Innlent

Fréttamynd

Sjúkraliðar flýja lág laun, álag og ofbeldi

Sjúkraliðar á LSH bíða nú eftir gerð nýs stofnanasamnings. Fjöldi sjúkraliða hefur flúið spítalann vegna mikils álags og ofbeldis. Margir þeirra hafa gerst félagsliðar og hækka þannig laun sín.

Innlent
Fréttamynd

Mörg rannsóknarúrræði fyrir hendi

Engin afdráttarlaus lagaákvæði eru til hér á landi um að lögregla megi hefja rannsókn í "fyrirbyggjandi" tilgangi. Þetta segir prófessor í lagadeild Háskóla Íslands um rannsóknarheimildir lögreglu, sé rökstuddur grunur ekki til staðar.

Innlent
Fréttamynd

Umhverfi skólans hættulegt börnum

Leikskólabörn leikskólans Sjálands í Garðabæ eru talin í hættu vegna þess að framkvæmdir við aðgengi leikskólans hafa dregist úr hömlu. Að mati stjórnenda skólans átti verktakinn Björgun Bygg sf. að skila viðunandi aðgengi fyrir mörgum mánuðum. Aðstandendur skólans hafa skrifað verktakanum ítrekað til að reka á eftir því að verkið verði klárað en án árangurs.

Innlent
Fréttamynd

Öræfi og sjálflýsandi svín

„Ég fékk snemma áhuga á náttúrunni. Það var ekki síst fósturforeldrum mínum að þakka en þær voru ófáar gönguferðirnar sem við fórum saman í þegar ég var barn,“ segir Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskóla­setursins á Hornafirði. Þorvarður er líffræðingur og doktor í náttúruheimspeki. Hann segir þá námsblöndu hafa orðið til þegar hann starfaði sem landvörður samhliða námi. „Í starfinu dvaldi ég lengi á öræfum. Þar kynntist ég náttúruverndarsjónarmiðum og mikilvægi þess að vernda þessi stórkostlegu svæði. Síðar kynntist ég svo sið- og fagurfræðilegu hliðinni á þessu máli og þannig vafði þetta upp á sig,“ segir Þorvarður.

Innlent
Fréttamynd

Bið eftir verslunarhúsnæði

Lóðahafar á Kringlusvæðinu vinna nú að deiliskipulagi fyrir Kringlureitinn og sú vinna verður kynnt borgaryfirvöldum síðar á árinu. Þeir sem skipa verkefnishópinn eru lóðahafar á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Hann ætlaði að drepa mig

Maður á tvítugsaldri vopnaður hnífi reyndi á þriðjudagskvöldið að ræna söluturninn Leifasjoppu við Iðufell í Reykjavík. Eigandi söluturnsins segir að ræninginn hafi ekki litið við peningakassanum. Hann heldur að maðurinn hafi ætlað að drepa sig.

Innlent
Fréttamynd

Ráðstafana oft þörf áður en skaðinn er skeður

Það er hlutverk lögreglu að gæta almannaöryggis, halda uppi lögum og reglu og tryggja réttaröryggi borgaranna, segir Bogi Nilsson ríkissaksóknari, spurður álits á rannsókn lögreglu, sem sem beinst gæti að hugsanlegum undirbúningi hryðjuverka.

Innlent
Fréttamynd

Liðsheildin verður sterkari

Forysta Nýs afls hefur ákveðið að leggja samtökin niður sem stjórnmálaflokk og hvetja félagsmenn til að ganga í Frjálslynda flokkinn. Jón Magnússon, formaður Nýs afls, segir þessa tilhögun hafa átt sér dálítinn aðdraganda. Formlegar viðræður stóðu ekki lengi en upphaf þeirra var fyrir síðustu kosningar, segir Jón. Frumkvæðið hafi komið frá fólki sem stóð utan flokkanna tveggja.

Innlent
Fréttamynd

Almennir fjár-festar græða

Hlutabréf Gengi hlutabréfa í Exista hefur hækkað um rúm tíu prósent eftir að félagið var skráð í Kauphöll Íslands í lok síðustu viku. Þetta þýðir að þeir sem tóku þátt í hlutafjárútboði til almennra fjárfesta og fengu hámarksskammt hafa hagnast um 25 þúsund krónur. Alls óskuðu 7.400 fjárfestar eftir því að kaupa hlutabréf í hinum almenna hluta útboðsins og varð þrjátíuföld umframeftirspurn.

Innlent
Fréttamynd

Fríhöfnin þyrfti að efla upplýsingagjöf

Bannað er að fljúga með vökva í handfarangri beint til annarra landa frá Bandaríkjunum, jafnvel þó að vökvinn hafi verið innsiglaður í Fríhöfninni. Fríður Helgadóttir skorar á Fríhöfnina að upplýsa fólk betur um þetta.

Innlent
Fréttamynd

Ræddu harðvítugar deilur í Skálholti

Kirkjuráð Þjóðkirkjunnar segir uppsögn Hilmars Arnar Agnarssonar vera hluta af skipulagsbreytingum sem boðaðar hafa verið í Skálholti en ráðið hefur greitt rúmlega áttatíu prósent af launum organista í Skálholti um fimmtán ára skeið. Kirkjuráðið fjallaði í gær um breytingar sem stjórn Skálholts hefur boðað á skipulagi og starfsemi Skálholtsstaðar.

Innlent
Fréttamynd

Vakað fyrir vísindunum

Vísindavakan er tileinkuð vísindamönnum og haldinn hátíðleg í fjölda borga Evrópu á morgun. Markmiðið er að vekja áhuga almennings á vísindum og auka þekkingu almennings á störfum þeirra og mikilvægi. Alls verða kynnt 50 rannsóknarverkefni og verður áhersla lögð á að upplýsingum verði komið á framfæri á aðgengilegan og líflegan hátt.

Innlent
Fréttamynd

Á leið í útkall

Lögreglubíll lenti í harkalegum árekstri á leið sinni í útkall vegna ránsins í Iðufelli. Talið er að lögreglubíllinn hafi farið yfir á rauðu ljósi á gatnamótum Bústaðavegar og Grensásvegar og keyrt inn í bíl sem beygði fyrir hann.

Innlent
Fréttamynd

Slapp vel eftir fimm metra fall

Sjö ára drengur féll tæpa fimm metra úr tré á skólalóð Austurbæjarskóla um fjögurleytið í gær. Í fyrstu var talið að drengurinn hefði slasast á hálsi en að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans í Fossvogi slasaðist drengurinn ekki alvarlega. Fylgst verður með drengnum áfram en talið er að hann hafi sloppið með minniháttar áverka. Að sögn lækna ber drengurinn sig vel miðað hversu mikið fallið var.

Innlent
Fréttamynd

Var á leið yfir gangbraut

Ekið var á átta ára gamla stúlku þar sem hún var gangandi á leið í skólann í gærmorgun. Stúlkan var á leið yfir gangbraut við gatnamót Háaleitisbrautar og Fellsmúla þegar slysið varð. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans með áverka á andliti. Samkvæmt upplýsingum lögreglu reyndust meiðsli hennar þó minni háttar og því fór betur en á horfðist.

Innlent
Fréttamynd

Skaðabótamál tekið fyrir

Skaðabótamál Reykjavíkurborgar og Strætó bs gegn olíufélögunum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Olíufélögunum er gefið að sök að hafa haft verðsamráð í útboðum til borgarinnar og fyrirtækja hennar. Krafa borgarinnar nemur samtals rúmlega 150 milljónum auk dráttarvaxta. Málið var þingfest í apríl síðastliðnum og á næsta fyrirtaka að eiga sér stað hinn 9. október næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri vildarpunktar

Svokölluð Visa Lán standa viðskiptavinum Icelandair nú til boða og segir á vefsíðu fyrirtækisins að það sé í boði í fyrsta sinn í ferðaþjónustu á Íslandi. Með þessu láni sé hægt að dreifa greiðslum á pakkaferðum á vefnum, fá staðgreiðsluverð þó greitt sé með korti, greiða lægri vexti af láninu en ella auk þess sem vildarpunktar fáist frá Visa auk þeirra sem fást við kaupin á pakkanum.

Innlent
Fréttamynd

Lyftari keyrði á gangandi mann

Lyftari ók á starfsmann steypuskála Norðuráls við Grundartanga seint á mánudagskvöld. Maðurinn meiddist lítillega og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur til aðhlynningar.

Innlent
Fréttamynd

Í haldi fyrir kynferðisbrot

Lögreglan í Reykjavík handtók í gær fimmtíu og tveggja ára gamlan karlmann vegna gruns um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. Grunur leikur á því að fórnarlömb mannsins séu fleiri en eitt. „Ég get staðfest það að maðurinn er í haldi lögreglu. Hann er í yfirheyrslum vegna grunsemda um kynferðisofbeldi gagnvart fleiri en einu barni. Hann hefur unnið sem blaðberi að undanförnu. Við erum að skoða þetta mál ítarlega en rannsókn málsins er stutt komin,“ segir Bjarnþór Aðalsteinsson.

Innlent
Fréttamynd

Býður sig fram í þriðja sætið

Illugi Gunnarsson hagfræðingur gefur kost á sér í þriðja sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sameiginlegt prófkjör er fyrir Reykjavíkurkjördæmin bæði og stefnir Illugi því að því að skipa annað sætið á öðrum hvorum framboðslistanum.

Innlent
Fréttamynd

Forfeður Kelta spænskir fiskimenn

Breskur vísindamaður á sviði erfðarannsókna fullyrðir að forfeður Kelta á Bretlandseyjum séu spænskir fiskimenn. Þar með mætti leiða líkur að því að drjúgur hluti Íslendinga geti rakið ættir sínar til Spánarstranda.

Innlent
Fréttamynd

Vandi á höndum ef laun sjúkraliða ekki leiðrétt

Heilbrigðiskerfið lendir í miklum vanda ef laun yngri sjúkraliða verða ekki leiðrétt hið bráðasta, segir formaður Sjúkraliðafélagsins. Sífellt fleiri hverfi til annarra starfa sem krefjist minni menntunar, en gefi mun meira í aðra hönd.

Innlent
Fréttamynd

Hálf bölvað ástand

,,Ástandið er hálf bölvað" segir Árni Bjarnason, sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps, en sveitarfélagið er án háhraðanettengingar þrátt fyrir að vera aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð frá Akureyri. Hluta af söluandvirði Símans á að nota til háhraðatengingar við svæði sem verið hafa án þess, en sveitarstjórinn segir að ekki hafi verið staðið við það hvað hans sveitarfélag varðar.

Innlent
Fréttamynd

Misneyting ekki sögð fela í sér ofbeldi

Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður telur varhugavert að færa kynferðislega misneytingu og nauðgun undir sömu lagagrein, eins og gert er ráð fyrir í frumvarpsdrögum dómsmálaráðherra. Hann telur misneytingu ekki fela í sér ofbeldi. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins vill skjótvirkari úrræði gagnvart þeim sem beita heimilisfólk sitt ofbeldi.

Innlent
Fréttamynd

Barist gegn því að Gunnar Gunnarsson fengi Nóbelsverðlaun

Skjöl í sænskum söfnum sanna að íslenskir áhrifamenn lögðust af hörku gegn því að rithöfundurinn Gunnar Gunnarsson, hlyti Nóbelsverðlaunin ásamt Halldóri Kiljan Laxness. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor segir engin skjöl renna stoðum undir fullyrðingar um að áhrifamenn hafi reynt að hafa verðlaunin af Halldóri vegna stjórnmálaskoðana hans.

Innlent