Viðskipti

Fréttamynd

Höfða nokkur mál á dag

Bandaríska lögmannsstofan sem safnar nú liði til að höfða skaðabótamál á hendur Íslenskri erfðagreiningu, höfðar að jafnaði nokkur slík mál á dag. Umrædd lögmannsstofa hefur auglýst eftir hluthöfum, í Íslenskri erfðagreiningu, sem vilja fara í mál við fyrirtækið vegna meintra rangra upplýsinga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Umtalsverð lækkun lyfjaverðs

Heilbrigðisyfirvöld hafa gert samkomulag við fulltrúa frumlyfjaframleiðanda innan FÍS og við fulltrúa Actavis hf um lækkun lyfjaverðs. Samkvæmt samkomulaginu er stefnt að því að lyfjaverð í heildsölu á Íslandi verði sambærilegt við meðalverð á hinum Norðurlöndunum hverju sinni innan 2ja ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Andsnúinn kaupunum

"Síminn, sem opinbert fyrirtæki, hefði ekki átt að fjárfesta í Skjá einum," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um kaup Landssímans á Fjörgný, sem á 26% hlut í Skjá einum.

Innlent
Fréttamynd

Verð á kjúklingi hækkar

Tveir af þremur stærstu kjúklingaframleiðendum landsins hækkuðu hjá sér verð um 15 prósent um mánaðamótin. Líkur eru á að sá þriðji fylgi í kjölfarið. Hækkandi fóðurverði er kennt um hækkanirnar. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Áhyggjur af framgangi frumvarpa

Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, lýsir áhyggjum af þeim farvegi sem væntanleg frumvörp viðskiptaráðherra um breytingar á íslensku viðskiptaumhverfi eru komin í.

Innlent
Fréttamynd

Viðskiptin í samráði við Kauphöll

Forstjóri Burðaráss segir að samráð hafi verið haft við Kauphöllina um tilkynningu viðskipta við Orra Vigfússson um bréf Íslandsbanka. Ekki hafi staðið á vilja til þess að upplýsa um eðli viðskiptanna. Orra hafi ekki tekist að afla fjárfesta og samningurinn gengið til baka. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stöðutaka heimila á markaðinum

Hugsanlegt er að nýju íbúðalánin sem bankarnir bjóða muni leiða til aukinnar stöðutöku íslenskra heimila á hlutabréfamarkaðinum að sögn Greiningar Íslandsbanka. Með lánunum gefst íbúðaeigendum betra færi en áður á að losa um eigið fé sem bundið er í húsnæðinu og nýta til annarra þátta.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hallinn jókst um 2,7 milljarða

16,7 milljarða króna halli varð á viðskiptum við útlönd á öðrum fjórðungi ársins samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands, samanborið við 14,5 milljarða króna halla á sama tímabili árið áður. Hallinn jókst því um 2,7 milljarða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ríkið gæti sparað 745 milljónir

Um 745 milljónir króna gæti sparast við útboð á fjarskiptaþjónustu ríkisins nægðist sami árangur og hjá Reykjavíkurborg. Lögum samkvæmt þarf ríkið ekki að leita hagstæðasta verðs og efla samkeppni á fjarskiptamarkaði. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Verðtrygging ekki alslæm

Verðtrygging lána er mörgum þyrnir í augum. Hún er að mati hagfræðinga ekki jafn slæm og margir vilji vera láta. Óstöðugleikinn í íslensku efnahagslífi er vandamálið ekki verðtryggingin sem slík. </font /></b />

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Seðlabankinn bregðist rangt við

Greiningardeild Íslandsbanka segir hættu á að Seðlabankinn bregðist rangt við lækkunum bankanna á vöxtum húsnæðislána. Lítið sé þó hægt að gera til að koma í veg fyrir það því enginn viti í raun hvaða áhrif þessar vaxtalækkanir hafi á hagkerfið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gagnrýnin byggð á misskilningi

Fulltrúar atvinnulífsins gagnrýna tillögur nefndar um hringamyndum þess efnis að samkeppnisyfirvöldum verði gert kleift að krefjast uppstokkunar á fyrirtækjum sem ekki vinna í anda samkeppnislaga. Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra og einn nefndarmanna, segir gagnrýnina byggða á misskilningi. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skýrslunni ekki beint gegn Baugi

Skýrsla nefndar um hringamyndun er hófstillt og greinilega ekki beint gegn Baugi sem þarf líklega ekki að breyta rekstri sínum, segir stjórnarformaður fyrirtækisins. Viðbrögð stjórnarandstöðunnar við skýrslunni eru jákvæð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Útlán vaxið um 160 milljarða

Útlán bankakerfis hafa vaxið um 160 milljarða á síðustu 12 mánuðum eða um 25%. Á síðustu sex árum hafa útistandandi lán innlánsstofnana vaxið um 643 milljarða eða nær fimmfaldast að raunvirði, að sögn KB banka. Bankinn segir einnig að ef svo fari fram sem horfi megi vænta þess að útlán bankanna taki enn einn sprettinn með nýju fasteignalánunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skaði samkeppnisstöðu

