Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
134 135 136 137 138 139 140 141 142 … 334 ›
Grænlendingar afnema fjöldatakmarkanir Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á Grænlandi í gær þar sem gripið er til töluverðra afléttinga. Erlent 20.4.2021 08:01
Smit á Nýja-Sjálandi en áfram opið fyrir ferðalög til Ástralíu Starfsmaður á flugvellinum í Auckland á Nýja Sjálandi hefur verið greindur með kórónuveiruna, aðeins einum sólahring eftir að opnað var fyrir ferðalög á milli Nýja Sjálands og Ástralíu. Erlent 20.4.2021 08:00
Heimsfaraldurinn hefur valdið mikilli aukningu í útblæstri Ein af afleiðingum alheimsfaraldurs kórónuveirunnar er mikil aukning í útblæstri koltvísýrings. Þetta segir talsmaður Alþjóða orkumálastofnunarinnar í samtali við breska blaðið The Guardian. Erlent 20.4.2021 07:04
Allir starfsmenn leikskóla á Selfossi í sóttkví og skólinn lokaður á morgun Allir starfsmenn leikskólans Álfheima á Selfossi hafa verið sendir í sóttkví og verður leikskólinn lokaður að minnsta kosti út morgundaginn eftir að starfsmaður greindist smitaður. Þetta staðfestir Jóhanna Þórhallsdóttir, leikskólastjóri Álfheima, í samtali við Vísi. Innlent 19.4.2021 21:59
Óbólusett í áhættuhóp en neyðist til að mæta í próf: „Eins og maður sé einn í liði á móti heiminum“ Helga Margrét Agnarsdóttir, laganemi á þriðja ári við Háskóla Íslands, segir mikið stress og óánægju ríkja meðal laganema vegna komandi lokaprófa sem að óbreyttu stendur til að fari fram í háskólanum. Sjálf er Helga Margrét í áhættuhópi og hefur síðastliðið ár ekki hitt marga úr fjölskyldu sinni og nánustu vini. Hún kvíðir því að þurfa að mæta í skólann til að taka próf og kallar eftir því að deildin taki ákvörðun um að bjóða upp á heimapróf í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu sökum kórónuveirufaraldursins. Innlent 19.4.2021 21:01
Alls smituðust um 2700 af franska afbrigðinu sem rakið er til ferðamanns Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa rakið upphaf þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins til erlends ferðamanns sem kom til landsins í ágúst og virti ekki sóttkví. 2700 smit eru rakin til ferðamannsins. Innlent 19.4.2021 19:28
Sjö brot gegn sóttkví og einangrun: Grunur um að sá sem kom af stað hópsmiti hafi virt einangrun að vettugi Grunur leikur á að sá sem kom af stað hópsmiti á leikskólanum Jörfa í Reykjavík hafi bæði brotið gegn skyldu um sóttkví og einangrun með þeim afleiðingum að yfir hundrað fjölskyldur eru komnar í sóttkví. Sjö brot gegn sóttkví og einangrun hafa verið skráð frá áramótum. Innlent 19.4.2021 18:28
Segir hvorki samstöðu í ríkisstjórn né velferðarnefnd um sóttvarnahús Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, skorar á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að leggja fram bráðabirgðarlagaákvæði sem tryggir tillögum sóttvarnalæknis lagastoð. Það sé nauðsynlegt til að verja líf og samfélag landsmanna. Innlent 19.4.2021 17:45
Leggjast gegn bólusetningarvottorði til ferðalaga Sérfræðinganefnd Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) leggst gegn því að ríki gerir sönnun fyrir því að fólk hafi verið bólusett gegn kórónuveirunni að forsendu fyrir því að það fái að ferðast á milli landa. Slíkt fyrirkomulag er talið auka á ójöfnuð og skapa nýjan ójöfnuð í ferðafrelsi í fólks. Erlent 19.4.2021 16:46
Sjaldan tekið jafn mikið af sýnum og í dag Um þrjú þúsund sýni voru tekin hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í dag og myndaðist á tímabili löng röð fyrir utan húsnæði heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut sem teygði sig upp í Ármúla. Innlent 19.4.2021 16:41
Leggja fram frumvarp sem heimilar skyldudvöl í sóttvarnahúsi Í ljósi þess að tvær hópsýkingar geisa nú innanlands hefur þingflokkur Samfylkingarinnar ákveðið að leggja fram, við fyrsta tækifæri, frumvarp um breytingar á sóttvarnalögum sem heimilar ráðherra að skylda komufarþega til dvalar í sóttvarnarhúsi. Innlent 19.4.2021 14:47
Sektaðir um 250 þúsund krónur í september en ekki borgað Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til að hækka sektir vegna brota á sóttkví. Sektarheimildir séu þegar ríflegar miðað við sektir almennt hér á landi. Innlent 19.4.2021 14:19
Útgöngubann í Nýju-Delí framlengt um viku Milljónum íbúa Nýju-Delí á Indlandi er gert að halda sig heima við í viku til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar sem breiðist nú um landið eins og eldur í sinu. Allar verslanir og verksmiðjur þurfa jafnframt að hætta starfsemi fyrir utan þær sem veita nauðsynlega þjónustu eins og matvöruverslanir. Erlent 19.4.2021 13:52
Bein útsending: Varið land - hvað höfum við lært um Covid-19? „Varið land - hvað höfum við lært um Covid-19?“ er yfirskrift fræðslufundar Íslenskrar erfðagreiningar sem fram fer í dag. Fundurinn hefst klukkan 14 og verður hægt að fylgjast með honum í spilara að neðan. Innlent 19.4.2021 13:31
Sex þjálfarar hjá Víkingi komnir í sóttkví Sex þjálfarar hjá Knattspyrnufélaginu Víkingi eru komnir í sóttkví, þar af tveir vegna beinna tengsla við einstakling af leikskólanum Jörfa þar sem upp kom hópsmit. Innlent 19.4.2021 13:02
Gripu strax til aðgerða en fengu litlar upplýsingar Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hvetur fólk til þess að dæma ekki alla vegna hegðunar fárra, jafnvel þótt sú hegðun hafi alvarlegar afleiðingar. 44 greindust með Covid-19 og má rekja smitin til aðila sem kom hingað til lands og sinnti ekki sóttkví. Innlent 19.4.2021 12:15
Leikskólakennarar muni sennilega ganga fyrir í bólusetningu Skýr vilji er meðal skólastjórnenda til að forgangsraða starfsmönnum leikskóla þegar kemur að bólusetningu skólastarfsmanna. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir en nokkur umræða hefur spunnist um forgangsröðun bólusetninga við Covid-19 eftir að greint var frá hópsýkingu á leikskólanum Jörfa um helgina. Innlent 19.4.2021 11:37
Ekki tekist að byggja brú til pólska samfélagsins Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir stöðuna í samfélaginu þegar kemur að fjölda kórónuveirusmita nú vera ógnvænlega. Innlent 19.4.2021 11:29
Milljónir sjá fram á matarskort næstu mánuði Hækkandi matvælaverð, stríðsátök og afleiðinga heimsfaraldurs valda matarskorti. Heimsmarkmiðin 19.4.2021 11:24
Hyggjast ráðast í víðtækar skimanir Ráðast á í víðtækar skimanir í tengslum við þau hópsmit sem upp eru komin í samfélaginu og sömuleiðis handahófskenndar skimanir til að freista þess að meta útbreiðsluna almennt. Innlent 19.4.2021 11:22
Þrettán í sóttkví vegna smits í Krónunni: „Það fór strax allt í gang hjá okkur“ Innlent 19.4.2021 10:59
27 greindust innanlands 27 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 25 þeirra sem greindust voru í sóttkví, en tveir greindust utan sóttkvíar. Innlent 19.4.2021 10:50
Starfsmenn Krónunnar í Austurveri í sóttkví eftir smit Starfsmaður sem er í hlutastarfi hjá Krónunni í Austurveri hefur greinst með kórónuveiruna. Allir starfsmenn verslunarinnar sem voru í samskiptum við starfsmanninn hafa verið sendir í sóttkví í samráði við sóttvarnarlækni og rakningateymi almannavarna. Innlent 19.4.2021 10:24
„Þetta er mjög alvarleg staða og ég næ ekki utan um þetta“ Leikskólastjóri á Jörfa í Hæðargarði í Reykjavík segir stöðuna mjög alvarlega. Fimm starfsmenn og sex börn á Jörfa greindust smituð af Covid-19 í gær. Bergljót er þeirra á meðal og er komin í rúmið. Innlent 19.4.2021 09:13
Svona var aukaupplýsingafundurinn Almannavarnir og Embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 11 vegna fjölda sem greindist smitaður með Covid-19 um helgina. Þetta staðfestir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi almannavarna, við Vísi. Innlent 19.4.2021 08:59
„Þetta var leiðindahelgi“ „Þetta var leiðindahelgi. Ég verð að segja það.“ Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni í morgun. Innlent 19.4.2021 08:30
Fleiri en tuttugu greindust með Covid-19 í gær Fleiri en 20 Covid-19 smit greindust í gær, að sögn Runólfs Pálssonar yfirlæknis Covid-19 göngudeildar Landspítalans. Hann greindi frá þessu í Morgunútvarpi Rásar 2. Innlent 19.4.2021 08:24
Helmingur fengið bóluefni en dregur úr aðsókn Bandarísk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því um helgina að helmingur Bandaríkjamanna eldri en 18 ára hefði fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn Covid-19. Erlent 19.4.2021 07:33
Veiran mallað í samfélaginu: Sá sem braut sóttkví kom til landsins fyrir rúmum tveimur vikum Kórónuveirusmit sem greindist á leikskólanum Jörfa á föstudagskvöld má rekja til sóttkvíarbrots á landamærum um mánaðamótin. Yfirlögregluþjónn segir að flestir sem brjóti sóttkví séu búsettir á Íslandi en með erlent ríkisfang. Þrettán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, átta utan sóttkvíar. Innlent 18.4.2021 19:31
Helmingur fullorðinna í Bandaríkjunum fengið fyrri skammt Yfirvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í dag að helmingur allra yfir átján ára aldri í landinu hefðu nú fengið fyrri skammt af bóluefni gegn kórónuveirunni, eða tæplega 130 milljónir einstaklinga. 84 milljónir fullorðinna hafa verið bólusettar að fullu. Erlent 18.4.2021 18:39