Um leið er lánshæfismatið fært af athugunarlista þar sem það hafði áður verið sett með neikvæðum horfum. Horfur í íslenskum krónur eru stöðugar, að mati fyrirtækisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Olíuverð nálægt 78 dölum á tunnu

Heimsmarkaðsverð á olíu lá við 78 dali á tunnu í fyrstu viðskiptum dagsins á helstu mörkuðum og stendur verðið nálægt sögulegu hámarki. Ástæðan fyrir svo háu verði skrifast fyrst og fremst á loftárásir Íslaelsmanna á Líbanon en árásir skæruliðahópa á olíuvinnslustöðvar erlendra fyrirtækja í Nígeríu og vaxandi spenna vegna kjarnorkuáætlunar Írana á einnig hlut að máli.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

MP Fjárfestingarbanki í Eystrasalti

MP Fjárfestingarbanki verður fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið með aðild að kauphöllunum í Tallinn í Eistlandi, Ríga í Lettlandi og Vilníus í Litháen. Stjórnir kauphallanna hafa samþykkt aðild fjárfestingarbankans sem verður þar með tólfta fjármálafyrirtækið með aðild að öllum mörkuðum Eystrasaltsríkjanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Verðmæti útfluttra sjávarafurða dróst saman

Verðmæti sjávarafurða til útflutnings á síðasta ári nam 112 milljörðum króna en það er 5,7 prósentum minna en árið á undan. Verðið hélst lítið breytt á heildina litið í íslenskum krónum og dróst framleiðslan, mæld á föstu verði ársins 2004, því saman um 5,6 prósent.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Keyptu fyrir Actavis

Króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva sendi í gær frá sér tilkynningu um að fyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík, ELL 33 ehf., hafi keypt sem jafngildir 1.894.650 hlutum eða um 10,19 prósent af almennu hlutafé félagsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Olíuverð aldrei hærra

Fat af olíu kostar tæpa áttatíu bandaríkjadali. Sérfræðingar treysta sér ekki til að spá fyrir um þróun olíuverðs. Bensín er dýrara í Danmörku en á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fasteignaverð lækkar í Danmörku

Fasteignaverð í Danmörku lækkaði um 2,6 prósent í Danmörku á öðrum ársfjórðungi, að sögn dönsku fréttastofunnar Ritzau. Hækkun fasteignaverð í landinu hefur var óvenju mikil á fyrstu þremur mánuðum ársins eða 5,6 prósent að meðaltali. Mest var lækkunin í Kaupmannahöfn eða 9,7 prósent.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Icelandic Group kaupir frystisvið Delpierre

Alfesca og Icelandic Group skrifuðu síðdegis í gær undir formlegan samning um kaup Icelandic Group á frystisviði Delpierre (áður SIF France). Þetta er í samræmi við tilkynningu til Kauphallar þann 7. júlí s.l. þar sem fram kom að aðilar væru langt komnir með að ljúka samningum sín á milli. Heildarkaupverð er um 17 milljónir evra, rúmir 1,6 milljarðar króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Atvinnuleysi óbreytt

1,3 prósent atvinnuleysi mældist á Íslandi í júní samkvæmt mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Um tvö þúsund manns voru að meðaltali á atvinnuleysisskrá í júní og er það svipað atvinnuleysi og verið hefur undanfarna þrjá mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eurotunnel sekkur í skuldafenið

Rekstrarfélag Eurotunnel, ganganna sem liggja undir Ermarsundi frá Bretlandi til Frakklands, hefur farið fram á greiðslustöðvun. Félagið hefur átt við gríðarlegan fjárhagsvanda að stríða allt frá því gangagerðinni lauk árið 1994 og hefur farið þess á leit við lánardrottna að þeir skipti 8,7 milljarða evru skuld Eurotunnel í tvo hluta.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hlutabréfin hækka eftir hryðjuverk

Sensex-30 vísitala kauphallarinnar í Bombay á Indlandi hækkaði um þrjú prósent á miðvikudag, en lækkaði aftur lítillega í gær, í kjölfar hryðjuverkaárásanna á lestarkerfi borgarinnar á þriðjudag. Tvö hundruð manns létust og fleiri hundruð slösuðust í árásunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Innfluttar vörur hækka

Innfluttar vörur hafa hækkað í verði um 7,1 prósent frá áramótum en gengisvísitala krónunnar hefur hækkað um 27 prósent á sama tímabili. Því má búast við áframhaldandi verðhækkunum á innfluttum vörum segir í Morgunkornum greiningardeildar Glitnis.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Olíuverð í sögulegu hámarki

Olíuverð fór í tæpa 76 Bandaríkjadali á helstu mörkuðum í dag og hefur aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir verðhækkuninni eru minni umframbirgðir af olíu í Bandaríkjunum, vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum og gruns um sprengingu í olíuleiðslu í Nígeríu, sem aðili er að samtökum olíuframleiðsluríkja, OPEC.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Mæla með bréfum í Netia

CA IB Securities mælir með kaupum á hlutabréfum í pólska fjarskiptafyrirtækinu Netia. Býst verðbréfafyrirtækið við því að Novator, sem er að stærstum hluta í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, auki hlut sinn á næstu tólf mánuðum en hlutur Novators í Netia fór upp í 23 prósent í janúar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Landsvirkjun gefur út skuldabréf

Landsvirkjun hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir evra, jafnvirði 14,4 milljarða íslenskra króna, undir rammasamningi fyrirtækisins. Lánið er til 20 ára. Með útgáfunni er fjármögnun Landsvirkjunar á árinu nærri lokið en einungis er eftir að fjármagna sem svarar til um 1,6 milljarða króna. Heildarfjárþörf Landsvirkjunar er 45 milljarðar króna á árinu.

Viðskipti innlent