Samherjaskjölin
1 2 3 4 5 6 7 8 … 17 ›
Sömdu söngleik um Samherja og slógu Íslandsmet í plötuútgáfu Þrír ungir tónlistarmenn hafa í sumar gefið út átta plötur yfir átta vikna tímabil sem þeir segja vera Íslandsmet í plötuútgáfu yfir jafnlangt tímabil. Meðal platnanna átta er Samherji: The Musical sem inniheldur meðal annars lögin Kvótakóng og Arðrán. Menning 29.7.2022 07:15
Töf Samherjamálsins valdi réttarspjöllum ofan á orðsporsáhættu Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, telur að töf á rannsókn Samherjamálsins geti valdið réttarspjöllum ofan á þá „orðsporsáhættu sem augljós er“. Hún segir embætti héraðssaksóknara og skattrannsóknarstjóra vanfjármögnuð og sakar fjármálaráðherra um að kæra sig kollóttan um fjárhagsskort embættanna. Innlent 19.6.2022 15:01
Undrun og vonbrigði innan OECD með framgang Samherjamálsins á Íslandi Drago Kos, yfirmaður vinnuhóps OECD gegn mútum, segir að það sé nánast vandræðalegt fyrir Ísland að yfirvöld í Namibíu dragi vagninn í rannsókn á Samherjamálinu. Hann tekur þó fram að hann vanmetur ekkert land. Hópurinn hefur fylgst með framvindu málsins og krefst nú svara frá yfirvöldum á Íslandi vegna afskipta lögreglu af blaðamönnum. Innlent 18.6.2022 20:00
Fundarhöld með namibískum rannsakendum og saksóknara Héraðssaksóknari hefur átt tvo fundi með þeim sem fara fyrir rannsókn og saksókn í Samherjamálinu í Namibíu. Varaforsætisráðherra Namibíu er stödd hér á landi ásamt sendinefnd til að ræða við íslensk stjórnvöld og rannsakendur. Héraðssaksóknari segir að það sé góður gangur á rannsókninni. Innlent 8.6.2022 12:16
Ekki vanhæfur þrátt fyrir „óviðeigandi“ ummæli Þrátt fyrir að tvenn ummæli staðgengils lögreglustjórans á Norðurlandi eystra í garð fjölmiðlafólks séu talin óheppileg og óviðeigandi er hann ekki vanhæfur til að fara með rannsókn á meintu broti gegn friðhelgi Páls Steingrímssonar skipstjóra. Innlent 9.5.2022 13:08
Þórður Snær segist ekki lengur geta setið undir óhróðri Páls Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans og Arnar Þór Ingólfsson ætla að stefna Páli Vilhjálmssyni bloggara og framhaldsskólakennara fyrir meiðyrði. Innlent 9.5.2022 12:24
Kröfu Þóru um vanhæfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra hafnað Kröfu Þóru Arnórsdóttur fréttamanns Ríkisútvarpsins um að embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra yrði úrskurðað vanhæft til að rannsaka meint brot blaðamanna á friðhelgi einkalífs skipstjórans Páls Steingrímssonar hefur verið hafnað. Innlent 26.4.2022 16:28
Aðalsteinn þarf að gefa skýrslu eftir frávísun í Hæstarétti Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, þarf að gefa skýrslu hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þetta er ljóst eftir að Hæstiréttur vísaði kæru Aðalsteins frá dómi í dag. Hæstiréttur taldi að Aðalsteinn hefði ekki heimild til að kæra frávísunarúrskurð Landsréttar til Hæstaréttar. Innlent 25.3.2022 14:43
Óeðlilegt að lögreglan hafi algjörlega frjálsar hendur í lýðræðisríki Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, furðar sig á því að Landsréttur hafi ekki tekið efnislega afstöðu í máli sínu gegn embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Innlent 16.3.2022 22:52
Landsréttur vísaði máli Aðalsteins frá og blaðamennirnir verða kallaðir til skýrslutöku Landsréttur vísaði í dag kæru Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Stundinni, gegn embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra frá héraðsdómi. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun lögreglu um taka skýrslu af Aðalsteini sem sakborningi hafi verið ólögmæt. Innlent 16.3.2022 19:16
Munu kæra ef lögreglan heldur yfirheyrslum til streitu Ritstjóri Kjarnans á ekki von á að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra muni halda til streitu yfirheyrslum á fjórum blaðamönnum eftir að héraðsdómur kvað upp úr um ólögmæti þess að einn þeirra yrði yfirheyrður með stöðu sakbornings. Hann segist munu kæra ef lögreglan geri slíkt. Innlent 1.3.2022 13:32
Saksóknari segir viðkvæma blaðamenn eiga heima í blómaskreytingum Lögregluembættið á Norðurlandi eystra var gripið í landhelgi þegar það gaf Aðalsteini Kjartanssyni blaðamanni réttarstöðu sakbornings og vildi yfirheyra hann sem slíkan. Héraðsdómur segir það ólögmætt. Lögregluembættið fyrir norðan ætlar að kæra úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 28.2.2022 15:28
Páleyju óheimilt að gera Aðalstein að sakborningi Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað í máli Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns á Stundinni en hann kærði þá ákvörðun lögreglunnar á Norðurlandi eystra að gera hann í sakborningi í máli sem snýr að eitrun og stuldi á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja. Niðurstaða dómarans er að Páleyju Borgþórsdóttur lögreglustjóra hafi verið það óheimilt. Innlent 28.2.2022 14:23
Blaðamenn segja greinargerðina einkennast af dylgjum og getgátum Ýmissa grasa kennir í greinargerð Eyþórs Þorbergssonar aðstoðarsaksóknara, þar sem afstaða Páleyjar Borgþórsdóttur lögreglustjóra og lögregluembættisins birtist til rannsóknar á hlut blaðamanna í sakamáli sem snýr að eitrun, símastuldi og svo dreifingu kynferðislegs efnis. Innlent 24.2.2022 22:41
Lögmaður Aðalsteins: Fjarstæðukennt að blaðamenn hafi gerst sekir um kynferðisbrot með því að skoða efni Tekist var á um meint brot blaðamanna í tengslum við umfjöllun um hina svokölluðu Skæruliðadeild Samherja í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Tíðindamaður Vísis var á vettvangi og færði til bókar það helsta. Saksóknari telur ljóst að blaðamennirnir hafi gerst sekir um stafrænt kynferðisbrot en lögmaður blaðamanns segir hann ekki hafa séð umrætt efni og kenningu lögreglu líkjast samsæriskenningu. Innlent 23.2.2022 23:00
Blaðamennirnir grunaðir um dreifingu á kynferðislegu efni Greinagerð Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra vegna rannsóknar á blaðamönnum vegna umfjöllunar um hina svokölluðu Skæruliðadeild Samherja var lögð fram fyrir dómi í dag en þar kemur fram að lögregla rannsaki kynferðisbrot gegn Páli Steingrímssyni, skipstjóra Samherja. Blaðamennirnir fjórir eru grunaðir um dreifingu á kynferðislegu efni og brot á friðhelgi. Innlent 23.2.2022 17:39
Meint brot blaðamanna tengjast ekki gögnum sem birtust í umfjöllun um Samherja Fyrirhuguð skýrslutaka lögreglustjórans á Norðurlandi eystra yfir fjórum blaðamönnum tengist ekki þeim gögnum sem voru birt í umfjöllun þeirra um hina svo kölluðu „skæruliðadeild“ Samherja. Blaðamennirnir eru grunaðir um brot gegn friðhelgi einkalífs vegna annarra gagna en þeirra sem notuð voru í viðkomandi umfjöllun. Innlent 23.2.2022 11:58
Forsætisráðherra brugðið yfir að blaðamennirnir hafi verið kallaðir til yfirheyrslu Forsætisráðherra segist hafa verið brugðið yfir fréttum af því að fjórir blaðamenn hefðu verið kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu með réttarstöðu sakborninga í tengslum við umfjallanir þeirra um Samherja. Hún treysti því að lögregla fari ekki af stað með slíka rannsókn nema ríkt tilefni sé til. Innlent 21.2.2022 17:34
Er lögreglan yfir gagnrýni hafin? Ég var einn af þeim fjölmörgu sem saman unnu að því að efla til mótmæla nú um helgina, bæði á Akureyri og í Reykjavík. Mótmælin, bæði sunnan og norðan heiða, fóru fram á friðsælan hátt. Þess vegna þykir mér afskaplega skrýtið að vera einn af þeim sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra sakar um að vega að störfum lögreglu. Skoðun 21.2.2022 12:01
Viðbrögð fjölmiðla þegar blaðamenn eru til rannsóknar Fjórir blaðamenn hafa nú stöðu sakborninga, grunaðir um brot gegn friðhelgi einkalífs. Þetta er mjög sérstakt. Venjulega höfða þeir einkamál sem telja blaðamenn hafa brotið gegn sér og almennt er erfitt að fá lögreglu til að rannsaka brot gegn friðhelgi einkalífs nema húsbrot, þjófnaður eða ofbeldi komi við sögu. Skoðun 21.2.2022 11:30
Mikilvægt að fjölmiðlar geti tekið við upplýsingum í trúnaði Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, og Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, segja mikilvægt að fjölmiðlar geti tekið við upplýsingum í trúnaði og án þess að þurfa að gera grein fyrir uppruna þeirra. Innlent 20.2.2022 16:52
Brynjar þráspurði Jón Trausta um hvort Stundin væri með gögnin úr síma Páls Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, þráspurði Jón Trausta Reynisson, framkvæmdastjóra Stundarinnar um hvort að fjölmiðlinn hefði gögn úr síma Páls Steingrímssonar undir höndum. Brynjar telur að blaðamennirnir fjórir sem hafa réttarstöðu grunaðra væru ekki með slíka réttarstöðu ef málið snerist eingöngu um nýtingu blaðamanna á gögnum. Innlent 20.2.2022 13:21
Yfirheyrslum allra blaðamannanna frestað Yfirheyrslum yfir blaðamönnum Kjarnans, Stundarinnar og RÚV vegna meintra brota á lögum um friðhelgi einkalífs hefur verið frestað. Lögreglan á Norðurlandi eystra boðaði fjóra blaðmenn til yfirheyrslu vegna fréttaflutnings um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. Fréttir 19.2.2022 18:44
Yfirheyrslu Aðalsteins frestað Yfirheyrslu yfir Aðalsteini Kjartanssyni, blaðamanni Stundarinnar, hefur verið frestað. Hann er einn þeirra sem lögreglustjórinn á Norðurlandi hefur veitt stöðu sakbornings í tengslum við rannsókn sem snýr að umfjöllun þeirra um um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. Innlent 19.2.2022 15:22
Óskar eftir úrskurði um lögmæti aðgerða lögreglustjóra Lögmaður Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Stundinni og eins þeirra sem lögreglustjórinn á Norðurlandi hefur veitt réttarstöðu sakbornings vegna umfjöllunar um „skæruliðadeild“ Samherja, hefur afhent Héraðsdómi Norðurlands eystra kæru þar sem farið er fram á úrskurð um lögmæti aðgerða lögreglustjórans. Innlent 18.2.2022 19:28
Boðað til mótmæla vegna yfirheyrsla á blaðamönnum Ungliðahreyfingar Pírata, Samfylkingar, Sósíalista, Viðreisnar og Vinstri grænna hafa boðað til mótmæla á Austurvelli á morgun. Innlent 18.2.2022 11:13
Nú hafa þau gengið of langt Okkar þjóð stendur á háskalegum tímum. Við erum á hraðri leið í átt að því að verða land þar sem raddir auðmanna stýra öllu á kostnað almennings. Skoðun 18.2.2022 08:01
Þurfi að þola að lögreglan rannsaki mál þar sem grunur sé um lögbrot Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gefur lítið fyrir viðbrögð stéttarfélaga blaðamanna við fyrri ummælum hans. Hann segir enn margt óljóst í máli fjögurra blaðamanna sem hafi verið boðaðir til yfirheyrslu í tengslum við umfjöllun um svokallaða skæruliðadeild Samherja. Innlent 17.2.2022 19:20
Skilur að marga svíði vegna óréttlætis en kallar eftir hófsemi Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, segir undanfarna daga hafa verið honum og hans fólki mjög erfiðir. Hann hefur fulla trú á því að rannsókn lögreglu á hvarfi síma hans muni leiða hið sanna í ljós. Hann gefur í skyn að málið sé viðkvæmt en fólk muni skilja hvers vegna hann vilji ekki ræða málið efnislega þegar upplýst verði opinberlega um málið. Innlent 17.2.2022 10:27
Svör við spurningum Bjarna að finna í löggjöfinni Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamannahvetja valdhafa til að standa vörð um frjálsa fjölmiðlun á Íslandi frekar en að freistast til að ráðast gegn henni. Innlent 16.2.2022 20:01