Íþróttir

Fréttamynd

Dramatískur sigur Fram

Fram er komið í undanúrslit SS bikarsins í handbolta eftir dramatískan sigur á Fylki 36-35 eftir tvíframlengdan háspennuleik í Safamýrinni í kvöld. Sigfús Sigfússon skoraði sigurmark Framara þegar ein og hálf mínúta var eftir af framlengingunni.

Sport
Fréttamynd

Liðsskipan liggur fyrir

Nú hafa öll liðin í formúlu 1 kynnt hvaða ökumenn verða í bílstjórasætunum á næsta keppnistímabili, því í dag tilkynnti lið Red Bull að Christian Klien yrði ökumaður þeirra og nýja liðið, Scuderia Toro Rosso verður með ökumennina Vitantonio Liuzzi og Scott Speed.

Sport
Fréttamynd

Kelly Holmes leggur skóna á hilluna

Breska frjálsíþróttakonan Kelly Holmes, sem vann til gullverðlauna í 800 og 1500 metra hlaupi á síðustu Ólympíuleikum, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna með skyndilegum hætti. Holmes sagðist ekki hafa nauðsynlegan vilja til að halda áfram og ákvað því að hætta, auk þess sem hún varð fyrir áfalli í einkalífinu á dögunum þegar maður sem hún hafði nýlega kynnst lést skyndilega.

Sport
Fréttamynd

Chelsea - Liverpool í beinni á Sýn

Lokaumferðin í fjórum riðlum Meistaradeildarinnar fer fram í kvöld, þar sem leikur Chelsea og Liverpool er stóra viðureign kvöldsins. Leikur Schalke og AC Milan verður í beinni á Sýn Extra, en auk þess eru á dagskrá leikir PSV-Fenerbahce, Lyon-Rosenborg, Olimpiakos-Real Madrid, Betis-Anderlecht, Rangers-Inter og Artmedia-Porto. Bein útsending hefst kl. 19:30 á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Spilar með varaliði Reading í kvöld

Íslenski landsliðsmaðurinn Brynjar Björn Gunnarsson spilar með varaliði Reading í kvöld, en hann spilaði ekki leik í nóvember vegna nárameiðsla. Brynjar lék 45 mínútur með varaliðinu í síðustu viku og mun væntanleika spila eitthvað meira í kvöld.

Sport
Fréttamynd

England í hópi átta efstu

Í dag varð ljóst hvaða átta þjóðir yrðu í efsta sæti styrkleikalistans fyrir dráttinn í riðla á HM í Þýskalandi næsta sumar. Dregið verður í riðla á föstudaginn, en sá viðburður verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. England náði að hreppa sæti í efsta styrkleikaflokki og er forráðamönnum enska knattspyrnusambandsins létt fyrir vikið.

Sport
Fréttamynd

Auðveldur sigur San Antonio

Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio burstuðu Orlando á útivelli og unnu þar með fjórða leikinn í röð, en tap Orlando var hið fjórða í röð. Liðið var sem fyrr án Steve Francis, leikstjórnanda síns, og munar um minna.

Sport
Fréttamynd

Pressan eykst á Steve Bruce

Birmingham tapaði enn einum leiknum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið lá á heimavelli sínum fyrir West Ham 2-1 og komu öll mörkin í fyrri hálfleiknum. Stjórastóll Steve Bruce hjá Birmingham er fyrir vikið líklega sá heitasti í deildinni, því fallbarátta var ekki eitthvað sem forráðamenn félagsins sáu fyrir sér í sumar.

Sport
Fréttamynd

Solskjær sneri aftur í kvöld

Norski framherjinn Ole Gunnar Solskjær spilaði 45 mínútur með varaliði Manchester United í kvöld og mættu yfir 300 manns til að verða vitni að endurkomu hans, en Solskjær hefur verið mjög lengi frá vegna þrálátra hnémeiðsla. Honum va ákaft fagnað þegar hann hljóp með hliðarlínunni og hitaði upp og gaf spilamennska hans í kvöld ágæt fyrirheit á framhaldið.

Sport
Fréttamynd

West Ham yfir í hálfleik

West Ham er 2-1 yfir gegn Birmingham í hálfleik í mánudagsleiknum í ensku úrvalsdeildinni, en leikurinn fer fram á St. Andrews vellinum í Birmingham. Emile Heskey kom heimamönnum yfir eftir aðeins 12. mínútur, en Bobby Zamora jafnaði leikinn á þeirri 36. og Marlon Harewood kom þeim svo yfir rétt áður en flautað var til leikhlés.

Sport
Fréttamynd

Allt í lás

Forráðamenn Southampton hafa til þessa neitað öllum tilboðum Portsmouth um að fá knattspyrnustjórann Harry Redknapp til liðs við sig og nú gæti svo farið að allir stæðu uppi með báðar hendur tómar.

Sport
Fréttamynd

Tæknibúnaður verður ekki notaður á HM

Alþjóða knattspyrnusambandið tilkynnti í dag að tæknibúnaður til að skera úr um hvort boltinn fer yfir marklínu, sem nota á til að útrýma vafaatriðum eins og marki Liverpool gegn Chelsea í Meistaradeildinni í vor, verði ekki tekinn í notkun fyrir HM í Þýskalandi eins og til stóð.

Sport
Fréttamynd

Birmingham og West Ham mætast í kvöld

Einn leikur verður á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Birmingham tekur á móti West Ham á heimavelli sínum, en Birmingham hefur verið í miklum vandræðum í vetur og er í bullandi fallbaráttu. Gengi nýliða West Ham hefur verið öllu betra og liðið er í 9. sæti deildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Albertini leggur skóna á hilluna

Miðjumaðurinn ítalski Demetrio Albertini hefur tilkynnt að hann sé hættur að leika sem atvinnumaður eftir langan og glæsilegan feril og ætlar að einbeita sér að því að þjálfa á næstunni. Albertini á að baki glæstan feril með ítalska landsliðinu og AC Milan, þar sem hann gerði garðinn frægan á síðasta áratug.

Sport
Fréttamynd

Gazza hættur að þjálfa Kettering

Hinn skrautlegi Paul Gascoigne er hættur störfum sem knattspyrnustjóri utandeildarliðsins Kettering, eftir aðeins rúman mánuð í starfi. Gazza hefur átt í deildum við eiganda félagsins og segist ekki ætla að hætta afskiptum af félaginu. "Ég ætla mér að eignast þetta félag og ég mun ekki gefast upp," sagði Gazza, sem var einn þeirra sem stóðu á bak við yfirtöku á félaginu fyrir nokkru.

Sport
Fréttamynd

Tap hjá Jakob og Loga

Íslensku leikmennirnir í þýska körfuboltanum áttu ekki gott kvöld í gær þegar lið þeirra lágu í valnum. Leverkusen, lið Jakobs Sigurðarsonar, tapaði fyrir Trier 97-95 í úrvalsdeildinni og Logi Gunnarsson og félagar í Bayreuth máttu þola stórtap 97-67 fyrir Ulm í 2. deildinni. Jakob skoraði 9 stig fyrir sitt lið, en Logi var með 11 stig.

Sport
Fréttamynd

Danny Mills fótbrotinn

Varnarjaxlinn Danny Mills hjá Manchester City getur ekki leikið með liðinu næstu sex vikurnar eða svo, eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í fætinum. Raunar hefur hann spilað með þessi meiðsli í næstum því einn mánuð, rétt eins og Ashley Cole gerði á sínum tíma hjá Arsenal. Útilokað þykir að mills snúi aftur til keppni fyrr en eftir áramót.

Sport
Fréttamynd

Sjötti sigur Phoenix í röð

Endurkoma Joe Johnson til Phoenix með nýja liðinu sínu Atlanta varð ekki ferð til fjár því eins og búast mátti við vann Phoenix áreynslulítinn sigur 112-94. Phoenix leiddi lengst af með 30 stiga mun, en gat leyft varamönnunum að spreyta sig í lokaleikhlutanum, þar sem Atlanta náði að klóra aðeins í bakkann og láta lokatölurnar líta betur út á pappírunum.

Sport
Fréttamynd

Páll farinn frá Þrótti

Páll Einarsson hefur komist að samkomulagið við stjórn Þróttar að segja skilið við félagið og hefur verið leystur undan samningi sínum við félagið. Deilur komu upp milli hans og Atla Eðvaldssonar þjálfara og ljóst að annar þeirra þyrfti að víkja. Páll er að eigin sögn sáttur við að málið skuli loksins vera leyst, en kveður félag sitt með söknuði.

Sport
Fréttamynd

Benitez tekur ekki við Real Madrid

Eins og búast mátti við hafa nokkur af stærri nöfnunum úr röðum knattspyrnustjóra í ensku úrvalsdeildinni nú verið orðuð við lausa stöðu stjóra Real Madrid, eftir að Wanderley Luxemburgo var látinn taka pokann sinn í gær. Einn þeirra er Rafa Benitez, stjóri Liverpool, en hann þvertekur fyrir að snúa til heimalandins.

Sport
Fréttamynd

Raikkonen ökumaður ársins

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen hefur verið útnefndur besti atvinnuökumaður heimsins á árinu 2005 af tímaritinu Autosport. Raikkonen hlýtur heiður þennan þó hann hafi orðið í öðru sæti í keppni ökumanna í formúlu 1 á árinu, en hann þótti sýna góðan akstur þó bíll hans væri ekki alltaf nógu öruggur.

Sport
Fréttamynd

Fyrsta tap Njarðvíkinga

Njarðvíkingar töpuðu fyrsta leik sínum í úrvalsdeild karla í vetur þegar liðið lá á heimavelli fyrir grönnum sínum úr Grindavík 105-106. Keflvíkingar unnu góðan sigur á Fjölni í Grafarvogi 97-93, ÍR lagði Hauka 77-75, Hamar/Selfoss lagði Þór 89-88, KR sigraði Snæfell 74-70 og Skallagrímur burstaði Hött 110-77.

Sport
Fréttamynd

Luxemburgo rekinn frá Real

Brasilíski knattspyrnustjórinn Wanderley Luxemburgo hefur verið rekinn úr starfi sínu hjá spænska stórliðinu Real Madrid. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar félagsins nú undir kvöldið. Gengi liðsins hefur verið langt frá væntingum undanfarið og því fékk Luxemburgo að taka pokann sinn eftir aðeins ellefu mánuði í starfi.

Sport
Fréttamynd

Haukar á toppinn með sigri í Grindavík

Haukastúlkur unnu góðan sigur á Grindavík í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í dag 83-72. Mikill hasar var í leiknum og var þjálfara Hauka vísað úr húsi eftir að hafa hnakkrifist við dómara leiksins.

Sport
Fréttamynd

Manchester City valtaði yfir Charlton

Einn leikur var á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag. Manchester City valtaði yfir lánlaust lið Charlton á útivelli 5-2. Jay Bothroyd og Darren Bent skoruðu mörk Charlton, en Andy Cole skoraði tvö fyrir City og lagði annað upp, og þeir Trevor Sinclair, Darius Vassell og Joey Barton skoruðu eitt mark hver fyrir City, sem hafði mikla yfirburði í leiknum og varnarleikur Charlton var skelfilegur.

Sport
Fréttamynd

Magdeburg lá fyrir Barcelona

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg biðu lægri hlut fyrir spænska stórliðinu Barcelona á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag. Lokatölur urðu 26-24 fyrir spænska liðið, sem er með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn. Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason skoruðu báðir þrjú mörk fyrir Magdeburg.

Sport
Fréttamynd

Keflavík og Breiðablik meistarar

Keflvíkingar tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í innanhússknattspyrnu með sigri á KR í úrslitaleik 1-0. Breiðablik varð meistari í kvennaflokki eftir æsispennandi framlengingu og vítakeppni, þar sem staðan var 1-1 að lokinni framlengingu.

Sport
Fréttamynd

Arsenal hefur titilvörnina gegn Cardiff

Nú er búið að draga í þriðju umferð enska bikarsins, FA Cup. Bikarmeistarar Arsenal mæta Cardiff á heimavelli, Chelsea mætir Huddersfield og Manchester United mætir annað hvort Burton eða Burscough, sem eru utandeildarlið.

Sport
Fréttamynd

Elber látinn fara frá Gladbach?

Brasilíski framherjinn Giovane Elber verður látinn fara frá þýska úrvalsdeildarliðinu Borussia Mönchengladbach um helgina ef marka má fréttir úr þýskum fjölmiðlum, en hann ku hafa verið til eintómra vandræða síðan hann kom á frjálsri sölu frá franska liðinu Lyon í janúar. Elber hefur lítið fengið að spreyta sig hjá Gladbach í vetur, en hann er markahæsti útlendingur í sögu úrvalsdeildarinnar með 133 mörk.

Sport
Fréttamynd

Einar skoraði 10 fyrir Grosswallstadt

Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi. Einar Hólmgeirsson fór á kostum í liði Grosswallstadt og skoraði 10 mörk í sigri liðsins á Wetzlar 30-25, en Róbert Sighvatsson skoraði eitt mark fyrir Wetzlar. Þá var Snorri Steinn Guðjónsson ekki síðri hjá Minden þegar hann skoraði 9 mörk í tapi fyrir Wilhelmshaven 29-25, en Gylfi Gylfason skoraði 5 mörk fyrir Wilhelmshaven.

Sport