Nefnd ráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi leggur til að Samkeppnisstofnun fái heimild til að stokka upp fyrirtæki brjóti þau gegn samkeppnislögum. Viðskiptaráðherra segir að tillögurnar muni styrkja íslenskt efnahagslíf verði þær að lögum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Gjaldeyrislánin hefðu borgað sig

Hópur háskólanema á Bifröst segir að það hefði borgað sig fyrir lántakendur að vera með gjaldeyrislán fremur en verðtryggð íslensk lán á síðustu tíu árum. Þeir sem nýta sér þann kost þurfa þó að fylgjast vel með þróun lánanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

KB banki lækkar vexti enn frekar

KBbanki hefur ákveðið að lækka vexti á íbúðalánum niður í fjögur komma tvö prósent, og gildir það líka fyrir þá sem tekið hafa lán hjá bankanum með fjögurra komma fjögurra prósenta vöxtum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankar lækka vexti enn frekar

Langflestir viðskiptabankanna hafa nú lækkað vexti af lánum til íbúðakaupa niður í 4,2 prósent. Lækkunin kom í kjölfar þess að Lífeyrissjóður verslunarmanna hellti sér í slaginn um lántakendur og bauð lán með 4,3 prósenta vöxtum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leita langt yfir skammt

Skondnast af öllu er að nefnd um viðskiptalífið hafi sótt spillingardæmi tengd markaðsvæðingu út fyrir landsteinana, af þeim eru ærin dæmi hér," segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri-grænna.

Innlent
Fréttamynd

Jákvætt að mörgu leyti

"Mér finnst þetta að mörgu leyti jákvætt. Ég tel að það sé áhugavert að vinna að málinu á þeim nótum sem þarna er lagt upp með," segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, um skýrslu nefndar sem viðskiptaráðherra um viðskiptaumhverfið. Guðjón tók þó fram að hann hefði ekki haft tök á að kynna sér skýrsluna til hlítar.

Innlent
Fréttamynd

Óþarfa hávaði í stjórninni

"Langmerkasta niðurstaða skýrslunnar er að það er óþarft að setja sérstök lög um hringamyndun. Það hlýtur að teljast merkilegt í ljósi þess hávaða sem hefur verið innan ríkisstjórnarflokkanna um að vondir auðhringir séu að leggja undir sig ekki aðeins fjölmiðla heldur land og miðin," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar.

Innlent
Fréttamynd

Landsbankinn bætist í hópinn

Landsbankinn hefur bæst í hóp þeirra viðskiptabanka í dag sem lækkað hafa vexti íbúðalána úr 4,4% í 4,2%. Vaxtalækkun þessi gildir einnig fyrir þá sem undanfarna daga hafa tekið lán með 4,4% vöxtum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Uppoð á útlánamarkaði

KB banki ýtti nýrri skriðu lækkana af stað í gær þegar hann lækkaði vexti sína í 4,2 prósent. Sífellt erfiðara verður fyrir smærri fjármálafyrirtæki að fylgja eftir. Aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík telur rökin fyrir tilvist Íbúðalánasjóðs farin.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bætir mjög stöðu hluthafa

Samkeppnisstofnun verður skipt upp, stjórnarformanni hlutafélags verður bannað að starfa jafnframt að framkvæmdastjórn sama fyrirtækis og réttur minnihluta verður efldur, samkvæmt tillögum sem viðskiptaráðherra hyggst setja í lagafrumvörp í því skyni að auka traust á íslensku viðskiptalífi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Greiðslukortavelta eykst

Greiðslukortavelta heimilanna hefur aukist verulega á þessu ári, á sama tíma og vanskil einstaklinga og fyrirtækja hjá bönkum og sparisjóðum hafa minnkað. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu hafa heildarvanskil hjá innlánastofnunum minnkað úr 3,1 prósenti um síðustu áramót í 2,2 prósent eftir fyrstu sex mánuði ársins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vanskil lækka

Vanskil einstaklinga og fyrirsækja hjá innlánsstofnunum hafa lækkað á þessu ári, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu. Vanskil einstaklinga lækkuðu úr 5,5 prósentum um síðustu áramót í 4,6 prósent eftir fyrstu 6 mánuði ársins. Þá lækkuðu vanskil fyrirtækja úr 2,5 prósentum í 1,7 prósent, á sama tímabili. Vanskil lækkuðu í heild úr 3,1 prósenti í 2,2 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Verslunarmenn lækka vexti

Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur ákveðið að bjóða upp ný húsnæðislán með 4,3 prósenta vöxtum. Þetta eru 0,1 prósentustigi lægri vextir en íbúðalán viðskiptabankanna og 0,05 prósentustigum lægra en vextir Íbúðalánasjóðs.

Viðskipti innlent