Innlent

Fréttamynd

Ölfusárbrú var lokað vegna framkvæmda

Ölfusárbrú við Selfoss var lokað frá klukkan níu í gærkvöldi og fram undir klukkan tvö í nótt vegna vinnu við hringtorgið við annan brúarsporðinn og malbikunarframkvæmda í miðbæ Selfoss.

Innlent
Fréttamynd

Sérsveitarmenn yfirbuguðu sextán ára pilt

Sérsveitarmenn lögreglunnar í Reykjavík voru sendir á vettvang til að yfirbuga sextán ára pilt sem ógnaði heimilisfólki sínu með hnífi í heimahúsi í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þegar þeir komu á staðinn var engu tauti komið við piltinn, sem gekk berserksgang og gripu lögreglumenn þá til táragass, til að yfirbuga hann.

Innlent
Fréttamynd

Íbúðalán bankanna ekki meiri síðan í fyrra

Ný íbúðalán bankanna námu um 5,5 milljörðum króna í maí. Á sama tíma lánaði Íbúðalánasjóður 6,0 milljarða krónur til íbúðarkaupa. Útlán bankana hafa aukist jafnt og þétt á síðustu mánuðum og hafa ekki verið meiri síðan í maí í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rígur um tilboð í Stork

Rígur er á milli stærstu hluthafa hollensku samstæðunnar Stork og stjórnenda um framtíð félagsins eftir að fjárfestingafélagið Candover sagðist ætla að leggja fram yfirtökutilboð í félagið. Tilboðið hljóðar upp á 1,5 milljarða evrur, jafnvirði 125,5 milljarða íslenskra króna. Fáir hluthafar eru sagðir styðja tilboðið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rækjuvinnsla hefst aftur í Bolungarvík

Þann 9. júlí næstkomandi mun Bakkavík hf. hefja rækjuvinnslu að nýju í Bolungarvík. 48 starfsmönnum rækjuvinnslunar var sagt upp í lok apríl. Bakkavík hefur nú keypt 500 tonn af frosinni rækju frá Færeyjum og Kanada.

Innlent
Fréttamynd

Þróuðu aðferð til erfðagreiningar á þorski

Prokaria hefur tekist að þróa aðferð til erfðagreiningar á þorski og fleiri fisktegundum. Aðferðina á að nota við upprunagreiningu eða vegna hugsanlegra vörusvika. Einnig er hægt að nota aðferðina á lax og rekja ferðir hans allt frá Atlantshafinu til árinnar þar sem hann klaktist út.

Innlent
Fréttamynd

Sex ára drengur á batavegi

Sex ára drengur, sem fannst meðvitundarlaus á botni sundlaugar Akureyrar á sjötta tímanum í gær, dvaldi á Fjórðungssjúkrahúsinu í nótt til eftirlits, en mun vera á góðum batavegi.

Innlent
Fréttamynd

Flóamenn sýndu fálæti

Flóamenn sýndu tillögum Landsvirkjunar um mótvægisaðgerðir vegna Urriðafossvirkjunar fálæti á fjölmennum borgarafundi í Flóahreppi í gærkvöldi. Hreppsnefnd Flóahrepps samþykkti í vor að mæla ekki með Urriðafossvirkjun á aðalskipulagi, vegna þess að ekki væri nægilegur ávinningur fyrir sveitarfélagið af henni.

Innlent
Fréttamynd

Heimamenn komast varla til eyja

Ekkert bólar enn á aukaferðum Herjólfs, á milli lands og Eyja, sem samgönguráðherra lofaði í vor að teknar yrðu upp á álags tímum. Gert var ráð fyrir 20 auka ferðum að næturlagi í sumar. Að sögn Elliða Vignissonar bæjarstjóra er nú svo komið að heimamenn eiga í erfiðleikum að komast fyrirvaralaust á milli lands og Eyja vegna mikilla bókana í skipið.

Innlent
Fréttamynd

Ökumaður undir áhrifum amfetamíns

Ökumaður, sem lögreglan á Blönduósi stöðvaði seint í gærkvöldi, reyndist vera undir áhrifum amfetamíns. Þá fannst kannabis á farþega hans og er hann grunaður um að hafa líka verið undir áhrifum, þannig að hvorugur gat ekið bílnum þegar þeim var sleppt að skýrslutöku lokinni.

Innlent
Fréttamynd

Bretar taka bréf í Eimskip

Hf. Eimskipafélag Íslands greiðir rúma 3,7 milljarða króna fyrir 45 prósenta hlut í Innovate Holdings með útgáfu nýs hlutafjár í félaginu. Alls er um að ræða um 83,1 milljón hluta að nafnverði á genginu 45. Á Eimskip Innovate að fullu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bylting í heyskap

Bændur á Suðurlandi eru sumir farnir að ráða verktaka í heyskapinn. Mikill sparnaður, segir bóndinn á Heiði í Biskupstungum.

Innlent
Fréttamynd

Sökkva Hagavatni

Sökkva ætti leirunum við Hagavatn til draga mjög úr moldroki eins og verið hefur í þurrkum á Suðurlandi aðundanförnu, að mati landverndarsérfræðings hjá Landgræslu ríkisins. Hann segir að rík þjóð eins og Íslendingar ætti að vera leiðandi í uppgræðslu á landi.

Innlent
Fréttamynd

Hjóna úr Kópavogi saknað

Lögreglan á Hvolsvelli er farin að svipast um eftir 54 ára hjónum úr Kópavogi en ekkert hefur heyrst frá þeim síðan klukkan eitt aðfararnótt laugardags. Þá voru þau við Þríhyrning, ofan Fljótshlíðar. Þau eru á gráum Kyron jepplingi, með númerið YV-774. Hjónin heita Mikkalína Mikaelsdóttir og Óskar Kristjánsson. Þeir sem kunna að hafa orðið fólksins varir, eru beðnir að láta lögregluna á Hvolsvelli vita hið fyrsta.

Innlent
Fréttamynd

Léleg laxveiði á Vesturlandi

Léleg laxveiði hefur verið í flestum ám á Vesturlandi og reyndar víða um land upp á síðkastið, enda óvenju lítið vatn í ánum vegna þurrka. Í Norðurá hafa til dæmis ekki veiðst nema 60 laxar frá opnun, fyrir 20 dögum síðan.

Innlent
Fréttamynd

Litháum sleppt að loknum yfirheyrslum

Sex Litháum, sem voru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á tveimur líkamsárásarmálum í heimahúsi í Bakkahverfi í Reykjavík í fyrrinótt, var sleppt í gærkvöldi að yfirheyrslum loknum. Málið virðist upplýst því öðrum kosti hefði lögregla væntanlega krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar.

Innlent
Fréttamynd

Tekinn tvisvar fyrir of hraðan akstur

Erlendur ferðamaður var mældur á rúmlega 140 kílómetra hraða í Ártúnsbrekku upp úr klukkan sex í morgun og skömmu síðar á 116 kílómetra hraða í Mosfellsbæ, þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar. Þar náðu lögreglumenn að stöðva hann og færa hann á lögreglustöðina í Reykjavík, þar sem háar sektir bíða hans.

Innlent
Fréttamynd

Gríðarleg umferð til höfuðborgarinnar í gær

Gríðarlegar bílalestir mynduðust á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi í átt til höfuðborgarsvæðisins undir kvöld í gær og fór ekki að draga úr umferð fyrr en á tíunda tímanum í gærkvöldi. Um tíma var samfelld bílalest frá Reykjavík alveg upp að Grundartanga og var gripið til þess ráðs að hleypa umferð á Hvalfjarðargöng í hollum svo vegfarendur þyrftu ekki að dvelja lengi í menguninni þar.

Innlent
Fréttamynd

Árangur næst gegn sjóræningjaskipum

Aðgerðir fiskveiðistjórnunarstofnana á Norður-Atlantshafi hafa skilað þeim árangri að engin svonefnd sjóræningjaskip hafa verið við karfaveiðar á Reykjaneshrygg, eins og undanfarin ár.

Innlent
Fréttamynd

Brenndist í Strokki

Erlendur ferðamaður brenndist á fótum þegar brennandi heitt vatn úr goshvernum Strokki á Geysissvæðinu skvettist á hann í gær. Samferðamenn hans lögðu af stað með hann áleiðist til Reykjavíkur, en stöðvuðu á leiðinni vegfaranda, sem gat komið hinum brennda í kælingu.

Innlent
Fréttamynd

Tutti Frutti í uppáhaldi hjá kvennalandsliðinu

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann glæstan sigur á Serbíu í gærkvöldi þegar stelpurnar okkar sögðust í fyrsta sinn hafa fundið íslensku þjóðina á bakvið sig. Íslenska liðið er í tuttugasta og fyrsta sæti á heimslista, en í gær var lagið Tutti frutti ein aðal vítamínsprauta stelpnanna fyrir leikinn.

Innlent
Fréttamynd

Breyta þarf ökunáminu

Þrjú ungmenni liggja stórslösuð á gjörgæslu Landspítalans eftir glæfralegan kappakstur tveggja bíla á Geirsgötu í nótt. Formaður Ökukennarafélags Íslands segir hæpna aðferðafræði í íslensku ökunámi og því þurfi að breyta.

Innlent
Fréttamynd

Rekstur Akureyrarbæjar á flugvellinum verður skoðaður

Samgönguráðherra segir að flugbrautin á Akureyrarflugvelli verði lengd við fyrsta tækifæri og skoðað verði hvort Akureyrarbær taki yfir rekstur flugvallarins óski bærinn eftir því. Kostnaður Flugstoða við reksturinn er áætlaður um tvö hundruð milljónir króna á þessu ári.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair ósammála niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála

Icelandair er ósammála niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála í dag en telur áfangasigur að sekt Samkeppniseftirlitsins frá 30. mars var lækkuð um 30%, í 130 milljónir króna. Úrskurður áfrýjunarnefndar byggir á öðrum forsendum en Samkeppniseftirlitið notaði, sem Icelandair telur alvarlegan áfellisdóm um ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, segir í tilkynningu frá félaginu.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnin mælir með tilboði Novator

Stjórn Actavis segir nýtt yfirtökutilboð Novator í félagið áhugavert fyrir hluthafa og mælir með því. Bandaríski fjárfestingabankinn JP Morgan gerði óháð mat á tilboðinu að beiðni stjórnarinnar og komst bankinn að þeirri niðurstöðu að nýtt tilboð Novator væri sanngjarnt og ráðlagði stjórninni aðmæla með því.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Novator hækkar boðið í Actavis

Novator eignarhaldsfélag ehf., félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur lagt fram nýtt og hærra yfirtökutilboð í Actavis. Tilboðið hljóðar upp á 1,07 evrur á hlut, jafnvirði 89,53 íslenskar krónur á hlut miðað við gengi evru í dag. Þetta er um 10 prósentum hærra yfirtökutilboð en Novator lagði fram í maí.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Össur vill Hafrannsóknarstofnun úr sjávarútvegsráðuneytinu

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra vill færa Hafrannsóknarstofnun undan sjávarútvegsráðuneytinu og láta annað ráðuneyti fara með yfirstjórn stofnunarinnar. Hann segir að sovéskt kerfi hafi orðið til í kringum Hafró þar sem þöggun hafi verið beitt með dæmalausum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Bakkavör kaupir kínverskt salat fyrirtæki

Bakkavör Group hefur keypt afganginn af hlutafé í kínverska salatfyrirtækinu Creative Foods í samstarfi við Glitni. Félagið keypti 40% hlut í félaginu í mars 2006 og stofnuðu þá nýtt félag, Bakkavör China, sem einbeitir sér að fjárfestingum í Kína.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rúmlega 9.200 lýst yfir stuðningi við Alfreð

Rúmlega 9.200 manns hafa nú skráð sig á undirskriftalista á Vísi þar sem Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handbolta, er hvattur til þess að halda áfram með landsliðið. Vefsíðan Áfram Alfreð var sett upp klukkan 19:00 á miðvikudagskvöldið var. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, sagði í samtali við Vísi að þetta væri fyrst og fremst stuðningsyfirlýsing við Alfreð og starf hans með landsliðið.

Innlent