
Kynþáttafordómar

Brasilía mætir Spáni í vináttuleik til að berjast gegn rasisma í garð Vinícius
Brasilía og Spánn munu mætast í vináttulandsleik í mars á næsta ári þar sem markmiðið verður að berjast gegn kynþáttafordómum sem Vinícius Júnior, leikmaður Real Madrid og brasilíska landsliðsins, hefur þurft að þola á Spáni.

Refsing Valencia fyrir kynþáttaníð í garð Vinícius milduð
Eftir áfrýjun hefur refsing spænska úrvalsdeildarfélagsins Valencia fyrir kynþáttaníði í garð Vinícius Júnior verið milduð.

Pink Floyd stjarna til rannsóknar vegna búnings
Lögreglan í Þýskalandi hefur opnað sakamálarannsókn á breska tónlistarmanninum Roger Waters, fyrrverandi meðlim hljómsveitarinnar Pink Floyd. Er honum gefið að sök að hafa klæðst búning á sviði sem minnir á einkennisbúning nasista.

La Liga gæti útrýmt kynþáttaníð ef deildin hefði næg völd til þess
Javier Tebas, forseti spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, La Liga, segir að deildin gæti fækkað atvikum þar sem leikmenn deildarinnar verða fyrir kynþáttaníð umtalsvert á næstu mánuðum ef hún hefði réttu tólin til þess.

Valencia þarf að vera með tóma stúku í fimm leikjum
Spænska knattspyrnusambandið hefur brugðist hart við þeirri meðferð sem brasilíski framherjinn Vinicius Junior fékk frá stuðningsmönnum Valencia á dögunum.

Sjö handteknir grunaðir um kynþáttaníð í garð Vinícius Júnior
Spænska lögreglan hefur handtekið sjö einstaklinga vegna gruns um að hafa beitt brasilíska knattspyrnumanninn Vinicius Junior, leikmann Real Madrid, kynþáttaníði.

Gyðingasamtök vilja lögbann á síðu sem hýst er á Íslandi
Samtök sem berjast gegn gyðingahatri í Bandaríkjunum krefjast þess að lögbann verði lagt á vefsíðu sem hýst er á Íslandi. Lögmaður samtakanna segir síðuna hafa vakið mikinn óhug í ljósi fjölgun skotárása á almenna borgara. Framkvæmdastjóri hýsingaraðila segir ekkert ólöglegt á ferðinni.

Forseti La Liga drullar yfir Vinícius Junior
Javier Tebas, forseti La Liga, hefur brugðist við ummælum Vinícius Junior, leikmanns Real Madrid, um að spænska úrvalsdeildin tilheyri núna rasistum.

„Spænska úrvalsdeildin tilheyrir rasistum“
Vinícius Júnior, leikmaður Real Madrid, segir að spænska úrvalsdeildin tilheyri rasistum eftir að hann varð fyrir kynþáttaníði í tapinu fyrir Valencia, 1-0, í gær.

Ólga á Spáni eftir óþverra gærkvöldsins: „Getur ekki haldið áfram svona“
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Real Madrid, var harðorður í garð stjórnenda spænsku úrvalsdeildarinnar eftir að Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid varð fyrir kynþáttaníð í leik með liðinu í gærkvöldi.

Kynþáttaníð setti ljótan blett á sigur Valencia á Real Madrid
Real Madrid mátti þola eins marks tap gegn Valencia á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Þriggja ára bann vegna kynþáttaníðs í garð leikmanna sinna
Rasistinn John Yems, fyrrverandi þjálfari enska knattspyrnuliðsins Crawley Town, hefur verið dæmdur í þriggja ára bann frá fótbolta vegna hegðunar sinnar er hann þjálfað Crawley. Upphaflega var bannið til 18 mánaða en hefur nú verið lengt.

Í sex leikja bann fyrir rasisma
Framherji New York Red Bulls í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir rasisma. Auk bannsins fékk Vanzeir sekt og þá þarf hann að sækja fræðslunámskeið.

Sænski landsliðsþjálfarinn segist ekki vera rasisti
Janne Andersson, þjálfari sænska landsliðsins, segir að hann hafi brugðist rangt við í viðtali við Viaplay eftir leikinn gegn Aserbaídsjan í undankeppni EM 2024. Þá þvertekur hann fyrir að hafa ætlað að beita sérfræðing Viaplay kynþáttaníði.

Hvernig höldum við samtalinu lifandi?
Við erum þrjár venjulegar konur sem eru íslenskir ríkisborgarar. Við erum í vinnu, ölum fjölskyldur og tökumst á við verkefnið dagsins. Við leggjum okkar af mörkum daglega til okkar nánasta umhverfis. Við erum líka innflytjendur sem höfum gert Ísland að heimili okkar, samanlagt í áratugi. Undanfarið höfum við hist til að deila reynslu okkar sem litað fólk (POC) á Íslandi í hlaðvarpi.

Fannst sárt að sjá fólk verja Íslensku óperuna
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir gagnrýnir uppsetningu Íslensku óperunnar á Madama Butterfly harðlega. Sýningin vakti mikið umtal í síðustu viku í kjölfar þess sem hópurinn var sakaður um menningarnám.

Féllust í faðma að loknum mótmælum
Mótmælum við Hörpu lauk í kvöld með faðmlögum eftir að óperustjóri Íslensku óperunnar ræddi við mótmælendur.

Mótmælendum bannað að mótmæla inni í Hörpu
Þeim mótmælendum, sem hyggjast mótmæla förðun á sýningu Íslensku óperunnar, hefur verið meinað að mótmæla inni í Hörpunni sjálfri. Mótmælin hefjast því fyrir utan Hörpuna klukkan 19.

Segir útskýringar óperustjóra hlægilegar
Maður af asískum uppruna segir notkun á svo kallaðri „yellow face“ förðun hjá Íslensku óperunni kynda undir fordóma og segir útskýringar óperustjóra frá því í gær hlægilegar. Þá hefur leikari lýst því yfir að hann muni ekki fara í gervið í næstu sýningu.

Verður ekki með hárkollu eða augnmálningu á næstu sýningu Madama Butterfly
Leikarinn Arnar Dan Kristjánsson, sem leikur í uppsetningu Íslensku óperunnar á Madama Butterfly, segist ekki ætla að vera með hárkollu eða augnmálningu á næstu sýningu verksins á laugardaginn - hárkollu og augnmálningu sem séu til þess fallin að líkja eftir kynþætti. „Aldrei aftur“.

Óperustjóri hafnar ásökunum um rasisma
Óperustjóri hafnar með öllu ásökunum um rasisma vegna leikgerva í sýningunni Madame Butterfly. Hár og búningar séu notaðir til að fanga tíðaranda þessa klassíska verks.

Saka Íslensku óperuna um rasisma
Fólk af asískum uppruna búsett á Íslandi hefur undanfarna daga gagnrýnt uppsetningu Íslensku óperunnar á Madama Butterfly. Leikarar og söngvarar verksins eru flestir hvítir og frá Íslandi en í uppsetningunni eru þeir farðaðir svo þeir líti út fyrir að vera asískir.

Racial Stereotypes in the Icelandic Opera
The state-funded Icelandic Opera has staged a production of “Madama Butterfly” from March 4- March 26. Written and composed by Puccini in 1904, this work centers around the relationship between a white US Naval officer and a 15-year old Japanese girl that he impregnates.

Stuðningsmaður Chelsea fær þriggja ára bann fyrir kynþáttaníð í garð Son
Thomas Burchell, stuðningsmaður Chelsea, hefur verið dæmdur í þriggja ára bann frá öllum knattspyrnuleikjum á Englandi eftir að hafa beitt Son Heung-Min, leikmann Tottenham Hotspur, kynþáttaníði í leik liðanna þann 14. ágúst síðastliðinn.

Mancini gagnrýndur fyrir að verja börn með kolgrímu
Roberto Mancini, landsliðsþjálfari Ítalíu, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að verja börn sem þóttust vera framherjinn Victor Osimhen með því að lita andlit sitt svart, og vera þannig með kolgrímu [e. blackface].

Kynþáttaníð í garð Vinicuis Jr. sé vandamál fyrir spænskan fótbolta í heild
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri spænska stórveldisins Real Madrid, segir að sú kynþáttaníð sem framherjinn Vinicius Jr. hefur mátt þola á tímabilinu sé ekki bara vandamál fyrir Real Madrid og leikmanninn, heldur spænskan fótbolta í heild sinni.

Og hvað svo?
Hann var ábúðarfullur embættismaður Reykjavíkurborgar sem var í beinni útsendingu í Kastljósinu þann 13. okt síðastliðinn. „Ég er bara miður mín“ voru hans fyrstu viðbrögð eftir að hafa horft á tvö innslög um kynþáttafordóma í skólum á Ísland.

Fimm til viðbótar reknir vegna dauða Nichols
Tveimur lögreglumönnum, til viðbótar við þá fimm sem hafa þegar verið reknir, hefur verið sagt upp vegna dauða Tyre Nichols í Memphis í Bandaríkjunum. Þá hafa þrír sjúkraflutningamenn verið reknir fyrir að hafa ekki brugðist rétt við.

Átján mánaða bann fyrir rasisma í garð eigin leikmanna
John Yems, fyrrverandi þjálfari Crawley Town í ensku D-deildinni, hefur verið dæmdur í átján mánaða bann frá fótbolta fyrir rasisma í garð eigin leikmanna.

„Við getum talað um misskilning þegar þetta gerist bara einu sinni“
Stjórnarkona í Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi telur augljóst að Fjölskylduhjálp á Reykjanesi hafi mismunað fólki og segir framkomu þeirra bæði ólöglega og viðbjóðslega. Samtökin krefjast þess að stjórn Fjölskylduhjálpar segi af sér og aðrir með manneskjulegri nálgun taki við.