Viðskipti
94 95 96 97 98 99 100 101 102 … 223 ›
Gengið frá viðskiptum Straums og FL Group Gengið hefur verið frá viðskiptum á 22,6% heildarhlutafjár í Straumi-Burðarási Fjárfestingabanka hf., á milli bankans og fjárfesta annars vegar og FL Group hf. hins vegar. Heildarkaupverð nemur 42,1 milljarði króna og greiðast um 28,3 milljarðar króna í reiðufé, um 10,2 milljarðar króna með hlutum í finnska flugfélaginu Finnair og um 3,5 milljarðar króna með hlutum í skráðum íslenskum félögum. Viðskipti innlent 22.12.2006 16:20
Statoil dregur úr olíuframleiðslu Norska ríkisolíurisinn Statoil hefur ákveðið að minnka olíuframleiðslu á svokölluðu Kvitebjørnsvæði í Norðursjó í næstu fimm mánuði og mun framleiðslan eftirleiðis nema 95.000 tunnum af olíu í dag. Fyrirtækið grípur til þessa ráða til að tryggja olíubirgðir og vernda borholur. Þá horfir fyrirtækið til þess að auka framleiðslu sína á öðrum svæðum og vega þannig upp á móti skerðingunni. Viðskipti erlent 22.12.2006 16:08
Lánshæfismat Landsvirkjunar lækkar Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfismat Landsvirkjunar. Ástæðan er lækkun lánshæfis ríkissjóðs. Viðskipti innlent 22.12.2006 15:58
Krónan fellur eftir lækkað lánshæfismat ríkissjóðs Krónan hefur fallið um tæp þrjú prósent eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor’s greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands. Matsfyrirtækið segir lækkanirnar endurspegla minnkandi aðhald í ríkisfjármálum í aðdraganda þingkosninga á næsta ári og líkur hafi aukist á harðri lendingu í efnahagslífinu. Moody´s matsfyrirtækið staðfestir hinsvegar gildandi mat. Fjárlög fyrir næsta ár sögð þensluhvetjandi og á skjön við peningamálastefnu Seðlabankans. Viðskipti innlent 22.12.2006 14:29
Icelandic Group selur VGI Icelandic Group hefur gert samning um sölu á öllum hlutabréfum í VGI ehf, sem framleiðir umbúðir og rekstrarvörur til matvælafyrirtækja. Söluverð nemur 270 milljónum króna. Samningurinn tekur gildi á Nýársdag og taka nýir stjórnendur við rekstri félagsins frá þeim tíma. Viðskipti innlent 22.12.2006 14:18
Kaupþing spáir lægri verðbólgu Greiningardeild Kaupþings segir flest benda til að verðbólga hafi náð hámarki. Vegna vísbendinga um að draga muni úr eftirspurn í hagkerfinu á næstu mánuðum muni draga úr verðbólguþrýstingi. Muni verðbólgumarkmiðið Seðlabankans verða náð á þriðja fjórðungi næsta árs. Greininardeildin spáir því sömuleiðis, að fasteignaverð muni lækka um 4 prósent á næsta ári. Viðskipti innlent 22.12.2006 13:12
Toyota stærsti bílaframleiðandi heims? Allt virðist stefna í að japanski bílaframleiðandinn Toyota taki fram úr bandaríska bílaframleiðandanum General Motors sem stærsta fyrirtækið á þessu sviði á næsta ári. Toyota ætlar að gefa í á nýju ári og auka framleiðslu á nýjum bílum um 4 prósent sem jafngildir því að fyrirtækið búi til 9,42 milljónir bíla á árinu. Viðskipti erlent 22.12.2006 10:25
Vodafone staðfestir fyrirtækjaskoðun á Indlandi Stjórn breska farsímarisans Vodafone hefur staðfest að fyrirtækið sé að íhuga að gera tilboð í indverska farsímafélagið Hutchison Essar. Vodafone mun bjóða allt að rúma 13,5 dali eða um 944 milljarða krónur í félagið. Með kaupunum er horft til þess að stækka fyrirtækið þar sem evrópski farsímamarkaðurinn er mettur. Viðskipti erlent 22.12.2006 09:56
Össur kaupir franskt stoðtækjafyrirtæki Stoðtækjafyrirtækið Össur hefur keypt franska fyrirtækið Gibaud Group fyrir um 132 milljónir Bandaríkjadala eða rúma 9,2 milljarða íslenskra króna. Gibaud Group er forystufyrirtæki í Frakklandi á sviði þróunar og framleiðslu á stuðningstækjum með sérstakri áherslu á spelkur og vörur til notkunar við blóðrásarmeðferðir (phlebology). Viðskipti innlent 22.12.2006 09:50
Neytendur fá kartöflu í skóinn frá Seðlabankanum Íslenskir neytendur hafa aldrei verið bjartýsnni en nú ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var í dag. Gildi vísitölunnar hækkaði um 17,3 prósent á milli mánaða og 8,5 prósent á milli ára og hefur aldrei verið hærri. Greiningardeild Kaupþings segir bjartsýnina skjóta skökku við á sama tíma og peningalegt aðhald Seðlabankans sé í hæstu hæðum. Sé bjartsýnin vísbending um þróun einkaneyslu veitir neytendum ekki af kartöflu í skóinn frá Seðlabankanum, að sögn deildarinnar. Viðskipti innlent 21.12.2006 16:27
TM Software selur sjávarútvegshluta Maritech TM Software ákveðið að selja hugbúnaðarfyrirtækið Maritech International AS, dótturfyrirtæki þess, til AKVA Group ASA. Kaupverð nemur 80 milljónum norskra króna eða um 903 milljónum íslenskra króna og verður það greitt með peningum við fullnustu samningsins. Viðskipti innlent 21.12.2006 16:09
Hlutabréf lækkuðu um 2,4 prósent í Taílandi Gengi taílenska bahtsins hefur lækkað um 1,7 prósent í dag gagnvart bandaríkjadal á Taílandi í dag. Gengi hlutabréfa hækkaði um 11 prósent í kauphöllinni í Taílandi í gær en lækkaði um 2,4 prósent í dag eftir að forsætisráðherra Taílands greindi frá því að ríkisstjórnin styddi aðgerðir taílenska seðlabankans. Viðskipti erlent 21.12.2006 14:43
Actavis selur lyfjaverksmiðju í Noregi Actavis hefur selt lyfjaverksmiðju sína í Lier í Noregi til norska tryggingafélagsins Storebrand fyrir 10 milljónir evra eða 900 milljónir íslenskra króna. Actavis hefur jafnframt gert fimm ára framleiðslusamning við sænska framleiðslufyrirtækið Inpac, sem leigir verksmiðuna af Storebrand. Viðskipti innlent 21.12.2006 11:51
Vodafone að kaupa indverskt farsímafyrirtæki? Farsímarisinn Vodafone er sagður vera að íhuga að leggja fram yfirtökutilboð í Hutchison Essar, fjórða stærsta farsímafélag á Indlandi. Verði af tilboðinu mun það nema 13 milljörðum punda eða tæpa 1.800 milljarða íslenskra króna, að sögn breska dagblaðsins Telegraph. Viðskipti erlent 21.12.2006 11:17
Tillaga um stofnun móðurfélags innan Símastæðunnar Stjórn Símans hf. hefur samþykkt að leggja fram tillögu um stofnun sérstaks móðurfélags innan Símasamstæðunnar Skipti hf. á hluthafafundi í mars á næsta ári. Gert er ráð fyrir að móðurfélagið verði skráð á markað fyrir árslok 2007. Viðskipti innlent 21.12.2006 11:08
Telur stýrivaxtahækkun í morgun þá síðustu í bili Greiningardeild Glitnis telur að stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands í morgun sé sú síðasta í þessu hækkunarferli en bankinn hækkaði stýrivextina um 0,25 prósentur. Fram kemur í Morgunkorni Glitnis að greiningardeildin telji að næsta skref hans verði að lækka vexti og að það gerist um miðbik næsta árs. Innlent 21.12.2006 11:04
Glitnir segir hækkun vaxta í takt við verðbólguspá Gengi krónunnar hefur lækkað um 0,28 prósent í kjölfar 25 punkta hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands í morgun. Greiningardeild Glitnis segir hækkunina í takti við það sem Seðlabankinn boðaði í verðbólguspá sinni í byrjun nóvember. Viðskipti innlent 21.12.2006 10:55
Euronext samþykkir samruna við NYSE Hluthafar evrópsku kauphallarinnar Euronext hafa samþykkt samruna við kauphöllina í New York, NYSE, en með honum verður til fyrsta kauphöllin sem tengir markaði í Evrópu og Bandaríkjunum og auðveldar fyrir vikið fjárfestingar yfir Atlantshafið. Viðskipti erlent 20.12.2006 16:50
Actavis kaupir lyfjaverksmiðju á Indlandi Actavis hefur keypt verksmiðju indverska lyfjafyrirtækisins Grandix Pharmaceuticals, sem sérhæfir sig í framleiðslu og þróun samheitalyfja. auk þess sem Actavis hefur opnað nýja þróunareiningu á Indlandi sem mun sérhæfa sig í þróun virkra lyfjaefna. Kaupverð er ekki gefið upp. Viðskipti innlent 20.12.2006 13:38
Moody's staðfestir lánshæfismat bankanna Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s Investors Service staðfestir lánshæfiseinkunnir viðskiptabankanna þriggja í nýrri skýrslu þar sem fjallað er um bankakerfið á Íslandi. Matsfyrirtækið segir lánshæfishorfur bankanna stöðugar en hvað varðar einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika þá eru horfur neikvæðar fyrir Glitni og Landsbankann. Viðskipti innlent 20.12.2006 12:05
Taka þarf upp evru lagist ekki hagstjórnin Hysji stjórnvöld ekki upp um sig buxurnar í stjórn efnhagsmála er upptaka evru eina leiðin til að hér náist stöðugleiki í efnahagsmálum, sagði Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, þegar hann kynnti nýja skýrslu um hagstjórnarumhverfið á Íslandi í morgun. Skýrslan er áfellisdómur yfir hagstjórn bæði ríkis og sveitarfélaga auk þess sem Seðlabankinn er sagður hafa gert mistök í stjórn peningamála. Viðskipti innlent 20.12.2006 11:02
Delta hafnar US Airways Bandaríska flugfélagið Delta hefur hafnað yfirtökutilboði flugfélagsins US Airways. Tilboðið hljóðaði upp á 8 milljarða bandaríkjadali eða tæpa 552,5 milljarða íslenskra króna. Stjórn Delta ákvað hins vegar að leita allra leiða til að hagræða í rekstri og forða flugfélaginu frá gjaldþroti. Viðskipti erlent 20.12.2006 10:35
Hlutabréf hækka á ný í Taíland Gengi hlutabréfa hækkaði um 9 prósent í Taílandi í dag eftir mjög mikla lækkun í í gær. Seðlabanki Taílands tilkynnti á mánudag að hann hyggðist taka upp gjaldeyrishömlur til að sporna gegn hækkun taílenska bahtsins. Afleiðingarnar urðu þær að fjöldi erlendra fjárfesta losaði sig við hlutabréfaeign sína á þriðjudag og gengi hlutabréfavísitölunnar fór niður um tæp 15 prósent. Viðskipti erlent 20.12.2006 09:34
Tímaspursmál hvaða banki yrði fyrstur Ekki virðast í bráð uppi ráðagerðir hjá stóru viðskiptabönkunum að færa bókhald sitt yfir í evrur líkt og Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur upplýst um að hann ætli að gera um áramót. Málið hefur þó verið rætt og er til stöðugrar endurskoðunar bæði í Landsbankanum og Glitni. Kaupþing kýs hins vegar að tjá sig ekki um málið. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26
Fjármagna nágrannana Ég er búinn að kaupa jólagjafirnar fyrir gróðann af 365 og svo bakaði ég smákökur á sunnudaginn. Hef ekki klikkað á því svo árum skiptir, enda tekur maður því alltaf fremur rólega í desember og lætur aurana vinna fyrir sig. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:25
Nú sér fyrir endann á hækkunarferli stýrivaxta Hvort sem Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti lítillega á aukavaxtaákvörðunardegi sínum á morgun eða heldur þeim óbreyttum ber sérfræðingum saman um að eftir áramót verði ferli stýrivaxtahækkana bankans sem hófst í maí 2004 örugglega lokið. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26
VÍS styrkir Einstök börn Í stað þess að senda jólakort tóku stjórnendur VÍS þá ákvörðun að styrkja Einstök börn um andvirði þeirra fjárhæðar sem varið hefur verið til slíks. Verður styrknum varið í stuðning við börn og barnafjölskyldur sem vegna sérstakra aðstæðna þurfa á stuðningi að halda. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:26
Uppgangur innan klæða Danir eru sterk verslunarþjóð og eiga langa sögu sem slík, enda þótt við teljum okkur auðvitað þeim fremri á öllum sviðum nema í fótbolta. Viðskipti erlent 19.12.2006 15:25
Neðanjarðar-sport Ein vinsælasta íþróttagreinin sem nýríkir íslenskir athafnamenn stunda af miklum krafti er vínsöfnun og heyrast sögur af því að vel efnaðir einstaklingar leggi mikið upp úr því að útbúa vínkjallara þegar verið er að hreinsa út úr einbýlishúsunum. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:25
TM Software styrkir Ljósið Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software hefur ákveðið að styrkja Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Stuðningurinn felst í að veita Ljósinu afnot af sjúkraskrárkerfinu Sögu, sem Ljósið fær aðgang að í gegnum iCura-kerfisveitu. Viðskipti innlent 19.12.2006 15:25