Erlendar
201 202 203 204 205 206 207 208 209 … 264 ›
Lykilmaður Portúgala missir af HM Varnarmaðurinn Jorge Andrade missir líklega af Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í sumar vegna meiðsla sem hann hlaut í leik Deportivo La Coruna gegn Barcelona á laugardaginn. Andrade reif liðband í hnénu en þetta er mikið áfall fyrir hann sem og Portúgal en hann er lykilmaður hjá landsliðinu. Andrade fór í aðgerð í gær en skoðun leiddi í ljós að meiðslin eru mun alvarlegri en talið var í fyrstu. Sport 6.3.2006 00:30
Sevilla í 6. sætið Sevilla komst í dag í 6. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 2-1 sigri á Athletic Bilbao. Freddie Kanoute, fyrrverandi leikmaður West Ham skoraði sigurmark Sevilla en vandræði Bilbao halda áfram og er liðið í fallsæti eða þriðja neðsta sæti. Sport 5.3.2006 20:58
Mönchengladbach upp um 3 sæti í það sjötta Borussia Mönchengladbach lyfti sér upp um þrjú sæti og í það sjötta með 2-0 sigri á Arminia Bielefeld í þýsku Bundesligunni í fótbolta í dag en tveir leikir fóru þá fram. Þá skildu Eintracht Frankfurt og Wolfsburg jöfn, 1-1. Bayern Munchen er efst í deildinni þrátt fyrir ósigur á heimavelli í gær fyrir Hamburg, eru með 58 stig en Werder Bremen, sem gerði 1-1 jafntefli við Bayer Leverkusen er í 2. sæti með 50 stig. Mönchengladbach er með 33 stig í 6. sætinu. Sport 5.3.2006 20:40
Creteil í undanúrslit þrátt fyrir 8 marka tap Franska liðið Creteil komst í kvöld í undanúrslit Evrópukeppni félagsliða í handbolta þrátt fyrir 8 marka tap fyrir pólska liðinu Kielce, 26-34. Creteil vann reyndar fyrri leikinn með 14 marka mun, 35-21 en athygli vekur að pólska liðið skoraði 23 mörk í seinni hálfleik í viðureign liðanna í kvöld. Staðan í hálfleik var 12-11 fyrir Creteil. Sport 5.3.2006 19:59
Öruggur sigur Sebastien Loeb Franski ökuþórinn Sebastien Loeb sem ekur á Citroen vann öruggan sigur í mexíkóska rallinu sem lauk í kvöld. Loeb varð 48,9 sekúndum á undan næsta nanni, Norðmanninum Petter Solberg, fyrrverandi heimsmeistara á Subaru en Frakkinn stakk af á 12. sérleið og gaf ekkert eftir þaðan af. Sport 5.3.2006 19:08
Tottenham í 5 stiga forskot á Arsenal Tottenham gefur ekkert eftir í baráttunni um Meistaradeildarsæti en Robbie Keane var hetja liðsins sem lagði Blackburn, 3-2 í spennando leik á White Hart Lane nú síðdegis. Keane skoraði tvívegis í fyrri hálfleik en það var hins vegar egypski útlaginn Ahmed Mido sem tryggði Tottenham stigin þrjú þegar hann skoraði sigurmarkið á 70. mínútu. Sport 5.3.2006 17:56
Gengur vel hjá Arnari og félögum í Twente Arnar Þór Viðarsson lék allan leikinn með Twente sem lagði Heracles Almelo, 2-0 í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Twente er á fljúgandi ferð í deildinni og hefur nú ekki tapað í 6 leikjum í röð. Twente færist upp tölfuna þessa dagana, er nú búið að fjarlægjast fallsvæðið og er í 9. sæti deildarinnar með 38 stig, fjórtán stigum frá fallsæti í þessari 18 liða deild. Sport 5.3.2006 17:41
Fiorentina upp fyrir Roma Fiorentina endurheimti 4. sætið í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið vann 2-1 sigur á Siena. Hinn ungi sóknarmaður Giampaolo Pazzini skoraði sigurmarkið í viðbótartíma og lyfti liði sínu upp fyrir Roma sem á leik til góða gegn Inter síðar í kvöld. Sport 5.3.2006 17:17
Sissoko á góðum batavegi Mohamed Sissoko, miðvallarleikmaður Liverpool segist ætla að leika aftur með liðinu áður en þetta tímabil er á enda. Sissoko meiddist alvarlega á auga í Meistaradeildarleiknum gegn Benfica í lok febrúar eftir að Beto, leikmaður portúgalska liðsins, slysaðist til að sparka í auga leikmannsins. Nú hefur komið í ljós að meiðsli Sissoko eru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu. Sport 5.3.2006 16:29
Klinsmann kallaður á teppið í þinginu Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu gæti þurft að mæta inn á teppið í þýska þinginu á næstu dögum og ekki af góðu. Þingmenn þar í landi eru órólegir í kjölfar þess að þýska landsliðið var tekið í bakaríið af Ítölum í vináttulansleik í vikunni þar sem úrslitin urðu 4-1 fyrir smjörgreiddu súkkulaðistrákana. Sport 5.3.2006 16:08
Enn tapar Sunderland Sunderland er á hraðri niðurleið úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið var rétt í þessu að tapa fyrir Man City, 2-1. Georgios Samaras skoraði tvö mörk á 86 sekúndum snemma leiks fyrir heimamenn í Man City áður en Kevin Kyle minnkaði muninn fyrir Sunderland skömmu síðar. Sunderland lék manni færri síðustu mínúturnar þegar Gary Breen fékk að líta sitt annað gula spjald. Sport 5.3.2006 15:34
Lemgo í undanúrslitin Ásgeir Örn Hallgrímsson og Logi Geirsson skoruðu 4 mörk hvor þegar lið þeirra Lemgo komst í undanúrslit Evrópukeppni félagsliða í handbolta í dag. Lemgo lagði rússneska liðið Dynamo Astrakhan á útivelli 33-31 en þetta var síðari leikur liðanna. Sport 5.3.2006 15:03
Logi með 43 stig fyrir Bayreuth Logi Gunnarsson átti stórleik með Bayreuth í þýska körfuboltanum í gær og skoraði 43 stig þegar liðið vann stórsigur á Tröster Breitengüßbach 111-105 í framlengdum leik. Sport 5.3.2006 14:53
Skjern úr leik Skjern, lið Arons Kristjánssonar þjálfara féll í morgun úr Evrópukeppni bikarhafa í handbolta þegar liðið tapaði síðari leik sínum á útivelli fyrir rúmenska liðinu Constanta, 35-28. Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk fyrir Skjern sem tapaði líka fyrri leiknum, 35-31. Sport 5.3.2006 14:43
Tiger með 2 högga forystu fyrir lokahringinn Tiger Woods hefur tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á Ford mótinu í golfi á Doral-vellinum á Miami í Flórída. Sýnt verður beint frá keppninni á Sýn í kvöld. Fjórir kylfingar voru jafnir fyrir keppni gærdagsins, Tiger Woods, Phil Mickelson, Scott Verplank og Camilo Villegas. Tiger Woods lék best þeirra í gær, lék á 4 undir pari og er samtals á 17 undir pari. Sport 5.3.2006 14:34
Ótrúlegur sigur Miami á Atlanta Kobe Bryant skoraði 40 stig fyrir Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, þegar liðið lagði Detroit, 105-94. Miami Heat vann sinn áttunda leik í röð með naumum sigri á Atlanta Hawks, 95-93. Miami átti frábæran endasprett og náði að tryggja sér sigurinn á ótrúlegan hátt með 1.8 sekúndu eftir á klukkunni, eftir að hafa verið 17 stigum undir. Sport 5.3.2006 13:41
Milan og Juve unnu sína leiki Juventus vann Sampdoria 1-0 í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Pavel Nedved skoraði eina mark leiksins á 69. mínútu. AC Milan vann Empoli 3-0 þar sem Filippo Inzahgi skoraði tvö markanna og Andrei Schevshenko eitt. Juventus er á toppi deildarinnar og hefur 10 stiga forystu á AC Milan. Í kvöld mætast Roma og Inter en leikurinn verður sýndur á Sýn extra klukkan 19:30. Sport 5.3.2006 14:01
Barcelona heldur 10 stiga forystu á Spáni Barcelona og Real Madríd unnu bæði mótherja sína í spænsku knattspyrnunni í gærkvöldi. Barcelona lagði Deportivo La Coruña, 3-2 seint í gærkvöldi eftir að Real Madrid hafði lagt granna sína í Atletico, 2-1. Samuel Etoo skoraði sigurmark Börsunga á 61. mínútu. Sport 5.3.2006 14:08
Real Madrid vann nágrannaslaginn Real Madrid vann 2-1 sigur á Atletico Madrid í nágrannaslagnum í spænska fótboltanum í kvöld. Liðið er nú í 2. sæti deildarinnar, átta stigum á eftir toppliði Barcelona sem mætir Deportivo kl 21 í kvöld. Antonio Cassano og Julio Baptista skoruðu mörk Real Madrid. Tveimur öðrum leikjum er lokið í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Cadiz lagði Espanyol 2-0 og Villareal vann 3-2 sigur á Alaves. Sport 4.3.2006 21:05
Andorra mun vígja Wembley Það verður knattspyrnulandslið smáríkisins Andorra sem mun leika fyrsta landsleikinn í fótbolta við England hinum nýja Wmbley, þjóðarleikvangi Englendinga sem verið er að leggja lokahönd á. Andorra er í E-riðli með Englendingum í undankeppni EM2008 og mætast þjóðirnar þann 2. september n.k. á Wembley. Sport 4.3.2006 20:39
