Innlent

Fréttamynd

Samið um samstarf í kringum Airwaves til fjögurra ára

Icelandair, Reykjavíkurborg og viðburðafyrirtækið Herra Örlygur undirrituðu í dag fjögurra ára samstarfssamning um tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 1999 og stendur einmitt yfir þessa dagana.

Tónlist
Fréttamynd

Vilja stofna sérstakt Loftlagsráð

Þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem lagt er til að ríkisstjórninni verði falið að koma á fót Loftslagsráði sem meðal annars hafi það verkefni að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og annarra skaðlegra efna og meta líkleg áhrif loftslagsbreytinga á þjóðarhag og þjóðaröryggi.

Innlent
Fréttamynd

Varað við sandfoki á Mýrdalssandi

Vegagerðin varar við sandfoki á Mýrdalssandi og á minnir á að hálkublettir eru víða á Vesturlandi, Vestfjörðum og á Norðvesturlandi. Hálka er á Lágheiði. Þá er hálka og hálkublettir víða á Norðaustur-og Austurlandi.

Innlent
Fréttamynd

ESB fordæmir atvinnuveiðar Íslendinga

Evrópusambandið fordæmir nýhafnar hvalveiðar Íslendinga í atvinnuskyni og hvetur stjórnvöld til að endurskoða ákvörðunina. Í tilkynningu frá framkvæmdastjórn sambandsins, sem greint er frá á vef Reuters-fréttastofunnar, segir að hvalir séu viðkvæmur hlekkur lífkeðju hafsins sem þegar sé í hættu vegna veiða og mengunar af mannvöldum.

Innlent
Fréttamynd

Bradshaw hefur engan rétt til að tala svo harkalega til annarra þjóða

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, segir að starfsbróðir hans í Bretlandi hafi engan rétt til að tala til annarra þjóða með þeim hætti sem hann talaði til Íslendinga þegar hann gagnrýndi hvalveiðar Íslendinga í gær. Hvalur níu hefur enn ekki sett í hval eftir tæplega þriggja sólarhringa leit.

Innlent
Fréttamynd

Erlend lán í heimabönkum

Viðskiptavinum Frjálsa fjárfestingabankans hefur frá síðustu mánaðamótum staðið til boða að greiða af erlendum lánum í gegnum heimabanka eða með greiðsluseðlum, sem eru sendir heim. Fram til þessa hefur einungis verið hægt að greiða af erlendum lánum með millifærslum inn á reikning bankans í kjölfar bréflegrar tilkynningar um að komið sé að gjalddaga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Óbreyttir vextir hjá Íbúðalánasjóði

Íbúðalánasjóður efndi til útboðs á íbúðabréfum í gær og bárust tilboð að nafnvirði 16,1 milljarða krónur. Greiningardeild Glitnis segir í Morgunkorni sínu að ákveðið hafi verið að taka tilboðum fyrir 7 milljarða krónur. Vextir Íbúðalánasjóðs eru óbreyttur eftir útboðið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tvö íslensk fyrirtæki meðal þeirra efstu á Europe´s 500

Tvö íslensk fyrirtæki eru meðal þeirra tíu efstu á lista samtakanna Europe's 500 yfir framsæknustu fyrirtæki í Evrópu fyrir árið 2006. Alls eru fimm íslensk fyrirtæki á listanum og hefur störfum hjá þeim fjölgað hraðast að meðaltali í þeim 25 Evrópulöndum sem listinn nær til.

Innlent
Fréttamynd

Lög um Námsgagnastofnun verði endurskoðuð

Samkeppniseftirlitið beinir því til menntamálaráðherra að beita sér fyrir endurskoðun á lögum og reglum sem varða útgáfu og sölu Námsgagnastofnunar á kennsluefni fyrir grunnskólanema með hliðsjón af markmiði og ákvæðum samkeppnislaga. Enn fremur beinir eftirlitið þeim fyrirmælum til stofnunarinnar að skilið verði fjárhagslega á milli lögbundins rekstrar og rekstrar sem er í samkeppni við einkaaðila.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei fleiri útskrifast af framhaldsskólastigi en 2004-2005

Aldrei hafa fleiri nemendur úrskrifast af framhaldsskólastigi en skólaárið 2004-2005 samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Alls brautskráðust rétt rúmlega 4.800 nemendur af framhaldsskólastigi með hátt í 5300 próf en í þeim hópi voru konur nokkru fleiri en karlar.

Innlent
Fréttamynd

Ástralir fordæma hvalveiðar Íslendinga

Ástralía hefur nú bæst í hóp ríkja sem gagnrýna þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Umhverfisráðherra Ástralíu, Ian Campbell, segir í áströlskum fjölmiðlum að það sé sorglegt þegar þróað ríki eins og Ísland snúist gegn einum af mestu afrekum Í umhverfismálum á síðustu öld sem hafi verið að stöðva hvalveiðar.

Erlent
Fréttamynd

Alþjóðlegi beinverndardagurinn í dag

Dagurinn í dag er aþjóðlegur beinverndardagur og mun Beinvernd, sem er félag áhugafólks um beinþynningu halda upp á daginn ásamt 179 beinverndarfélögum innan Alþjóðabeinverndarsamtakanna, IOF, í yfir 80 löndum.

Innlent
Fréttamynd

Ný samtök um legslímuflakk

Til stendur að stofna íslensk samtök um sjúkdóminn endómetríósis eða legslímuflakk sem margar íslenskar konur hafa þurft að glíma við vegna langvinnra verkja í grindarholi, bólguskemmda og ófrjósemi. Meðferð er erfið og leiðir oft til langvarandi lyfjameðferðar, endurtekinna skurðaðgerða og skertrar frjósemi.

Innlent
Fréttamynd

Úrvalið af mjólkurvörum stórminnkar

Úrvalið í matvöruverslunum minnkar verulega á starfssvæði Mjólkursamlagsins í Búðardal á næstunni þar sem ekki er lengur hægt að panta mjólkurvörur frá Búðardal heldur verður að panta heilar og hálfar pakkningar frá Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Tvö hundruð milljóna tekjur af Airwaves

Hver erlendur gestur á Iceland Airwaves hátíðinni eyðir rúmum hundrað þúsund krónum að jafnaði meðan á dvöl hans stendur. Þetta er niðurstaða könnunar sem Reykjavíkurborg, ásamt nítján öðrum borgum á norðurslóðum, lét gera í fyrra um ýmsa atburði sem draga að ferðamenn. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn íhuga nú að koma á svipaðri árlegri hátíð.

Innlent
Fréttamynd

Verjast þarf botnvörpubanni

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra gerði hvalveiðar, hugsanlegt bann við botnvörpuveiðum í úthöfunum og ákvörðun um hámarksafla að umtalsefni í ræðu sinni á aðalfundi Landsambands íslenskra útvegsmanna sem hófst á Hótel Nordica í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ekki fundið langreyði ennþá

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur leitað að langreyði á miðunum vestur af landinu en enga fundið. Skipið var að leit hundrað mílur út af Breiðafirði þegar síðast spurðist.

Innlent
Fréttamynd

Tekur slaginn við ráðherra

„Ég tel mig eiga bærilega möguleika,“ segir Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sem sækist eftir 1. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningar til Alþingis næsta vor.

Innlent
Fréttamynd

Launamunur milli kynjanna 16 prósent

Launamunur hefur nánast staðið í stað í 12 ár þrátt fyrir fjölgun kvenna í fullu starfi og breytt viðhorf. Stjórnendur segja yngri konur hafa karllægari gildi. Heildarlaun kvenna í fullu starfi eru tæp 70 prósent af heildarlaunum karla.

Innlent
Fréttamynd

Kærði og var sagt upp

Fyrrum hliðvörður Alcan segir að sér hafi verið sagt upp vegna deilna við öryggisfulltrúa. Bergþóri Bergþórssyni var afhent gullúr fyrir vel unnin störf hálfu ári eftir að hann var rekinn frá fyrirtækinu.

Innlent
Fréttamynd

Löng bið og ónóg úrræði

Foreldrar fatlaðra barna sem leita til Sjónarhóls kvarta yfir að fjármagn, mannskap og úrræði vanti til að sinna börnum þeirra sem skyldi. Reikna má með að á milli 1500-1800 foreldar leiti til Sjónarhóls árlega, en þar eiga foreldrar barna sem eiga við langvarandi veikindi og fötlun að stríða rétt á ráðgjafaviðtölum.

Innlent
Fréttamynd

Veikir stöðu Íslands í málinu

Fyrirvari sem Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra setti við hvalveiðar kom stjórnarandstæðingum í opna skjöldu og var ræddur á Alþingi í gær.

Innlent
Fréttamynd

Mikil vonbrigði

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra segir þessar niðurstöður valda sér miklum vonbrigðum. „Við erum að sjá jákvæðar breytingar til jafnréttis en það virðist ekki vera að skila sér í launaumslagið.”

Innlent
Fréttamynd

Tollarnir haldast háir áfram

Ganga verður út frá því að fjörutíu prósenta lækkun verði á tollum í þeim vöruflokkum sem eru í samkeppni við innlendar kjötvörur, til dæmis nautakjöt, kjúklingar og svínakjöt, ef fyrirhuguð verðlækkun upp á allt að sextán prósent á að nást. Þetta er mat Samtaka atvinnulífsins.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfvirk mótmæli

Maður er drulluleiður á þessum yfirlætislegu afskiptum alltaf, segir Stefán Máni rithöfundur um mótmælin sem nú dynja á okkur vegna nýhafinna hvalveiða, m.a. frá Bretum og Bandaríkjamönnum. Þessi mótmæli eru sjálfvirk eins og Velvakandi og þreytandi pólitík sem snúast held ég ekkert um hvali. Við eigum ekki að fara á taugum þótt einhverjir túristar stappi niður fæti.

Innlent