Lög og regla
66 67 68 69 70 71 72 73 74 … 120 ›
22 ára í mánaðarfangelsi 22 ára gamall maður var í gær dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir líkamsárás 14. desember 2002. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur, en málið var dómtekið 20. apríl síðastliðinn. Lögreglustjórinn í Reykjavík gaf út ákæru í málinu í lok janúar. Innlent 13.10.2005 19:11
Varað við snjóflóðum Varað hefur verið við snjóflóðahættu á ákveðnum gönguleiðum í Hvannadalshnjúk. Lögreglu á Höfn í Hornafirði barst ábending í gær um mögulega hættu og að höfðu samráði við þjóðgarðsvörð í Skaftafelli og Veðurstofuna var gefin út viðvörun sem gildir fram yfir helgi. Innlent 13.10.2005 19:11
Segjast eiga land við Skjaldbreið Þingfest var í Héraðsdómi Suðurlands í gær mál Grímsness- og Grafningshrepps á hendur ríkinu vegna eignarréttar á landi í kringum Skjaldbreið, en óbyggðanefnd úrskurðaði að þar væri þjóðlenda. Dóms er að vænta í haust að loknum málflutningi. Innlent 13.10.2005 19:11
Gasbyssubóndi ber af sér sakir Flateyjarbóndinn Hafsteinn Guðmundsson, sem átti gasbyssu sem fannst við meint arnarhreiður í Borgarhólma í Hergilseyjarlöndum nú í apríl, heldur því fram að ernir hafi aldrei orpið í Borgarhólma og að gasbyssuhvellirnir hafi einungis verið til þess að fæla geldfugla frá æðarvarpi í hólmanum. Innlent 13.10.2005 19:11
Dómar birtast á netinu Í sumar eða undir haust er fyrirhugað að dómstólar landsins hefji allir birtingu dóma á netinu. Hingað til hefur Héraðsdómur Norðurlands eystra einn birt dóma með þeim hætti. Innlent 13.10.2005 19:11
Logandi jeppi hrökk í gang Mannlaus jeppabifreið hrökk í gang eftir að eldur kom upp í vélarhúsi hennar nokkru fyrir klukkan tvö í gær og rauk aftur á bak á næsta bíl í bílastæði við Egilsgötu rétt við Snorrabraut í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:11
Óvenju gestkvæmt á Hverfisgötunni Óvenju gestkvæmt var í fangageymslum lögreglunnar í Reykjavík í nótt, eða ellefu manns. Tveir þeirra sem þar dvelja nú voru teknir fyrir bílþjófnað og verða yfirheyrðir með morgninum og tveir, svokallaðir góðkunningjar, voru teknir þegar þeir komu sér inn í þvottahús í Norðurmýri þar sem þeir ætluðu að gista við lítinn fögnuð húseigenda. Innlent 13.10.2005 19:11
Fjölgað um fjóra á Akureyri Þann 1. júlí næstkomandi verður lögreglumönnum á Akureyri fjölgað um fjóra en 30 lögreglumenn eru nú starfandi á Akureyri. Á sama tíma verða fjórir sérsveitarmenn, sem starfa hjá lögreglunni á Akureyri, leystir undan föstum vöktum og munu þess í stað sinna löggæslu og sérstökum löggæsluverkefnum á Norður- og Austurlandi. Innlent 13.10.2005 19:12
5 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbundið, fyrir líkamsárás. Maðurinn var einnig ákærður fyrir aðild að annarri líkamsárás en var sýknaður af þeirri ákæru. Innlent 13.10.2005 19:11
Ákært vegna Dettifosssmygls Á mánudag var gefin út ákæra á hendur fimm mönnum í seinni hluta svokallaðs Dettifossmáls, eins umfangsmesta fíkniefnamáls sem hér hefur komið upp, að því er fram kemur í staðfestingu Hæstaréttar á gæsluvarðhaldi yfir einum mannanna. Innlent 13.10.2005 19:11
Barði mann með flösku Liðlega tvítugur maður þarf bara að sitja inni í tvo mánuði af fimm fyrir líkamsárásir haldi hann skilorð í þrjú ár. Þá þarf hann, samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra, að greiða manni sem hann barði í höfuðuð með flösku tæpar 160 þúsund krónur. Innlent 13.10.2005 19:11
