Íþróttir

Fréttamynd

Gamli boltinn notaður á ný í janúar

David Stern, yfirmaður NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú viðurkennt ósigur sinn og staðfesti í gær að gamli leðurboltinn verði tekinn fram að ný þann 1. janúar næstkomandi eftir að allar helstu stjörnur deildarinnar lýstu yfir óánægju sinni með nýja gerviefnaboltann.

Körfubolti
Fréttamynd

Cech vonast til að hefja æfingar í janúar

Tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea segist vonast til að geta hafið æfingar á fullu á ný í janúar eftir að hafa höfuðkúpubrotnað í leik gegn Reading um miðjan október. Sár hans eru enn ekki gróin að fullu, en hann segir líðan sína betri með hverjum deginum.

Enski boltinn
Fréttamynd

Chambers hættur?

Breski spretthlauparinn Dwain Chambers mun ekki keppa innanhúss á næsta ári og svo gæti farið að hann væri alfarið hættur í frjálsum íþróttum. Þetta segir umboðsmaður kappans, sem sneri aftur til æfinga í sumar eftir langt keppnisbann vegna steranotkunar. Chambers á í fjárhagserfiðleikum, því hann þurfti að skila öllu verðlaunafé sem hann vann sér inn á meðan hann þótti hafa neitt ólöglegra lyfja.

Sport
Fréttamynd

Dowie í viðræðum við Hull City

Ian Dowie þykir nú líklegastur til að taka við 1. deildarliðinu Hull af Phil Parkinson eftir að hann átti viðræður við félagið í dag. Dowie hefur verið atvinnulaus síðan hann varð fyrsti stjórinn sem látinn var taka pokann sinn í ensku úrvalsdeildinni í haust.

Enski boltinn
Fréttamynd

Bann Henchoz stendur

Aganefnd enska knattspyrnusambandsins vísaði í dag frá áfrýjun Blackburn á rauða spjaldið sem varnarmaðurinn Stephane Henchoz fékk að líta í leik gegn Newcastle á laugardaginn. Henchoz fer því í eins leiks bann og missir af leik gegn Reading umnæstu helgi.

Enski boltinn
Fréttamynd

Spánarslagur í 8-liða úrslitunum

Í morgun var dregið í 8-liða úrslit í Evrópukeppnunum í handbolta, en þar eru nokkrir íslenskir leikmenn í eldlínunni. Núverandi Evrópumeistararnir í Ciudad Real, liði Ólafs Stefánssonar, mæta löndum sínum í Portland San Antonio í þessari umferð.

Handbolti
Fréttamynd

Curbishley sterklega orðaður við West Ham

Knattspyrnustjórinn Alan Curbishley hefur viðurkennt að hann hafi mikinn áhuga á að taka við liði West Ham, en hann staðfesti í dag að forráðamenn félagsins hefðu verið í sambandi við sig. Curbishley spilaði með West Ham sem leikmaður á áttunda áratugnum og segir að það yrði "mikill heiður" fyrir sig ef honum yrði boðið starfið.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ellefu sigrar í röð hjá Phoenix

Phoenix vann í nótt ellefta leik sinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Orlando á útivelli 103-89. Amare Stoudemire skoraði 30 stig fyrir Phoenix í leiknum. Þá vann Utah auðveldan sigur á Dallas 101-79 og færði Jerry Sloan þjálfara þúsundasta sigurleikinn á ferlinum. Carlos Boozer skoraði 31 stig og hirti 11 fráköst fyrir Utah, en Dirk Nowitzki skoraði 26 stig og hirti 10 fráköst fyrir Dallas.

Körfubolti
Fréttamynd

Orlando - Phoenix í beinni á miðnætti

Það má reikna með fyrsta flokks skemmtun á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld þar sem leikur kvöldsins verður viðureign Orlando Magic og Phoenix Suns. Leikurinn hefst á miðnætti og fróðlegt verður að sjá hvernig heitasta liðinu í NBA í dag, Phoenix, vegnar gegn ungu og skemmtilegu liði Orlando.

Körfubolti
Fréttamynd

ÍS lagði Breiðablik

Einn leik fór fram í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Stúdínur unnu sigur á botnliði Breiðabliks 74-62 í Kennaraháskólanum. Þórunn Bjarnadóttir skoraði 16 stig fyrir ÍS, Hafdís Helgadóttir 15 stig og hirti 10 fráköst og Anabel Perdomo skoraði 13 stig og gaf 14 stoðsendingar. Tiara Harris skoraði 23 stig fyrir Blika, sem eru á botni deildarinnar án stiga en Stúdínur eru í 4. sæti með 8 stig.

Körfubolti
Fréttamynd

Jafnt hjá Sheffield United og Aston Villa

Nýliðar Sheffield United og Aston Villa gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik á Bramall Lane í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn var mjög kaflaskiptur þar sem fyrri hálfleikurinn var eign gestanna en heimamenn í United voru sterkari aðilinn í þeim síðari.

Enski boltinn
Fréttamynd

Marwijk hættir hjá Dortmund

Þýska knattspyrnufélagið Dortmund hefur tilkynnt að þjálfari liðsins Bert van Marwijk muni láta af störfum í lok leiktíðar í vor en þetta er aðeins eitt atvik í röð furðufrétta frá Dortmund á undanförnum mánuðum. Þetta stóra félag berst nú í bökkum fjárhagslega og er í alla staði skugginn af sjálfu sér.

Fótbolti
Fréttamynd

Þjóðverjar sigruðu á heimsmótinu

Þjóðverjar fögnuðu sigri á heimsmótinu í golfi sem lauk á Barbados eyjum í gærkvöldi eftir spennandi lokasprett gegn Skotum en bráðabana þurfti til að skera úr um úrslit.

Golf
Fréttamynd

America áfram í HM félagsliða

America frá Mexíkó tryggði sér í dag ferseðilinn í undanúrslit á heimsmeistaramóti félagsliða í knattspyrnu þar sem liðið mætir Evrópumeisturum Barcelona.

Fótbolti
Fréttamynd

Joe Cole úr leik út árið

Enski landsliðsmaðurinn Joe Cole verður ekki með Chelsea í jólatörninni í ensku úrvalsdeildinni eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í öðrum fætinum. Cole hefur aðeins verið þrisvar í byrjunarliði Chelsea í vetur vegna meiðsla og búist er við að hann verði frá æfingum í að minnsta kosti þrjár vikur vegna þessa.

Enski boltinn
Fréttamynd

Pardew rekinn frá West Ham

Alan Pardew var í dag sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri West Ham eftir slakt gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu, sem er nú í eigu Íslendinga, að það sé gert með hagsmuni félagins í huga en það er Kevin Keen, þjálfari liðsins, tekur við því tímabundið.

Enski boltinn
Fréttamynd

Maccarone væntanlega á förum frá Boro

Ítalski sóknarmaðurinn Massimo Maccarone segist fastlega reikna með því að fara frá Middlesbrough fljótlega og þá væntanlega til heimalandsins. Hann segist hafa átt fund með Gareth Southgate knattspyrnustjóra og ljóst sé að engin not séu fyrir hann hjá úrvalsdeildarliðinu.

Enski boltinn
Fréttamynd

16-liða úrslitin klárast í kvöld

Í kvöld fara fram tveir síðustu leikirnir í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta. Fjölnir tekur þá á móti Keflavík í Grafarvogi og ÍR fær Stjörnuna í heimsókn. Einn leikur verður svo á dagskrá í IE deild kvenna, þar sem ÍS mætir Breiðablik í Kennaraháskólanum. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

Körfubolti
Fréttamynd

Federer og Mauresmo heiðruð

Roger Federer og Amelie Mauresmo hafa verið kjörin tennisleikarar ársins og verðugustu sendiherrar íþróttarinnar af samtökum íþróttafréttamanna í greininni. Þetta er þriðja árið í röð sem Federer hlýtur þessa nafnbót en í fyrsta skipti sem Mauresmo hlýtur hana.

Sport
Fréttamynd

Davies ætlar ekki að fara frá Bolton

Kevin Davies hefur gefið það út að hann vilji alls ekki fara frá enska úrvalsdeildarfélaginu Bolton, en samningur hans við félagið rennur út í sumar og því má hann fræðilega ræða við önnur félög eftir áramótin. Erfiðlega hefur gengið í samningaviðræðum milli hans og Bolton, en hinn 29 ára gamli leikmaður segist ekki geta hugsað sér að fara frá félaginu.

Enski boltinn
Fréttamynd

Árásarmaður Wallwork ákærður

Tvítugur maður frá Manchester hefur nú verið ákærður fyrir manndrápstilraun eftir að hann stakk knattspyrnumanninn Ronnie Wallwork ítrekað í maga, bak og hendur á vínveitingahúsi í borginni þann 30. nóvember. Wallwork er nýútskrifaður af sjúkrahúsi eftir árásina.

Enski boltinn
Fréttamynd

Sonko framlengir við Reading

Miðvörðurinn Ibrahima Sonko hjá Reading hefur nú fetað í fótspor félaga síns Ívars Ingimarssonar í vörninni og framlengdi í dag samning sinn við félagið til ársins 2010. Sonko er 25 ára og hefur nú gert nýjan og betri samning en þann gamla, sem renna átti út árið 2008. Hann hefur spilað 111 leiki fyrir félagið síðan hann gekk í raðir þess frá Brentford árið 2004.

Enski boltinn
Fréttamynd

Glazer-feðgar ætla að opna budduna

Glazer-feðgarnir amerísku sem eiga Manchester United, hafa gefið grænt ljós á að opna budduna í janúar til að styrkja leikmannahóp liðsins - að því gefnu að góðir menn finnist. Hópur United þykir nokkuð þunnur og því er ljóst að félagið verður helst að verða sér út um liðsstyrk í janúar fyrir lokaátökin.

Enski boltinn
Fréttamynd

Blackburn áfrýjar spjaldi Henchoz

Úrvalsdeildarlið Blackburn hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem Stephane Henchoz fékk að líta í 3-1 tapi liðsins gegn Newcastle á laugardag. Henchoz fékk rautt hjá Dermot Gallagher fyrir brot á Obafemi Martins, en Blackburn menn vilja meina að það hafi verið glórulaus dómur. Henchoz fær að vita niðurstöðu málsins á morgun.

Enski boltinn
Fréttamynd

LA Lakers lagði San Antonio

Los Angeles Lakers vann í nótt góðan sigur á San Antonio Spurs 106-99 á heimavelli sínum Staples Center í Los Angeles, en lið Spurs hafði unnið fjóra leiki í röð. Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers og Lamar Odom skoraði 18 stig, hirti 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Manu Ginobili skoraði 23 stig af bekknum fyrir Spurs.

Körfubolti
Fréttamynd

Lazio vann grannaslaginn

Lazio gerði grönnum sínum og erkifjendum í Roma litla greiða í kvöld þegar liðið vann 3-0 sigur í grannaslag liðanna í Rómarborg. Tap Roma þýðir að liðið er nú sjö stigum á eftir toppliði Inter Milan, en Lazio skellti sér í fimmta sætið með þessum glæsilega sigri.

Fótbolti
Fréttamynd

Arsenal hefur brugðist Thierry Henry

Ian Wright, fyrrum leikmaður Arsenal, segir félagið hafa brugðist Thierry Henry eftir að hann skrifaði undir nýjan samning við félagið. Henry hefur ekki leikið með Arsenal í undanförnum leikjum og hefur fjarvera hans verið skrifuð á meiðsli, en heyrst hefur að fjarvera hans sé vegna ósættis hans við Arsene Wenger og forráðamenn félagsins.

Enski boltinn
Fréttamynd

KR lagði Tindastól

Nokkrir leikir fóru fram í bikarkeppninni í körfubolta í dag og í kvöld og þá var einn leikur á dagskrá í IE deild kvenna. KR-ingar notuðu góðan endasprett til að leggja Tindastól að velli fyrir norðan 94-86 þar sem Jeremiah Sola skoraði 33 stig og þá vann Hamar/Selfoss góðan sigur á grönnum sínum í Þór frá Þorlákshöfn 78-64.

Körfubolti
Fréttamynd

Schalke upp að hlið Bremen

Schalke komst í dag upp að hlið Werder Bremen á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Dortmund 3-1. Kevin Kuranyi, Peter Lovenkrands og Christian Pander skoruðu mörk Schalke sem hefur 33 stig á toppnum líkt og Bremen. Ein umferð er nú eftir af þýsku úrvalsdeildinni fyrir vetrarhlé.

Fótbolti
Fréttamynd

Arsenal hafði engan áhuga á að vinna leikinn

Jose Mourinho hrósaði sínum mönnum í Chelsea fyrir að ná að jafna metin gegn Arsenal eftir að hans menn höfðu lent undir á heimavelli í dag, en sagðist mjög hissa á því að Arsenal hefði mætt í leikinn án nokkurs áhuga á að reyna að vinna hann.

Enski boltinn