Erlent
291 292 293 294 295 296 297 298 299 … 334 ›
Bandarísk flugvél fékk herþotufylgd Bandarísk flugvél, sem var á leið til Indlands, fékk leyfi til að lenda á Schiphol-flugvelli í Hollandi í gær og fékk herþotufylgd eftir að starfsfólk vélarinnar tilkynnti um undarlega hegðun nokkurra farþega um borð. Erlent 23.8.2006 22:03
Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvarðhald var í gær framlengt um viku yfir átta mönnum sem grunaðir eru um aðild að samsæri um að sprengja farþegaþotur á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Það var framlengt um sólarhring yfir tveimur öðrum og einum var sleppt án ákæru. Erlent 23.8.2006 22:01
Ítök Írana sögð fara vaxandi Íranar hafa meiri áhrif í Írak en Bandaríkjamenn og ráðamenn í Teheran hafa fest sig í sessi sem aðalkeppinautar bandarískra stjórnvalda um ítök í Miðausturlöndum. Þetta er fullyrt í nýrri skýrslu virtrar rannsóknarstofnunar í Lundúnum, Chatham House. Erlent 23.8.2006 22:01
Vilja í velmegunarlið með Norðurlöndum Alex Salmond, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, SNP, vill að Skotland verði sjálfstætt ríki sem yrði hlekkur í „velmegunarboga“ með Norðurlöndunum, frá Íslandi til Finnlands. Frá þessu er greint í blaðinu Scotland on Sunday Erlent 23.8.2006 22:01
Komin í leitirnar eftir átta ár Austurrísk stúlka, sem hvarf sporlaust er hún var tíu ára fyrir rúmum átta árum, er nú loks komin í leitirnar. Erlent 23.8.2006 22:01
Myrti dætur sínar Þrítugur Dani var í gær dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir morðið á tveimur dætrum sínum. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken. Erlent 23.8.2006 22:01
Svörtu kassarnir fundnir Nú er talið að sambland af vondu veðri og mistökum flugmanna hafi valdið flugslysinu í Úkraínu í gær. 170 manns létu lífið í slysinu. Talið er að flugvélin hafi lent í mikilli ókyrrð, jafnvel orðið fyrir eldingu, og síðan hafi mistök flugmanns orðið til þess að vélin ofreis og hrapaði stjórnlaus til jarðar. Erlent 23.8.2006 18:24
Olíuverð lækkaði um rúman dal Hráolíuverð lækkaði talsvert síðla dags í kjölfar þess að vikulegar upplýsingar bandaríska orkumálaráðuneytisins benda til að umframbirgðir af olíu hafi aukist á milli vikna. Þá lækkaði olíuverðið fyrr í dag vegna vilja stjórnvalda í Íran til að hefja formlegar viðræður við Sameinuðu þjóðirnar um kjarnorkuáætlun sína. Viðskipti erlent 23.8.2006 15:49
Náði mynd af slysinu á farsíma Rannsóknarmenn hafa fundið svarta kassa sem voru í rússnesku farþegaflugvélinni sem hrapaði í Úkraínu í gær. Hundrað og sextíu farþegar og tíu manna áhöfn fórust með vélinni. AP-fréttastofunni hefur borist upptaka af slysinu sem vitni tók á farsíma sinn. Þar má sjá hvar vélin hrapar og mikill reykur stígur upp frá slysstaðnum. Innlent 23.8.2006 15:12
Olíuverð lækkar vegna viðbragða Írana Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag í kjölfar frétta þess efnis að stjórnvöld í Íran væru reiðubúin til viðræðna um kjarnorkuáætlun sína. Íranar eiga yfir höfði sér viðskiptabann hætti þeir ekki auðgun úrans fyrir ágústlok. Viðskipti erlent 23.8.2006 10:58
Góð afkoma hjá Nestlé Svissneski matvælaframleiðandinn Nestlé sklaði rúmum 4,1 milljarði svissneskra franka, jafnvirði tæpra 239 milljarða íslenskra króna, í hagnað á fyrstu sex mánuðum ársins. Aukningin nemur 11,4 prósentum sem er í takt við væntingar greiningaraðila. Viðskipti erlent 23.8.2006 10:53
Brýnt að aðildarríki SÞ leggi til friðargæslu Terje Roed-Larson, sendierindreki Sameinuðu þjóðanna, varar við því að friðurinn milli Ísraels og Líbanons verði afar brothættur næstu tvo til þrjá mánuðina. Hann segir afar brýnt að aðildarríki Sameinuðu þjóðanna taki sig saman í andlitinu og leggi til friðargæsluliðsins sem erfiðlega hefur gengið að manna. Erlent 23.8.2006 10:13
Walesa segir skilið við Samstöðu Lech Walesa, fyrrverandi forseti Póllands, hefur sagt skilið við verkalýðsfélagið Samstöðu sem hann átti þátt í að stofna á tímum kommúnismans í heimalandi sínu á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 23.8.2006 08:14
Upplausn ríkir víða í Mexíkó Niðurstöður kosninga eru virtar að vettugi, jafnt af hægri- sem vinstrimönnum. Kjarabarátta barnakennara breytist í vopnaða uppreisn og setur borgaralegt samfélag á annan endann. Erlent 22.8.2006 21:46
Samsæri um morð og hryðjuverk Ellefu menn, sem ákærðir eru fyrir aðild að samsæri um að sprengja í loft upp farþegaþotur á leið milli Bretlands og Bandaríkjanna, voru leiddir fyrir dómara í Lundúnum í gær. Átta sakborningar, sem sæta ákæru fyrir að leggja á ráðin um morð og hryðjuverk, voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram í september. Hinir þrír sem sæta minna alvarlegum ákærum, verða einnig áfram í haldi. Erlent 22.8.2006 21:46
Glíma um fé til EFTA Svisslendingar vilja lækka framlag sitt til EFTA. Með því skora þeir á Íslendinga og Norðmenn í glímu um fjárframlög og staðsetningu höfuðstöðva samtakanna. Erlent 22.8.2006 21:47
Klám sýnt í fréttatíma Gróft tékkneskt klám var sýnt í fréttatíma sænska ríkissjónvarpsins aðfaranótt sunnudagsins, samkvæmt frétt Svenska Dagbladet. Ástæðan er sú að á skjáum fyrir aftan þulinn eru sýndar erlendar fréttastöðvar. Erlent 22.8.2006 21:46
Einskis getið um auðgun úrans Ari Larijani, aðaltalsmaður Íransstjórnar í kjarnorkumálum, greindi frá því í gær að stjórnin væri reiðubúin að hefja alvöru samningaviðræður um kjarnorkuáætlun sína. Erlent 22.8.2006 21:46
Vitorðsmenn í Hamborg Líbanskur námsmaður, sem grunaður er um að hafa átt þátt í misheppnaðri tilraun til að sprengja heimatilbúna sprengju í þýskri járnbrautalest, átti sér vitorðsmenn í Hamborg, að því er lögregla greindi frá í gær. Eins og kunnugt er voru lykilmenn í flugráns-árásunum á Bandaríkin 11. september 2001 námsmenn í Hamborg. Erlent 22.8.2006 21:47
Biður Gdansk-búa um skilning Þýska nóbelsskáldið Günter Grass hefur sent borgarstjóra fæðingarborgar sinnar Gdansk, sem áður hét Danzig, bréf þar sem hann útskýrir að hann hafi fyrst á elliárum fundið „réttu leiðina“ til að tala um að hann þjónaði í Waffen-SS-hersveit á síðustu mánuðum síðari heimsstyrjaldarinnar, þá á átjánda aldursári. Erlent 22.8.2006 21:46
Nær átta kílóa sprengja fannst Lögreglumenn fundu sprengju í gær við fjölfarna götu í verslunarhverfi í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka. Sprengjan vó nærri átta kíló og hefði getað valdið töluverðum mannskaða. Erlent 22.8.2006 21:46
Grunsamlegir menn skotnir Ísraelskir hermenn skutu þrjá Palestínumenn til bana á Gaza-ströndinni aðfaranótt þriðjudags. AP hefur eftir talsmanni hersins að skothríð hafi verið gerð að mönnunum því þeir hafi talist „grunsamlegir, á göngu við landamærin með stóra poka“. Skriðdrekar skutu einnig í átt að mönnunum. Erlent 22.8.2006 21:46
Versta útkoma í nítján ár Nýleg skoðanakönnun breska blaðsins Guardian og IMC hefur leitt í ljós að 72 prósent Breta telja að utanríkisstefna Tonys Blair hafi aukið hættuna á hryðjuverkaárás á Bretland. Einungis eitt prósent aðspurðra er á öndverðri skoðun og telur landið öruggara. Erlent 22.8.2006 21:47
Átökum afstýrt í bili Stríðandi fylkingar í Austur-Kongó ákváðu nú síðdegis að slíðra sverðin og semja um vopnahlé. Erlent 22.8.2006 17:54
Íranar reiðubúnir til viðræðna Íranar segjast tilbúnir til alvarlegra viðræðna um kjarnorkuáætlun sína en segjast enn áskilja sér rétt til að halda auðgun úrans áfram. Sitji þeir fast við sinn keip er næsta víst að þeir verði beittir efnahagsþvingunum og jafnvel er valdbeiting ekki útilokuð. Erlent 22.8.2006 17:46
Miklir eldar í Grikklandi Einn hefur farist og tugir slasast í miklum skógareldum sem geisað hafa á Halkidiki-skaga í norðurhluta Grikklands. Erlent 22.8.2006 17:43
170 dóu í flugslysinu Engar líkur eru taldar á að nokkur hafi komist lífs af þegar rússnesk farþegaþota með 170 manns innanborðs fórst skammt frá Donétsk í Úkraínu í dag. Ókyrrð í lofti er sögð orsök slyssins en hryðjuverk er útilokað. Erlent 22.8.2006 17:41
Þjóðverjar svartsýnir Væntingavísitalan í Þýskalandi féll um 20,7 punkta frá júlí og mælist mínus 5,6 stig í þessum mánuði. Vísitalan hefur ekki verið lægri í fimm ár og benda niðurstöðurnar til að Þjóðverjar séu svartsýnni nú en áður um horfur í efnahagsmálum. Viðskipti erlent 22.8.2006 17:03
Enginn komst lífs af Allir farþegar og áhöfn rússneskrar farþegavélar af Tupolev gerð týndu lífi þegar vélin hrapaði Austur-Úkraínu í dag. Hundrað og sextíu farþegar voru um borð og tíu manna áhöfn. Flugvélin var á leið frá Suður-Rússlandi til Sánkti Pétursborgar og hrapaði um fjörutíu og fimm kílómetra norður af Donetsk. Erlent 22.8.2006 16:09
Íranar afhenda svar sitt Íranar hafa í dag afhent fulltrúum vesturveldanna svar sitt við tilboði þeirra um ívilnanir í stað þess að stjórnvöld í Teheran hætti auðgun úrans. Erlent 22.8.2006 14:26