Maðurinn fundinn Subaru Legacy bíll, sem lögreglan í Reykjavík auglýsti eftir í gær, er fundinn og ökumaðurinn einnig, heill á húfi. Maðurinn hafði farið að heiman frá sér og var óttast um hann. Innlent 13.10.2005 19:11
Útlendingar á batavegi Portúgalinn og Pólverjinn sem slösuðust þegar vinnupallur við Kárahnjúkastíflu gaf sig í gærdag voru útskrifaðir af gjörgæslu í dag. Ástand mannanna hafði verið stöðugt og voru þeir fluttir á almenna deild, en þeir hlutu talsvert mörg beinbrot. Mennirnir féllu niður úr átta til tíu metra hæð. Tveir menn sem einnig voru á vinnupallinum sluppu með minni háttar meiðsl. Innlent 13.10.2005 19:11
Reyna að sleppa við veggjald Dæmi eru um að ökumenn sem fara í gegnum Hvalfjarðargöngin taki númeraplöturnar af bílum sínum svo þeir sleppi við að borga veggjaldið. Innlent 13.10.2005 19:11
Lögregla leitar bifreiðar Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir bifreið af gerðinni Subaru Legacy með bílnúmerið Zeta Magnús 912. Hann er ljósgrár, árgerð 1996, og talið að bíllinn sé einhvers staðar í Borgarfirði eða nágrenni. Ef einhver hefur orðið var við þennan bíl er sá hinn sami beðinn að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 444-1100. Innlent 13.10.2005 19:11
Dæmdur fyri húsbrot og árás Rúmlega fertugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir húsbrot og líkamsárás. Maðurinn fór í heimildarleysi inn um opna svalahurð á heimili fyrrverandi sambýliskonu sinnar og sló hana þannig að hún hlaut áverka í andliti. Með broti sínu braut maðurinn skilorð. Í dómnum segir að hann hafi játað hreinskilningslega og hafi látið iðrun í ljós. Innlent 13.10.2005 19:11
Braust inn og barði konu Ríflega fertugur maður var í gær dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að brjótast síðastliðið sumar inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og lemja hana í andlitið. Maðurinn var þegar á skilorði og varð það til að þyngja dóminn. Innlent 13.10.2005 19:11
Sérsveit styrkt á Akureyri Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að styrkja sérsveit lögreglunnar á Norður- og Austurlandi með því að leysa fjóra sérsveitarmenn á Akureyri undan föstum vöktum. Í staðinn verður lögreglumönnum á Akureyri fjölgað um fjóra. Sérsveitarmönnunum er ætlað að sinna almennri löggæslu og sérstökum verkefnum á Norður- og Austurlandi. Innlent 13.10.2005 19:11
Stúlkur af Stuðlum fundnar Tvær stúlkur sem sem struku af meðferðarheimilinu að Stuðlum og leitað hefur verið að fundust í nótt. Að sögn lögreglu fundust þær á hóteli í Reykjavík og var allt í lagi með þær. Þær hafa verið fluttar að Stuðlum aftur. Innlent 13.10.2005 19:11
Skilorðsdómur fyrir ýmis brot Nítján ára piltur var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot, þjófnaði og eignarspjöll. Pilturinn braut skilorð með brotum sínum. Hann braust inn á heimili, inn í bíla og stal úr verslunum auk þess sem hann var tekinn í tvígang með fíkniefni í fórum sínum. Pilturinn segir brot sín hafa tengst fíkniefnavanda en hann hafi farið í meðferð síðan. Innlent 13.10.2005 19:11
Braust inn til að eiga fyrir efnum Nítján ára síbrotamaður var í gær dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa haft undir höndum rúm ellefu grömm af amfetamíni auk eilítils af tóbaksblönduðum kannabisefnum. Maðurinn braust þar að auki í fyrravor inn í bíla og íbúðir og hafði þaðan á brott með sér ýmis verðmæti. Innlent 13.10.2005 19:11
Tekinn með nammi Ferðalangur sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar bíður nú dóms eftir að hann kom til landsins með 30 kíló af sælgæti sem hann keypti um borð. Aðeins er leyfilegt að hafa með sér þrjú kíló. Innlent 13.10.2005 19:11
Ölvun helsta ástæða endurkrafna Ölvunarakstur var ástæða endurkröfu þremur af hverjum fjórum málum tryggingafélaga á hendur tjónvöldum í umferðinni á síðasta ári. Tryggingafélögin geta átt endurkröfurétt ef ásetningur eða stórkostlegt gáleysi olli tjóninu. Á síðasta ári bárust endurkröfunefnd 158 mál til úrskurðar og samþykkti nefndin endurkröfu að öllu leyti eða hluta í 140 málum, en þetta eru nokkru fleiri mál en árið á undan. Innlent 13.10.2005 19:11
Tveir útlendingar illa slasaðir Pólverji og Portúgali slösuðust alvarlega þegar vinnupallur sem þeir voru á féll niður um átta til tíu metra við Kárahnjúkastíflu um klukkan eitt í dag. Mennirnir voru við við vinnu á pallinum ásamt tveimur öðrum mönnum sem sluppu með minni háttar meiðsl. Stálboltar sem notaðir voru til að festa vinnupallinn við steypumót gáfu sig með fyrrgreindum afleiðingum. Innlent 13.10.2005 19:11
Flugþjónustan hafi brotið lög Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli braut gegn samkeppnislögum þegar hún gerði samning við flugfélagið LTU/International Airways. Þetta er samkvæmt úrskurði Samkeppnisstofnunar sem var birtur í morgun. Í úrskurðarorði segir að Flugþjónustunni sé óheimilt að gera eða framkvæma samninga um flugafgreiðslu vegna farþegaflugs á flugvellinunum sem feli í sér einkakaup á þeirri þjónstu félagsins og selja þá þjónustu á verði sem ekki stendur undir föstum og breytilegum kostnaði við hverja afgreiðslu. Innlent 13.10.2005 19:11
Stöðvaður með þýfi í Lækjargötu Lögreglan í Reykjavík handtók ökumann bifreiðar í nótt eftir að ýmsir hlutir sem talið er að ekki hafi verið fengnir á löglegan hátt fundust í bíl hans. Maðurinn var stöðvaður við hefðbundið eftirlit klukkan hálftvö í Lækjargötu. Hann virtist vera undir áhrifum og í bílnum var ýmislegt, tölvubúnaður og fleira, sem grunur leikur á að sé þýfi. Innlent 13.10.2005 19:11
Fékk bætur vegna samningsrofs Ferðarskrifstofa Akureyrar var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd til að greiða fyrrverandi starfsmanni rúmar 6 miljónir króna vegna riftunar á kaupsamningi. Maðurinn var ráðinn til starfa sem framkvæmdastjóri hjá ferðaskrifstofunni árið 2001 en var sagt upp störfum eftir að breytingar urðu á eignarhaldi fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 19:11
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir manni sem gefin er að sök aðild á smygli á rúmum 7,5 kílóum af amfetamíni með Dettifossi frá Þýskalandi til Íslands síðasta sumar. Innlent 13.10.2005 19:11
Fangar fara einir í flug Fangar eru oftast sendir fylgdarlausir í flugi milli Reykjavíkur og Akureyrar. Fangelsisyfirvöld meta í hverju tilviki hvort fylgdarmaður þyki nauðsynlegur. Ef ekki þá er fanganum fylgt á flugvöllinn og miði keyptur handa honum. Tekið er á móti honum á flugvellinum við lendingu. Innlent 13.10.2005 19:11
Sluppu naumlega í Mosfellsbæ Þrír piltar voru í hættu í gær þegar maður, sem sendur hafði verið af geðdeild, ók út af í Mosfellsbæ á bíl sem hann tók ófrjálsri hendi. Innlent 13.10.2005 19:11