Íþróttir

Fréttamynd

Kristján inn í hópinn í stað Daða

Markvörðurinn Kristján Finnbogason úr KR hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Norður-Írum á morgun eftir að Daði Lárusson meiddist á æfingu í dag. Kristján er öllum hnútum kunnugur hjá landsliðinu og á að baki 20 landsleiki. Hann verður varamarkvörður Árna Gauts Arasonar í leiknum, sem sýndur verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst klukkan 14.

Sport
Fréttamynd

Lokaæfingu hætt snemma vegna hörku

Lawrie Sanchez segir að norður-írska landsliðið sé að hugsa um þjóðarstoltið en ekki peningagræðgi nú þegar það leggur lokahönd á undirbúninginn fyrir fyrsta leik sinn í undankeppni EM gegn Íslendingum á morgun. Sanchez flautaði lokaæfinguna af snemma í dag, því honum þótti komið full mikið kapp í sína menn.

Sport
Fréttamynd

Ein breyting á íslenska liðinu

Lúkas Kostic, þjálfari U-21 árs landsliðsins, hefur gert eina breytingu á liði sínu fyrir leikinn gegn Ítölum í undankeppni EM sem hefst nú klukkan 19. Eyjólfur Héðinsson kemur inn í liðið í stað Guðjóns Baldvinssonar. Íslenska liðið spilar leikaðferðina 4-5-1 í kvöld. Aðgangurr er ókeypis á leik kvöldsins á Laugardalsvelli og því um að gera fyrir alla að drífa sig á völlinn og styðja íslenska liðið gegn sterku liði Ítala.

Sport
Fréttamynd

Denilson á leið til Arsenal?

Breska sjónvarpsstöðin Sky heldur því fram að Arsenal sé búið að gera samning við 18 ára gamlan Brasilíumann frá liði Sao Paulo, en sá heitir Denilson og er varnartengiliður. Denilson er sagður gríðarlegt efni, en engin staðfesting hefur enn borist frá Arsenal vegna þessa.

Sport
Fréttamynd

Fótboltaveisla á Sýn um helgina

Það verður mikið um dýrðir á sjónvarpsstöðinni Sýn um helgina og næstu daga, en þá verður á dagskrá fjöldi beinna útsendinga frá leikjum í undankeppni EM og þá verða athyglisverðir vináttuleikir inn á milli. Þá verður Sýn einnig með beinar útsendingar frá Deutsche Bank mótinu í golfi.

Sport
Fréttamynd

Baptista styrkir okkur mikið

Arsene Wenger er mjög ánægður með að vera búinn að landa brasilíska landsliðsmanninum Julio Baptista frá Real Madrid og segir hann styrkja hóp Arsenal til muna.

Sport
Fréttamynd

Yfirtökutilboð í West Ham á viðræðustigi

Breska sjónvarpið greinir frá því í dag að stjórn West Ham sé nú í viðræðum við fjárfesta sem hafi hug á að gera yfirtökutilboð í félagið. Því hefur enn sem komið er verið vísað á bug að þessi tíðindi tengist kaupum félagsins á Argentínumönnunum tveimur í gær, en þeir voru á mála hjá fyrirtækinu Media Sports Investment. Talsmaður þess fyrirtækist segir engin áform uppi hjá fyrirtækinu að eignast knattspyrnufélag í Evrópu.

Sport
Fréttamynd

Frítt á völlinn í kvöld

Íslenska U-21 árs landsliðið tekur í kvöld á móti því ítalska í riðlakeppni EM. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefur KSÍ ákveðið að hafa aðgangseyrir ókeypis. Leikurinn hefst klukkan 19 í kvöld og rétt að skora á sem flesta að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu, en til gamans má geta að ítalska liðið teflir fram leikmönnum á borð við framherjann Guiseppe Rossi hjá Manchester United, sem gekk í raðir Newcastle sem lánsmaður í gær.

Sport
Fréttamynd

Spánverjar í úrslit

Það verða Spánverjar og Grikkir sem leika til úrslita á HM í körfubolta eftir að liðið vann nauman sigur á Ólympíumeisturum Argentínu í undanúrslitunum í dag 75-74. Leikurinn var í járnum allan tímann, en spænska liðið náði að landa naumum sigri á lokasekúndunum þrátt fyrir að vera án Pau Gasol sem meiddist á ökkla í lokin.

Körfubolti
Fréttamynd

Ætlar í mál við Wayne Rooney

David Moyes, stjóri Everton, ætlar að fara í mál við knattspyrnumanninn Wayne Rooney vegna ummæla hans um fyrrum þjálfara sinn í nýútkominni ævisögu sinni. Þar sakar Rooney þjálfara sinn um að hafa flæmt sig frá Everton á sínum tíma og sættir Moyes sig ekki við þá yfirlýsingu og nokkrar aðrar yfirlýsingar í bókinni.

