Erlendar
62 63 64 65 66 67 68 69 70 … 264 ›
Man. Utd. eykur forskotið í Englandi Manchester United vann 3-2 sigur á Reading í ensku úrvalsdeildinni í dag á meðan Chelsea tapaði stigum á heimavelli gegn Fulham. Forysta Man. Utd. á toppnum hefur því aukist enn frekar og er nú sex stig. Enski boltinn 30.12.2006 17:01
Sér ekki eftir að hafa farið frá Barca Luis Garcia hjá Liverpool segist alls ekki sjá eftir því að hafa yfirgefið herbúðir Barcelona á sínum tíma til að ganga til liðs við þá rauðklæddu. Það eina sem angri hann í Bítlaborginni sé veðrið. Liverpool og Barcelona, Evrópumeistarar síðustu tveggja ára, mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í febrúar. Fótbolti 29.12.2006 23:59
Ferguson: Meiðsli Terry eru ofmetin Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, telur að áhrifin sem fjarvera John Terry hafi á Chelsea séu stórlega ofmetin. Ferguson bender á að án Terry hafi Chelsea tapað tveimur stigum í fjórum leikjum og að liðið sé raunverulega í betri stöðu en það var áður en fyrirliðinn meiddist. Enski boltinn 29.12.2006 23:57
Ívar og Brynjar Björn í byrjunarliðinu Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru báðir í byrjunarliði Reading sem sækir topplið Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Heiðar Helguson er hins vegar í leikbanni og spilar því ekki með Fulham gegn Chelsea. Enski boltinn 30.12.2006 15:02
Dýrmætur sigur Charlton Bryan Hughes var hetja Charlton gegn Aston Villa í hádegisrimmu enska boltans, en heil umferð fer fram í dag. Hughes skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Charlton. Enski boltinn 30.12.2006 14:57
Querioz: Ronaldo verður bestur Carlos Querioz, aðstoðarþjálfari Manchester United, telur að það sé aðeins tímaspursmál hvenær Cristiano Ronaldo verði besti leikmaður heims. Querioz telur hann vera besta leikmann ensku úrvalsdeildarinnar í dag og á öðrum stalli en aðrir. Enski boltinn 29.12.2006 23:54
Enskukennarar hjá félögum í Englandi Mörg félög í ensku úrvalsdeildinni hafa enskukennara í vinnu sem hjálpa erlendum leikmönnum liðanna að ná tökum á tungumálinu í Englandi og hvað mikilvægustu orðin í fótboltanum þýða. Þetta segir Kevin Nolan, fyrirliði Bolton, í pistli á heimasíðu BBC. Enski boltinn 29.12.2006 23:51
58 stig Kobe dugðu ekki til Kobe Bryant átti stórleik og skoraði alls 58 stig fyrir LA Lakers í leik liðsins gegn Charlotte í NBA-deildinni í nótt. Frammistaðan var hins vegar ekki nóg til að skila Lakers sigri því að Charlotte sigraði eftir þrjár framlengingar, 133-124. Körfubolti 30.12.2006 11:00
Fratello rekinn frá Memphis Mike Fratello var á fimmtudag rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta. Það var gamla kempan Jerry West, núverandi forseti Memphis, sem lét Fratello fjúka. Körfubolti 30.12.2006 00:04
Tomasson vill komast burt frá Stuttgart Levante í spænsku úrvalsdeildinni er á höttunum á eftir danska landsliðsmanninum Jon Dahl Tomasson, sem er ekki lengur byrjunarliðsmaður hjá liði sínu Stuttgart og hugar sér því til hreyfings. Fótbolti 29.12.2006 18:17
Ívar segir leikmenn Reading fulla sjálfstraust Ívar Ingimarsson segir leikmenn Reading mæta fullir sjálfstraust á Old Trafford á morgun þar sem nýliðarnir mæta efsta liðið deildarinnar. Ívar segir að jafnteflið sem liðið náði gegn Chelsea fyrir nokkrum dögum sýni að það hefur burði til að stríða Man. Utd. Enski boltinn 29.12.2006 17:55
Ekki langt í endurkomu Henry Að sögn Arsene Wenger, stjóra Arsenal, er ekki langt til að fyrirliði liðsins, framherjinn Thierry Henry, geti spilað að nýju. Henry hefur misst af síðustu sjö leikjum vegna álagsmeiðsla og er stefnt á að hann taki þátt í bikarleiknum gegn Liverpool þann 6. janúar næstkomandi. Enski boltinn 29.12.2006 17:44
Dallas vann stórleik næturinnar Dallas hafði betur gegn Pheonix í uppgjöri tveggja heitustu liða NBA-deildarinnar í nótt, 101-99, í æsispennandi og skemmtilegum leik. Dirk Nowitzki skoraði sigurkörfuna rúmri sekúndu fyrir leikslok en Dallas hefur nú unnið átta leiki í röð. Körfubolti 29.12.2006 17:34
Ming hefur fengið flest atkvæði Yao Ming hjá Houston og LeBron James hjá Cleveland hafa fengið langflest atkvæði fyrir hinn árlega stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fram fer í febrúar. Það eru áhorfendur og áhugamenn um NBA út um alla veröld sem sjá um að velja byrjunarliðin í leiknum með því að senda sitt atkvæði með einföldu sms-skilaboði. Körfubolti 28.12.2006 23:39
Wade ómeiddur en Riley æfur Dwayne Wade, stjörnuleikmaður Miami í NBA-deildinni í körfubolta, er ekki alvarlega meiddur á hendi eftir að hafa lent í samstuði við Kirk Hinrich hjá Chicago í viðureign liðanna í fyrradag. Þetta leiddu niðurstöður röngtenmyndatöku í ljós. Pat Reily, þjálfari Miami, er þó allt annað en sáttur við framkomu Hinrich. Körfubolti 28.12.2006 23:35
