Erlendar
65 66 67 68 69 70 71 72 73 … 264 ›
Sonko áhyggjufullur vegna morðhótana Ibrahima Sonko, félagi Ívars Ingimarssonar í vörn Reading í ensku úrvalsdeildinni, hefur fengið morðhótanir frá stuðningsmönnum Chelsea allt frá því að hann lenti í samstuði við markvörðinn Carlo Cudicini í leik liðanna í október sl. Sonko kveðst ekki standa á sama um hótanirnar, en liðin eigast við að nýju annan í jólum. Enski boltinn 22.12.2006 12:50
Benitez: Crouch verður ekki seldur Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Peter Crouch verði ekki seldur frá félaginu í janúar, en hinn hávaxni framherji hefur þráfaldlega verið orðaður við sölu frá Liverpool upp á síðkastið, eftir að hann missti byrjunarliðssæti sitt í hendur Craig Bellamy. Enski boltinn 22.12.2006 12:46
Sjö leikmenn Sheffield Utd. á sölulista Sjö leikmenn enska úrvalsdeildarliðsins Sheffield United hafa verið settir á sölulista af knattspyrnustjóra liðsins Neil Warnock, sem virðist hafa fengið þau skilaboð að hann fái sjálfur lítinn pening til leikmannakaupa í janúar. Enski boltinn 22.12.2006 18:27
Woodgate er óákveðinn með framtíðina Jonathan Woodgate, varnarmaður hjá Middlesbrough, segist enn eiga eftir að sanna sig hjá Real Madrid og þess vegna vilji hann ekki útiloka þann möguleika að snúa aftur til spænska liðsins fyrir næsta tímabil. Woodgate verður í láni Middlesbrough út tímabilið og vilja forráðamenn enska félagsins ólmir festa kaup á varnarmanninum eftir þann tíma. Fótbolti 22.12.2006 12:43
Owen yrði mikill bónus Ef Michael Owen myndi spila með Newcastle á þessari leiktíð yrði það “ótrúlegur bónus” að sögn Glenn Roeder, stjóra liðsins. Roeder segir þó afar litlar líkur á að sú verði raunin. Enski boltinn 22.12.2006 12:39
Wenger verður pirraður William Gallas, varnarmaður Arsenal, segir að slæm úrslit Arsenal í síðustu leikjum sínum fari í pirrurnar á stjóra liðsins, Arsene Wenger. Gallas segir að leikmenn liðsins verði að líta í eigin barm. Enski boltinn 22.12.2006 12:36
Borgar stjórnarformaðurinn úr eigin vasa? Ljóst þykir að það verður mikið kapphlaup um Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea þegar leikmannamarkaðurinn opnast að nýju í janúar, fari svo að Chelsea ákveði að hlusta á tilboð í vængmanninn. Mörg lið hafa lýst yfir áhuga á Wright-Phillips og í morgun lýsti Stuart Pearce, stjóri Man. City, því yfir að stjórnarformaður félagsins gæti hugsanlega boðið í leikmanninn með eigin pening. Enski boltinn 22.12.2006 12:30
Það þurfa fleiri en Drogba að skora Steve Clarke, aðstoðarþjálfari Chelsea, segir að Didier Drogba verði að fá meiri hjálp frá samherjum sínum við að skora mörk fyrir liðið. Drogba hefur farið á kostum á undanförnu og skorað ófá sigurmörkin fyrir Chelsea. Ljóst þykir að Clarke var fyrst og fremst að beina orðum sínum til Andrei Shevchenko. Enski boltinn 22.12.2006 12:28
Hleb segist loksins hafa aðlagast Hvít-Rússinn Alexander Hleb hjá Arsenal kveðst mjög ánægður með hvernig hans mál eru að þróast hjá Arsenal. Hleb segir að það hafi tekið langan tíma að aðlagast lífinu og fótboltanum í Englandi. Enski boltinn 22.12.2006 12:25
Murray getur orðið sá besti Sænska tennisgoðsögnin Björn Borg telur að Andy Murray sé sá eini sem getur skákað Roger Federer á næsta ári í tennisheiminum. Borg, fimmfaldur sigurvegari á Wimbledon mótinu telur einnig að hinn 19 ára gamli Murray geti orðið besti tenniskappi heimsins áður en langt um líður. Murray og Rafael Nadal voru þeir einu sem náðu að leggja Federer af velli á árinu 2006. Sport 20.12.2006 18:19
Mourinho hvílir lykilmenn Leikur Newcastle og Chelsea er að hefjast í beinni á Sýn nú klukkan 19:45, en athygli vekur að Jose Mourinho hefur ákveðið að hvíla marga af lykilmönnum sínum í leiknum í kvöld. Þeir Frank Lampard, Ashley Cole, Michael Ballack og Didier Drogba sitja allir á bekknum. Enski boltinn 20.12.2006 19:36
Cassano og Diarra settir út úr hópnum Miðjumaðurinn Mahamadou Diarra og sóknarmaðurinn Antonio Cassano voru báðir settir út úr leikmannahópi Real Madrid fyrir leikinn gegn Recreativo sem sýndur verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld. Sjónvarpsupptökur náðust af leikmönnunum um helgina þar sem þeir gagnrýndu þjálfara sinn Fabio Capello. Fótbolti 20.12.2006 17:18
17 leikmannaskipti rannsökuð frekar Lord Stevens tilkynnti á blaðamannafundi í dag að 17 af þeim 362 leikmannaskiptum sem rannsökuð hafa verið í spillingarmálinu í enska boltanum verði rannsökuð enn frekar. Lítið markvert kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var vegna þessa í dag, en þar lýsti Stevens yfir óánægju sinni með óliðlegheit nokkurra stórra umboðsmanna. Enski boltinn 20.12.2006 15:19
Gat ekki neitað United Sænski framherjinn Henrik Larsson segir að þegar sér hafi boðist tilboð um að ganga í raðir Manchester Unted sem lánsmaður hafi hann einfaldlega ekki getað sagt nei við svona stórt félag. Enski boltinn 20.12.2006 13:24
Saha framlengir við Man Utd Franski framherjinn Louis Saha hefur framlengt samning sinn við Manchester United til ársins 2010. Franski landsliðsmaðurinn er 28 ára gamall og gekk í raðir félagsins árið 2004 fyrir 12,8 milljónir punda. Hann hefur skoraði 12 mörk það sem af er leiktíðinni og er óðum að ná fyrra formi eftir erfiða baráttu við meiðsli. Enski boltinn 20.12.2006 13:21
Bikarleiknum frestað fram til 9. janúar Stórleik Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum hefur verið frestað fram til 9. janúar eftir að hann gat ekki farið fram á Anfield í gærkvöldi vegna svartaþoku. Það vekur athygli að það verður annar leikur liðanna á þremur dögum, því þau mætast einnig í þriðju umferð enska bikarsins. Leikur Newcastle og Chelsea í enska deildarbikarnum verður í beinni á Sýn í kvöld klukkan 19:35. Enski boltinn 20.12.2006 13:35
Niðurstöður úr spillingarmálinu birtar í dag Lord Stevens, maðurinn sem rannsakaði meinta spillingu í ensku knattspyrnunni í kjölfar sjónvarpsþáttar sem sýndur var í breska sjónvarpinu í sumar, mun í dag afhjúpa skýrslu um ítarlega rannsókn sína í dag. Þar kemur í ljós hvort stjórar í ensku úrvalsdeildinni hafa gerst sekir um að taka við mótugreiðslum frá umboðsmönnum leikmanna og ljóst að mikið fjaðrafok verður í deildinni ef einhverjir verða fundnir sekir. Enski boltinn 20.12.2006 13:28
Mourinho biðst afsökunar Jose Mourinho, stjóri Chelsea, baðst í dag afsökunar á ummælum sem hann lét falla um framherjann Andy Johnson hjá Everton um síðustu helgi, þegar hann hélt því fram að leikmaðurinn hefði reynt að fiska vítaspyrnu í leiknum. Forráðamenn Everton tóku afsökunarbeiðninni vel og segja málið úr sögunni. Enski boltinn 20.12.2006 13:15
Félagsmet hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt 15. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann auðveldan sigur á Toronto Raptors á heimavelli sínum 115-98. Chicago Bulls tók á móti LA Lakers og vann 94-89. Körfubolti 20.12.2006 13:01
Alfreð velur 19 manna æfingahóp Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari valdi í dag 19 manna æfingahóp fyrir lokaundirbúininginn fyrir HM í handbolta sem hefst í Þýskalandi í næsta mánuði. 16 þessara leikmanna munu svo mynda HM hóp Íslands. Af þessum 19 leikmönnum leika fjórir hérlendis. Handbolti 20.12.2006 12:48
Vil alls ekki missa af leiknum gegn Liverpool Argentínska undrabarnið Lionel Messi hefur ekki spilað með Evrópumeisturum Barcelona síðan í nóvember, þegar hann ristarbrotnaði í 3-1 sigurleik gegn Real Zaragoza. Messi var fyrr í vikunni valinn besti ungi leikmaður heims en hann er nú að vinna í því að jafna sig eftir aðgerð. Fótbolti 19.12.2006 20:55
Íþróttamenn eru meðhöndlaðir eins og glæpamenn Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal segir að íþróttamenn séu höndlaðir eins og glæpamenn í kjölfar þess að hann var tekinn í enn eitt lyfjaprófið á árinu um síðustu helgi og það á heimili sínu. Sport 19.12.2006 21:57
Ótrúlegur sigur Wycombe á Charlton Þriðjudeildarlið Wycombe Wanderers gerði sér lítið fyrir og sló úrvalsdeildarlið Charlton út úr enska deildarbikarnum í kvöld með 1-0 sigri á heimavelli Charlton, The Valley. Þetta eru sannarlega ótrúleg úrslit, en þrjár deildir skilja þessi tvö lið að. Wycombe er því komið í undanúrslit keppninnar en Charlton er í bullandi vandræðum í deildinni. Hermann Hreiðarsson lék ekki með Charlton í kvöld. Enski boltinn 19.12.2006 21:52
Chicago - LA Lakers í beinni í nótt Leikur Chicago Bulls og LA Lakers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt. Þetta verður væntanlega hörkuleikur milli þessara gömlu stórliða, en bæði lið hafa verið á ágætu róli undanfarið. Körfubolti 19.12.2006 21:29
Allen Iverson fer til Denver Skorarinn Allen Iverson sem leikið hefur með Philadelphia 76ers síðasta áratug er á leið til Denver Nuggets í skiptum fyrir Andre Miller, Joe Smith og valrétti Denver liðsins í nýliðavalinu á næsta ári. Skiptin hafa ekki verið staðfest formlega en líklega verður gengið frá lausum endum síðar í kvöld. Körfubolti 19.12.2006 20:56
Liverpool - Arsenal frestað Leik Liverpool og Arsenal sem fara átti fram í enska deildarbikarnum í kvöld hefur verið frestað vegna þoku. Leikur Charlton og Wycombe verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn þess í stað og hefst nú klukkan 20. Hermann Hreiðarsson er ekki í liði Charlton að þessu sinni. Enski boltinn 19.12.2006 19:58
Minningarathöfn um leikmenn Juventus Í dag var haldin sérstök minningarathöfn um leikmennina ungu sem drukknuðu við æfingasvæði Juventus um helgina. Leikmennirnir tveir drukknuðu í vatni við æfingasvæðið og er málið enn í rannsókn, enda voru tildrög þessa nöturlega atburðar nokkuð furðuleg. Leikmennirnir hétu Riccardo Neri og Alessio Ferramosca. Fótbolti 19.12.2006 17:57
Mikil þoka í Liverpool Óvíst er hvort leikur Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum geti farið fram vegna mikillar þoku sem nú er í borginni. Aðstæður verða kannaðar á ný í kring um klukkan 18 og þá verður ákveðið hvort leikurinn fer fram eða hvort honum verður frestað. Enski boltinn 19.12.2006 17:43
McCulloch fær þriggja leikja bann Lee McCulloch, leikmaður Wigan í ensku úrvalsdeildinni, hefur gengist við ákæru aganefndar knattspyrnusambandsins og mun því taka út þriggja leikja keppnisbann fyrir að kýla Chris Morgan, fyrirliða Sheffield United, í leik liðanna á dögunum. Enski boltinn 19.12.2006 16:48
Valencia - Mallorca í beinni á Sýn Extra í kvöld Leikur Valencia og Mallorca í spænska boltanum verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 19:55 í kvöld, en leikurinn verður svo sýndur á Sýn að loknum leik Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum. Annað kvöld verður svo leikur Real Madrid og Recreativo í beinni á Sýn Extra á sama tíma og leikur Newcastle og Chelsea í deildarbikarnum á Englandi sýndur beint á Sýn. Fótbolti 19.12.2006 16:28
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent