Innlent

Fréttamynd

Hjólaði á bíl og slasaðist

Átján ára stúlka slasaðist þegar hún hjólaði á bíl á mótum Suðurgötu og Kirkjugarðsstígs í Vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Hún var flutt á slysadeild Landsspítalans og gekkst þar undir aðgerð. Tildrög slyssins eru óljós, en stúlkan var ekki með hjálm.

Innlent
Fréttamynd

Snarpur skjálfti í Dyngjujökli

Jarðskjálfti upp á 3,8 á Richter varð í Dyngjujökli um klukkan hálfsjö í gærkvöldi og síðan fylgdu tugir eftirskjálfta. Jafnt og þétt hefur dregið úr styrkleika þeirra í nótt og telja jarðvísindamenn skjálftann ekki fyrirboða frekari tíðinda enda skjálftar tíðir á þessum slóðum þótt skjálftinn í gærkvöldi hafi verið í snarpasta lagi.

Innlent
Fréttamynd

Nylon í efsta sæti í Bretlandi

„Þetta var algjör draumur. Queen hefur alltaf verið uppáhaldshljómsveitin mín. Ég er ennþá að jafna mig,“ sagði Steinunn Camilla, meðlimur stúlknarhljómsveitarinnar Nylon, um hrós Brian May, sem kunnastur er fyrir gítarleik sinn með hljómsveitinni Queen.

Innlent
Fréttamynd

Óvíst hvort af samvinnu verði

Óvíst er hvort verði af samvinnu Íslands og Noregs í kaupum á björgunarþyrlum. Láti Norðmenn hernaðarleg sjónarmið ráða í vali á þyrlutegund verður samvinnan að engu. Fyrirhugað er að þjóðirnar ræði saman um sameiginlegt útboð á þyrlum til íslensku Landhelgisgæslunnar og norsku strandgæslunnar.

Innlent
Fréttamynd

Dregur ályktanir lögreglu í efa

Hæpið er að tala um að umferðarátakið Nú segjum við Stopp sé ekki að skila sér til ökumanna þótt fleiri séu nú stöðvaðir fyrir hraðakstur en áður. Þetta segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, um ályktanir lögreglu um að átakið sé ekki að skila sér til ökumanna.

Innlent
Fréttamynd

Þarf að skoða fleira en launin

Mönnunarvandi á leikskólum í Reykjavík var meðal þess sem rætt var á fundi leikskólaráðs fyrir helgi. Um helgina vantaði enn 38 starfsmenn á leikskóla í Reykjavík, sem var svipaður fjöldi og fyrir viku síðan.

Innlent
Fréttamynd

Þyrla sótti slasaða konu

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti laust eftir hádegi í gær konu sem slasast hafði rétt við Hvolsvöll og flutti hana á Landspítala í Fossvogi. Konan hafði fallið af hesti þegar hún var í reiðtúr ásamt fjölskyldu sinni og missti við það meðvitund.

Innlent
Fréttamynd

Skotið úr riffli nálægt manni

Skotið var af riffli nálægt manni við Óbrynnishóla við Hafnarfjörð í fyrrakvöld. Meðferðferð skotvopna þar er með öllu bönnuð en lögreglan í Hafnarfirði segir að nokkuð hafi borið á því að menn séu með byssur þar. Svæðið er gamalt skotsvæði.

Innlent
Fréttamynd

Jeppaflugvél á Langjökli

Feðgarnir Jón Kristleifsson og Þorsteinn Jónsson eru stoltir eigendur sérútbúinnar „jeppaflugvélar“. Vélin er af gerðinni Super Cub frá um 1940 en á hana hafa verið sett þrjátíu og einnar tommu dekk sem eru sérútbúin fyrir erfiðar aðstæður í Alaska.

Innlent
Fréttamynd

Forvarnir gegn brunaslysum

Samningur um forvarnar­samstarf gegn brunaslysum af völdum heits vatns var undirritaður á milli Orkuveitu Reykjavíkur og Sjóvá Forvarnarhúss á fimmtudaginn. Sjóvá Forvarnarhús mun leiða verkefnið með stuðningi og fulltingi Orkuveitu Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Breytist ekki í bílahlussu

„Það stóð nú alltaf til að taka bílprófið en það tafðist í 15 ár vegna annarra verkefna. Svo sá ég smugu í stundaskránni og dreif í þessu," segir Freyr Eyjólfsson, dagskrárgerðarmaður á Rás 2, sem fékk loksins ökuskírteinið í síðasta mánuði. Hann bættist þar með í hóp með mönnum eins og Bubba Morthens og Merði Árnasyni, sem tóku bílprófið seint og um síðir.

Innlent
Fréttamynd

Aldrei dauður punktur með Jóni Kr.

Ferðafélagarnir Steinn Skaptason, Birgir Baldursson og Trausti Júlíusson fóru í pílagrímsferð vestur á Bíldudal í sumar. Þeir færðu Jóni Kr. Ólafssyni í tónlistarsafninu Melódíur minninganna nokkrar gullplötur með Sálinni.

Innlent
Fréttamynd

Fólk að flytja heim aftur

Þeir sem fluttu frá öðrum landshlutum til Fljótsdalshéraðs á fyrri helmingi þessa árs voru 25 fleiri en þeir sem fluttu í burtu. Þann 1. ágúst voru íbúar á Fljótsdalshéraði 4.764.

Innlent
Fréttamynd

Jarðgöng óháð umhverfismati

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að gerð jarðganga undir Vaðlaheiði í Svalbarðsstrandarhreppi og Þingeyjarsveit skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Fornleifanefnd ríkisins segir að rannsóknir á fornleifum á svæðinu séu nauðsynlegar áður en framkvæmdir hefjist.

Innlent
Fréttamynd

Gangsett með rafmagni frá háhitasvæðum

Ómar Ragnarsson sjónvarpsfréttamaður er hættur að fjalla um umhverfismál í fréttum og ætlar að beita sér fyrir því að Kárahnjúkavirkjun verði ekki sett í gang fyrr en eftir sex ár þegar tekst að útvega rafmagn til þess frá háhitasvæðum á Norðausturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Gefa út ritið Níutíu raddir

Landssamband sjálfstæðis­kvenna hefur gefið út ritið Níutíu raddir sem geymir greinar eftir jafn margar konur. Landssambandið fagnar nú 50 ára afmæli og kemur greinasafnið út í tengslum við þau tímamót.

Innlent
Fréttamynd

Félaginu gerðar upp skoðanir

Læknafélagi Íslands hafa verið gerðar upp skoðanir af hálfu Félags svæfingar- og gjörgæslulækna. Gengið sé út frá staðlausum stöfum þegar fullyrt sé að Læknafélagið vilji tefja framkvæmdir á uppbyggingu nýs sjúkrahúss við Hringbraut. Þær framkvæmdir hafi Læknafélagið stutt opinberlega frá árinu 2000. Þetta segir formaður Læknafélags Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Fáir sammála tillögu Samfylkingarinnar

Talsmenn stjórnmálaflokkanna eru ekki sammála tillögu Samfylkingar um lækkun matvöruverðs. Þeir segja niðurfellingu innflutningstolla geta farið illa með íslenskan landbúnað og efast um að breytingarnar skili sér í vasa neytenda.

Innlent
Fréttamynd

Úr apaflösu í fræðaklaustur

„Af mér er það helst að frétta að ég bý á bak við míkrófón þessi misserin, er að gera viðtalsrannsókn á íslenskum skjalasöfnum og svo tók ég líka viðtöl við fullt af listamönnum og listasafnsfólki í sumar, en þau birtust í Póstpostillu sem kom út í tengslum við sýninguna Pakkhús postulanna í Listasafni Reykjavíkur,” segir Oddný Eir Sturludóttir.

Innlent
Fréttamynd

Jafnt hlutfall í efstu sætunum

Landssamband framsóknarkvenna leggur áherslu á að kynjahlutfall sé jafnt í fjórum efstu sætum framboðslista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Fjögur efstu sætin hafi mest um það að segja hverjir fái sæti á Alþingi og mikilvægt sé að rétta hlut kvenna á Alþingi. Þannig geti konur haft áhrif á áframhaldandi mótun samfélagsins. Þetta kemur fram í ályktun frá sambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Lífsstíll fyrir karla og konur

Nýtt tímarit, Tímaritið H, er að hefja göngu sína og kemur fyrsta tölublaðið út í nóvember. Ritstjóri er Steingerður Steinarsdóttir, fyrrverandi blaðamaður hjá Fróða, og hefur hún þegar tekið til starfa.

Innlent
Fréttamynd

Ók of hratt viku eftir bílpróf

Lögreglan í Reykjavík kærði 24 ökumenn fyrir of hraðan akstur á einni og hálfri klukkustund í fyrrakvöldi, aðallega á Hringbraut og Miklubraut. Það er langt yfir meðallagi. Sá yngsti sem var stöðvaður er 17 ára og var aðeins rúm vika frá því að hann tók bílpróf. Pilturinn hafði því ekki fengið ökuskírteinið í hendur og varð að framvísa bráðabirgðaskírteini.

Innlent
Fréttamynd

Segja hæfari umsækjendur hafa verið sniðgengna

Félagsráðgjafar eru ósáttir við ráðningu sviðsstjóra velferðarsviðs. Fimm félagsráðgjafar sóttu um stöðuna, þar af tveir með doktorspróf í faginu. Stella Víðisdóttir viðskiptafræðingur var ráðin í stöðuna.

Innlent
Fréttamynd

Valinn með póstkosningu

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi verður valinn með póstkosningu. Þetta var samþykkt á fundi kjördæmissambands flokksins á laugardag. Stjórn kjördæmissambandsins lagði til að farin yrði önnur leið en sú tillaga var felld.

Innlent
Fréttamynd

Launahækkanir segja til sín

Byggingarvísitalan mælist nú 352,3 stig og hefur hækkað um 0,9 stig, eða 0,26 prósent, frá því í síðasta mánuði. Byggingarvísitalan hefur hækkað meira en vísitala neysluverðs síðustu tólf mánuði. Munurinn nemur 3,8 prósentum.

Innlent
Fréttamynd

Upplýsir um ástand hverfa

Lögreglan í Hafnarfirði ætlar að kynna foreldrum ástand mála í þeirra hverfi í bænum í vetur með því að senda reglulega tölvubréf. Þetta verður gert í gegnum skólana og verður til dæmis farið yfir hópamyndanir unglinga og eignaspjöll í bréfunum ef slíkt er fyrir hendi í viðkomandi hverfi.

Innlent
Fréttamynd

Rannsaka þarf varnarsvæðið

Viðar Már Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri hjá Reykjanesbæ, er sammála því að alls konar mengun og eiturefni geti legið í jörðu á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Mönnum var ekkert heilagt hér áður fyrr og sum efni lifa lengi í jarðvegi án þess að fyrnast eða eyðast.

Innlent