Lehmann: Ég á nóg eftir Þýski markvörðurinn Jens Lehmann hjá Arsenal vill meina að hann eigi nóg eftir í boltanum og hann sé ekki einu sinni byrjaður að velta því fyrir sér að leggja hanskana á hilluna. Lehmann verður 38 ára gamall á næsta ári. Enski boltinn 28.12.2006 23:32
Suður- og Norður-Kórea saman á ÓL? Íþróttayfirvöld í Suður- og Norður-Kóreu segjast ekki hafa náð samkomulagi um að senda sameiginlegt keppnislið til leiks á Ólympíuleikana í Peking sumarið 2008. Þau vilja þó ekki neita að verið sé að skoða þann möguleika. Sport 28.12.2006 23:31
Milan staðfestir áhuga á Cassano AC Milan á Ítalíu hefur boðist til þess að fá ítalska sóknarmanninn Antonio Cassano að láni frá Real Madrid fram á vor, með hugsanleg kaup í huga eftir tímabilið. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum eru forráðamenn Real jákvæðir fyrir slíkum samningi. Fótbolti 28.12.2006 23:28
Hughes hæstaánægður með Tugay Tyrkneski miðjumaðurinn Tugay hjá Blackburn er í miklum metum hjá stjóra sínum Mark Hughes, ef eitthvað er að marka ummæli framherjans fyrrverandi í dag. Hughes segir Tugay nægilega góðan til að vera hjá Barcelona. Enski boltinn 28.12.2006 20:42
Terry fór í aðgerð John Terry, fyrirliði Englandsmeistara Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, gekk síðdegis í dag undir aðgerð á baki. Samkvæmt tilkynningu frá Chelsea segir að aðgerðin hafi gengið að óskum. Enski boltinn 28.12.2006 20:16
Lescott einbeitir sér að Everton Joleon Lescott, varnarmaður Everton, er með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir að vera sterklega orðaður við enska landsliðið eftir frábæra frammistöðu með liði sínu í vetur. Lescott kom til Everton frá Wolves í sumar og hefur slegið í gegn á Goodison Park. Enski boltinn 28.12.2006 15:00
Mascherano til Liverpool? Rafael Benitez er sagður sjá leik á borði í málum Javier Mascherano hjá West Ham og er jafnvel talið að spænski stjórinn hjá Liverpool muni bjóða í Argentínumanninn þegar leikmannaglugginn opnast að nýju í janúar. Enski boltinn 28.12.2006 14:59
Totti vill hvergi annarstaðar vera Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, er svo ánægður í herbúðum félagsins að hann vill helst enda ferilinn hjá því. Þetta sagði Totti í samtali við ítalska fjölmiðla í morgun. Fótbolti 28.12.2006 14:56
Platini vill breytingar í Meistaradeildinni Michael Platini, fyrrum landsliðsfyrirliði Frakka og núverandi stjórnarmaður UEFA, hefur gefið í skyn að hann muni breyta fyrirkomulaginu í Meistaradeild Evrópu fari svo að hann vinni forsetakosningar UEFA í næsta mánuði. Þar etur Platini kappi gegn Lennart Johansson, núverandi formanni. Fótbolti 28.12.2006 14:54
Myndi láta Drogba í vörnina ef ég gæti Didier Drogba yrði settur í öftustu varnarlínu Chelsea ef það væru til fleiri heilir sóknarmenn hjá liðinu, að sögn stjórans Jose Mourinho. Drogba lék framan af sínum ferli sem bakvörður og hefur líkamlega burði til að vera miðvörður í ensku úrvalsdeildinni. Hann fær hins vegar ekki tækifæri til þess. Enski boltinn 28.12.2006 14:51
New York sigraði í maraþon leik New York sigraði Detroit í þríframlengdum maraþon leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lokatölur urðu 151-145 og dugðu 51 stig frá Richard Hamilton ekki til fyrir Detroit. Hjá New York skoraði Stephan Marbury 41 stig. Körfubolti 28.12.2006 15:27
Chelsea hefur ekki spurt um Richards Stuart Pearce, stjóri Manchester City, segir að Chelsea hafi ekki verið í neinu sambandi við sig varðandi varnarmanninn unga Micah Richards. Hinn ungi enski landsliðsmaður hefur vakið mikla athygli í vetur og Chelsea er sagt vera að undirbúa risatilboð í leikmanninn. Enski boltinn 28.12.2006 14:48
Mourinho: Varnarleikurinn veldur áhyggjum Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að hann hafi áhyggjur af varnarleik Chelsea sem hefur fengið á sig sex mörk í síðustu þremur deildarleikjum. Hann segir að fjarvera Petr Cech markvarðar og fyrirliðans John Terry sé liðinu dýrkeypt. Enski boltinn 27.12.2006 17:56
Mourinho býst við konunlegum móttökum Jose Mourinho skortir ekki sjálfstraustið frekar en fyrri daginn. Nú hefur hann lýst því yfir að hann búist við konunglegum móttökum þegar hann heimsækir Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í febrúar. Mourinho gerði Porto að Evrópumeisturum fyrir rúmum tveimur árum. Fótbolti 27.12.2006 21:12
Góður sigur hjá Gummersbach Guðjón Valur Sigurðsson lét fara óvenju lítið fyrir sér þegar Gummerbach bar sigurorð af Dusseldorf í þýska handboltanum á útivelli í kvöld, 28-27. Guðjón Valur skoraði þrjú mörk og Sverre Jacobsen eitt. Róbert Gunnarsson og Guðlaugur Arnarson skoruðu ekki. Fjölmargir leikir fóru fram í Þýskalandi í kvöld. Handbolti 27.12.2006 21:20
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent