Íþróttir

Fréttamynd

Íslandsmótið í hnefaleikum

Nú stendur yfir Íslandsmót í hnefaleikum - hið fyrsta í rúm 50 ár. Undankeppnin hefur staðið yfir á fimmtudegi og föstudegi og sjálf úrslitakeppnin verður á laugardagskvöldið, annað kvöld. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá úrslitunum og hefst útsendingin kl. 20.

Lífið
Fréttamynd

Við erum sigurstranglegri

Villingurinn Ron Artest hélt því blákalt fram á dögunum að hann væri að eigin mati besti leikmaður í NBA deildinni, en jafnan er stutt í stórar yfirlýsingar hjá kappanum. Nú hefur hann tjáð sig um einvígi Sacramento gegn meisturum San Antonio Spurs í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst um helgina og segir Artest sína menn vera í alla staði sigurstranglegri.

Sport
Fréttamynd

Eiður ekki með gegn Liverpool

Jose Mourinho er í nokkrum vandræðum með að manna miðjuna hjá sér fyrir undanúrslitaviðureignina við Liverpool í enska bikarnum á morgun. Eiður Smári Guðjohnsen getur ekki leikið með Chelsea vegna veikinda, Michael Essien á við hnémeiðsli að stríða og Maniche er í leikbanni. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn á morgun og hefst útsending klukkan 15:50.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti leikur Heinze á morgun?

Argentínski varnarmaðurinn Gabriel Heinze verður líklega með varaliði Manchester United sem mætir varaliði Aston Villa á morgun, en það yrði fyrsti heili leikurinn sem hann spilaði síðan hann meiddist illa á hné síðastliðið haust. Heinze hefur enn ekki gefið upp alla von um að vinna sér sæti í argentínska landsliðinu fyrir HM í sumar.

Sport
Fréttamynd

Chelsea spilar í Bandaríkjunum í sumar

Englandsmeistarar Chelsea munu spila æfingaleiki í Bandaríkjunum í sumar til að undirbúa sig fyrir næstu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Enska liðið mun meðal annars spila æfingaleik við sérstakt úrvalslið úr efstu deildinni þar í landi og er leikurinn settur 5. ágúst. "Ég er mjög ánægður með að fara aftur til Bandaríkjanna og það er fínn undirbúningur spila þar og undirbúa sig fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni," sagði Jose Mourinho, stjóri Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Owen verður í hópnum á morgun

Framherjinn Michael Owen verður mjög óvænt í leikmannahópi Newcastle á morgun þegar liðið mætir West Brom í ensku úrvalsdeildinni. Ekki var reiknað með að Owen spilaði nema í besta falli síðasta leik liðsins á tímabilinu eftir erfið meiðsli, en nú er útlit fyrir að hann fái jafnvel að spreyta sig með liði sínu á morgun. Owen á fyrir höndum erfitt verkefni til að sanna form sitt fyrir landsliðsþjálfaranum Sven-Göran Eriksson fyrir HM í sumar.

Sport
Fréttamynd

Alonso og Schumacher náðu bestum tíma á Imola

Keppinautarnir Fernando Alonso hjá Renault og Michael Schumacher hjá Ferrari náðu besta tímanum á seinni æfingunni fyrir San Marino-kappaksturinn á Imola brautinni í dag. Schumacher náði besta tímanum á fyrstu æfingunum í morgun, en þriðja besta tímanum á síðari æfingunni náði Felipe Massa.

Sport
Fréttamynd

Bryant stigakóngur

Nú þegar deildarkeppninni í NBA-körfuboltanum er lokið, er ekki úr vegi að skoða hvaða leikmenn urðu hlutskarpastir í einstaka tölfræðiþáttum í vetur. Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers hirti stigakóngstitilinn með miklum yfirburðum og var með hæsta meðalskor leikmanns í deildinni í heil 20 ár. Bryant skoraði 35,4 stig að meðaltali í leik, það mesta síðan Michael Jordan skoraði 37 stig að meðaltali fyrir tveimur áratugum.

Sport
Fréttamynd

Sigurður áfram í Keflavík

Keflvíkingar hafa framlengt samning við þjálfara sinn Sigurð Ingimundarson og mun hann því stýra liðinu áfram næsta vetur. Lið Keflavíkur olli nokkrum vonbrigðum í vor þegar það féll úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins, en þar á bæ þykir það ekki góður árangur. Keflvíkingar hafa þó ákveðið að blása til sóknar undir stjórn Sigurðar næsta vetur og ætla sér eflaust að endurheimta titilinn af grönnum sínum í Njarðvík.

Sport
Fréttamynd

Mikilvægasti grannaslagur Arsenal og Tottenham til þessa

Ian Wright, fyrrum framherji Arsenal, segir að grannaslagur erkifjendanna Arsenal og Tottenham í Norður-Lundúnum á morgun, sé stærsti og mikilvægasti leikur liðanna til þessa. Liðin mætast í síðasta skipti á Highbury á morgun í leik sem fer langt með að skera úr um hvort liðið hreppir sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Sport
Fréttamynd

Ég fer ekki frá Liverpool

Steven Gerrard hefur nú tjáð sig um þann orðróm sem hefur verið á kreiki undanfarna daga um að spænska stórliðið Real Madrid ætli að bjóða í hann í sumar og segist kappinn vera ánægður hjá Liverpool. "Ég ætla ekki að ganga aftur í gegn um það sem ég gekk í gegn um síðasta sumar og ég fer ekki frá Liverpool fyrr en einhver segir mér að fara," sagði Gerrard, sem var nálægt því að ganga til liðs við Chelsea í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Bárður tekur við ÍR

Bárður Eyþórsson hefur gert fjögurra ára samning við körfuknattleiksdeild ÍR og mun sjá um þjálfun liðsins frá og með næsta vetri. Bárður hefur stýrt liði Snæfells undanfarin fimm ár með góðum árangri en er nú kominn í Breiðholtið og ætlar liðinu að vera í toppbaráttunni næsta vetur.

Sport
Fréttamynd

Ferillinn líklega á enda

Fréttavefur BBC telur nokkuð víst að ferli framherjans Alan Shearer hjá Newcastle sé lokið, því hann hefur heimildir fyrir því að markvörðurinn Shay Given hafi verið gerður að fyrirliða liðsins út tímabilið og þykir það benda til þess að meiðsli Shearer séu það alvarleg að hann nái ekki að spila meira á leiktíðinni. Hann fer í aðra myndatöku hjá læknum í dag, en þar fæst endanleg niðurstaða um ástand hans.

Sport
Fréttamynd

Þorvaldur Árni sigrar fimmgang í Meistaradeild VÍS

Það var Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Þokki frá Kýrholti sem sigruðu fimmganginn í Meistaradeild VÍS í gærkveldi. Viðar Ingólfsson á Riddara frá Krossi náði öðru sæti og Sigurður Sigurðarson á Skuggabaldri endaði í því þriðja. Ísleifur og Svalur frá Blönduhlíð áttu magnaða sýningu, en þeir riðu úr 10. sæti í B úrslitum uppí 4. sæti í A úrslit.

Sport
Fréttamynd

Slæmt gengi hjá KR

"Ég hef ekki áhyggjur af gengi okkar þrátt fyrir að vissulega geti ég ekki verið sáttur með árangur okkar til þessa. Óheppni spilar inn í þar sem við höfum verið að spila með en ekki fengið úrslitin með okkur," sagði Teitur Þórðarson, þjálfari KR við Fréttablaðið í gær en liðið tapaði í lokaleik deildabikarsins í gær fyrir 1. deildarliði Fram, 3-2.

Sport
Fréttamynd

Þakklátur Guði fyrir hnefaleikana

Íslandsmótið í hnefaleikum fer fram um helgina. Meðal keppenda er hinn 18 ára gamli Sigurjón Arnórsson sem lærði box af afa sínum, Matthíasi Matthíassyni, sem 81 árs að aldri er enn að æfa hnefaleika.

Sport
Fréttamynd

Biður Uefa að breyta reglum

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs hefur sent evrópska knattspyrnusambandinu beiðni um að reglunum um Meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni verði breytt, en svo gæti farið að Tottenham kæmist ekki í hina eftirsóttu Meistaradeild á næsta tímabili þó svo að liðið nái fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni í vor.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá Schalke og Sevilla

Þýska liðið Schalke gerði í kvöld markalaust jafntefli við spænska liðið Sevilla í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í Evrópukeppni félagsliða, en leikurinn fór fram í Þýskalandi. Það er því ljóst að Þjóðverjarnir eiga erfitt verkefni fyrir höndum í síðari leiknum á Spáni í næstu viku.

Sport
Fréttamynd

Boro tapaði í Rúmeníu

Middlesbrough þurfti að sætta sig við 1-0 ósigur í fyrri leik liðsins gegn Steua frá Búkarest í Evrópukeppni félagsliða í kvöld, en leikið var í Rúmeníu. Heimamenn skoruðu eina mark leiksins á 29. mínútu og máttu gestirnir þakka markverði sínum Mark Schwarzer að fara aðeins einu marki undir í síðari leikinn á Englandi.

Sport
Fréttamynd

Middlesbrough undir í Rúmeníu

Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough er undir 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrri viðureign liðsins við Steua Búkarest í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða, en leikurinn fer fram í Rúmeníu. Það var Nicolae Dicu sem skoraði mark heimamanna á 30. mínútu. Leikur Schalke og Sevilla í sömu keppni er nýhafinn og þar er staðan 0-0. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni hér á Vísi.

Sport
Fréttamynd

Real Madrid er að hrynja til grunna

Ramon Calderon, framkvæmdastjóri Real Madrid, vandar settum forseta félagsins ekki kveðjurnar í nýlegu viðtali og segir félagið vera að hrynja. Hann segir forseta félagsins ekki starfi sínu vaxinn og bendir á að áríðandi sé að nýr forseti verði kjörinn sem fyrst og þá af yfirlögðu ráði af stjórn félagsins.

Sport
Fréttamynd

Tiger Woods ætlar að taka sér frí

Stigahæsti kylfingur heims, Tiger Woods, ætlar að taka sér frí frá golfíþróttinni um óákveðinn tíma til að vera veikum föður sínum innan handar í baráttunni við krabbamein. Woods hefur ekki gefið upp hvenær hann snýr aftur, en segist þó vonast til að geta verið með á US Open í júní. Woods er nú staddur á Nýja-Sjálandi þar sem hann var viðstaddur brúðkaup kylfusveins síns.

Sport
Fréttamynd

Eigum skilið að komast í Meistaradeildina

Martin Jol, stjóri Tottenham, undirbýr lið sitt nú fyrir mikilvægasta leik þess á síðustu árum. Tottenham sækir granna sína í Arsenal heim á Highbury á laugardaginn í leik sem mun ráða miklu um hvort liðið hafnar í fjórða sæti deildarinnar og kemst í Meistaradeildina á næsta tímabili.

Sport
Fréttamynd

Owen spilar í mesta lagi einn leik

Nú er ljóst að sæti framherjans Michael Owen í enska landsliðinu á HM í sumar hangir á bláþræði, því Glenn Roader stjóri Newcastle segir að Owen muni líklega ekki ná að spila nema í mesta lagi einn leik fyrir Newcastle það sem eftir er af tímabilinu.

Sport
Fréttamynd

Úrslitakeppnin hefst á laugardagskvöld

Úrslitakeppnin í NBA deildinni í körfubolta hefst á laugardagskvöldið og hægt verður að fylgjast náið með gangi mála í beinum útsendingum á Sýn og NBA TV á Digital Ísland. Þegar hefur verið staðfest að fyrsti leikur Phoenix Suns og Los Angeles Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn á sunnudagskvöldið um klukkan tíu. Hér fyrir neðan gefur að líta yfirlit yfir hvaða lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Sport
Fréttamynd

Samningar eru ekki í höfn

Þýski miðjumaðurinn Michael Ballack segir að fréttir ZDF í gær þess efnis að hann sé búinn að samþykkja samningstilboð frá Chelsea séu þvættingur. Umboðsmaður hans tekur í sama streng og neitar alfarið að búið sé að skrifa undir eitt eða neitt - en segir þó að samingaviðræður gangi vel og reiknar með að allt verði í höfn fyrir HM í sumar eins og fyrirhugað var.

Sport
Fréttamynd

Pires staðfestir samningstilboð frá Villarreal

Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Arsenal hefur nú staðfest að andstæðingar Arsenal í Meistaradeildinni, spænska liðið Villarreal, hafi boðið honum tveggja ára samning. Pires er með lausan samning í sumar og verður þá frjálst að skipta um félag, en hann vill samt helst vera áfram í herbúðum Arsenal. Þar á bæ vilja menn hinsvegar aðeins bjóða honum eins árs samning - en Pires sækist eftir tveggja ára samningi.

Sport
Fréttamynd

Gerrard fer ekki til Real Madrid

Rafa Benitez segir að ekkert sé til í þeim fregnum að Steven Gerrard muni ganga til liðs við spænska stórliðið Real Madrid í sumar og segir fyrirliðann alls ekki til sölu. Forráðamenn Real hafa ekki farið leynt með áhuga sinn á Gerrard í spænskum fjölmiðlum síðustu daga. "Málið er mjög einfalt - Gerrard er ekki til sölu," sagði Benitez.

Sport
Fréttamynd

Deildarkeppninni lokið

Síðustu leikirnir í deildarkeppni NBA voru spilaðir í nótt, en á laugardag hefst úrslitakeppnin þar sem 16 sterkustu liðin leiða saman hesta sína. Það kom ekki í ljós fyrr en í gærkvöld hver endanleg uppröðun liðanna yrði í Austur- og Vesturdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Mikið eftir af þessu einvígi

Arsene Wenger var sáttur við sigurinn á Villarreal í Meistaradeildinni í kvöld, en sagði sína menn hafa verið of stressaða til að ná að bæta við öðru marki í leiknum - það hefði verið óskastaða fyrir síðari leikinn á Spáni í næstu viku.

Sport