

Vilberg Andri Pálsson gefur út á miðnætti í dag lagið Kílómetrar. Vilberg er leiklistarnemi úti í London og tónlistarmaður og gerði hann einnig stuttmynd með sama nafni sem kemur út síðar á árinu en hefur nú þegar hlotið verðlaun.
Lífið snýst ekki bara um æfingar og fótbolta hjá íslenska kvennalandsliðinu í Los Angeles þar sem liðið mun spila tvo leiki á næstunni á SheBelieves æfingamótinu.
Fegurðardrottningin Hulda Vigdísardóttir hreppti annað sætið í World Top Model keppninni sem fór fram um helgina. Keppnin var haldin í New York og er hluti af tískuvikunni þar. Þetta var í fyrsta skipti sem keppandi frá Íslandi tekur þátt.
Guðjón Már Guðjónsson, eigandi og framkvæmdastjóri tæknifyrirtækisins OZ, fagnar fimmtugsafmæli sínu á morgun. Guðjón Már verður að heiman á sjálfan afmælisdaginn en þó í góðra vina hópi í afmælisferð á Kúbu.
Hjúkrunarfræðingur í framhaldsnámi í Kanada segir stöðuna þar í landi vera á suðupunkti vegna mótmæla en þau beinast í auknum mæli gegn heilbrigðisstarfsmönnum. Hún telur mikilvægt að Ísland fari ekki sömu leið og Kanada hefur gert og segir mikilvægt að landsmenn finni samstöðuna á ný.
Fatahönnuðurinn Sigmundur Páll Freysteinsson er búsettur í Kyoto í Japan og stundar þar mastersnám í fatahönnun með áherslu á textíl og sjálfbærni. Þar sem strangt bann var sett á landamærin vegna heimsfaraldursins er hann einn eins og er en eiginkona hans Ída Pálsdóttir og dóttir þeirra Kaía Blær koma loksins til hans í mánuðinum.
Skarphéðinn Héðinsson situr í framkvæmdastjórn Los Angeles Rams og hefur verið í lykilhlutverki byggingu nýs og glæsilegs leikvangs þar sem Super Bowl fer fram annað kvöld. Eiríkur Stefán ræddi við Skarphéðinn um þetta risavaxna verkefni.
Leikarar í Svörtu söndum, þáttum sem sýndir eru á Stöð 2, segja það mikinn heiður að hafa fengið inngöngu á hina virtu kvikmyndahátíð Berlinale í Þýskalandi sem fer fram í kvöld. Sjónvarpsþættirnir verða þá heimsfrumsýndir en í umsögn dómnefndar er þáttunum hrósað í hástert, meðal annars fyrir karaktersköpun, myndatöku og einstakt umhverfi á Íslandi.
Minnst átta Íslendingar eru nú í Úkraínu þar sem mikið óvissuástand ríkir vegna mögulegrar innrásar Rússa í landið. Utanríkisþjónustan hvetur Íslendinga í landinu til þess að láta vita af sér og huga vel að ferðaskilríkjum sínum.
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur fólk sem hyggur á ferðalög til Úkraínu að kynna sér vel ferðaviðvaranir áður en haldið er af stað í ferðalagið. Þá eru Íslendingar í Úkraínu hvattir til þess að láta ráðuneytið vita af sér.
Skíðakappinn Sturla Snær Snorrason er meðal þátttakenda á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Hann greindist með kórónuveruna síðastliðinn laugardag og var í kjölfarið sendur á hálfgert „gámasjúkrahús“ þar sem hann nýtti tímann heldur betur fer.
Bergsveinn Birgisson hefur verið gerður að heiðursdoktor við háskólann í Björgvin. Það var gert heyrinkunnugt í gær en þeirri doktorsnafnbót fylgir mikill heiður.
Hlynur M. Jónsson er fasteignamiðlari og áhrifavaldur sem vakið hefur verðskuldaða athygli fyrir líflegar kynningar sínar á því lúxuslífi sem miðjarðarhafseyjan Kýpur býður upp á, en þar hefur Hlynur verið búsettur undanfarin ár þar sem hann hefur starfað sem alþjóðlegur sölufulltrúi fasteigna.
Íslenska CrossFit stjarnan Sara Sigmundsdóttir hefur fundið sér nýtt heimili næstu mánuði en hún ætlar að eyða þeim í Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Björn Pálsson hefur ferðast um heiminn og búið á flakki víðsvegar síðstu tólf árin. Hann er ekki með fasta búsetu í neinu landi, býr og ferðast mest með sjálfum sér og lifir hinum svokallaða Nomad lífsstíl.
Felix Bergson, Eurovisionsérfræðingur og fararstjóri Íslendinga í Eurovision, hefur fengið miklar skammir frá spænskum Eurovisionunnendum undanfarna daga vegna vals dómnefndar á framlagi Spánar til keppninnar.
Íslendingurinn sem lést á Tenerife á sunnudag í bílageymslu við heimili sitt hét Haraldur Logi Hrafnkelsson.
Íslenskur ríkisborgari um fimmtugt er sagður hafa látist í eldsvoða í bílskúr í heimahúsi við Costa Adeje á Tenerife á sunnudag.
Spænska þjóðin er öskureið eftir að framlag Spánverja í Eurovision var valið með pompi og prakt um síðustu helgi. Almenningur kaus með yfirburðum lag þriggja kvenna frá Galisíu, en fimm manna dómnefnd sérfræðinga hafði svo mikil völd að allt annað lag varð fyrir valinu. Einn Íslendingur sat í dómnefndinni sem hafa borist líflátshótanir vegna úrslitanna.
Förðunarfræðingurinn Alexander Sigurður Sigfússon er búsettur í London þar sem honum líður eins og heima hjá sér. Það er erfitt að fá atvinnuleyfi þar en það hefur ekki stoppað hann í að leyfa hæfileikum sínum að njóta sín í hinum ýmsu verkefnum úti og hér heima.
Háskólanemi ákvað að flytja til Danmerkur þegar afléttingar voru tilkynntar þar í landi í haust. Hún vill nýta háskólaárin til þess að skemmta sér og segir það erfitt þegar samkomutakmarkanir eru harðar.
Sonja Sófusdóttir býr í Kaupmannahöfn eftir að hafa upphaflega flutt til Svíþjóðar í nám. Hún flutti ein út á vit ævintýranna og býr í dag með íslenskri vinkonu sinni. Hún starfar hjá Deloitte og elskar að hafa það hygge með vinum.
Sjónvarpsþættirnir Verbúðin hlutu rétt í þessu Norrænu sjónvarpshandritaverðlaunin á Kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í Svíþjóð, Göteborg Film Festival. Rakel Garðarsdóttir deilir þessum gleðifréttum á samfélagsmiðlum.
Danir köstuðu af sér grímunum á miðnætti þegar öllum samkomutakmörkum var aflétt þar í landi. Bareigandi sagðist spenntur að fá að taka á móti fólki á ný og segir Íslendingur að háskólanemar ætli að djamma fram á nótt. Sóttvarnalæknir vill ekki fara sömu leið og Danir.
Egill Þór Jónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur undanfarnar vikur og mánuði háð baráttu við eitilfrumukrabbamein. Hann er nú staddur í Lundi í Svíþjóð og mun fyrstur Íslendinga gangast undir nýja hátæknimeðferð við „aggresívu“ krabbameini.
Hljómsveitin FLOTT hefur skrifað undir samning hjá útgáfufyrirtækinu Sony í Danmörku. Vigdís Hafliðadóttir, söngkona hljómsveitarinnar, segir hljómsveitarmeðlimi í skýjunum enda sé um mikla viðurkenningu að ræða.
Íslendingur sem fékk boð um að syngja í hinum sívinsæla bandaríska spjallaþætti Jimmy Kimmel segir að það hafi verið súrrealískt að fá boð í þáttinn. Hún segir spennandi hluti á döfinni og er að eigin sögn að lifa drauminn.
Íslenska tónlistarkonan Laufey Lin Jónsdóttir fékk heldur betur sérstaka kveðju frá þáttastjórnandanum Jimmy Kimmel í gærkvöldi. Laufey birti kveðjuna á Instagram-síðu sinni en hún flutti lagið sitt Like The Movies í spjallþætti Kimmel fyrir rúmri viku.
Fyrirsætan Hulda Ósmann flutti til Tenerife ásamt eiginmanni sínum Jóni Ósmann og stjúpsyni eftir að hafa flúið þangað í frí vegna veðursins á Íslandi. Síðan þá eru liðin nokkur ár og líður þeim afskaplega vel í sveitinni á Spáni þar sem þau rækta meðal annars lífrænar sítrónur, hnetur, appelsínur og ólífur.
Erlingur Richardsson, þjálfari karlaliðs ÍBV hér á landi og landsliðsþjálfari Hollands í handbolta er meðal þeirra sem er orðaður við landsliðsþjálfarastöðu norska landsliðsins. Þetta kemur fram á vef norska fjölmiðilsins TV2.