Óli Stef með 4 mörk og Ciudad í undanúrslitin Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real tryggðu sér í kvöld farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta þegar þeir lögðu Celja frá Slóveníu í 8 liða úrslitum, 33-28 á útivelli. Þetta var síðari viðureign liðanna í 8 liða úrslitunum en Ciudad vann fyrri leikinn með 7 marka mun, 34-27. Ólafur skoraði 4 mörk fyrir Ciudad í kvöld. Sport 4.3.2006 20:54
Fyrsta tap Federer í 56 leikjum 19 ára Spánverji, Rafael Nadal afrekaði það í dag að leggja að velli stigahæsta tenniskappa í heimi, hinn svissneska Roger Federer. Með sigrinum tryggði Spánverjinn sér sigur á opna meistaramótinu í Dubai en hann lagði Federer í tveimur settum gegn einu, 2-6, 6-4 og 6-4. Sport 4.3.2006 20:14
Liverpool og Charlton skildu jöfn Liverpool og Charlton gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta nú í kvöld en leikið var á Anfield. Hermann Hreiðarsson lék að venju allan leikinn með liði Charlton. Liverpool skaust upp í 2. sæti deildarinnar með stiginu sem fékkst fyrir jafnteflið í kvöld og er nú með 45 stig, einu stigi ofar en Man Utd sem reyndar á tvo leiki til góða. Charlton er í 13. sæti með 36 stig. Sport 4.3.2006 19:20
Guðjón Valur með 13 mörk fyrir Gummersbach Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum og skoraði 13 mörk fyrir Gummersbach í dag þegar liðið tryggði sig í undanúrslit Evrópukeppni félagsliða (EHF keppninni) í handbolta þrátt fyrir tap gegn spænska liðinu Bidasoa, 30-26. Róbert Gunnarsson lék einnig með Gummersbach í dag og skoraði tvö mörk. Sport 4.3.2006 18:25
Loks tapaði Bayern Munchen á heimavelli Bayern Munchen tapaði sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu í þýska Bundesligunni í fótbolta í dag þegar Hamburger SV kom í heimsókn til Munchen og vann 1-2 útisigur. Hollendingurinn Nigel de Jong skoraði sigurmarkið á 89. mínútu eftir að Memeth Scholl hafði jafnað metin fyrir heimamenn, 6 mínútum áður. Sport 4.3.2006 19:44
Jóhannes Karl skoraði tvö fyrir Leicester Jóhannes Karl Guðjónsson var hetja sinna manna í Leicester og skoraði tvö mörk þegar liðið sigraði Hull, 3-2 í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Mörk Jóa Kalla komu bæði í seinni hálfleik en hið síðara reyndist sigurmarkið og kom 7 mínútum fyrir leikslok. Jóhannes lék allan leikinn í liði Leicester. Sport 4.3.2006 17:37
Portland sló Evrópumeistarana út Spænska liðið Portland San Antonio var nú síðdegis að slá út Evrópumeistara Barcelona í Meistaradeildinni í handbolta og tryggja sig þannig í undanúrslit keppninnar þrátt fyrir tap á Spáni, 26-23. Portland vann fyrri leikinn 25-21 og því samanlagt með einu marki. Sport 4.3.2006 17:28
Fulham steinlá fyrir Arsenal Arsenal beit heldur betur frá sér gegn útivallargrýlunni í dag þegar liðið gjörsamlega valtaði yfir Fulham 0-4 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Heiðar Helguson var í byrjunarliði Fulham en var skipt út af á 61. mínútu fyrir Collins John. Sjö leikir eru á dagskrá deildarinnar í dag og eru úrslit þeirra sem hér segir en Liverpool mætir Charlton kl. 17:15; Sport 4.3.2006 17:00
Tveir stórleikir í beinni frá Spáni í kvöld 26. umferðin í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefst í kvöld. Klukkan 19 mætast grannaliðin í Madríd, Real og Atletico og verður sýndur beint á Sýn. Strax á eftir verður skipt yfir til Barcelona þar sem Barcelona mætir Deportivo La Coruna. Sport 4.3.2006 16:37
Flensburg í undanúrslitin þrátt fyrir tap Þýska liðið Flensburg varð í dag fyrst liða til að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta þrátt fyrir tap gegn löndum sínum í Kiel, 31:34, í hörkuspennandi leik. Flensburg vann fyrri viðureign liðanna, 28-32 þannig að Kiel hefði þurft að skora einu marki meira í dag til að komast áfram. Staðan í hálfleik var 16-17 fyrir Kiel. Það voru íslensku dómararnir Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson sem dæmdu þennan leik. Sport 4.3.2006 15:52
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent