Innlent
285 286 287 288 289 290 291 292 293 … 334 ›
Hagnaður Sparisjóðabankans aldrei meiri Hagnaður Sparisjóðabanka Íslands á fyrri helmingi ársins nam rúmum 1,7 milljarði króna sem er 129,9 prósenta aukning á milli ára og hefur hagnaðurinn aldrei verið meiri á sex mánaða tímabili. Hagnaðurinn svarar til 50,8 prósenta arðsemi eigin fjár miðað við heilt ár og er það með því hæsta sem þekkist meðal innlendra og erlendra fjármálafyrirtækja. Viðskipti innlent 15.8.2006 14:59
Stefnir í metþátttöku í Reykjavíkurmaraþoni Útlit er fyrir að metþátttaka verði í Reykjavíkurmaraþoni á laugardag því þrefalt fleiri hafa skráð sig til leiks nú en á sama tíma í fyrra. Ástæðan er meðal annars sú að fyrirtæki heita nú á starfsfólk sitt í hlaupinu og rennur allur ágóðinn til góðgerðarmála. Innlent 15.8.2006 12:35
Bensínverð lækkaði um eina krónu Bensínorkan lækkaði bensínverð um eina krónu og sextíu aura á lítrann í morgun. Að sögn talsmanns félagsins var þetta gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði og þrátt fyrir að dollarinn hafi aðeins hækkað gagnvart krónunni. Innlent 15.8.2006 12:29
Viðgerðir á Hringvegi 1 Vegna slitlagsviðgerða verður Hringvegur 1 lokaður til suðurs frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng til kl. 19 í dag og frá kl 9 til 14 á morgun. Vegfarendum er bent á að aka Akrafjallsveg. Innlent 15.8.2006 13:05
Ekki vitað hvort Dell-fartölvur hér séu með gallaða rafhlöðu Stærsti tölvuframleiðandi í heimi, Dell, hyggst innkalla ríflega fjórar milljónir fartölvurafhlaðna vegna hættu á að það kvikni í þeim. Ekki liggur fyrir hvort einhverjar fartölvur hér á landi eru með rafhlöðutegundina sem um ræðir. Innlent 15.8.2006 12:24
Töldu sig ekki mega versla á frísvæði Keflavíkurflugvallar Hertar öryggisreglur á Keflavíkurflugvelli hafa áhrif á mörgum ólíkum sviðum. Til dæmis þorðu margir brottfararfarþegar ekki að versla á frísvæðinu í flugstöðinni í morgun af ótta við að brjóta reglur, en svo er þó ekki. Innlent 15.8.2006 12:15
Funduðu á Ísafirði í gær Það hljóp á snærið hjá þeim sem leita logandi ljósi að klíkumyndun vegna leiðtogakjörs í Framsóknarflokknum þegar fréttir bárust af því að þrír frambjóðendur til þriggja æðstu embætta flokksins hefðu sameiginlega efnt til fundar með framsóknarmönnum á Ísafirði í gærkvöldi. Innlent 15.8.2006 12:06
Landsvirkjun semur við TM Software Landsvirkjun hefur gert samning við TM Software um uppsetningu símstöðva og búnaðar sem byggist á nýjustu IP-símatækni fyrir skrifstofu Landsvirkjunar á Akureyri, í Laxárstöð og Fljótsdalsstöð, Kárahnjúkum. Í verkinu felst meðal annars forritun, uppsetning, prófanir og kennsla á IP-símstöðvarnar og símabúnaðinn sem þeim tilheyrir. Viðskipti innlent 15.8.2006 11:04
Féll af hestbaki Kona féll af hestbaki í Norðurárdal í gær og varð undir hestinum. Hún var flutt á Slysadeild Landsspítalans af ótta við að hún hafi meiðst innvortist, en rannsóknir leiddu það ekki í ljós. Til öryggis var hún undir eftirlits lækna á sjukrahúsinu á Akranesi í nótt, þar sem hún er þaðan. Innlent 15.8.2006 09:40
Innbrotsþjófur handtekinn Ungur innbrotsþjófur var handtekinn eftir að hann braust inn í apótek við Álfabakka í Breiðholti í Reykjavík um þrjú leitið í nótt. Lögreglugmenn gripu hann á staðnum og kom þá í ljós að þetta var sami þjofurinn og lögreglan handtók í fyrrinótt fyrir að hafa brotist inn í sama apótek og annað til viðbótar um nóttina. Eftir það var hann vistaður í fangageymslum en sleppt að yfirheryslum loknum í gær. Það verður væntanleg gert aftur í dag og býst lögregla allt eins við að hann fari enn á kreik í nótt.- Innlent 15.8.2006 09:38
Mega bæta þremur kílóum við farangurinn Icelandair hefur ákveðið að heimila fólki að bæta þremur kílóum við farangur sinn, sem fer í lest flugvélanna, þannig að heildarþyngd verði 23 kíló, áður en til greiðlsu á yfirvigt kemur. Innlent 15.8.2006 08:31
Kreditkortavelta eykst um nær fjórðung Kreditkortavelta heimilanna á fyrri helmingi ársins var 22,1 prósenti meiri en á sama tíma fyrir ári. Samkvæmt Hagstofunni er hefur veltan aukist um 18,3 síðustu tólf mánuði samanborið við mánuðina tólf þar á undan. Innlent 15.8.2006 08:11
Á 116 kílómetra hraða á Sæbraut Lögregla stöðvaði vélhjólamann á Sæbraut í Reykjavík um miðnætti, eftir að hann hafði mælst á 116 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60 kílómetar. Hann var auk þess með farþega á hjólinu. Fjögurra kílómetra hraða vantaði upp á að hann væri á tvöföldum hámarkshraða, en þá hefði hann misst ökuréttindin. Innlent 15.8.2006 08:05
Kreditkortavelta eykst um 22,1% Kreditkortavelta heimilanna á fyrri helmingi ársins var 22,1 prósent meiri en á sama tíma fyrir ári. Innlent 14.8.2006 22:20
Ástand vinnumarkaðar Starfandi aðilum á vinnumarkaði hefur fjölgað á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Samkvæmt Hagstofunni voru 163.800 manns á vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi ársins 2005 en nú eru 171.600 manns starfandi. Innlent 14.8.2006 22:15
Hertar öryggisreglur í Leifsstöð Öryggisreglur hafa verið hertar til muna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Íslendingar sem hyggjast ferðast erlendis eru vafalítið óöruggir um hvað þeir mega og eiga að gera. Innlent 14.8.2006 20:52
Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er komið á að nýju í Fellahverfi í Breiðholti, en þar og við Vesturberg og á nærliggjandi götum varð rafmangslaust um kl. 18:40 í kvöld. Bilun varð í háspennukerfinu og er nú unnið að fullnaðarviðgerð. Innlent 14.8.2006 20:19
Útilokar ekki að fjölga friðargæsluliðum Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, leggur mikla áherslu á þátttöku Íslendinga í friðargæslu á Srí Lanka. Ákvörðun verður tekin síðar í vikunni en Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra útilokar ekki að íslenskum friðargæsluliðum verði fjölgað, þrátt fyrir vaxandi ólgu. Erlent 14.8.2006 19:03
Öryggisreglur gilda um alla flugfarþega Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að þær kröfur sem gerðar hafa verið til flugfarþega á leið til Bretlands og Bandaríkjanna gildi nú um alla farþega þar til annað verður ákveðið. Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu. Erlent 14.8.2006 18:57
Vilja stöðva agaleysi í framúrkeyrslum fjárheimilda Sitjandi formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að ræða verði við fjármálaráðuneytið og forstöðumenn helstu stofnana til að stöðva agaleysi í framúrkeyrslum fjárheimilda. Sem dæmi fóru Háskólinn á Akureyri og Landhelgisgæslan langt fram úr heimildum eða samtals um nærri hálfan milljarð króna. Innlent 14.8.2006 18:41
Kristinn H. býður sig fram til ritara Kristinn H. Gunnarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til ritara á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi. Hann segir áherslur sínar í velferðarmálum og öðrum málaflokkum vera þau vopn sem flokkurinn þarf á að halda til að ná sínu fyrra fylgi. Innlent 14.8.2006 18:48
Á ekki þátt í auglýsingu um "meðferð " við samkynhneigð Þjóðkirkjan þvær hendur sínar af auglýsingu Samvinnuhóps kristinna trúfélaga, þar sem fólki er boðin meðferð til að losna úr viðjum samkynhneigðar. Hún er ekki sögð í samræmi við þær áherslur sem nú eru til umræðu innan Þjóðkirkjunnar. Innlent 14.8.2006 18:35
Mótmælendur héldu starfsfólki í gíslingu Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar stormuðu inn á skrifstofu fyrirtækisins Hönnunar á Reyðarfirði í dag og héldu starfsfólki þar í gíslingu. Samtímis var farið inn á byggingarsvæði Bechtel og ALCOA og vinna þar stöðvuð. Mótmælendurnir eiga nú yfir höfði sér kæru vegna skemmdarverka og frelsissviptingar. Innlent 14.8.2006 18:43
11 torfærustólar teknir í notkun Íþróttasamband fatlaðra tekur í notkun 11 torfæruhjólastóla á morgun, en þeir hafa staðið óhreyfðir í átta mánuði vegna deilna sambandsins við tollayfirvöld hér á landi. Stólarnir komu til landsins í janúar. ÍF sótti um niðurfellingu aðflutningsgjalda en var hafnað. Málið var kært og var niðurfelling gjalda staðfest nú í júlí. Innlent 14.8.2006 17:09
Viðbótarfé til Líbanons Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita viðbótarfé til mannúðar- og neyðaraðstoðar í Líbanon. Það framlag nemur fjórtán komma tveimur milljónum króna. Það kemur til viðbótar tíu milljónum króna sem veittar voru í lok júlí. Framlagið núna skiptist jafnt á milli Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða Rauða krossins. Innlent 14.8.2006 17:28
FL Group tapar á öðrum ársfjórðungi FL Group hagnaðist um rúma 5,7 milljarða króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæpum 3,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 6,3 milljörðum króna en hann var rúmir 2,3 milljarðar króna fyrir ári. FL Group tapaði 118 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, sem er nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið skilaði rúmlega 1,9 milljarða króna hagnaði. Viðskipti innlent 14.8.2006 17:02
Segir mótmælendur hafa haldið starfsfólki í gíslingu Hópur andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar lét að sér kveða á Reyðarfirði í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Eskifirði fór einn maður inn á byggingarsvæði álvers Alcoa og stöðvaði þar vinnu í eina til tvær klukkustundir. Þá fór um 10 manna hópur inn á skrifstofur. Innlent 14.8.2006 14:07
Kristinn H. vill í ritaraembættið Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins gefur kost á sér í embætti ritara Framsóknarflokksins. Þar með hafa þrír lýst yfir vilja til að gegna embætti ritara flokksins en ný forysta verður kjörin á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi. Auk Kristins hafa Birkir Jón Jónsson þingmaður og Haukur Logi Karlsson formaður SUF gefið kost á sér í embættið. Innlent 14.8.2006 13:58
Sandgerðisvegur lokaður í dag og á morgun Sandgerðisvegur verður lokaður frá Miðnesheiðarvegi að Garðskagavegi í dag og á morgun vegna. Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinna að vegurinn verði þó opinn í nótt til kl. níu í fyrramálið. Vegfarendum er bent á að aka Garðskagaveg. Innlent 14.8.2006 13:15
Dregur úr sölu á nýjum íbúðum Nýjum fullbúnum íbúðum, sem standa tómar og seljast ekki, fjölgar dag frá degi á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma verður víða vart tómra íbúða í grónum hverfum þaðan sem fólk er flutt í nýjar íbúðir en getur ekki selt þær gömlu. Innlent 14.8.2006 12:34