Erlendar
240 241 242 243 244 245 246 247 248 … 264 ›
Reglur Naismith til sölu Barnabörn Dr. James Naismith, mannsins sem fann upp körfuknattleik árið 1891, hafa nú ákveðið að selja upprunalegu reglurnar sem afi þeirra skrifaði fyrir leikinn á sínum tíma. Þær fást svo sannarlega ekki gefins, því börnin fara fram á tíu milljónir dollara fyrir herlegheitin. Sport 22.12.2005 16:12
Artest verður hjá Indiana fram yfir jól Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers verður hjá liðinu fram yfir hátíðar, en forráðamenn félagsins segjast bjartsýnir á að geta skipt honum í burtu strax eftir jól. Artest er sagður hafa dregið kröfu sína um að verða skipt frá liðinu til baka, en þolinmæði Indiana er einfaldlega á þrotum og víst þykir að hann hafi spilað sinn síðasta leik með liðinu. Sport 22.12.2005 15:59
Ciudad Real tapaði fyrir Portland San Antonio Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real töpuðu naumlega fyrir Portland San Antonio í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi 28-27. Ólafur skoraði þrjú mörk í leiknum. Barcelona er í efsta sæti deildarinnar með 28 stig, Portland San Antonio er í öðru sæti með 27 stig og Ciudad í því þriðja með 24 stig. Einar Örn Jónsson skoraði sjö mörk fyrir lið sitt Torrevieja í 29-23 sigri liðsins á Cangas. Sport 22.12.2005 16:52
Tilbúinn að framlengja samning sinn Þýski miðjumaðurinn Dietmar Hamann hjá Liverpool hefur samþykkt að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár, en samningur sem hann undirritaði í sumar bauð upp á eins ár framlengingu og búist er við þvi að nýr samningur verði undirritaður fljótlega. Hamann er 32 ára gamall og kom til Liverpool frá Newcastle árið 1999. Hann á að baki 57 landsleiki fyrir Þjóðverja. Sport 22.12.2005 15:45
Æfur út í Barcelona Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er æfur út í forráðamenn Barcelona fyrir að lýsa nýverið yfir opinberlega að félagið ætlaði sér að ná í franska framherjann Thierry Henry frá Arsenal og segir það vanvirðingu við félagið. Sport 22.12.2005 15:35
Tottenham fær hinn nýja Jaap Stam Eins og fram kom í gærkvöldi er enska úrvalsdeildarliðið Tottenham við það að ganga frá kaupum á unga landsliðsmanninum Ron Vlaar, sem kallaður hefur verið hinn nýji Jaap Stam. Mörg lið höfðu verið á höttunum eftir landsliðsmanninum unga, en hann var nýverið settur í leikbann hjá AZ Alkmaar vegna ummæla sinna í kjölfar þess honum þótti félagið hafa hindrað að Ajax keypti hann til sín. Sport 22.12.2005 15:12
Ég yfirgef ekki sökkvandi skip Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo hjá Real Madrid, segir að leikmenn liðsins verði að sýna samstöðu eftir að þeir töpuðu enn einum heimaleiknum í spænsku deildinni í gærkvöldi. Hann segir jafnframt að hann sé alls ekki á förum frá félaginu. Sport 22.12.2005 14:59
Bíðið með að baula Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að áhorfendur á Old Trafford hafi fullan rétt á að láta liðið heyra það ef það stendur sig ekki á vellinum, en hefur biðlað til þeirra að baula ekki á liðið fyrr en að leik líkur, því það hafi mjög slæm áhrif á liðið ef baulað er á það á meðan á leik stendur. Sport 22.12.2005 14:49
Fékk hrákaslummu í andlitið Hinn umdeildi Robbie Savage hjá Blackburn ærðist eftir leik Middlesbrough og Blackburn í bikarnum í gær og vildi meina að Emanuel Pogatetz hjá Boro hefði hrækt á sig í leiknum. Í dag var honum hinsvegar runnin reiðin og segir að líklega hafi hið óþægilega atvik verið óviljaverk. Sport 22.12.2005 14:38
