Íþróttir

Fréttamynd

Messi og Mourinho skiptast á pillum

Ungstirnið Lionel Messi hjá Barcelona hlær að ásökunum Jose Mourinho um að hann hafi sýnt leikræna tilburði til að fiska Asier del Horno af velli með rautt spjald í leik liðana í gærkvöldi. Jose Mourinho er þó hvergi nærri hættur að láta í ljós skoðanir sínar á leiknum.

Sport
Fréttamynd

Ólæti stuðningsmanna fordæmd

Úrvalsdeildarlið Manchester United og Liverpool hafa gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau harma viðbrögð stuðningsmanna Liverpool sem veittust að sjúkrabifreiðinni sem flutti Alan Smith á sjúkrahús eftir að hann meiddist mjög alvarlega í leik liðanna.

Sport
Fréttamynd

Woods í stuði

Stigahæsti kylfingur heims, Tiger Woods, var heldur betur í stuði í gær á meistaramótinu í holukeppni sem fram fer í San Diego í Kaliforníu. Woods burstaði Stephen Ames með sögulegum mun þegar hann vann fyrstu níu holurnar og tryggði sér að lokum sigur eftir að jafnt varð á þeirri tíundu.

Sport
Fréttamynd

Útlitið dökkt hjá Sissoko

Mohamed Sissoko, leikmaður Liverpool sem fékk spark í augað í leiknum gegn Benfica í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöldið, gæti þurft að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla sinna. Læknar sem hafa hann til meðhöndlunar segja að öruggt sé að sjón hans á hægra auga sé sködduð, en geta ekki metið skaðann fyrr en eftir 2-3 daga.

Sport
Fréttamynd

Enn meiðist Dyer

Miðjumaðurinn Kieron Dyer hjá Newcastle á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, því hann er meiddur á læri og verður frá keppni í að minnsta kosti þrjár vikur. Dyer var nýstiginn upp úr öðrum meiðslum sem hann hafði barist við í hálft ár, en eftir aðeins einn leik er hann nú kominn á meiðslalistann á ný.

Sport
Fréttamynd

Við erum langt í frá hættir

Alex McLeish segir að sínir menn séu langt frá því að hafa sagt sitt síðasta orð í Meistaradeildinni eftir að hafa tvisvar komið til baka eftir að hafa lent undir í viðureign sinni gegn Villareal í gær og náð jafntefli 2-2 á heimavelli sínum.

Sport
Fréttamynd

Við getum komist áfram

Thomas Schaaf, þjálfari Werder Bremen hefur fulla trú á að hans menn geti slegið sterkt lið Juventus út úr 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar er þeir sýna sömu baráttugleði og þeir gerðu á heimavelli sínum í gær, þegar þeir skoruðu 2 mörk á lokamínútum leiksins og sneru vonlausri stöðu sér í hag.

Sport
Fréttamynd

Mark Chelsea hjálpaði okkur

Frank Rijkaard var skiljanlega ánægður með sína menn eftir sigurinn á Chelsea á Stamford Bridge í Meistaradeildinni í gær og sagði að markið sem Chelsea skoraði hefði hjálpað liði sínu á undarlegan hátt.

Sport
Fréttamynd

Auðun Helgason ekki með FH í sumar

Varnarjaxlinn Auðun Helgason hjá Íslandsmeisturum FH getur ekkert leikið með liðnu í sumar eftir að hann meiddist á hné á æfingu á dögunum og nú er ljóst að hann þarf í aðgerð vegna krossbandaslita. Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir Íslandsmeistarana, enda var Auðun einn allra besti leikmaður Íslandsmótisins í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Ólafur með 3 mörk í sigri

Landsliðsmaðurinn Ólafur Stefánsson skoraði 3 mörk þegar lið hans Ciudad Real bar sigurorð af Alcobendas í spænsku úrvalsdeildinni í gær, 31-28. Ciudad er eftir sem áður í þriðja sæti deildarinnar á eftir Barcelona og Portland San Antonio.

Sport
Fréttamynd

Róbert skoraði 7 fyrir Gummersbach

Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson voru atkvæðamiklir fyrir lið sitt Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið skellti Dusseldorf 32-22. Róbert skoraði 7 mörk og Guðjón gerði 5.

Sport
Fréttamynd

Marion skoraði 44 stig fyrir Phoenix

Framherjinn Shawn Marion hjá Phoenix setti persónulegt met í nótt þegar hann skoraði 44 stig í sigri liðsins á Boston 103-94. Marion var í miklu stuði í leiknum og auk þess að skora 44 stig, hitti hann úr 15 af 22 skotum sínum utan af velli, nýtti öll 10 vítaskot sín, hirti 15 fráköst, stal 4 boltum og varði 3 skot.

Sport
Fréttamynd

Óhress með Messi

Jose Mourinho var ekki par hrifinn af rauða spjaldinu sem leikmaður hans Asier del Horno fékk að líta í leiknum við Barcelona í Meistaradeildinni í gær og þótti Lionel Messi sýna full leikræna tilburði þegar atvikið átti sér stað.

Sport
Fréttamynd

Steve Francis til New York

Félagaskiptaglugginn í NBA deildinni lokast aðfararnótt föstudagsins og eins og búast mátti við hefur lið New York Knicks nú riðið á vaðið og fengið til sín enn eina skyttuna. Þetta er bakvörðurinn Steve Francis sem liðið fékk frá Orlando Magic og lét í staðinn þá Trevor Ariza og Penny Hardaway.

Sport
Fréttamynd

Newcastle og Charlton skildu jöfn

Newcastle og Charlton skildu jöfn 0-0 í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Bæði lið fengu fjölda færa til að skora, en allt kom fyrir ekki. Newcastle tókst því ekki að vinna fyrsta deildarleik sinn undir stjórn Glenn Roader.

Sport
Fréttamynd

Barcelona í vænlegri stöðu

Spænsku meistararnir í Barcelona eru komnir í draumastöðu í einvígi sínu við Chelsea eftir 2-1 sigur í fyrri leik liðanna á Stamford Bridge í kvöld. Það var Samuel Eto´o sem tryggði spænska liðinu sigurinn með marki á 80. mínútu, eftir að Thiago Motta og John Terry höfðu báðir skorað sjálfsmörk.

Sport
Fréttamynd

Markalaust hjá Newcastle og Charlton

Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en það er leikur Newcastle og Charlton á St. James´ Park og er staðan í hálfleik markalaus. Hermann Hreiðarsson er að vanda í vörninni hjá Charlton í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá Chelsea og Barcelona í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum í Meistaradeild Evrópu. Staðan er 0-0 í leik Chelsea og Barcelona á Stamford Bridge, en leikurinn hefur verið mjög fjörugur. Leikmenn Chelsea eru þó orðnir manni færri, því Asier del Horno var vikið af leikvelli á 37. mínútu eftir ljótt brot á Lionel Messi.

Sport
Fréttamynd

Eiður Smári í byrjunarliði Chelsea

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Barcelona í Meistaradeild Evrópu í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 19:30.

Sport
Fréttamynd

Portsmouth sleppur við ákæru

Úrvalsdeildarlið Portsmouth sleppur við refsingu vegna ráðningar Harry Redknapp frá Southampton á sínum tíma, en þetta var kunngert í dag. Talið var að forráðamenn Portsmouth hefðu rætt ólöglega við Redknapp á meðan hann stýrði Southampton en knattspyrnusambandið hefur látið málið niður falla.

Sport
Fréttamynd

Khan stefnir á titil á næsta ári

Breska hnefaleikaundrið Amir Khan hefur sett stefnuna á titil í hnefaleikum um þetta leiti á næsta ári, en hann keppir aðeins sinn sjötta bardaga sem atvinnumaður á laugardaginn þegar hann mætir Jackson Williams í London.

Sport
Fréttamynd

Barcelona hefur enn áhuga á Henry

Forráðamenn Barcelona neita því ekki að ef framherjinn Thierry Henry skrifar ekki undir samning við Arsenal fljótlega, muni félagið reyna að klófesta hann enda sé hann alltaf ofarlega á óskalistanum.

Sport
Fréttamynd

Fínt að vera vanmetinn

Alex McLeish, stjóri Glasgow Rangers, segist fagna því að mótherjar liðsins í Meistaradeildinni skuli vera sigurvissir fyrir leikinn í kvöld, en liðsmenn spænska liðsins Villareal fögnuðu ákaft þegar ljóst varð að þeir fengju skosku meistarana sem mótherja í 16-liða úrslitunum.

Sport
Fréttamynd

Sissoko alvarlega meiddur

Meiðsli Mohamed Sissoko hjá Liverpool, sem fékk spark í andlitið í leiknum gegn Benfica í gær eru nokkuð alvarleg eins og óttast var, en eftir læknisskoðun í dag kom í ljós að hann er með skaddaða augnhimnu. Ekki er enn vitað hvort hann nær sér að fullu, eða hvenær hann getur þá snúið aftur á knattspyrnuvöllinn.

Sport
Fréttamynd

Mourinho yrði sáttur við markalaust jafntefli

Jose Mourinho segir að hann yrði sáttur ef lið hans Chelsea gerði markalaust jafntefli við Barcelona á Stamford Bridge í kvöld, en bætir við að hann sjái ekki að Barcelona standi betur að vígi þó liðið spili seinni leikinn á heimavelli sínum.

Sport
Fréttamynd

Logi skoraði 3 í sigri Lemgo

Logi Geirsson skoraði 3 mörk fyrir lið sitt Lemgo í Þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær þegar liðið lagði Hamburg naumlega 29-28. Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað hjá Lemgo, en liðið er nú í fimmta sæti deildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Mikið sálfræðistríð á Stamford Bridge

Leikmenn Barcelona voru í dag reknir af æfingu sinni í Stamford Bridge, þar sem þeir mæta Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld, en leikmennirnir höfðu farið fram á að æfa lengur en þann klukkutíma sem þeim var fenginn til að æfa við þau lélegu vallarskilyrði sem þar eru nú eftir miklar rigningar í London.

Sport
Fréttamynd

Carter skoraði 45 stig

Vince Carter skoraði 45 stig, þar af 14 síðustu stig New Jersey Nets í sigri liðsins á Milwaukee í NBA körfuboltanum í nótt 89-85. Jason Kidd var einnig frábær í liði New Jersey og náði enn einni þrennunni með 12 stigum, 13 stoðsendingum og 12 fráköstum, en þetta var í 71. sæti sem Kidd nær þrennu á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Vissi að við mundum tapa

David Beckham var alls ekki sáttur við leik sinna manna í Real Madrid á heimavelli gegn Arsenal í Meistaradeildinni í gær, en Real tapaði leiknum 1-0 og á erfitt verkefni fyrir höndum á Englandi. "Þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknum, vissi ég að við mundum tapa," sagði Beckham. "Við börðumst ekki nógu vel og hefðum getað tapað stærra."

Sport
Fréttamynd

Miður sín vegna augnameiðsla Sissoko

Mohamed Sissoko er ennþá á spítala í Lisbon eftir að hafa fengið spark í augað í leik Liverpool og Benfica í Meistaradeildinni í gær. Beto, leikmaðurinn sem sparkaði í Sissoko, er miður sín vegna atvikisins.

Sport