Sport
Fréttamynd

Rio Ferdinand missir af leiknum við Andorra

Varmarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United verður ekki í leikmannahópi Englendinga á morgun þegar liðið mætir Andorra í undankeppni EM, en hann er meiddur á tá. Steve McClaren landsliðsþjálfari segir þá Michael Dawson hjá Tottenham og Wes Brown frá Manchester United vera klára í að fylla skarð Ferdinand á morgun, en vonar að leikmaðurinn verði búinn að ná sér fyrir leikinn gegn Makedónum í næstu viku.

Sport
Fréttamynd

Grikkir lögðu Bandaríkjamenn

Evrópumeistarar Grikkja gerðu sér lítið fyrir og lögðu Bandaríkjamenn 101-95 á HM í körfubolta sem fram fer í Japan og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaleik mótsins á sunnudag. Bandaríkjamenn áttu ekkert svar við einföldum en árangursríkum sóknarleik gríska liðsins, sem nýtti 63% skota sinna í leiknum og því verða Bandaríkjamenn í besta falli að sætta sig við bronsverðlaun á mótinu líkt og á Ólympíuleikunum fyrir tveimur árum.

Körfubolti
Fréttamynd

Ashley Cole til Chelsea

Chelsea gekk í gærkvöld frá kaupum á enska landsliðsmanninum Ashley Cole frá Arsenal og fékk í skiptum franska landsliðsmanninn William Gallas. Chelsea borgaði fimm milljónir punda á milli og stóðust báðir leikmenn læknisskoðun í gærkvöld um það leiti sem félagaskiptaglugginn lokaði. Cole hefur undirritað fimm ára samning við Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Repúblikanarnir eru að eyðileggja landið

Fyrrum körfuboltamaðurinn Charles Barkley íhugar nú að fara í framboð til fylkisstjóra í Alabama og í viðtali við Fox sjónvarpsstöðina sem fer í loftið á sunnudag, segir Barkley að Repúblikanar séu að fara eyðileggja Bandaríkin. Hann sagðist ennfremur ekkert hafa á móti því að samkynhneigðir fengju að ganga í hjónaband.

Körfubolti
Fréttamynd

Pascal Cygan farinn til Spánar

Varnarmaðurinn Pascal Cygan hefur verið seldur frá enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal til spænska félagsins Villarreal fyrir tvær milljónir punda. Cygan hefur skrifað undir tveggja ára samning við spænska liðið. Enn er ekkert að frétta af málum Ashley Cole, en óstaðfestar fregnir herma að hann sé á leið til Chelsea í skiptum fyrir William Gallas og að Englandsmeistararnir muni borga fimm milljónir punda á milli.

Sport
Fréttamynd

Við getum staðið í hvaða liði sem er

Alan Pardew var skiljanlega í skýjunum í dag eftir að West Ham landaði óvænt tveimur ungum stórlöxum úr argentínska landsliðinu fyrir lokun félagaskiptagluggans. Pardew telur að með tilkomu þeirra Carlos Tevez og Javier Mascherano geti West Ham velgt hvaða liði sem er á Englandi eða Evrópu undir uggum.

Sport
Fréttamynd

Lamaðist tímabundið eftir skurðaðgerð

Gamla brýnið Bobby Robson, sem gekkst undir skurðaðgerð vegna heilaæxlis á dögunum, lamaðist tímabundið á vinstri helmingi líkama síns í dag eftir að bólgur mynduðust í heila hans. Læknar segja þetta eðlileg eftirköst skurðaðgerðarinnar og segja Robson hinn hressasta en sá gamli er nú á sjúkrahúsi þar sem hann fylgist náið með gangi mála á lokasprettinum áður en félagaskiptaglugganum lokar í Evrópuboltanum.

Sport
Fréttamynd

Lúðarnir hefja leik í kvöld

Fyrsti sjónvarpsþátturinn um Knattspyrnufélagið Nörd verður á dagskrá Sýnar í kvöld klukkan 21, en þar hefur fyrrum landsliðsþjálfaranum Loga Ólafssyni verið fengið það erfiða verkefni að búa til brúklegt knattspyrnulið úr hópi hæfileikalausra lúða sem aldrei hafa komið nálægt íþróttinni.

Sport
Fréttamynd

Jan Kromkamp farinn frá Liverpool

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool seldi í dag hollenska varnarmanninn Jan Kromkamp til PSV Eindhoven í heimalandi hans. Kromkamp gekk í raðir Liverpool frá Villarreal í janúar í fyrra en fékk fá tækifæri með aðalliði þeirra rauðu.

Sport
Fréttamynd

Baptista til Arsenal - Reyes til Madrid

Arsenal og Real Madrid gengu nú rétt í þessu frá leikmannaskiptum sín á milli þar sem spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes fer til Real Madrid og Arsenal fær í staðinn brasilíska miðjumanninn Julio Baptista. Hér er um að ræða lánssamning í fyrstu, en til greina kemur að skiptin verði gerð að fullu

Fótbolti
Fréttamynd

Kilbane til Wigan

Enska úrvalsdeildarfélagið Wigan hefur fest kaup á írska landsliðsmanninum Kevin Kilbane frá Everton fyrir um 2 milljónir punda. Kilbane er 29 ára gamall og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Wigan með möguleika á eins árs framlengingu.

Sport
Fréttamynd

Arsenal í viðræðum við Real Madrid og Chelsea

Ensku stórliðin Arsenal og Chelsea hafa ekki látið mikið í sér heyra á leikmannamarkaðnum á Englandi í dag, en þó er Arsenal sagt vera í viðræðum við Chelsea og Real Madrid vegna þeirra Jose Antonio Reyes og Ashley Cole. Breska sjónvarpið telur sig hafa heimildir fyrir því að Arsenal og Real muni skipta á þeim Reyes og Julio Baptista á lánssamningum og að enn sé ekki loku fyrir það skotið að Chelsea kaupi Ashley Cole. Frekari frétta er að vænta af þessu máli í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Við verðum að stöðva Eið Smára

David Healy, leikmaður Leeds og norður-írska landsliðsins, segir það algjört lykilatriði fyrir sína menn að halda aftur af Eiði Smára Guðjohnsen á laugardaginn þegar Íslendingar sækja Norður-Íra heim í fyrsta leik sínum í undankeppni EM.

Sport
Fréttamynd

Hólmar Örn farinn til Silkeborg

Keflvíkingurinn Hólmar Örn Rúnarsson gekk í dag í raðir danska knattspyrnuliðsins Silkeborg. Hólmar skrifaði undir samning við félagið á dögunum og upphaflega var reiknað með að hann gengi í raðir liðsins þann 1. janúar, en í dag var gengið frá því að hann héldi strax til Danmerkur og verða Keflvíkingar því án þessa sterka leikmanns í bikarúrslitaleiknum gegn KR í næsta mánuði.

Sport
Fréttamynd

Tevez og Mascherano í liði Argentínu

West Ham leikmennirnir Carlos Teves og Javier Mascherano eru í landsliðshópi Argentínumanna sem mæta Brasilíumönnum í æfingaleik á Emirates Stadium í London á sunnudag. Brassar mæta einnig með sterkt lið til leiks um helgina og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 15:00.

Sport
Fréttamynd

Landslið Wales þurfti að nauðlenda

Nokkur óróleiki greip um sig í dag þegar Boeing 737 flugvél sem hafði landslið Wales í knattspyrnu innanborðs þurfti að nauðlenda í Bornemouth á leið sinni frá Cardiff eftir að framrúða í vélinni brotnaði. Engan sakaði í óhappinu og sagði John Toshack landsliðsþjálfari að í raun hefði hann aldrei vitað hvað var í gangi þegar vélinni var snúið og lent.

Sport
Fréttamynd

Portsmouth kaupir Kranjcar

Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur fest kaup á króatíska miðjumanninum Niko Kranjcar frá Hadjuk Split. Kranjcar er 22 ára gamall og stóð sig vel undir stjórn föður síns með króatíska landsliðinu á HM í sumar. Harry Redknapp og félagar ákváðu að snúa sér til króatíska leikmannsins í kjölfar þess að félagið missti af Búlgaranum Stilian Petrov sem ákvað að ganga í raðir Aston Villa. Kranjcar hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Portsmouth.

Sport
Fréttamynd

West Ham kaupir tvo Argentínumenn

West Ham hefur svo sannarlega stolið sviðsljósinu á síðasta deginum til félagaskipta í Evrópuboltanum, en félagið hefur gengið frá kaupum á tveimur af efnilegustu leikmönnum argentínska landsliðsins, þeim Carloz Tevez og Javier Mascherano frá brasilíska liðinu Corinthians.

Sport
Fréttamynd

Middlesbrough kaupir Euell

Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough hefur fest kaup á sóknarmanninum Jason Euell frá Charlton. Euell er 29 ára gamall og í stað hans hefur Charlton fengið að láni landsliðsmanninn Omar Pouso frá Úrúgvæ, en hann er líklega þekktastur fyrir markið glæsilega sem hann skoraði í æfingaleiknum gegn Englendingum í sumar.

Sport
Fréttamynd

Sorin til Hamburger

Argentínski landsliðsfyrirliðinn Juan Pablo Sorin gekk í dag í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Hamburger frá spænska liðinu Villarreal og er kaupverðið sagt vera um 2,5 milljónir evra. Sorin er þrítugur varnarmaður og hefur hann undirritað þriggja ára samning við þýska félagið.

Fótbolti