Keane kynntur til leiks á annan í jólum Stuðningsmenn Celtic í Skotlandi fá tækifæri til að taka formlega á móti nýja leikmanni sínum Roy Keane á annan í jólum, þegar liðið tekur á móti Livingston. Keane verður ekki leikfær með liðinu fyrr en í janúar, en búist er við því að hann fái góðar móttökur þegar hann verður kynntur fyrir leikinn. Sport 22.12.2005 14:33
Tilboði West Ham hafnað Simon Jordan, stjórnarformaður Crystal Palace, hefur hafnað 5,5 milljón punda tilboði West Ham í framherjann Andy Johnson og segir að fyrrum landsliðsmaðurinn ungi sé einfaldlega ekki til sölu. Sport 22.12.2005 13:46
Juventus varði forskot sitt á toppnum Juventus heldur átta stiga forskoti sínu á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir leiki gærkvöldsins, en efstu liðin Juventus, AC Milan og Inter unnu öll sannfærandi sigra í gærkvöldi. Sport 22.12.2005 03:19
Van Persie gæti misst af jólaleikjunum Framherjinn ungi Robin Van Persie hjá Arsenal gæti misst af leikjahrinu liðsins um jól og áramót vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í bikarleiknum gegn Doncaster í gær. "Robin fékk högg á hnéð og við erum ekki vissir um hve lengi hann verður frá, en hann er nokkuð bólginn," sagði Arsene Wenger, en einnig er óljóst með þáttöku Thierry Henry í næsta leik vegna meiðsla á hásin. Sport 22.12.2005 13:42
Indiana sigraði LA Clippers Indiana sigraði LA Clippers í nótt 97-75 á heimavelli sínum og færði Clippers fjórða tap sitt í síðustu fimm leikjum sínum. Stephen Jackson var stigahæstur í liði Indiana Pacers með 24 stig, en Elton Brand skoraði 29 stig hjá Clippers. Sport 22.12.2005 13:25
Enn tapar Real Madrid Real Madrid tapaði enn einum leiknum í spænsku úrvalsdeildinni í gær og þeim fjórða á heimavelli í vetur, þegar liðið lá 2-1 fyrir Racing Santander. Leikmenn Real gengu af velli undir blístri og bauli áhorfenda eins og svo oft áður í vetur, en liðið á litla von um að veita erkifjendum sínum í Barcelona samkeppni um meistaratitlinn ef svo fer sem horfir. Sport 22.12.2005 03:11
Mætast erkifjendurnir í úrslitum á ný? Í gærkvöld var dregið um hvaða lið mætast í undanúrslitum enska deildarbikarsins á næsta ári, en Arsenal og Blackburn tryggðu sér bæði sæti í undanúrslitunum með dramatískum hætti í gærkvöld. Ljóst er að stórliðin og erkifjendurnir Manchester United og Arsenal gætu mæst í úrslitum keppninar, því þau sluppu við hvort annað í undanúrslitunum. Sport 22.12.2005 02:51
Tottenham kaupir Ron Vlaar frá AZ Alkmaar Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs hefur gengið frá kaupum á hollenska varnarmanninum Ron Vlaar, félaga Grétars Rafns Steinssonar hjá AZ Alkmaar. Vlaar þessi hefur aðeins spilað 11 leiki með AZ það sem af er í vetur, en á að baki tvo landsleiki þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur að aldri. Kaupverðið er 1,7 milljón punda. Sport 21.12.2005 22:35
Arsenal áfram eftir vítakeppni Arsenal er komið í undanúrslit enska deildarbikarsins eftir að hafa lagt spútniklið Doncaster að velli 5-3 eftir vítakeppni. Almunia markvörður Arsenal tók til sinna ráða í vítakeppninni og varði tvær spyrnur og kom Arsenal áfram. Það eru því Arsenal, Manchester United, Blackburn og Wigan sem eru komin áfram í undanúrslitin, en dregið verður um hvaða lið mætast síðar í kvöld. Sport 21.12.2005 22:29
Gilberto jafnaði á elleftu stundu Brasilíumaðurinn Gilberto tryggði Arsenal vítaspyrnukeppni gegn Doncaster með því að jafna leikinn í 2-2 þegar komið var í uppbótartíma í framlengingu og forðaði þar með liðinu frá skammarlegu tapi, en nú er aðeins vítakeppnin eftir í leiknum, sem sýndur er beint á Sýn Sport 21.12.2005 22:17
Doncaster komið yfir Doncaster var rétt í þessu að ná 2-1 forystu gegn Arsenal undir lok fyrri hálfleiks framlengingar. Það var Paul Green sem skoraði mark Doncaster eftir fáránleg varnarmistök Senderos í vörn Arsenal. Sport 21.12.2005 21:59
Framlenging hjá Doncaster og Arsenal Leikur Doncaster og Arsenal er kominn í framlengingu, en Arsenal náði að jafna leikinn á 63. mínútu, þar sem skot liðsins hrökk af varnarmanni og í netið. Paul Dickov skaut Blackburn í undanúrslitin með því að skora sigurmark liðsins gegn Middlesbrough á lokamínútu leiksins. Sport 21.12.2005 21:48
Mark Fish leggur skóna á hilluna Suður-Afríski varnarmaðurinn Mark Fish hjá Charlton hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna aðeins 31 árs gamall vegna þrálátra hnémeiðsla. Fish byrjaði ferilinn í heimalandinu, en fór þaðan til Bandaríkjanna, Ítalíu og endaði svo ferilinn á Englandi. Hann á að baki 62 landsleiki fyrir þjóð sína. Sport 21.12.2005 21:15
Doncaster leiðir í hálfleik gegn Arsenal Kraftaverkalið Doncaster hefur svo sannarlega ekki sagt sitt síðasta í enska deildarbikarnum og liðið hafði yfir 1-0 í hálfleik gegn Arsenal á heimavelli sínum. Staðan í leik Middlesbrough og Blackburn er markalaus í hálfleik. Sport 21.12.2005 21:03
Kirilenko meiddur Rússneski framherjinn Andrei Kirilenko hjá Utah Jazz lék spilaði ekki með liði sínu í nótt vegna bakmeiðsla sem hann hlaut í leik gegn Milwaukee í byrjun vikunnar og verður væntanlega ekki með liðinu í næstu leikjum. Lið Utah hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli í vetur sem og í fyrravetur, en meiðslalisti liðsins hefur verið langur síðan í fyrra haust. Sport 21.12.2005 19:46
Sendir Real Madrid tóninn Brasilíski knattspyrnustjórinn Wanderlei Luxemburgo sem látinn var taka pokann sinn hjá Real Madrir á dögunum, segir að hann hefði náð frábærum árangri með liðið ef hann hefði aðeins fengið tíma til að sinna starfi sínu. Sport 21.12.2005 19:27
Get ekki fyrirgefið Di Canio Markvörðurinn Shaka Hislop, fyrrum félagi Paolo di Canio hjá West Ham, segist ekki geta fyrirgefið honum fasistakveðjurnar sem hann hefur stundað í leikjum með liði sínu Lazio á Ítalíu undanfarið, en framkoma Ítalans hefur farið mjög fyrir brjóstið á forráðamönnum deildarinnar. Sport 21.12.2005 19:00
Fer hugsanlega til Nice í janúar Sóknarmaðurinn Florent Sinama-Pongolle gæti verið á leið til franska liðsins Nice í janúar, en félagið er nú í viðræðum við Liverpool um að fá leikmanninn að láni þegar opnar fyrir félagaskiptagluggann eftir áramótin. Pongolle hefur ekki átt fast sæti í liði Liverpool á þessu tímabili, en hann er aðeins 21 árs gamall. Sport 21.12.2005 18:25
Ekkert að hugsa um að kaupa leikmenn Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að hann sé mjög sáttur við þá leikmenn sem hann hefur úr að moða í dag og ætlar ekki að kaupa neina leikmenn þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar, þó hann missi leikmenn í Afríkukeppnina í nokkrar vikur. Sport 21.12.2005 18:17
Super Aguri væntanlega með 2006 Japanska keppnisliðið Super Aguri verður væntanlega ellefta liðið í keppnum næsta árs í Formúlu 1, eftir að samþykki fékkst frá öllum tíu liðunum í mótinu fyrir þáttöku nýja liðsins. Liðið mun keppa með vélar frá Honda, en það á nú aðeins eftir að hljóta samþykki FIA til að verða með á næsta ári, en hingað til hefur ekki gengið nógu vel að ganga frá fjárhagshliðinni á málinu enda ekkert ódýrt í Formúlu 1. Sport 21.12.2005 17:30
Doncaster - Arsenal í beinni á Sýn Tveir leikir eru á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld. Doncaster tekur á móti Arsenal og verður sá leikur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19:30 og þá mætast úrvalsdeildarliðin Middlesbrough og Blackburn, en sá leikur hefst klukkan 20. Sport 21.12.2005 17:22
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent